Verkamaðurinn - 22.09.1928, Side 1
XI. árg. •
Útgefandi: VerKlýðssamband Noröurlands.
► ♦♦ ♦ • •• •• •- •-• • ♦^^
Akureyri, Laugardaginn 22. September 1928.
76. tbl.
- ♦ «- « • • • • • • • -•
Verður kosið sirax?
Eins og kunnugt er, hafa nú
með stuttu millibili losnað tvö
sæti í bæjarstjórn Akureyrar við
fráfall þeirra Sveins Sigurjóns-
sonar og Ragnars ólafssonar. Lög-
in mæla svo fyrir, að þegar sæti
losnar í bæjarstjórn, skuli kosið í
sætið fyrir þann tíma, sem eftir
er af kjörtímabili hins fráfarna.
Virðist því í fljótu bragði ekki um
annað að gei’a, en að kjósa nú
þegar tvo menn, og það á þann
hátt, að annar verði kosinn að-
eins til 'næstu áramóta, en hinn
til tveggja ár'a.
Hugur bæjarbúa mun yfirleitt
ekki hneigjast að því, að hefja nú
kosningahríð, þar sem reglulegar
bæjarstjórnarkosningar standa
fyrir dyrum um næstu áramót.
Mun óhætt að fullyrða, að al-
mennast sje þess óskað, að friður
megi haldast þangað til. Finst
mörgum helclur engin brýn þörf
á að skipa þessí sæti nú, þar sem
þau hafa í raun og veru staðið
auð undanfarið, annar bæjarfull-
truinn fjarverandi, fárveikur, en
hínn heilsulaus heima og óstarf-
hæfur, þó hann hafi getað setið
fundi einstöku sinnum. Að sjálf-
sögðu dugar ekki að ganga í beint
berhögg við lögin. En nú vill svo
einkennilega til, að við Akureyr-
arbúar getum ekki látið neina
bæjarstjórnarkosningu fara fram
löglega fyrst um sinn. Kemur það
til af því, að í lögum um kosning-
ar í málefnum sveita og kaup-
staða, er sett voru fyrir tveimur
árum, er svo fyrir mælt að kjósa
skuli helming bæjarstjórnarinnar
í einu til 6 ára, og fari því kosn-
ing ávalt fram á þriggja ára
fresti. Áður var það lög fyrir
Akureyrarbæ, að kjósa annað-
hvort ár þriðjung bæjarstjórnar.
Meðan verið er að koma þessari
breytingu á, verður ekki hjá því
komist, að kjósa suma fulltrúaiía
til styttri tíma en 6 ára, enda þótt
það sé þvert ofan í fyrirmæli lag-
anna. Þannig mun það hafa verið
í ráði, að í stað þeirra fjögurra
fulltrúa, sem úr eiga að ganga
um næstu áramót, yrðu kosnir
2 til tveggja ára og 2 til fjögurra.
Ef nú mætfi halda auðu við ára-
mót 5. sætinu, sem af tilviljun
losnar, þá væri hægt að kjósa
helming bæjarstjórnarinnar, til 6
ára, eins og lög standa til.
Á síðasta fundi bæjarstjórnar-
innar var mál þetta nokkuð rætt,
í sambándi við kosning kjör-^
stjórnar. Var samþ. tillaga frá
Erl. Fr. þess efnis, að skora á
kjörstjórniná að leita samþykkis
Stjórnarráðsins til þess að hin
auðu sæti mættu vera óskipuð til
áramóta, svo þá væri hægt að
kjósa lögum samkvæmt, eða í
öðru lagi, að kjós mætti hina
nýju fulltrúa báða í einu til ára-
rnóta, svo að sætin gætu þá orðið
laus 5.
Af óskiljanlegum ástæðum,
lögðust íhaldsfulltrúarnir á móti
þessari tillögu. Lítur út fyrir, að
þeir séu bráðsólgnir í að fá nú
þegar kosningahríð, og hyggi á
sigur mikinn, líklega að taka sæt-
in bæði, ef kósið verður í tvennu
lagi. Á yfirborðinu ljetu þeir í
veðri vaka, að laganna vegna væri
ekki önnur leið fær en þessi eina.
En einkennilegt er að halda því
fram, að það sje lögleysa að leita
Innilegt þakklæti vottum við öll-
um þeim, er sýndu okkur samúð
og hluttekningu á ýmsan hátt við
veikindi, andlát og jarðarför dóttur
okkar ög systur Agnesar Sigur-
geirsdóttur.
Foreldrar og systkini.
álits úrskurðarvalds um fram-
kvæmd laga, sem ómögulegt er að
fylgja bókstaflega, meðan verið er
að breyta eldri skipun í löglegt
horf. Og hvað er eðlilegra, en að
Stjórnarráðið kveði upp sinn dóm
um það, hvort lögbrotið er minna,
að kjósa eftirmann Ragnars Ólafs-
sonar aðeins til nokkurra mán-
aða, eða að kjósa 4 bæjarfulltrúa
í tvennu lagi, til ólöglegs tíma,
eins og stóð til að gera, og verður
að gera, ef bókstaf laganna verð-
úr nú fylgt út í ystu æsar.
Heilbrigðri skynsemi finst ó-
líku eðlilegra, að kjósa nú í einu
lagi, ef ekki verður komist hjá
kosningu, og síðan löglega um
næstu áramót, heldur en að kjósa
tvívegis klofinni kosningu með
stuttu millibili.
Væntanlega daufheyrist ekki
kjörstjórn við áskorun bæjar-
stjórnar, heldur ber þetta atriði
undir stjórnarráðið. Verður þá
bráðlega úr því skorið, hvort
kosning á fram að fara í haust,
og hvort kosið skuli í einu eða
tvennu lagi. S.
-------o-------
Með ^Dr. Alexandrine« fer Sveinbjörn
Oddsson prentari, alfarinn til Reykja-
víkur með fjölskyldu sína.