Verkamaðurinn

Útgáva

Verkamaðurinn - 03.08.1929, Síða 4

Verkamaðurinn - 03.08.1929, Síða 4
4 VERKAMAÐURINN Orænátu varð vart í aíld, sem m.s. »Vé- björn< veiddi hér úti i firðinum og lagði upp hjá Söltunarfélagi verkaiýðsins í gær. Má búast við að sá ófögnuður geri síld- arverkendum lífið leitt í sumar, fyrst hann gerir vart við sig svona snemma. Er ekki um annað að tala en magadraga alla síld, sem grunuð er um að vera með þá tegund átu í maganum. Síldarsöltun var hafin í fyrradag, eins og til stóð. Barst einkum mikið af síld á land þann dag. Á Siglufirði var búið að salta 9000 tunnur á hádegi i gær. Á sama tima var búið að salta hér á Akureyri 2000 tunnur og annað eins á stöðvunum hér út með firðinum. í gærkvöldi barst minna að, vegna stormsins, en þó mun hafa komið eitthvað á flestar stöðvar. Af vangá hafði ekki verið breytt trni dagsetningu og tölu á síðasta blaði, frá því sem var á blaðinu á undan, á nokkru af upplaginu. Stendur því 61. tbl. á þvðí í staðinn fyrir 62. tbl. Blað- ið í dag verður því 63, eins og til stendur. Giftingar: Ungfrú Jónasína Hallgríms- dóttir og Árni Þorvaldsson kennari, ungfrú Sigurjóna Pálsdóttir og Jóhann Frímann iðnskólastjóri. Óvenju mörg hús eru bygð hér i bæn- um í sumar. Flest eru það tveggja og þriggja íbúðahús. Umsóknir um bygg- ingaleyfi drífa til bygginganefndar, svo útlit er fyrir að byggingahugurinn fari ekki minkandi. Útveggimir að bíó- húsinu eru þegar gerðir. Verið er að steypa I. hæð bamaskólahússins ofan á kjallara. »Nova« fór út frá Reykjavík, beina leið til Bergen. Treystist ekki að taka áæltunarferðina norður fyrir land. Söfnun atvinnuleysisskýrslna átti að fara fram 1. þ. m. Bæjarstjórinn biður þess getið að síðasti dagurinn, sem tek- ið sé á móti skýrslum, sé Mánudagurinn n. k. Gefa á skýrslu um atvinnuleysis- daga frá 1 Maí sJ. til 1. Ágúst, og af hvaða ástæðum. þjyja Blikksmiðjan. Vesturgötu 20. Sími 1672. Reykjavík. Eigendur: Haraldur Andrésson & Einar Pálsson. Húsasmiðir! Útgerðarmenn! Við smíðum alt, er að blikksmíði lýtur, svo sem: Pakglugga, þakrennur með tilheyrandi, kjöl og sökkuljárn o. fl. Til skipa: Olíutankar, allskonar ljósker, loftventlar, reykrör, síldarpönnur o. fl. Áherzla lögð á vandaða vinnu og lágt verð. Pantanir afgreiddar fljótt og sendar hvert á land sem óskað er. í gær snjóaði ofan undir bæi hér nærlendis. Frétt að sunnan hermir að undirbún- ingsnefnd hátíðahaldanna á Þingvöll- um næsta sumar hafi samið við Har- ald Björnsson leikara að koma upp og æfa 40—50 manna leikflokk, er á að sýna þann þátt úr fornsögunum er Hrafn Hængsson tók við lögsögu. Verða allir í flokknum í fornbúningum og annar útbúnaður allur í svo fomum stíl, sem unt er. Hvílir mikill vandi á Haraldi um að vel takist að leiða þessa fornmynd fram. á sjónarsviðið, svo á- ’nægja verði að og sómi fyrir hann og þjóðina í heild. Frú Júlíana Friðriksdóttir dvelur hér í bænum í sumar. Kom hún að sunnan strax eftir heimkomu þeirra hjónanna frá Kaupmannahöfn, en þau komu al- flutt til Reykjavíkur með varðskipinu »Ægir«. -------o------ Verslunin í Strandgstu 23. Hjólhestar, — vandaðir og ódýrir -— verð 98 kr. komu með Goðafoss. (Skift á gömlum og nýjum hjólum með milligjöf). Nýkomin allskonar hljóðfæri, festar, skartgripir og leikföng. Ennfremur margskonar nærföt, ódýr og góð, og margt fleira. Alþýðufólk! Verklýðsblöðin eru áhrifamestu vopn alþýðunnar i baráttunni fyrir bœttum lífskjörum. Þvf víðlesnari, sem verklýðsblðð- in eru, því meiri áhrif hafa þau, og þvf fyr nær alþýðan þvf takmarld sínu að verða áhrifamesta valdið f rfkinu. Nyti þeirra ekki við, myndi það kosta 10 ára baráttu aö ná því, sem nú vinst á einu ári. vön skriftum, óskar eftir at- j vinnu nú þegar, hálfan eða allan daginn. Sanngjarnt kaup. Afgr. vísar á. Kaupið og Lesið VERKAMANNINN. Ritstjórn: Stjórn Verklýðssambandsins Prentsmiðja Odds Bjömssonar.

x

Verkamaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.