Verkamaðurinn - 22.11.1930, Side 5
VERKAMAÐURINN
5
-• -• •-•-•-•-•-•H
Verkalýðurinn svarar.
Fjölmennur verklýðsfélagafundur á Sauðárkróki
mótmœlir skoðanakágun Framsóknarstjórnarinn-
ar og brottrekstri Ásgeirs Bl. Magnússonar úr
Mentaskóla Norðurlands.
»Fjölmennur sameiginlegur fundur í verklýðsfélögunum og F. U. J. á
Sauðárkróki mótmælir harðlega brottrekstri Ásgeirs Bl. Magnússonar úr
Mentaskóla Norðurlands.
1. Af þvi að engar sannanir eru fyrir, aðBþessi nemandi hafi vanrækt
nám sitt.
2. Af þvi að ekki hefir heyrst um óhlýðni eða ókurteisi þessa nemanda
innan skóla.
Sé það rétt, að kenslumálaráðuneytið hafi sett þær reglur, að enginn
skólanemanna megi láta uppi sjálfstæða stjórnmálaskoðun opinberlega, á
meðan hann er i skóla, þá mótmæiir fundurinn slíkum skoðanaiangels-
unum, hvaða flokkur sem í hlut á.
Einnig telur fundurinn óhæfilegt, ef skólastjóri heldur einhliða pólitískar
ræður innan skóla, eins og heyrst hefir að hann hafi gert«.
Tveir greiddu þessu mótatkvæði.
Félag ungra jajnaðarmanna, Akureyri,
lýsir andúð sinni og fyrirlitningu á þrælalögum Mentaskóla Norðurlands og
mótmælir öllu þvi, sem gert er i þeirra nafni. Telur það lög þessi al-
gert brot á ákvæðum stjórnarskrár um ritfrelsi og mannréttindi og veit,
að lögum þessum er fyrst og fremst stefnt gegn íslenskri verklýðshreyf-
ingu. Á þar að reyna að ónýta þá krafta, er hún kynni að eiga i skólanum,
eða reka þá burtu ella. Lítur það svo á, að reglugerð þessi beri órækan
vott um byltingarótta og fasismahneigð hjartveikra smáborgara og sé al-
gerlega ósamboðin lýðfrjálsu landi. Skorar það á nemendur skólans að
ræða reglugerðina, alt um bann meistarans og gera tillögur í þessu efni.
Hinsvegar lýsir það megnri fyrirlitningu á öllum blekkingattilraunum og
bitlingum meistarans (fleiri dansplðtur, aukin leyfi, reykingarsalur, og lof-
orð um tilslökun síðar, ef nemendur verði þægir o. s. frv.). Telur það
þetta lúalega tilraun til að hylja það skarð, er höggvið er í frelsi og
sjálfstæði nemenda. Heitir það á nemendur að hrista af sér ok þrælsótt-
ans og vakna til virkra starfa.
0r bœ og bygð.
Kvöldskemtun st. »Akureyri« í Samkomu-
húsinu á Sunnudaginn var afar fjölsótt og
þótti hin besta frá upphafi til enda.
Nýja-Bíó sýnir nýja mynd annað kvöld
sem heitir »Frækinn fréttaritari«.
Á Sunnudaginn datt drengur niður um
ís á Pollinum. Náðist hann lifandi, en
orðinn mjög þrekaður,
Millisíldarvart hefir orðið undanfarna
daga en þó í mjög smáum slil. Fiskafli
er altaf góður hér i firðinum.
-..... 0----------
„Rjettur".
XV. árg., 3.-4. hefti.
Nýskeð er komið út 3. og 4.
hefti »Rjettar« af yfirstandandi
ári, og hafa þau margt og mikið
að geyma. En þó að þessi tvö
hefti hafi ekkert sérstætt að bjóða
frá því, sem verið hefir undanfar-
andi, heldur haldi hinni sömu
hreinu og ákveðnu stefnu og fyrri
árg. »Rjettar«, þá er óhjákvæmi-
legt að minnast þeirra sérstak-
lega.
»Rjettur« er bók fyrir alþýðu-
fólkið (öreigana), bók alls þess
fólks, sem lifir af launavinnu, sem
orsakar það, að það heyrir til
þeim hluta mannkynsins, sem er
arðrændur af yfirstétt og atvinnu-
i-ekendum, er ráða yfir atvinnu-
tækjunum og auðlindum hráefn-
anna. Hann er hvorutveggja í
einu málsvari og kennari allra
kúgaðra og undirokaðra, hvar
sem þeir eiga heima á jörðinni og
hverrar þjóðar sem er.
Til þess að geta tekið að sér
þetta göfuga hlutverk þarf mikils
• með. Það þarf sannmentaða, víð-
sýna, ósérplægna, þrekmikla,
staðfasta, sannleikselskandi,
djarfa og hughrausta menn, sem
formælendur, með næmri réttlæt-
is- og samúðarkend, er hvergi
kvika frá sannleikanum.
»Rjettur« á því láni að fagna,
að hljóta stuðning ungra og upp-
rennandi manna, sem hafa brotist
undan áhrifum hins borgaralega
skipulags, og náð að þroska þessa
nauðsynlegu hæfiieika í ríkum
mæli.
Og þess vegna er það, að hon-
um tekst að leysa hlutverk sitt vel
af hendi.
Hver sá alþýðumaður, sem nokk-
uð vill hugsa um vandamál verald-
arinnar, þarf að kaupa »Rjett« og
lesa gaumgæfilega. Þar fær hann
yfirlit yfir ástandið í heiminum
og öðlast skilning á hvaða öfl það