Verkamaðurinn - 10.09.1938, Síða 3
VEEKAMAÐURINN
3
Nýja ralveitan
og ófriðarhæftan.
Fregnirnar undanfarna daga
bera það ótvfrætf með sér að ó-
friðarblikan er meiri nú í Evrópu
en nokkru sinni fyr síðan 1914.
En jaínvel þó stríðshættan virðist
nær nú þessa daga en t. d. fyrir
nokkrum vikum eða mánuðum,
vita þó allir þeir, sem fylgst hafa
með Evrópustjórnmálunum und-
anfarið, að látlaust hefir verið
unnið að því að koma af stað
heimsstyrjöld. Af þessum ástæð-
um hafa flestar þjóðir búið sig á
ýmsan hátt undir þann orraleik,
sem er yfirvofandi.
Að þessu sinni verður ekki rætt
um framkvæmdir islensku stjórn-
arvaldanna á landsmælikvarða í
þessu samb., heldur aðeins um
framkvæmdir bæjarstjórnar Ak.
í sambandi við rafveituna nýju.
Allir vita, hversu óheyrilega seint
allur undirbúningur rafveitumáls-
ins gekk. Verður sú ómenning-
arsaga ekki rakin hér nú.
En nú er talið víst að vélar
til rafveilunnar og ýmislegt fleira
eigi ekki að flytja til landsins fyr
en að vori. Nú má telja víst að
brjótist heimsstyrjöld út áður þá
fáist vélarnar aldrei fluttar hingað,
fyrst og fremst af þeirri einföldu
ástæðu, að það stórveldi sem
ræður yfir Danmörku mun aldrei
sleppa þeim málmi, sem er i vél-
unum, úr höndum sér. Það er
vitanlegt að í næstu heimsstyrj-
öld keppast stríðsaðilar um að
ná og tryggja sér hverja þá
málmörðu, sem möguleikar eru
á að ná i og nota í hergögn. Og
það hafa verið bræddar upp
stærri vélar í hergögn en vélarn-
ar, sem gert er ráð fyrir að nota
við Laxá.
Má vel vera að það dragist
lengur en til vorsins að heims-
ófriður brjótist út, og að það
lakist að fá vélarnar hingað, en
það yrði áreiðanlega ekki hægt
að þakka það fyrirhyggju bæjar-
stjórnarinnar.
sterkar en þó
ó d ý r a r
f á s t í
Brauns-Verzlun
Páll Sigurgeirsson.
MUNIÐ
GUFUFATÁPRESSUN AKUREYRAR
Kemlsk fata- 00 hattahreinsun.
Frá rafveitubvgQunni.
Um síðustu helgi kom hingað til
bæjarins skip með 700—800 staura
í rafveitulínuna. Mikil óánægja
er yfir því að bifreiðastöð, sem
að langmestu leyti hefir með
höndum fólksflutninga (B. S. A.)
var falin keyrslan og sömu bif-
reiðastöð hefir að sögn verið fal-
ið að keyra staurana síðar austur
á bóginn.
S.l. þriðjudag var byrjað á
byggingu spennibreytistöðvarhúss
hér'upp á brekkunni. Vinna við
það um 10 menn. Á bæjarkerfinu
og línunni austur er ekkert byrjað
enn. Er sami silagangurinn á að
byrjað sé á hinum ýmsu verkefn-
um rafveitubyggingarinnar eins
og var á undirbúningi rafveitu-
málsins.
SÍLDARAFLINN.
S.l. laugardagskvöld var síldaraflinn
eins og hér segir: 271,584 tunnur salt-
síld og 1,490,671 hl. bræðslusíld. Á
sama tima í fyrra 197,467 tn. saltsíld og
2,157,846 hl. bræðslusíld. Töluvert af
sild hefir veiðst þessa viku, sérstaklega
í reknet. Mörg skip eru nú hætt veiðum.
LJÚGVITNUM BER ALDREI
SAMAN.
»Alþýðum.« segir að kommúnistar
hafi skriðið undir kápufald Héðins, en
Alþýðublaðið segir hið gagnstæða. Bæði
blöðin vita ekki sitt rjúkandi ráð af ótta
við að sameining verkalýðsins nálgast.
Bæjarstjórnarkosningariiar fara fram
á morgun á Norðfirði. »AIþýðum.« segir
að Jónasi Guðmundssyni hafi þótt trygg-
ast að vera fyrir austan fram yfir kosn-
ingar því hann sé »vanastur kosninga-
sukkinu þar eystra«. »Verkam.« er sam-
mála »Alþm.« um að Jónas sé hæfastirr
í sukk.
Erlendar Iregnir.
Á þessu ári verður skift um 226
starfsmenn á heimskautastöðvum
Sovétríkjanna. Lögð verður
áhersla á að hinn fasti kjarni
starfsmanna stöðvanna verði
myndaður af innfæddum íbúum
heimskautalandanna, jakútum,
evenkum, nentsum, eskimóum o.
fl. Hinn nýi yfirmaður stöðvar-
innar á Wrangeleyju er t. d. eski-
mói. — Er afstaða kommúnista til
einstakra þjóðflokka og kynflokka,
harla ólík afstöðu nazistanna,
sem halda því fram, að engir séu
hæfir til neins, nema þeir séu
hreinir aríar.
Kommúnistaflokkur Hollands
hefir ákveðið að gefa aðaldagblað
flokksins, „Het Volksdagblad“, út
tvisvar á dag frá 15. sept. næstk.
Samband bretsku skotklúbb-
anna efnir árlega til alþjóðlegrar
samkepni í skotfimi.
Þessari samkepni er nú nýlega
lokið og voru þátttakendur í mót-
inu 200 frá ýmsum löndum.
Fyrstu sex sætin voru unnin af
Sovétskyttunum. Af rússnesku
skyttunum sköruðu fram úr full-
trúarnir frá Frunse-skotfélaginu
og frá „Ossoaviakhim“ í Moskva,
sem fengu 1985 stig af 2000 stig-
um, sem möguleikar voru á að
vinna. Það er eftirtektarvert að
ítölsku skytturnar urðu að láta sér
nægja 8. sætið í samkeppninni.,
milli hinna ýmsu landa.