Verkamaðurinn

Útgáva

Verkamaðurinn - 05.11.1932, Síða 1

Verkamaðurinn - 05.11.1932, Síða 1
VEHKflMDBQBIHH Útgefandi: Verklýðssamband Norðurlands. XV. áfg. | Akureyri, laugardaginn 5. nóvember 1932. !! 49. tbl. 15 ára byltingarafmæli. 1917 — 7. NÓV. — 1932. Fimmtán ár eru liðin síðan róssneski verkalýðurinn steypti af valdastóli kúgurum sínum, yf- irstéttinni rússnesku og tók í sín- ar hendur stjórn hins víðlenda ríkis, sem nær yfir einn sjötta hluta heimsins. f fimmtán ár hefir verklýðsrik- ið rússneska boðið byrginn öllum auðvaldsheiminum, sem hefir beitt öllum brögðum til þess að koma því á kné, með það fyrir augum að fita sig á falli þess. 1 fimmtán ár hafa verkamenn og bændur Rússlands unnið að upp- byggingu socialismans og sköpun hins stéttlausa þjóðfélags hans, þar sem öllum eru búin réttlát lífsskilyrði og óteljndi lífsmögu- Ieikar. Þar, sem þrældómsfjötur sá, er tjóðrar verkalýð auðvalds- ríkjanna við yfirráðastéttina og veitir henni aðstöðu til að arð- sjúga mikinn meirihluta mann- kynsins, er höggvinn sundur og í þess stað er hver smælingi rétt- borinn til að njóta ávaxta af erf- íði sínu og heildin nýtur þess sér til andlegrar göfgi og menningar, en eigi eins og í auðvaldsheimin- «m, til niðurdreps og úrkynjunar. f fimmtán ár hefir verkalýður Káðstjórnarríkjanna borið blys frelsisins fyrir verkalýð alls heimsins og vísað honum veginn til lausnar. Með hinni mikilfenglegustu á- ætlun, sem mannsandinn hefir upphugsað, fimm ára áætluninni, sem nú hefir verið framkvæmd á fjórum árum, hefir tilveruréttur socialismans verið sannaður frammi fyrir öllum heiminum og enginn, sem réttsýnn vill kallast, neitar þeim staðreyndum. Ný fimm ára áætlun hefir verið samin, þar sem gert er ráð fyrir að kjör hins ráðandi lýðs, verði stórkostlega bætt frá því sem nú er, hvað allan aðbúnað, kaup og lífsviðurværi snertir og þó mun hvergi nú í auðvaldsheiminum verkalýðnum líða eins jafn vel og í Rússlandi, þar sem atvinnu- leysinu hefir verið gjörsamlega útrýmt og kreppa auðvaldsheims- ins hefir ekki lagt helfjötur si'nn á eðlilega þróun hins socialistiska skipulags. Með framkvæmd annarar fimm ára áætlunarinnár verður allur stéttamunur upphafinn og - skil- yrði öll til menningar og þroska margfölduð. Árið 1938 mun rússneski verka- lýðurinn standa á þröskuldi hins stéttiausa þjóðfélags kommúnism- ans og framundan blasir við á- áhyggjulaust líf þeirra, sem áður voru kúgaðir og þjáðir af þeim, sem hátt þóttust hafnir yfir mergð hins vinnandi lýðs. Heill sé verkalýð hins fyrsta verklýðsríkis fyrir dáðríkt starf! Heill sé þeim verkalýð, sem brotið hefir af sér kúgunarklafa auðvaldsins og vísað stéttarsyst- SíMSKEYTI MOSKVA J/*i ’32. Tilkynnum að meðal úilendra gesia Moskva i iilefni byliingarafmœl- isins talar á islensku rit- höfundur Halldór Kiljan Laxness 7. nóvember. Moskvatimi 24, bylgiu- lengd 1481, 202% nkz. Svo sem sjá má af ofanrituðu símskeyti talar Halldór Kiljan Laxness í útvarpið í Moskva, kl. 8 á mánudagskvöldið 7. nóv. Bylgjulengd stöðvarinnar er 1481 m. (rétt fyrir neðan Daven- try). Kraftur þessarar stöðvar var aukinn afar mikið nú um mánaðamótin síðustu, svo að til hennar hlýtur að heyrast vel á öll betri viðtæki. kinum sínum veginn til frelsis og velmegunar! Heill sé Kommúnistaflokknum rússneska, sem leitt hefir verka- lýðinn í gegn um alla örðugleika liðinna ára, til sigurs fyrir social- ismann! LIFI RÁÐSTJÓRNARRÍKINÍ Jón Friðfinnsson, Þingvallastræti 12, verður 75 ára gamall 8. þ. m. óskar Verkamaðurinn honum til hamingju og langra lífdaga. Ungherjafundur í Verklýðshúsinu, kl. 11 f. h. á morgun.

x

Verkamaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.