Verkamaðurinn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Verkamaðurinn - 10.09.1932, Qupperneq 4

Verkamaðurinn - 10.09.1932, Qupperneq 4
4 VERKAMAÐURINN Tilkynning. Vegna hreinsunar d rafveitupollinum verður lokað fyrir raf- magn frd kl. 6. f. h. til kl. 4 e. h. yfir timabilið 11.—16. sepL Akureyri 9. sept. 1932. Rafveita Akureyrar. is við sig. En það hefir mér altaf verið Ijóst, að við verkamenn, sem skítugir og á allan hátt illa til reika, verðum að heyja lífsbaráttu okkar í kolalestum skipa, í síld og fiski. yfirleitt við hina erfiðustu, oþrifalegustu og hættulegustu vinnu og jafnframt fara á mis við öll lífsgæði — að einmitt við eig- um sameiginleg hagsmunamál svo sem kaupgjalds- og atvinnumál, sem við verðum að berjast fyrir, hlið við hlið án tillits til pólitískra skoðana. Og hver sú stofnun, sem byggir á svo pólitískum grund- velli, að útiloka þá fulltrúa okkar sem við treystum best og eru ó- trauðastir að beita sér fyrir mal- efnum okkar — sú stofnun — þó Alþýðusamband sé, hlýtur að vera komin í verulega andstöðu við okkur verkamenn og konur og á ekki lengur traust okkar skilið. Og i sambandi við svar Héðins Valdi- marssonar, til einhvers kommún- ista þarna á fundinum, að þau verklýðsfélög sem ekki treystu AI- þýðuflokksmanni til að fara með umboð sitt á Alþýðusambands- þingi, ættu engan fulltrúa að kjósa, vil ég segja, að það er dálít- ið skopleg sú »forsjón« okkar verkalýðsins, sem gerir heil verk- lýðsfélög réttlaus vegna pólitískra skoðana, þó þau hafi nákvæmlega sömu hagsmuna að gæta, hvar á landinu sem er, og verða því að standa saman. Verkamenn! Verkakonur! Við verðum að gæta okkar fyrir öllum lævísum tilraunum, sem miða að því að sprengja samtök okkar. Og ef á að útiloka þá menn, sem við treystum best, til að flytja mál okkar á Alþýðusambandsþinginu, verðum við að hrinda þeirri póli- tísku klíku af stóli, sem beiti'r okkur þvílíku ofbeldi og svikum. Flokksleysingi. í Reykjavík á að fara fram alþingis- kosning þ. 22. okt. á einum þingmanni í stað Einars Arnórssonar, sem orðinn er dómari I Hœstarétti. Alþýðusambandið og alls- herjar fagsamband verkalýðsins Á kratafundinum í verklýðs- húsinu nú á dögunum lýsti Erling- ur Friðjónsson muninum á AI- þýðusambandinu og allsherjar fag- sambandi þannig, að það væri sama og að flytja verklýðssamtök bæjarins úr fundarsal Verklýðs- hússins í Samkomuhús bæjarins. Kunnugir vita að hinn fyrnefndi fundarstaður rúmar hvergi nærri alla meðlimi Verkamannafélagsins eins, en hinn síðarnefndi öll verk- lýðsfélög bæjarins. Það er líka sífelt betur að skýr- ast fyrir verkalýðnum, að Alþýðu- sambandið rúmar nú ekki annað en stóratvinnurekendur og póli- tíska áhangendur þeirra, en að allsherjar fagsamband tekur alla hina vinnandi stétt, án tillíts til mismunandi skoðana í stjórnmál- um. Hverjir vilja svo halda því fram, að Erlingur geti aldrei sagt orð af viti? Búið er að salta og sérverka á öllu landinu 247 þús. tn. og er það um 35 þús. tn. meir en- £ fyrra. Af þessu hefir verið kryddað og sérverkað 112 þús. tn. Lítið eitt minna hefir verið látið í bræðslu en s. 1. ár eða um 360 þús. mál á móti 370 þús. í fyrra. Þýskir togaraeigendur hafa sagt upp samningum við sjómenn og hyggjast að lækka kaup þeirra. Reyking. Eins og að undanförnu tek eg kjðt til reykingar, á þessu hausti. Flutning á kjötinu annast Eiríkur Skaftason bilstjóri A-19. Peir sem vildu koma kjðti f reyk til mín, geta hitt hann, eða kallað í síma alla virka daga við Mjólkursamlag K. E. A. kl. 10-11 f. h. Merkið kjðtið ©REINILE6A með nafni og heimilisfangi eiganda. Einn- ig sé hver sending merkt REYK- HÚS H. S. Ö. Öngulsstöðum 5. sept. 1932. Halldór Sigurgeirsson. „Allir hrifnir Þegar séra Sigurður Einarsson kvað sér hljóðs á kratafundinum, lét Erlingur, — bara af samvisku- semi — þess getið, að hér væri kominn maðurinn, sem allir væru hrifnir af frá útvarpinu. Talaði þá Sigurður mörg og mjúk orð um »dauðavitund sem væri að læð- ast eins og eitur í hugskot« ein- hverra — um einhver »góð og ill öfk einhversstaðar — um hinn hryllilega dóm almenningsálitsins og loksins um yfirskin guðhræðsl- unnar. Hefir þá prestinum þótt nóg komið hjá sér í bráðina, enda ríkti almenn þegjandi hrifning!! í salnum að messunni loki'nni. Ábyrgðarmaður: Einar Olgeirsson. Prentsmiðja Odds Bjnmssonar.

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.