Verkamaðurinn - 01.05.1940, Side 1
VERKflmflÐURifin
XXIII. ÁRG. Miðvikudaginn 1. maí 1940. 18. tbl.
Fylkjum liði 1. maí
fyrir atvinnu og frelsi.
Mannkynið hefir aldrei áður
staðið andspænis jafn ægilegum
hildarleik og nú. í Asíu hefir
mannskæð stórstyrjöld geisað um
langa hríð, í Evrópu hófst stór-
veldastyrjöld s. 1. haust og allar
horfur á að hún fari harðnandi og
breiðist út til enn fleiri landa.
Þær þjóðir sem taka beinan þátt
í þessum styrjöldum telja um
1200—1300 miljónir manna. En af-
leiðingar styrjaldanna ná til allra
þjóða undantekningarlaust.
Menn skeggræða um ófriðinn og
spá um horfurnar, hver verði sig-
urvegari í þessum grimmilega
leik, hvað þurfi að gera til þess
að hörmungarnar endurtaki sig
ekki. Svo var einnig í síðustu
heimsstyrjöld. Og þannig hefir það
einnig gengið áður, er styrjaldir
hafa verið háðar. En reynslan hef-
ir sýnt að styrjöld hefir naumast
fyr verið lokið en önnur hefir
brotist út. Þannig verður það uns
orsök styrjaldarinnar er úr sög-
unni.
Orsök styrjaldanna er aðeins ein,
auðvaldsskipulagið. Styrjöldin er
óumflýjanleg afleiðing auðvalds-
skipulagsins. Á friðartímum er
háð barátta í auðvaldsríkjunum
og milli ríkja um auð og völd,
mismunandí illvíg, á stríðstímum
er háð samskonar barátta, munur-
inn er sá að þá nær hún hámarki
sínu. Það er því aðeins ein leið til
að tryggja mannkyninu eilífan, ó-
raskanlegan frið og alla þá bless-
un er því fylgir, kollvörpun þess
þjóðskipulags er fæðir af sér
styrjaldir, og byggja í þess stað
nýtt gagnstætt skipulag, þar sem
öll samskifti manna og þjóða og
þjóðabrota grundvallast á algerðri
samvinnu og sameiginlegum hags-
munum á öllum sviðum, skipulag
sósíalismans um allan heim er
eina tryggingin fyrir varanlegum
friði og farsæld.
í dag, 1. maí, á þessari alþjóð-
legu baráttusíund vinnandi fólks
um víða veröld, hlýtur því krafan
um frið og afnám auðvaldsskipu-
lagsins að bera hæst. Sú krafa
verður ekki uppfylt á baráttu
fólksins sjálfs, sem þjáist af hörm-
ungum styrjaldanna, beint eða ó-
Deint.
Við hér heima á íslandi búum
að vísu enn við vopnafrið, en af-
leiðingar styrjaldarinnar, afleið-
ingar þjóðskipulagskerfisins ligg-
ur eins og martröð á þjóðinni.
Dýrtíðin vex daglega og atvinnu-
leysið nær samtímis til æ fleiri
einstaklinga. í stað þess að gera
ráðstafanir til að létta byrðarnar
á almenningi, grípur ríkisvaldið
til hverskonar nýrra ofbeldis- og
kúgunaraðgerða. Frá „þjóðsjórn-
inni“ hefir alþýðan einskis annars
að vænta en fjandsamlegra at-
hafna á öllum sviðum. Þær kröf-
ur sem íslenzk alþýða ber fram í
dag fær hún því aldrei uppfyltar
án þess að fylgja þeim fast og
einhuga eftir. Barátta íslenskrar
alþýðu fyrir vinnu og brauði, fyr-
ir frelsi sínu og lífi hlýtur því að
verða barátta gegn þeirri ofbeldis-
og óstjórn er nú ríkir.
