Verkamaðurinn - 03.09.1938, Blaðsíða 1
Útgefandi: Verklýðssamband Norðurlands.
XXI. árg.
Akureyri, laugardaginn 3. september 1938.
j 42 tbl.
Börnin frá Laufahlíð
kominn lieiin eflir 57
daga sumardvöl.
Eflirtektarverð menningar§tarfseini.
4. júlí s.l. sendi verkakvennafé-
lagið „Eining“ 11 fátæk og veikluð
börn, á aldrinum 6—12 ára, í 8
vikna sumardvöl að Laufahlíð í
Reykjahverfi, auk þess sendi
kvenfélagið ,,Hlíf“ þangað 4 börn.
Laufahlíð er nýbýli í Brekkna-
kotslandi. Búa þar Þórður Jóns-
son barnakennari og Guðrún syst-
ir hans frá Brekknakoti. Hafa þau
bygt þarna myndarlegt stein-
steypuhús, sem er hitað upp með
hveravatni og matur allur gufu-
soðinn og brauð bökuð með hita
frá hitaveitu frá hverum. Á staðn-
tun er yfirbygð heit sundlaug og í
sambandi við hana gufubaðstofa,
sem ungmennafélagið hefir með
höndum.
Börnin 15 voru undir hand-
leiðslu Jónasar Jónssonar leik-
fimi- og sundkennara. Voru þau
látin synda á hverjum degi og
iðka aðrar líkamsæfingar við
þeirra hæfi. Auk þess voru þau að
leikjum og ýmiskonar sjálfráðu
starfi. T. d. fóru þau á grasafjall
og komu heim með allmiklar
birgðir af hinum hollu íslensku
fjallagrösum. Er áhætt að fullyrða
að börnin lærðu að skilja og meta
tign og dásemdir hins víðfeðma,
gjöfula ríkis náttúrunnar eins og
það birtist í hinni íslensku sveit-
arkyrð. Alstaðar var nýjungar að
sjá fyrir börnin, sem komu af
mölinni og fjörunni, þar sem heil-
brigð lífsskilyrði eru meira og
minna takmörkuð og skortir jafn-
vel alveg, í bænum, þar sem æsk-
an sogar í sig göturykið og kola-
reykinn og leikvangurinn er í
sorpinu í fjörunni og á Tanganum
og við kolahaugana í miðbænum.
Heimilið í Laufahlíð er hið
myndarlegasta. Við fyrstu sýn
mætir manni alúð og prúðmenska,
sem heillar þann, sem að garði
ber og vekur hjá honum traust og
öryggi en það er einmitt það, sem
börnin þarfnast, er þau verða að
yfirgefa foreldrahúsin. En enda
þótt mörgu sé ábótavant heima
hjá mömmu og pabba, og jafnvel
þó skortur sé á frumstæðustu lífs-
nauðsynjum, þráir barnið þó altaf
helst að dvelja hjá þeim. En börn-
in 15 í Laufahlíð nutu hinnar
fullkomnustu líkamlegrar og and-
legrar umhyggju hins ágæta
heimilis. Fæðið var ágætt og við
þeirra hæfi. Meðal annars var
fært frá til þess að börnin hefðu
næga, góða mjólk, skyr og smjör.
Enda litu þau afarvel út og voru á
alla lund hin hressustu, þegar þau
voru sótt austur s.l. mánudag. Og
umræðuefni þeirra á leiðinni
heim var harla ólíkt því, sem tíðk-
ast meðal barnanna, sem neyðast
til að leika sér í óhreinum bænum.
(Framh. á 2. síðu).
Nú í vikunni lýstu bæjarfull-
trúar „Sjálfstæðis-flokksins í
Rvík því yfir á fundi bæjarstjórn-
ar að þeir væru fylgjandi því að
herir erlendra þjóða fœru her-
göngur um götur Reykjavíkur
eins og í nýlendum sínum og
feldu því síðan tillögu frá fulltrú-
um Kommúnistaflokksins um að
slíku athæfi yrði mótmælt, svo
sem hergöngu þýskra hermanna í
Rvík á dögunum. (Greiddu 5 atkv.
með till. en 8 á móti).
„Morgunblaðið" aðalmálgagn
„Sjálfstæðis“-flokksins hefir skýrt
frá því á fremstu síðu að Þýska-
land eigi nýlendu í Reykjavík.
Esja seldL
Skipaútgerð ríkisins hefir selt
strandferðaskipið „Esju“ járn-
brautarfélagi í Chile í Suður-
Ameríku. Nettosöluverð er 450
þús. kr. Skipið verður afhent
kaupanda í Rvík eftir 2 mán.
Gert er ráð fyrir að Skipaútgerð
ríkisins láti byggja mótorskip í
stað Esju með farþegarúmi fyrir
150—165 manns og burðarmagni
og rúmi fyrir 300 smál. af vörum.
SÍLDVEIÐIN.
Síðastliðið laugardagskvöld var síld-
araflinn orðinn: Saltsíld 242.250 tn.,
bræðslusíld 1.416.644 hl. Um sama leyti
í fyrra var aflinn: Saltsíld 189.937 tn.,
bræðslusíld 2.004.023 hl.