Verkamaðurinn - 30.03.1929, Síða 3
VERKAMAÐURINN
3
♦ « « «••••••«♦♦••« § » » «
-svo mun það hafa verið sumarið
1882, þegar hann lá þá hér lengst
við land. Forða þessum ætti svo
að eyða að vetrinum«.
Það er þessi leið sem frumvarp-
ið gerir ráð fyrir að farin verði,
til þess að tryggja landið gegn ís-
hættunni.
Þó ástandið væri slæmt á 17. og
19. öld, var það samt þjóðinni til
bjargar, að hún bjó þá að mestu í
sveitum landsins og hafíshættan
og siglingaleysið að vetrinum fór
saman; menn urðu því að búa sig
undir allan veturinn að haustinu
og draga að sér forða með tilliti
til þess að ekkert skip kæmi allan
veturinn. Nú er aftur bygt á
mánaðarlegum ferðum til flestra
hafna á landinu yfir háveturinn
og innflutningur miðaður við það,
þó slíkar siglingar geti stöðvast
svo mánuðum skiftir með einum
stórhríðarbil, sem færir okkur
hafísinn upp í landssteina.
Kaupstaðarbúarnir eru verst
stæðir ef slíkt kemur fyrir. Sá,
sem ekki þarf nema í næsta hús
til að kaupa nauðsynjar sínar,
kaupir oftast til dagsins eða í
hæsta lagi til vikunnar. Þegar svo
að verslanirnar eru orðnar tómar,
er sulturinn um leið kominn inn á
flest heimili í kaupstöðum og sjá-
varþorpum, og verslanir, sem
byggja innkaup sín á tíðum
skipaferðum eru tæmdar um leið
og siglingateppa verður. Því er
ekki ósjaldan varpað fram að
veðráttan sé orðin betri nú en
hún var fyrr á öldum og nú komi
hafísinn ekki oftar til þess að
kvelja úr okkur lífið, en það hafa
komið góð ár fyrri en nú. Árið
1340 var svo góður vetur fyrir
sunnan land, að menn mundu
trauðla þvílíkan. Fundust egg
nndan fuglum í Flóa nær mið
'Góu og oftlega síðar, segir í fsl.
annálum. Eftir jól 1624 var vetur
sv0 góður, að sóleyjargras var
sprottið í Skagafirði í síðustu
yiku vetrar; þá höfðu fuglar orp-
eRgjum.
Þó við dáumst nú að veðrátt-
unni á degi hverjum, þá hefir
ekki heyrst, að fuglar hafi orpið
eggjum á þessum vetri í Flóa
austur, og ísaárin á 17. og 18. öld
komu eftir þetta mikla góðæri,
sem hér hefir verið talað um, svo
enn hefir ekki veðráttan gefið til
kynna, að allri íshættu sé lokið.
Þ. Thoroddsen segir í »Lýsing
ísl.«: »Engin náttúrufyrirbrigði
hafa haft jafn mikil áhrif á ár-
ferði íslands eins og ha^ísinn. fs-
inn kemur eins og þjófur á nóttu,
nærri alveg reglulaust, því verða
íslendingar jafnan að vera við
honum búnir. Ekki hafa menn
neina hugmynd um orsakir ísára,
en þau koma oft hvert á eftir
öðru«.
Það hafa ýmsir mætir menn
lagt góð ráð til bjargar þjóðinni
ef harðæri bæri að höndum, en
lítið hefir verið farið að ráðum
þeirra manna.
Torfi Bjarnason í ólafsdal
hugsaði sér, að ef 160 hreppar
landsins hefðu lagt 100 krónur á
ári hver í hallærissjóð og byrjað
á því árið 1841 þá hefði sá sjóður
verið orðinn eftir 40 ár, með vöxt-
um og vaxtavöxtum rúmar 3 milj-
ónir (Búnaðarritið 1912). Ef
þjóðin hefði átt þetta í hallæris-
sjóði árið 1881 þá hefði verið
næstum gaman að lifa síðustu
harðindi, sagði gamli maðurinn.
En það hafa fleiri en Torfi í
ólafsdal hugsað sér sjóði, til þess
að mæta harðindunum þegar þau
berðu að dyrum hjá okkur.
Snemma á 18. öld var maður
uppi í Svarfaðardal í Eyjafjarð-
arsýslu, Jón Sigurðsson að nafni,
sem gefið hefir sýslunni og Akur-
eyrarkaupstað mikla fjárupphæð,
sem á að verja til að afstýra hall-
æri í sýslunni og bænum. Sjóður
þessi mun nú vera orðinn um 100
þús. kr. í jörðum og verðbréfum.
Ef hver sýsla landsins hefði átt
einn slíkan mann, sem þennan Jón
Sigurðsson, væri öðruvísi um að
litast í landinu en nú er. En í alla
staði er það óeðlilegt, að slík verk
sem þetta sé einstaklingsverk. Að
slíku máli sem þessu eiga allir að
vinna, hvert mannsbarn í landinu
á að vinna að því að tryggja sig
•og eftirkomendurna fyrir hættu
þeirri, sem þjóðinni stafar af
komu hafíssins. Hættu, sem verð-
ur eftir því stærri og meiri, sem
fólkinu fjölgar meira í kauptún-
um og sjávarþorpum norðanlands
og meir er bygt á skipagöngur að
vetrinum til.
------o-----
Niðurjöfnunarskráin
er nú lögð fram, almenningi tii
sýnis. Til fróðleiks eru hér birt
nöfn þeirra gjaldenda, sem bera
200 kr. útsvar og þar yfir:
10000 krónur:
Kaupfélag Eyfirðinga.
9000 krónur:
Höepfnersverslun.
8500 krónur:
Ing-var Guðjónsson.
8000 krónur.
Ragnar ólafsson db.
6500 krónur:
Sigvaldi Þorsteinsson.
4500 krónur:
Smjörlíkisgerðin.
3500 krónur:
Klæðaverksmiðjan Gefjunn.
3000 krónur:
Malmquist Einarsson, B. Ryel-
2400 krónur:
Brauns-verslun.
2200 krónur:
Brynjólfsson & Kvaran.
2000 krónur:
Einar Stefánss., Gudm. Efterfl.
1800 krónur:
Steindór Hjaltalín, Nathan &
Olsen, O. C. Thorarensen yngri.
1600 krónur:
Guðmundur Pétursson, J.,C. F.
Arnesen, Vilhjálmur Þór.
1400 krónur:
Kristján Árnason, Kristj. Jóns-
son, Axel Schiöth, Steingrímur
Matthíasson.
1250 krónur: