Verkamaðurinn

Issue

Verkamaðurinn - 01.12.1938, Page 2

Verkamaðurinn - 01.12.1938, Page 2
2 VERKAMAÐURINN ný ja-bíó mm \ Fimtudagskvöld kl. 9: [loyi's í Loiéii. Fimtud. kl. 5. Alþýðusýning. Á HALUM ís. Föstudagskvöld kl. 9. Marie-Luise. Erlendar fresnir. Púsund hollenskir vísindamenn, listaraenn og rithöfundar hafa sent Þjóðabandalaginu mótmæli gegn svik- unum við Tékkoslovakfu og hið sam- eiginlega öryggi. Krefjast þeir þess að horfið verði aftur að grundvallar- atriðum þjóðabandalagssáttmálans. Einn af gæðingum franska aftur- haldsins, Flandin, tók upp á því að senda Hitler heillaóskaskeyti í tilefni af Munchensáttmálanuro. Afleiðingarn- ar hafa orðið þær að hver mektar- maðurinn af öðrum í flokki Flandins sem heitir »Alliance Democratique* hafa dregið sig til baka úr flokks- stjórninni og sagt sig úr flokknum. Meðal þeirra eru t. d. dómsmálaráð- herran Reynand, senator Reibel, sem var varaforseti flokksins. Borgarstjórinn f Compiegne De Rothschild. Flokks- deildin i Efri-Elsass hefir neitað að skipuleggja landsþing flokksins. For- maður flokksins f Elsass lýsti því yfir að ekki væri hægt að tryggja lif og öryggi Flandins, ef hann kæmi til Elsass. Einræðislög Skjald- borgarinnar. Verklýðsfélögin eiga að vera viljalaus verkfæri í hendi Stefáns Jóhanns & Co samkvæmt hinum nýju lögum Alþýðusambandsins. A gerfiþingi Skjaldborgarinnar í haust, setti Skjaldborgin ný lög fyrir Alþýðusambandið. Breyting- ar þær, sem gerðar voru á gömlu lögunum stefndu allar að því að svifta verklýðsfélögin sjálfsá- kvörðunarrétti og auka að sama skapi vald Stefáns Jóh. & Co. í stað þess að verða við ótvíræðum vilja yfirgnæfandi meiri hluta meðlima sambandsins og auka lýð- ræðið innan sambandsins, eru gerðar samþyktir er takmarka enn meir lýðræðið innan sambandsins. Samkvæmt 7. grein laganna er verklýðsfélögunum óheimilt að breyta lögum sínum nema stjórn Alþýðusambandsins hafi tilkynt að breytingarnar séú í samræmi við hennar eigin vilja. Með þessu lagaákvæði getur stjórn Alþýðu- sambandsins, fáeinir hálaunaðir menn, algjörlega ráðið því hvern- ig lög verklýðsfélaganna eru. Jafnvel þó allir meðlimir einhvers verklýðsfélagsins séu sammála um einhverja breytingu á lögum félags síns, hefir það ékkert að segja ef Skjaldborgarforingjarnir eru andvígir breytingunni. / 11. grein er ákvœði um, að stjórn Alþýðusambandsins sé fyr- irvaralaust heimilt að taka öll vinnudeilumál í sínar hendur ef henni þóknast og er heimilt að fara með þau og ráða til lykta eftir eigin geðþótta, jafnvel þvert ofan í vilja hvers einasta meðlims viðkomandi verklýðsfélags. Þetta ákvæði Alþýðusambandslaganna er ennfremur skýlaust brot á þeirri vinnulöggjöf sem Skjald- borgin sjálf hefir barist fyrir og lagt blessun sína yfir. Samkvæmt 25. grein geta verk- lýðsfélög ekki gengið úr Alþýðu- sambandinu nema það sé samþykt með allsherjaratkvæðagreiðslu. A þann hátt hygst Skjaldborgin að njóta sem best stuðnings íhalds og Framsóknar til að hindra að verk- lýðsfélög, sem eru óánægð með einræðisstjórn Skjaldborgarinnar, yfirgefi Alþýðusambandið. Stjórn Alþýðusambandsins hefir tveggja mánaða svigrúm til að láta at- kvæðagreiðsluna fara fram, á þeim tíma, er henni er hagkvæm- ast. í 49. grein er eftirfarandi ákvæði: Kjörgengir á sambandsþing og í aárar trúnaðarstöður innan Al- þýðusambands Islands og Alþýðu- flokksins, eru þeir menn einir, sem eru Alþýðuflokksmenn og ekki tilheyra neinum öðruui stjórnmálaflokki. Hver fulltrúi ér skyldur til, áð- ur en kosning hans er samþykt á sambandsþing, að undirrita hjá stjórn sambandsins yfirlýsingu um, að hann skuldbindi sig til að hlýða í öllu lögum sambandsins, stefnuskrá Alþýðuflokksins, sam- þyktum sambandsþinga og sam- þyktum sambandsstjórnar milH þinga. Samkvæmt þessum lagaákvæð- um eru allir þeir meðlimir verk- lýðsfélaganna, sem tilheyra Sósíal- istaflokknum, Framsóknarflokkn- um og Sjálfstæðisflokknum, sem sagt allir þeir, sem ekki eru í Al- þýðuflokknum og ekki fylgjandi stefnuskrá Skjaldborgarinnar, sviptir þeim rétti að vera kjör- gengir á þing Alþýðusambandsins. Með þannig löguðum gerræðis- fullum lagaákvæðum hygst Skjaldborgin að kúga verklýðsfé- lögin til skilyrðislausrar hlýðni við sig og alt sitt athæfi. Ekkert er Skjaldborginni nú meiri þyrnir í augum en lýðræði og fult jafnrétti innan Alþýðu- sambandsins. Þessvegna grípur hún til ein- ræðis og ofbeldis eins og yfir- stéttin í Þýskalandi gerði 1932 þegar hún sá að lýðræðið var orð- ið henni hættulegt. Á hálmstrái ofbeldis og einræð- is hygst Skjaldborgin að fleyta sér enn um stund eins og Hitler með Gyðingaofsóknunum. Polyfoto myndastofan er opin á sunnudögum frákl.2—4. Áitandið i Ítalíu cttir 16 ára fasistastjórn. Italska þjóðin hefir nú haft fasistastjórn í 16 ár. Mussolini og fasistum hans verður mjög tíðrætt um, hversu fróbrugðið ástandið á ítaliu er ástandinu í öðrum auðvaldsrikjum. En þó að maður sé allur af vilja gerð- ur er algjörlega ókleyft að finna þessi »séreinkenni« þvi sannleik- urinn er sem sé sá, að enginn eðlismunur er á búskaparpólitík ítaliu og annara auðvaldsrikja — að undanskildu þvi að hið vinn- andi fólk er ennþá meira kúgað og arðrænt til ágóða fyrir auð- hringana og auðmennina. Tolla-, verslunar-, gjaldeyris- og skatta- pólitik Italíu er samskonar og i öðrum auðvaldsríkjum. Ársneysla Iffsnauðsynja á Italíu á mann. (Mjólk og vín í lítrum hitt í kílogrömmum). Til jalnaðar Til jafnaðar. 1926/30 1931/36 1935 1936 Hveitimjöl 142,5 124,6 119,4 118,6 Allar kornvörur 176,3 140,5 152,0 149,9 Kartöflur 35,4 34,8 25,8 29,6 Ávextir og kálmeti 107,5 96,8 92,2 91,1 Sykur 9,1 7,1 7,0 6,7 Kaffi 0,9 0,7 0,8 0,6 Kjöt 18,8 16,4 16,5 16,1 Fiakur 5,1 5,4 5,8 5,6 Siðan ránsstyrjöldin í Abessiniu var hafin, hafa lifsnauðsynjar stigið yfir 30% eins og eftirfar- andi tafla sýnir: (1929 = 100) 1935 1936 1936 1938 maí 76,6 82,6 90,7 99,7 Slæm uppskera i ár mun hafa þær afleiðingar, að verð á lifs- nauðsynjum hækkar enn rneir. Verðhækkun lifsnauðsynjanna hefir aftur á móti haft það i för með sér að alþýðan hefir neyðst til að kaupa minna. Eftirfarandi tafla, sem hið kunna enska tima- rit »Economist« birti 9. júlí 1938, gefur glögga hugmynd um þetta: Smjör 1,1 U 1,2 1,1 Ostur 4,6 4.8 5,1 4,3 Egg 6,3 67 6,8 6,6 Mjólk 33,1 33,7 34,0 32,8 Vín 110,0 93,9 82,8 100,4 Vitanlega eru kjör bændanna og verkamannanna enn lakari en þessi skýrsla sýnir, því auðmenn- irnir i bæjunum og stórjarðeig- endurnir hafa ekki minkað neyslu sina undanfarin ár. En jafnframt því sem alþýðan hefir neyðst til að draga meir og meir við sig hafa vörurnar versnað. í nóv. 1937 var fyrirskipað að blanda mjölið í brauðið með 5% mais- mjöli, í des. sama ár með 10% og í vor 1938 með 20%. í stað- inn fyrir ull er framleidd gerfiull »Lanital«, i staðinn fyrir bómull »stapelfas« o. s. frv. Notkun gerfiefna hefir stöðugt færst í vöxt síðustu árin. Formað- urinn í fasista iðnrekendasam- bandinu, Volpi greifi, skýrir frá þvi f aukahefti italska-þýska tímaritsins »Deutscher Volkswirt«, að 1937 ha(i verið notuð 50% gerlielni í bómullariðnaðinum og i ullariðnaðinum 69%. í*ar sem gerfiefnavörurnar eru aðallega notaðar innanlands, en tiltölulega litið af þeim flutt út, þá er augljóst að alþýðan neyðist til að kaupa þessar lé- legu vörur. Samkvæmt skýrslum Pjóða- bandalagsins um neyslu matvæla í ýmsum löndum er áberandi hve t. d. kjör alþýðunnar i ftalíu eru lakari en í nágrannalöndun- um. Fer hér á eftir þessi saman- burður (»Le probleme de l’ali- mentationc, 4. bindi i Genf 1936). Neysla á mann 1930 -1934. Hveiti Sykur Kjöt Egg Mjólkurvörur kR. kg. kg. (stk.) litrar 159 8 16 119 105 183 26 34 — 315 133 45 36 156 509 62 24 50 129 362 ítalia Frakkland Sviss Þýskaland Árið 1928, áður er kreppan hófst, voru tekjur á mann i eftirfarandi löndum eins og hér segir, miðað við verðgildi marks- ins fyrir atrið. ítalia Ansluriiki Dýskaland Fralkland 425 475 771 716 Kjör bændanna fara hraðversn- andi eins og sést m. a. af eftir- farandi töflu.

x

Verkamaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.