Verkamaðurinn - 06.04.1938, Síða 2
2
VERKAMAÐURINN
Rógur Hriflunga um Eskifjörö
Eftir Arnfinn Jónsson.
(Niðurlag).
Margir af fylgendum Alþýðu-
flokksins á Eskiflrði voru í
fyrstu tregir til að taka þátt í
nýjum hreppsnefndarkosning-
um, en sáu þó fljótt, að þeir
gátu ekki leyft sér slíkt ábyrgð-
arleysi.
Kommúnistarnir einir hikuðu
ekki eitt augnablik. Gegn undir-
róðri íhaldsins héldu þeir þvi
fram, að sá aumingaskapur að
hlaupa í fullkomnu ábyrgðar-
leysi frá málefnum hreppsins á
neyðartímum, væri stimplandi
fyrir alla íbúa hans og að svo
voluð ríkisstjóm gæti væntan-
lega aldrei til orðið í landinu,
sem umbunaði nokkru hrepps-
eða bæjarfélagi fyrir það að
gefa alt upp á bátinn þegar erf-
iðast var í ári og svíkjast undan
öllum borgaralegum skyldum í
sínum eigin málum í trausti þess
að fjarlæg stjórnarvöld tækju
þær á sínar herðar. Töldu þeir
að hver ríkisstjórn mundi líta
svo á að slíkt bæjarfélag væri
bygt af svo voluðum vesaling-
um, að þeir ættu engrar við-
reisnar von, enda lægi nær að
setja einhver víti við slíku at-
hæfi en að verðlauna það.
Afstaða kommúnista varð
ofan á innan verklýðsflokkanna
og létu þeir fram fara prófkosn-
ingu meðal kjósenda sinna. Úr-
slit hennar urðu þau að kosnir
voru 2 alþýðuflokksmenn 2
kommúnistar og 3 óflokksbundn-
ir alþýðumenn og urðu þeir allir
sjálfkjörnir i hreppsnefndina, þar
sem enginn annar listi kom
fram..................
. . . Áður en skilst við þetta
kosningamál tel eg rétt að fara
nokkrum orðum um hrepps-
nefndarkosningarnar á Eskifirði
30, janúar.
Skömmu áður en framboðs-
frestur fyrir kosningarnar var út-
runninn, spurði mig framsóknar-
maðurinn Stefán prófastur Björns-
son, hvort við mundum vilja
samvinnu við Framsókn í kosn-
ingunum og játaði eg því hiklaust
ef vinstri menn (eins og hann t.
d.) yrðu hafðir í kjöri af hálfu
Framsóknarflokksins. Þegar mjög
var liðið á framboðsfrestinn og
engar tillögur höfðu komið fram
frá Framsókn spurðist eg fyrir
um hvað þeim liði og fékk það
svar, að Framsóknarflokkurinn
hefði ákveðið að hafa sérstakan
lista í kjöri. Var þá ákveðið at
fulltrúum Álþýðuflokksins og
Kommúnistaflokksins að undir-
búa sameiginlegan framboðslista
fyrir þessa flokka með prófkosn-
ingu eins og 1936 og voru í
skyndi sendir út nokkrir kjör-
seðlar og ákveðið, að prófkosn-
ingunni skyldi lokið á einum
degi án tillits til þess hvort hægt
væri að ná til allra viðkomandi
kjósenda. 108 kjósendur tóku
þátt í prófkosningunni og var
vilji þeirra svo ótvíræður að ekki
þótti ástæða til að leita álits
þeirra, sem ekki hafði náðst til,
enda var raðað á samfylkingar-
listann i fullu samræmi við úrslit
prófkosningarinnar.
Allir efstu menn Framsóknar-
listans voru ákveðnir vinstri
menn. Var því auðgert fyrir okk-
ur kommúnista og Alþýðuflokks-
menn að taka afstöðu til þeirra.
Við vorum altaf ákveðnir í því
að reyna að sameina öll vinstri
öfl hreppsfélagsins um velferðar-
mál þess. Þessvegna ákváðum
við strax að gera ekkert til þess
að fella framsóknarmennina frá
kosningu og lofa jafnvel mörg-
um þeirra, sem þátt tóku í próf-
kosningunni, að standa í þeirri
trú, að með henni væri kosning-
unni lokið — eins og 1936 —
enda fór svo, að aðeins rúmur
helmingur deirra kom á kjörstað.
Þetta má hver lá okkur sem vill,
en eg fullyrði, að með þessu
höfum við sýnt þá mestu ábyrgð-
artilfinningu, sem hsegt er að
Rykfrakkar
karlm.
Verð frá kr. 40.00
Braun§-Verzlun
Páll Sigurgeirsson
krefjast af nokkrum stjórnmála-
flokki.*)
Á fyrsta fundi hinnar nýkjörnu
hreppsnefndar fór fram oddvita-
kosning. Við gátum auðvitað bú-
ist við, að Frarasóknarflokkurinn
hefði lagt fyrir fulltrúa sína að
kjósa oddvitann úr sínum hópi
og voru reiðubúnir til að semja
við þá um stuðning við hann,
enda bárum við fyrirfram fult
traust til beggja fulltrúa Fram-
sóknar í hreppsnefndinni um vel-
vilja og einlægni í málefnum
hreppsins. En taki nú ritstjóri
Dags vel eftir: Báðír framsóknarmenn-
irnir kusu odtívita úr hópi kommúnista.
Vill »Dagur« e. t. v. halda því
fram að þeir hafi gert þetta í
gríni eða af andvaraleysi. Eg er
sannfærður um að svo var ekki.
Eftir þá fundi, sem þegar hafa
verið haldnir í hreppsnefndinni
gæti mér síst dottið í hug að
þeim hafi gengið undirhyggja eða
alvöruleysi til að kjósa þannig,
heldur hefi eg fulla ástæðu til
þess að óska, að í öllum bæjar-
og hreppsfélögum landsins væru
jafn einlægir vinstri menn við
stjórn og nú eru í hreppsnefnd-
inni á Eskifirði........
En að þessu sinni læt eg nægja
að íræða »Dag« um það, að það
eru tilhæfulaus ósannindi, að
Eskifjörður sé ómagi á ríkinu,
þvi til þess að það væri rétt,
þyrfti ríkið að greiða Eskfirðing-
* Eins og kunnugt er urðu úrslit kosning-
anna þau að í hreppsnefndina komust
2 Alþýðuflokksmenn, 2 framsóknarmenn
og 3 kommúnistar.