Verkamaðurinn - 27.08.1938, Page 1
Útgefandi: Verklýðssamband Norðurlands.
XXI. árg.
Akureyri, laugardaginn 27. ágúst 1938.
41. tbl.
Sjálfvirk löndunartæki
i ríkisverksmiðjurnar
er einróma krafa sjómanna.
Á sjómannadaginn í vor lét at-
vinnumálaráðherrann, Skúli Guð-
mundsson, svo ummælt í ræðu,
sem hann flutti við þetta tæki-
færi, að „hann vildi alt gera fyrir
sjómennina“. Þeir sjómenn, sem
verið hafa á síldveiðum í sumar,
virðist þessi fallegu orð atvinnu-
málaráðherrans stangast ónota-
lega á við þá staðreynd að sjálf-
Adrk löndunartæki vantar í ríkis-
verksmiðjurnar á Siglufirði.
Vegna þessa ástands þurfa sjó-
menn að þræla í ca. 14 klst. við að
losa 950—1000 mál síldar í ríkis-
verksmiðjunum í stað þess að þeir
eru aðeins 3—3V2 tíma við að losa
jafn mikið af síld í Hjalteyrar-
verksmiðjuna.
Auk þessa óþarfa þrældóms við
losun síldar í ríkisverksmiðjurnar
og auk þeirrar hættu, sem þessi
vinnubrögð þar hafa í för með sér
fyrir sjómenn, tapa bæði sjómenn
og útgerðarmenn geysimiklu fé,
sökum þess hve losunin tekur
langan tíma í ríkisverksmiðjunum.
En þó ekkert tillit væri tekið til
hagsmuna sjómanna og útgerðar-
manna í þessu efni, þá verður því
ekki mótmælt með rökum, að rík-
ið bíður stórtjón af því, að ekki
eru sjálfvirk löndunartæki í ríkis-
verksmiðjunum. Nú í sumar hafa
mörg skip hætt viðskiftum við
ríkisverksmiðjurnar og farið til
Hjalteyrar og meðal sjómanna
er svo almenn óánægja yfir því að
verksmiðjur ríkisins skuli ekki
hafa sjálfvirk löndunartæki, að
stórhætta er á því að ennþá fleiri
skip hætti viðskiftum við ríkis-
verksmiðjurnar næsta sumar, ef
ekki verður þá búið að bæta úr
þessu ófremdarástandi.
Atvinumálaráðherrann hefir því
augsýnilega — þó ekki sé fleira
rætt að þessu sinni — fullkomna
möguleika á að sýna það í verk-
inu að hann vilji „alt gera fyrir
sjómennina“. Verður nú reynslan
að skera úr því hvort hann hefir
meint eitthvað með þessum orð-
um sínum á sjómannadaginn og
hvort hann telur sér sæma að hafa
ástandið í ríkisverksmiðjimum
þannig, að ríkið bíði stórtjón af.
HæjvsljánrtiBiiiqaniv
iHlit
11. sept. n.k. eiga að fara fram
bæjarstjórnarkosningar á Norð-
firði, sökum þess að bæjarstjórn
var rofin í sumar. Fjórir listar
hafa komið fram, þar á meðal
einn listi, sem kommúnistar, sam-
einingarmenn Alþýðuflokksins og
utan flokka menn standa að. 10
efstu sæti þessa sameiginlega lista
eru þannig skipuð: Lúðvík Jós-
efsson (K), Alfons Pálmason (A),
Bjarni Þórðarson (K), Sigdór
Brekkan (A), Jóhannes Stefáns-
son (K), Vigfús Guttormsson (U),
Hörmulegt
bílslys.
Guðrún Lárusdóttir og
tvær dætur hennar
drukna í Tungufljóti.
Um hádegi s 1. laugardag vildi
það hörmulega slys til að bill,
með 5 manns i, ók út at vegin-
um á beygju við Tungufljótsbrú
og rann ofan ca. 13 metra háa
brekku ofan í fljótið og á kaf. I
bilnum voru auk bílstjórans,
Arnolds Pedersen, Sigurbjörn Á.
Gíslason cand. theol., kona bans,
Guðrún Lárusdóttir alþingism. og
2 dætur þeirra hjóna, Guðrún
Valgerður og Sigrún Kirstín. Bíl-
stjóranum og Sigurbirni tókst að
komast úr bilnum. Bílstjórinn
var syntur og tókst eftir mikla
Sveinn Magnússon (K), Jón Sig-
urðsson (A), Páll Sigurðsson (A)
og Björn Ingvarsson (U).
Við bæjarstjórnarkosningarnar í
vetur vann hinn sameinaði listi
Alþýðufl. og Kommúnistafl. glæsi-
legan sigur og fékk 6 sæti af 9. í
stað þess að halda samninga þá,
sem verklýðsflokkarnir gerðu þá
með sér, brutu „Skjaldborgar-
menn“ samningana.
Stuðningsmenn sameiginlega
listans gera sér góðar vonir um að
fá 5 fulltrúa kjöma og vinna þar
með meirihluta bæjarstjórnarinn-
ar.