Verkamaðurinn - 25.06.1938, Síða 1
XXI. árg.
Akureyri, laugardaginn 25. júní 1938.
32. tbl.
Útgefandi: Verklýðssamband Norðurlands.
Állsherjaratkvæðagreiðslan
i Dagsbrún.
Fyrir hálfum mánuði siðan fór
fram allsberjaratkvæöagreiðsla i
verkamannafélaginu »Dagsbrún«,
um nokkrar breytingar á lögum
félagsins og um það hvort hægri
fulltrúar félagsins og aðrir trún-
aðarmenn þess skyldu svittir
umboði, ef þeir neituðu að hlýða
samþyktum félagsins.
Lagabreytingarnar, sem greitt
var atkvæði um voru aðallega á
þessa leið:
1. Auk #núverandi trúnaðar-
mannaráðs verði myndað annað
minna, sem skipað sé 4 félags-
mönnum ásamt stjórninni. Þessi
breyting sé nauðsynleg vegna
vinnulöggjafarinnar, sem sviftir
félagsstjórn réttindum til að á-
kveða vinuustöðvanir.
2. Fundur, sem 300 Dagsbrún-
armenn sækja sé ályktunarfær.
3. Sérstök kjörstjórn í Dags-
brún úrskurði kosningu í stað
Alþýðusambandsstjórnarinnar.
4. Trúnaðarmönnum og full-
trúum félagsins skal skylt að
hlýða lögum þess og samþyktum.
Atkvæðagreiðslan fór á þá leið
að 647 greiddu atkvæði gegn
lagabreytingunum en 619 með,
17 seðlar voru auðir og 15 ó-
gildir. Tillagan um umboðssvift-
inguna var feld með 639 atkv.
gegn 594, 48 seðlar voru auðir
og 14 ógildir. Um 1300 manns
tóku þátt í atkvæðagreiðslunni og
er það meiri þátttaka en nokkru
sinni áður í Dagsbrún. »Skjald-
borgin« neytti allra bragða til
þess að fella tillögurnar, gaf
meira að segja úl falsbréf, þar
sem sagt var að atkvæðagreiðsl-
an væri m. a. um það, hvort
hækka skyldi félagsgjöldin í
Dagsbrún úr 16 kr. upp í t. d.
41 kr. hjá verkamanni, sem hefði
2500 kr. árstekjur. En »sigur«
»Skjaldborgarinnar« var þó fyrst
og fremst fólginn í dyggilegum
stuðningi Ihaldsflokksins og aft-
urhaldsins i Framsókn. Einn af
þektustu kosningasmölum Ihalds-
flokksins í Reykjavík, Jakob
Sigurðsson, bílstjóri, var nú á
þönum fyrir Jón Axel og Co.
Ríkisskrifstofur voru notaðar
sem kosningaskrifstofur »Skjald-
borgarinnar«, fastir starfsmenn
tryggingastofnana á endalausu
spani um bæinn. Á þennan hátt
tókst »Skjaldborginni« að merja
það í gegn að tillögurnar voru
feldar, með atkvæðum kaup-
manna úr fhaldsflokknum og
annara þeirra, sem aldrei sækja
fundi í Dagsbrún eða vinna að
málum félagsins. Áhugaleysingj-
arnir og andstæðingar verklýðs-
samtakanna voru látnir ráða úr-
slitum í stærsta verkamannafé-
lagi landsins. Eftir að þessi
»glæsilegi sigur« var unninn, hafa
(Framh. á 2. síðu).
fyrir 1650 þús. kr. láni
erlendis til rafveitunnar.
Á aukafundi bæjarstjórnarinnar
í morgun var tilkynt að ríkisá-
byrgð hefði verið veitt fyrir 1650
þús. kr. láni í erlendri mynt til
byggingar rafveitunnar við Laxá.
En þar sem ríkisábyrgð er ófáan-
(Framh. á 4. síðu).
Strikumlandráða-
mennioaiít.
Eins og grein 1 blaðinu i dag
frá formönnum tveggja iþrótta-
félaga í bænum, ber með sér, þá
hefir undirbúningur hátíðahald-
anna 17, júnf verið með þeim
hætti, að algjörlega er ósamrým-
anlegt og ósamboðið rninningu
Jóns Sigurðssonar og hinni göf-
ugu iþróttastartsemi. En auk
hins ódrengilega undirbúnings var
framkvæmd hátíðahaldanna 17.
júní á þann veg að sumu leyti,
að svartur bletlur var settur á
minningu hins glæsilega foringja
þjóðarinnar. Maður, sem daglega
les aðal málgagn Hillersstjórnar-
innar, stjórnarinnar, sem braut
á bak aftur nú nýskeð sjálfstæði
einnar smáþjóðar, og skipuleggur
morð barna og kvenna á Spáni,
— þessi aðdáandi einræðis- og
ofbeldisstjórnarinnar, er fenginn
til þess að mæla fyrir minni
sjálfstæðisbetju smáþjóðar, minn-
ingu drengskaparmannsins Jóns
Sigurðssonar. Það er alkunna að
(Framh. á 2. síðu).