Verkamaðurinn - 24.04.1934, Side 1
VERKA
URINN
Útgefandi: Verklýðssamband Norðurlands.
XVII. árg.
Akureyri, þriðjudaginn 24. apríl 1934.
34. tbl.
Kaupdeilan a Blöniuósi.
Alþýðusambandið sit-
ur á svikráðum við
verkfallsmenn.
Nú um nokkurn tíma hefir
deila staðið út af kaupgjaldi á
Blönduósi, í milli verkamanna
annarsvegar en atvinnurekandans
K.f. Austur-Húnvetninga, hins-
vegar. Fulltrúar atvinnurekand-
ans reyndu í fyrstu að snúa sig
út úr því að sinna kröfum verka-
manna með þeirri blekkingu, að
kaupsamningstíminn við félag
verkamanna væri ekki útrunninn
og þess vegna kaupdeilan ekki
lögleg. f blekkingartilgangi hefir
sýslumaður staðarins verið látinn
velta vöngum, T nafni »laganna«,
yfir þessu tilbúna ágreiningsefni
kaupfélagsins, til að úrskurða yf-
irstéttinni í vil í þessu máli, í því
trausti að eitthvað af verkamönn-
um yrðu svo auðtrúa, að treysta
stéttardómstól atvinnurekend-
anna.
Verkamenn á Blönduósi eru,
sem betur fer, allir sannfærðir
um rétt sinn í þessu máli og
gengu óhikað út í verkfall þ. 1.
apríl s. 1. Súðin var ekki afgreidd
vegna ágætra samtaka af hálfu
yerkamanna.
En eitt hefir þeim yfirsést í
þessu máli, og þœð eru þau svika-
brögð, sem Alþýðusambandsfor-
ingjamir leika gagnvart þeim,
undir yfirskini verklýðsvinsemdar
og stuðnings. Verkamennimir á
1Blönduósi gerðu með samtökum
sinum það sem þeim bar, til að riá
fullnaðarsigri. Þeir hindruðu með
verkfalli afgreiðslu »Súðarinnar«.
En Alþýðusambandið ?
Pad lœtur atvinnurekandann,
sem hundsar kröfur verkfalls-
manna, sigla í friði og afgr.
Súðina d öllum höfnum með
því eina skilyrði að ekki sé
skipað upp Blönduósvörunum
d hinum fjarlœgu höfnum, Rvík
eða annarstaðar, sem engu
máli skifta fyrir „Rikisskip.a
Hér á sýnilega að endurtaka
sig sama sagan og áður: Alþýðu-
sambandið á að leika hjálpareng-
ilinn, á meðan það í félagi við at-
vinnurekandann, á löngum tíma,
skipuleggur ósigur verkfalls-
mannanna. Vitanlega var það
sjálfsagt að setja algert af-
greiðslubann á Súðina, þar til
»Ríkisskip« höfðu gengið að kröf-
um verkamanna.
Aðalyfirsjón verkamanna á
Blönduósi liggur í því að láta Al-
þýðusambandsbroddana koma ná-
lægt þessu máli, því afskifti
þeirra hafa ætíð sýnt sig að vera
aðeins í þágu atvinnurekandans.
Verkamenn á Blönduósi áttu
strax að snúa sér til V. S. N. og
í það minsta þiggja þá aðstoð
sem það bauð þeim löngu áður en
deilan byrjaði og oftsinnis síðar.
Verkamenn á Blönduósi verða
að kasta fyrir borð trausti sínu
á Alþýðusambandinu, því það
leiðir yfir þá ósigur, en snúa sér
til V. S. N., sem óðar mun þá
bregða við og gera það sem hægt
er til að tryggja þeim sigurinn,
Frá
6. þingiVSN
Eins og skýrt var frá í síðasta
tbl., var 6. þing V. S. N. sett síð-
astliðinn laugardag og verður
ekki lokið fyr en seint í kvöld.
Á þinginu hafa setið fulltrúar
frá eftirtöldum félögum:
Frá Verkamannafélagi Siglufj.:
óskar Garibaldason.
Jóhannes Sigurðsson.
Þorvarður Stefánsson.
•
Kristinn Meyvantsson.
Einar Indriðason.
Frá Verkakvennafélagi Siglufj.:
Helga Guðmundsdóttir.
Anna Guðmundsdóttir.
Frá Verklýðsfélagi ólafsfjarðar:
Magnús Magnússon.
Frá Verklýðsfélagi Dalvíkur:
Sigtýr Sigurðsson.
Kristinn Jónsson.
Frá Verklýðsfélagi Glerárþorps:
Halldór Snæhlóm.
Jón Sigurjónsson.
Og sem varafulltrúi:
Njáll Jóhannesson.
Frá Verkamannafél. Akureyrar:
Sigþór Jóhannsson.
Magnús Gíslason.
Jakob Árnason.
Þóröur Valdimarsson.
Og sem varafulltrúi:
Ástvaldur Jónsson.
Frá Verkakvennafél. »Eining«.:
Elísabet Eiríksdóttir.
þó seint sé, þvi það er eina verk-
lýðssambandið á þessu landi, sem
treysta má.