Verkamaðurinn - 15.12.1936, Side 3
VERKAMAÐURINN
3
um slíkra kennslubóka, en al-
menningur hefir litla tryggingu
fyrir því, ekki síst þegar ekki
verður vart við að þeir finni á-
stæðu til að rita opinberlega um
þessi mál og mótmæla slíkum bók-
um og beita sér fyrir voldugum
samtökum, fyrst og fremst meðal
kennara, til þess að hrinda því í
framkvæmd að allar kenslubækur
verði rækilega endurskoðaðar og
bættar.
Er þess að vænta að þeir hefji
nú öfluga baráttu fyrir því að
gagngerðar endurbætur fari fram
á þessu sviði, slíkt ætti að vera
þeim mikilsvert kappsmál og
menningarmál.
Geri þeir það ekki, verður að á-
lykta að þeir séu samþykkir því
að börnin séu látin nota kennslu-
bækur, sem veita þeim hlutdræga
og ósanna fræðslu.
HarmHnn í Zion.
Glæpsamleg starfsemi.
Lœrisveinar Hallesby linna
ekki lálunum fyr en minsta
kosli einn nemandi i Menta-
skölanum verdur vitskertur.
Hefir sóknarpresturinn og
fleiri opinberir starfsmenn i
bœnum haft samstarf við
ofsatrúarmennina ?
Norski ofsatrúarmaðurinn Hal-
lesby sendi hingað nýlega læri-
sveina sína, 2 norska stúdenta og
einn íslenskan. Hafa þessir ógæfu-
menn undanfarið .flutt hinar ó-
geðslegu kenningar Hallesby í
Samkomuhúsinu Zíon. Árangur-
inn af þessu starfi hefir nú orðið
þann veg, að minsta kosti einn
nemandi úr Mentaskólanum, sem
hefir sótt þessar samk. hefir veikst
alvarlega (bilast á geðsmunum)
og altalað er að ýmsir fleiri ung-
lingar séu á góðum vegi með að
fara sömu leið.
í Mentaskólanum, og yfirleitt í
bænum, ríkir nú óhemju reiði
gegn athæfi þessara ofsatrúar-
prédikara.
Mun blaðið skýra nánar síðar
frá kenningum og starfsemi þess-
ara ofsatrúarmanna og hinum ó-
gæfusamlegu afleiðingum þessar-
ar starfsemi, sem allt sanntrúað
fólk hefir megnustu andúð á og
það ekki að ósekju.
LandabruBQið á Svalbarði.
Fyrir nokkru var Gunnar bóndi
á Svalbarði að róta til í fóðurbæt-
isgeymslu, sem áföst er þar fjósi;
velti hann þar upp kassa miklum,
er hvolft hafði þar, frá tíð fyrir-
rennara hans.
Fann hann þar undir kassanum
rusl nokkurt, þesslegt sem notað
er við iðnað þann, er „landa“-
brugg nefnist. Sagði hann hrepp-
stjóra til þessa, sem tók dræmt í
málið í fyrstu, þar til rót kom á
nokkra bindindismenn í grendinni,
að hann tók rögg á sig og ónýtti
tækin svo ekki sást mynd né lög-
un á.
Eftir skrafi manna, lítur næst-
um út fyrir að fróðir menn viti
eitthvað til, að ein eða fleiri tæki
önnur hafi verið þar fyr á árum
á höfuðbólinu, og sýnist þá ástæða
til að setja það í samband við
drykkjuskap þann, er legið hefir
í landi þar og í grend til fleiri ára,
og kannske einna mest í fyrravet-
ur, þegar ölvaðir unglingar spiltu
samkomum með drykkjulátum.
Heyrst hefir að hreppstjóri hafi
kært málið fyrir sýslumanni, og
hann síðan sett hreppstjórann til
að rannsaka málið!!!
Hérmeð tilkynnist vinum og
vandamönnum, að ekkjan Ragn-
heiður Þorleifsdóttir verður jarð-
sungin föstud 18. þ. m. kl. 1 e.h. og
hefst jarðarförin með húskveðju
að heimili hinnar látnu, Aðal-
stræti 74.
Aðstandendur.
Presfar i Sevilla og grafarar f La Liena
myrtir vegna pess að peir voru sjónarvotfai
að hermdarverkum.
London, 14. 11. (NP).
Til Gibraltar hefir borist fregn
um, að uppreistarmenn í Sevilla
hafi skotið prest. Hafði hann snú-
ið sér til Queipo de Llano og beð-
ið hann um að takmarka aftök-
urnar. „Mér fellur það illa,“ skrif-
aði hann, „að fylgja svo mörgum
sonum kirkjunnar á síðustu göngu
þeirra.“ Daginn eftir var prestur-
inn handtekinn og eftir hlægileg
málaferli, þar sem hann var sak-
aður um samúð með kommúnist-
um, var hann tekinn af lífi. Þetta
morð hefir valdið geysilegri skelf-
ingu meðal katólskra manna í
borginni.
Frá La Linea hefir borist fregn
um annað morð. Tveir grafarar,,
sem daglega urðu að grafa ótal
fórnarlömb hinna tryltu fasista,
sneru sér til yfirvalda uppreistar-
manna og fóru fram á það að það
kæmi ekki fyrir, eins og svo oft
hefir skeð, að fórnarlömbin væru
grafin hálf-lifandi. Þessari beiðni
grafaranna var svarað þannig, að
þeir voru báðir skotnir.
NÆTTJRVÖRÐUE er í Stjörnu Apó-
teki þessa viku. (Frá n. k. mánud. er
næturvörður í Akureyrar Apóteki).
Húsmæðwr ?
Blái liorðinn
er bestnr í jólabrauðið.