Verkamaðurinn

Eksemplar

Verkamaðurinn - 05.11.1932, Side 2

Verkamaðurinn - 05.11.1932, Side 2
2 VERKAMAÐURINN -♦ • • • • • #-♦ -» 4 Athugasemd við Rússlandsfregnir »Dags«. út um heim, í fjölda borgara- legra blaða, hefir kveðið við þann tón, að nú hefði algjörlega mis- hepnast framkvæmd þeirrar áætl- unar, sem gerð hafði verið um sáningu og myndi því uppskeran verða svo lítil að til hungursneyð- ar horfði. Sem heimildir fyrir þessum fullyrðingum auðvaldsblaðanna hafa verið nefnd blöð Ráðstjóm- arríkisins, sem hafa á hverjum tíma birt hversu sáningunni mið- aði áfram, en auðvaldsblöðin hafa ekki tekið það með í reikninginn, að þótt t. d. í maí væri ekki búið að sá nema 50—60% "af sáðfletin- um, þá var það engin fullnaðar- sönnun fyrir því að svo mikið minna væri sáð en áður, því Rússland er stórt og má næstum segja, að liðið sé að uppskeru í syðri hluta landsins, (Usbekistan) þegar verið er að ljúka sáningu í þeim norðlægari. Fyrst í júnílok er venjulega hægt að fá heildar- yfirlit yfir hve mikið hefir verið sáð. Auðvaldsblöðin hafa svo hlaup- ið á sig og ályktað, að í Rússlandi myndi verða hungursneyð sökum hinnar lélegu uppskeru. Blaðið Dagur hleypur með þessa hungursneyðarfrétt til íslenskra lesenda og segir: »að Rússar megi búast við meiri nauðsynjaskorti en nokkru sinni áður, síðan í hall- ærinu mikla, 1921«. Þessu til sönnunar segir blaðið, að »bændur hafi þverskallast svo, að þeir hafi sáð gífurlega miklu minna en í fyrra«. Segir blaðið að 15.000.000 ekr- ur hafi verið sánar í fyrra en nú aðeins 7,000.000 ekrur. Fyr má nú rota en dauðrota. Er rétt að athuga þetta nokkru nánar. 7 miljón ekrur svara til 2.835.000 ha. og 15 miljón ekrur til 6.075.000 ha. og er það land, sem blaðið segir að hafi verið sáð nú og í fyrra. Skýtur þetta nokkuð skökku við og getur hver séð, sem veit hvað fæst af hverjum ha. að þetta nær ekki neinni átt hvað báðar tölurn- ar snertir. Árið 1931 var samtals sáð voi- sæði í 95.2 miljónir ha. og 1932 í 9U-5 miljónir ha., eða 233,509.500 ehrur. Er að vísu ekki náð þeirri áætlun sem gerð var og stafar það af þvi, að einstaklingsbúskapur- inn sáði nú aðeins 16.8 milj. ha. á móti 28 milj. ha. 1931. En eins og flestum, sem til þekkja, er kunn- ugt, er áætlunin að stöðugt minnki einstaklingsbúskapurinn og þrátt fyrir 11.2 milj. ha. mismun, hefir áætlunin verið fylt upp í 77% (rúml. % hluta) hvað einstak- lingsbúskapinn snertir. Hvar hefir þá mismunurinn unnist upp, þegar hann er ekki meiri yfir það heila en 0.7 milj. ha. miðað við 1931? Ríkisbúgarðarnir hafa meir en uppfylt sína áætlun (í 103%). Samyrkjubúin, sem töldu 54.7% bændanna 1931, sáðu þá 58.6 milj. ha. en nú 66.8 milj. ha. og telja 61.5% bændanna. Samtals hefir hinn socialistiski hluti kmd búnað arins sáð 77.6 milj. ha.þ.ár eöa 10 milj. meira en 1931. Meir en % hl. (82%) sáðflatar- ins er þannig unninn undir skipu- lagi socialismans og vöntun ein- staklingsbúskaparins á uppfyll- ingu áætlunarinnar getur ekki breytt sigri socialistiska skipu- lagsins, aðeins dregið hann enn betur fram í dagsljósið. Af því sem hér er sagt, má ljóst verða, hversu sanngjarn sá sleggjudómur er, sem fram kem- ur í Degi, að »af því að dráttar- vélarnar hafa reynst svo illa, eða gengið svo fljótt úr sér, hefir stjórnin eigi getað staðið svo straum af búgörðunum sem Skýrsla um kjallariúi. Á síðastliðnu hausti var mér falið að rannsaka kjallaraíbúðir hér í bænum og gefa skýrslu um ástand þeirra. Þar sem þetta er mál sem varðar allan almenning, tel eg rétt að birta yfirlit yfir skýrsluna. fbúðiralls 4T Herbergjafjöldi: íbúðir með 2 herb. og eldhúsi 18 íbúðir með 1 herb. og eldhúsi 25 íbúðir með 1 herb. án eldhúss 4 Rúmníál á einn mann: Meira en 15 m3 á mann 22 Frá 10—15m3 á mann 19 Minna en 10 ms á mann 6 Ljósmál: Ljósmál mei'ra en yi2 gólffl. 20 Ljósmál frá yi2—V40 gólffl. 27 Lofthæð: Lofthæð meira en 2,30 26 Lofthæð minna en 2,30 21 Upphitun: Miðstöðvarupphitun 12 skyldi og þá þrjóskast bændurnir við sáninguna«. Borgararnir hafa löngum verið- iðnir við að rægja rússneska verk- lýðsríkið og er þeim nokkur voa, því sárt hlýtur það þeim að vera, að sjá það blómgast dag frá degi, á sama tíma og þeirra eigið skipu- lag er komið að falli. Hungursneyð, gagnbyltingar og óeirðir, sviksamleg vinnubrögð verkalýðsins og óánægja bænd- anna hefir síðustu fimmtán ár áit að eiga sinn þátt í að steypa hinu socialistiska skipulagi innan skamms tíma, frá því að kvittur- inn gaus upp. En ennþá lifa Ráðstjórnarríkín og aldrei blómgast hagur verka- lýðsins meir en einmitt nú, þrátt fyrir allar lygar hinna borgara- legu blaða. Frásögn Dags er ekkert eins* dæmi.

x

Verkamaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.