Verkamaðurinn - 15.01.1938, Blaðsíða 2
2
VERKAMAÐURINN
Laugardags- og sunnudags-
kvöld kl. 9:
Aðeins
eina nótt.
Aðalhlutverkið leikur hin
fræga leikkona
Margaret Sullivan
Akureyrinyarl Kjosið
C-listann!
Nýtilegt skipu-
lag - nýtt líf.
Hriflu-maðurinn lýsir því yfir í
2. tbl. „Dags“, að núverandi
íhaldsskipulag sé nýtilegt og að
með komu Steinsens og V. Þór
hafi byrjað „nýtt líf“ í bæjarstjórn
Akureyrar. Hvernig er þetta nýja
líf? Það er best að Jónas lýsi því
sjálfur. Hánn segir í Nýja Dag-
blaðinu (tbl. 256 s.l. ár):
„Sveitargjöldin eru orðin það
þung, að bænum liggur við gjald-
þroti, og leiðtogar bœjarins sjá
enga aðra vök framundan í því
efni, nema hjálp Alþingis komi
til“. (Leturbr. Verkam.).
Þetta er orðrétt lýsing Hriflu-
mannsins á ástandinu í höfuðstað
Norðurlands eftir 4 ára „nýtt líf“
Steinsens, V. Þór, Axels og Er-
lings — og þessi lýsing er álveg
sönn; en hvort alþýða bæjarins
telji hagkvæmt að fela Steinsen,
V. Þór, Axel, Jóni Sveinssyni og
Erlingi að halda áfram að stjórna
bænum á þessari „lífs“braut mun
koma í ljós 30. jan.
„L’Humanite“, aðalmálgagn
franska Kommúnistaflokksins, er
nú stærsta dagblaðið í Frakklandi.
Hvor bakatfi KEA
(Framh. af 1. síðu).
ari en tveggja ára drengur á lág-
marks lífsþarfir vinnandi manns,
og skyggnari en tveggja nátta
hvolpur á hlutverk og mátt fé-
lagssamtaka verklýðsstéttarinnar,
þá hlýtur honum að hafa verið
ljóst, þegar hér var komið málum,
að til átaka hlyti að koma í þessu
máli.
En þá var skylda hans sem for-
stjóra K. E. A„ er hér átti hlut að
máli, að gera upp við sjálfan sig,
og stjóm félagsins: Er málstaður
okkar fyrirtækja gagnvart þessu
fátæka fólki svo góður, að rétt sé
að hvika í engu, hvað sem yfir
dvnur? Mun hag félagsins betur
borgið, og hróður þess meiri, ef
takast má, með atvinnuleysis- og
hungursvipuna yfir höfði, að
kúlda verkafólkið til hlýðni, þó
það kunni að kosta nokkurra
mánaða stöðvun á verksmíðjun-
um?
Annaðhvort hefir Vilhjálmur
ekki gert upp þessa hluti á réttum
tíma, eins og honum bar skylda til
— eða það er skoðun hans, að
hlutverk hans sem „ÞJÓNS“ fá-
tæku bændanna og lægst launuðu
láunþeganna, sem skipa meiri
hluta í K. E. A„ sé að búa lifandi
vinnuvélum hinna blómlegu sam-
vinnufyrirtækja sem skítlegast
viðurværi og aðbúð.
Eg geng út frá því, að Vilhjálm-
ur hafi gert skyldu sína og gert
sér fulla grein fyrir málavöxtum.
En þá skilur hér skoðanir okkar.
Eg tel það ekki samboðið sam-
vinnufélagi — síst af öllu jafn vel
stæðu félagi sem K. E. A. — að
ganga fram fyrir verstu íhalds-
braskarana í harðdrægni gagnvart
verkafólki sínu. Eg tel það smán-
arblett á K. E. A. og S. í. S. að
þau skuli ekki haía, ÓTIL-
KVÖDD, greitt verkafólki sínu
vinnulaim, sem væru fyllilega
sambærileg við það, sem fyrirtæki
„braskaranna“ borga. Eg NEITA,
að það sé fjandskapur við K. E.
A., þó reynt sé að færa þetta til
betri vegar. Eg hefði kosið, að
ekki hefði þurft verkfall á K. E.
A. til að knýja það inn á rétta
braut. Eg hefði kosið, að ekki
hefði þurft svo harðhentar aðgerð-
ir sem vöruflutningabannið á
verzlim þess.
EN AFSTAÐA VILHJÁLMS
ÞÓR OG KAUPFÉLAGSSTJÓRN-
ARINNAR TIL LAUNAKJARA
VERKSMIÐJUFÓLKSINS GERÐI
ÞETTA NAUÐSYNLEGT.
Það „fjárhagslega tjón“, sem K.
E. A. kann að hafa beðið af vöru-
flutningabanninu, er því raun-
verulega á ábyrgð Vilhjálms Þór
og kaupfélagsstjórnarinnar. Ef
hefði átt að reka einhvern úr K.
E. A. fyrir þessar sakir, hefði því
óneitanlega farið best á, að þessir
herrar, sem sjálfir hafa sæmilegt
að bíta og brenna, hefðu rekið
hver annan.
Steingr. Aðalsteinsson.
Athugasemd.
Ritstjóri „Alþm.“ fer með rangt
mál í síðasta blaði, er hann skýrir
frá því, að á fundi jafnaðar-
mannafélagsins „Akur“, fyrra
mánudagskvöld, hafi 14 innsækj-
endur verið látnir bíða til næsta
fundar. Þeim var neitað um inn-
göngu, vegna þess að stjórnin sá
sér eigi fært að mæla með þeim
inn í félagið að svo stöddu. Jafn-
vel Erl. Friðjónsson þóttist ekki
þekkja meðlimi síns eigin félags.
Þegar svö var komið tók eg aftur
þær umsóknir, sem eg var með-
mælandi að. Það er mjög ósenni-
legt að þetta fólk sæki aftur um
inngöngu í félagið, eftir jafn ein-
ræiðslega brjálsemisframkomu
stjórnarinnar.
Akureyri 10. janúar 1938.
Guðmundur Snorrason.
Ofanritað hafði Halldór Frið-
jónssn lofað að birta í „Alþm.“ 11.
þ. m., en vegna þess að honum
þótti hagkvæmara að gera það
ekki, þá sveik hann það. — Hvað
viðkemur þeirri yfirlýsingu hans,
að eg beri ábyrgð á því hvort það