Verkamaðurinn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Verkamaðurinn - 23.12.1935, Qupperneq 1

Verkamaðurinn - 23.12.1935, Qupperneq 1
VERKAtUnDURINN Útgefandi: Verklýðssamband Norðurlands. XVIII. árg. Akureyri, mánudaginn 23. desember 1935. 98. tbl. Bílstjóraverkfallið. Al þýðusambandsstjórnin tekur afstöðu á móti bílstjórunum. Eins og skýrt var frá i síðasta tbl. bófst verkfall bilstjóra i Reykjavík og nágrenni kl. 12 á hádegi s.l. laugardag. Stöðvarnar i Reykjavik, Hafnarfirði og Kefla- vik lokuðu samkvæmt tilmælum bílstjóranna og stöðvaðist þá bila- umferð skyndilega. Aðeins örfáar einkabifreiðar þurfti að stöðva með valdi, og var búið að því kl. 1 e. h. Tveir mjólkurbilar komu til Reykjavikur e. h. á laugardag og voru þeir stöðvaðir og sneru heim með mjólkina og hafa engir mjólkurbilar komið siðan. Verkfallsmenn í Reykjavík hafa leyft nokkrum sjúkrabifreiðum, lög- reglubifreiðum og 2 leigubiireiðuin að vera í gangi. Alþýðusambandsstjórnin hefir neitað að veita bílstjórafélögunum aðstoð í þessu verkfalli og eru þó félögín í sambandinu. Alþýðublað- ið lýsti því yfir í gænnorgun að verkfallið hefði algjörlega mis- hepnast!! Morgunblaðið skýrði frá því að lögreglan hefði verið kölluð r saman á fund. Bílstjórar hafa sterkan vörð víðs- vegar um höfuðborgina og eru sam- tök þeirra framúrskarandi góð. Bílstjórafélag Eyjafjarðar hélt fund hér á Akureyri s. 1. laugardag og samþykti að taka þátt í verkfall- inu. Ennfremur samþykti fundur- inn harðorð mótmæli til Alþingis gegn hækkun benzínskattsins. Bílstjórafélag Akureyrar hélt fund á laugardagskvöldið og sam- þykti íneð öllum atkv. gegn 1 eða 2 að hefja verkfall kl. 12 í dag. Fundur Verkamannafélags Akur- eyrar, sem haldinn var í gær, sam- þykti harðorð mótmæli til Alþingis gegn hækkun benzíntollsins, enn- fremur ákvað félagið að veita bíl- stjórunum stuðning sinn í þessari baráttu. Öll alþýða manna verður að styðja bílstjórana dyggilega í þessu verkfalli. Enda er sannarlega ekki aðeins um hagsmuni bílstjóranna að ræða heldur yfirleitt alls almenn- ings. Því takist hinum háu hcrrum á Alþingi að koma þessari skatt- hækkun í framkvæmd, sem sam- kvæmt þeirra eigin útreikningi, sem er altof lágur, nemur 250 þús. kr., þá munu bílaeigendur hækka far- gjöld og flutningsgjöld og mundi því þessi skatthækkun dreifast á ailan almenning og m. a. í hækk- uðu vöruverðf. Kæmist skatthækkunin í fram- kvæmd myndu t. d. afeiðingarnar m. a. verða þær, að mjólkurverðið annaðhvort hækkaði eða að öðruin kosti að bændur fengju raunveru- lega minna fyrir mjólk sína, vegna aukins flutningskostnaðar. Skatt- hækkun þessi myndi líka alveg sér- staklega tilfinnanleg fyrir smábáta- eigendur. Kíður nti á að samelna alla alþýðu fil að hindra að þessi nýi nefskaffur homist nokhurntíma í framkvæmd. En krefjást þess hinsvegar að tekna til vegalagninga þeirra, sem nota átti benzínskatthækkunina til, jverði aflað á þann hátt að leggja hærri skatta á hátekjumennina, sem hafa marga tugi þúsunda f tekjur árlega, eins og t. d. Héðinn Valdimarsson. Kveðja tilfóns Rafnssonar, frd Seyðfirðskum verkamönnum. Fylgi þér héðan heill í hverju spori hugljúfar óskir sérhvers verkamanns. Pú hefir hjá oss vetur gert að vori vakið úr dái kjörorð smælingjans. Jón Sigflnnsson. Seyðisfirði 5. des. 1935.

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.