Verkamaðurinn

Tölublað

Verkamaðurinn - 05.12.1936, Blaðsíða 3

Verkamaðurinn - 05.12.1936, Blaðsíða 3
VERKAMAÐURINN 3 Saraningurinn vií Krisfneshæii. Hér fer á eftir samningur sé, er starfsstúlknafélagið »Sókn« hefir gert við Kristneshæli, um kjör starfsstúlkna þar: >Starfsstúlknafélagið »Sókn«, Akureyri, og yfirlæknir og ráðs- maður Kristneshælis f. h. hælisins, hafa i dag gert með sér svohljóð- andi samning um launakjör starfsstúlkna, sem vinna algenga vinnu í nefndu heilsuhæli: 1. grein: Hámarks almenns vinnutíma skal vera 11 stundir á dag eða 66 stundir á viku, þar i innifaldir 2 stundarfjórðungar til kaffidrykkju á dag. 2. gr: Lágmarkskaup skal vera sem hér segir: á tímabilinu frá 1. nóv. 1936 til 1. apríl 1937, kr. 50.00 á mánuði, og skal það greitt í lok hvers mánaðar. Eftirvinnu skal ekki vinna nema í brýnustu nauðsyn, en það telst eftirvinna, sem unnin er fram yfir 11 stundir á dag. Má slík vinna ekki fara fram úr til hjálpar svo að sem flest fólk geti notað sér völlinn að fullu og haft af honum sem mest gagn og gaman Tilkostnaður myndi verða tiltölulega litill, og vel þess vert að þessu verði hrundið í framkvæmd sem allra fyrst. Þetta er eitt af þeim mörgu menning- armálum, sem þarfnast skjótrar úrlausnar, þvi það er nógu ilt að höfuðstaður Norðurlands skuli ekki hafa neitt íþróttahús til um- ráða, og þvi meiri þörf að útbúa skautavöll, svo æskulýðurinn geti notið einhterrar hollrar íþróttar. Unga fólkið er þegar farið að hlakka til skautavallarins, og væntir þess að þessum áhuga- sömu íþróttamönnum verði nú strax veitt lið til þess að völlur- inn verði nothæfur nú á næstu dögum. N. 1 stund á dag, og skal hún greidd með kr. 1 00 á klukkustund. Hafi einhver stúlka ákveðnum skyldustörfum að gegna, sem hún er sérstaklega ráðin til, en hún lýkur ekki á tilskyldum tíma, þá greiðist henni ekki eftirvinnu- kaup fyrir þá vinnu. Þær stúlkur, sem kunna að hafa hærra kaup en samningur þessi inniheldur, haldi því. 3. grein: Auk ofannefndra launa, skulu þær stúlkur, sem hér um ræðir, fá ókeypis fæði, húsnæði, ljós og hita. Einnig skulu þær fá nauðsynleg vinnu- föt ókeypis, að skóm, sokkum og nærfötum undanskildum, Allar stúlkur hafi ókeypis rúmfatnað, handklæði, þvotta, strauningu og nauðsynlega hreinlætisvöru, eins og t. d. sápu. 4. grein: Stúlkur, sem unnið hafa í ofannefndu sjúkrahúsi eða í þvottahúsi þess 3 mánuði eða lengur, skulu teljast »fa$tafólk«, og njóti þær eftirtaldra blunninda: Pær, sem unnið hafa 6 mán- uði eða lengur, og verða frá starfi vegna veikinda, fái fult kaup (þar með talið fæði og húsnæði) i IV2 mánuð. Sömu- leiðis fría læknishjálp, meðul og sjúkrahúsvist fyrir sama tíma, sem hægt er að veita á hælinu. Þær, sem unnið hafa skemur en 6 mánuði og lengur en 3 mánuði, fái öll sömu hlunnindi i 1 mánuð. 5. grein: Uppsagnarfrestur af hálfu beggja aðila skal vera IV2 mánuður fyrir stúlkur, sem telj- ast »fastafólk«, ef ekki er önnur skrifleg ráðning til ákveðins tima. 6. grein: Meðlimir starfsstúlkna- félagsins »Sókn«, sitji fyrir allri vinnu hjá nefndu heilsuhæli, enda sé félagið jafnan opið til inngöngu fyrir stúlkur, sem upp- fylla almenn inntökuskilyrði og eiga engar sakir við félagið. 7. gr.: Einstaklingssamningar, sem starfsstúlkur hælisins hafa gert um kaup og innihalda lak- ari kjör en samningur þessi inni- heldur, falli úr gildi með samn- ingi þessum. Sá, sem alt veit. Fyrir utan alt annað spaugllegt, flytur »Alþýðum.« 1. des. siðastl. kynduga klausu um sameiningu verkamannafélaganna á Siglufirði. I tilefni af þvi rausi leyfir »Verkam.« sér að gera eftirfar- andi fyrirspurnir til »Alþýðum. 1. Hvaðan hefir hann vitneskju um það, að verkamennirnir l verkamannafélaginu ^Þróttic, sem ásamt öðrum félögum Alþýðu- sambandsins á Siglufirði sendu Alþýðusambandsþinginu ein- dregna áskorun um að vinna að einingu verkalýðsins — og sem strax eftir Alþýðusambaudsþingið — þrátt fyrir stefnu þess í sam- fylkingamálunum — hafa lagt drög að sameiningu félaganna — séu samt sem áður á móti sam- einingunni? 2. Hefir hann umboð »fulltrúa- ráðsins« á Siglufirði og Alþýðu- sambandsstjórnarinnar — sem Erlingi var sparkað út úr — til að lýsa því yfir, að þessir aðilar „leyfl ekki“ sameiningu verka- mannafélaganna á Siglufirði, þd meðlimir þeirra eigin félags æskí þess — og sameiningin sé fram- kvæmd innan ramma þess? 3. Hvaða »inngönguskilyrði« eru það i verkamannafélaginu »Þrótti«, sem »Alþýðum.« er viss um, að meiri hluti félagsbund- inna verkamanna á Siglufirdi »aldrei gengur inn á«? Skýr svör óskast hið fyrsta. 8. gr.: Samningur þessi gildir frá 1. nóv. 1936 til 1. apríl 1937. Kristneshæli 30. nóv: 1936. F.h. starfsstúlknafélagsins »Sókn«. Sólborg Einarsdótlir. Sveinfrfður SveiosdótUr. F.h. Kristneshælis. Jónas Rafnar. Eirfkor 6. Brynjólfsson. Vitundarvottar: Jóhannes Eirfksson. Laufey Sölvadóttb.

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.