í dag, 1. maí, verður akureysk
alþýða að sýna, að hún hafi hug
og þor til að berjast fyrir brýn-
ustu lífsþörfum sínum, að hún sé
staðráðin í því að krjúpa ekki
auðmjúk að fótum harðstjórnar-
innar og kyssa á vöndinn eins og
vesæll þræll. í dag mun íslensk
alþýða sýna, að hún er arftaki
þeirra, sem hefndu Jóns Arason-
ar, þeirra forfeðra vorra sem á
hverjum tíma hafa haft kjark og
manndóm til að berjast gegn kúg-
unarvaldinu, erlendu og innlendu.
Bardagar
i'ara vax-
andi
í Noregi.
Samkvæmt útvarpsfregnum er
ljóst, að þýski innrásarherinn i
Noregi hefir sótt hratt fram í
Austurdal og Gulbrandsdal. Stað-
festar fregnir herma að borgin
Röros sé í höndum Þjóðverja.
Bandamenn fullyrða að þeim hafi
tekist að koma allmiklu herliði á
land í Noregi fyrir nokkrum dög-
um og telja aðstöðu sína stöðugt
fara batnandi þar. Er talið að
vænta megi stórtíðmda frá Noregi
næstu daga og verði þá skorið úr
því hvort þýska hernum frá Oslo
tekst að ná sambandi við þýska
herinn í Þrándheimi.
Fregnir herma að rússneskar
flotadeildir hafi nýlega komið til
Hangö, en þar eiga þær að hafa
bækistöð samkvæmt friðarsamn-
ingum Finna og Rússa.
við þann vilja, sem ríkjandi er í
Dagsbrún. Stjórn Dagsbrúnar,
sem eingöngu er skipuð íhalds- og
Alþýðuflokksmönnum, neitaði svo
sameiginlega, að kalla saman fund
í félaginu til að ræða málið, þrátt
fyrir að minnihluti nefndarinnar
gerði kröfu þar um, sem var
studd af fjöldanum í Dagsbrún.
Á mánudagskvöldið tilkyntu svo
í útvarpinu Jón Rafnsson og Ed-
varð Sigurðsson, fyrir hönd
minnihlutans í Dagsbrúnarnefnd-
inni, að undirbúningi hátíðahald-
anna og kröfugöngunnar 1. maí
yrði haldið áfram í samstarfi við
(Framhald á 4. síðu)
Sam öngur
Karlakórs
Akureyrar.
Karlakór Akureyrar undir stjórn Ás-
ke'ls Snorrasonar hélt samsöng í Nýja
Bíó s. 1. sunnudag. Var húsfyllir og
viðtökur áheyrenda framúrskarandi
góðar; varð kórinn t. d. að endur-
aka 9 lög af 13 á sðngskránni. Hr.
Robert Abraham aðstoðaði.
Kórinn endurtók samsöng sinn á
sama slað í gærkveldi. Dómur um
sönginn kemur í næsta blsði.
Pjóðstjórnarliðsbroddarnir
í Dagsbrún svíkja
samþyktir síðasta Dagsbrúnarfundar og reyndu
að hindra sameiginlega kröfugöngu og hátíða-
höld Dagsbrúnarmanna 1. maí.
Minnihluti nefndarinnar hélt
störfum áfram og undirbjó 1. maí
í samstarfi við önnur verklyðs-
félög. Mikil gremja ríkjandi í höf-
uðborginni meðal allrar alþýðu út
af þessum lúalegu svikum þjóð-
stjórnarbroddanna.
Eins og lesendum Verkam. er
kunnugt, var fyrir nokkrum dög-
um samþykt á afarfjölmennum
Dagsbrúnarfundi að félagið geng-
ist fyrir sameiginlegum hátíða-
höldum og kröfugöngu verklýðs-
félaga í höfuðborginni 1. maí.
Níu manna nefnd var kosin á
þessum fundi til að hafa allar
framkvæmdir á hendi. Þegar
nefnd þessi leitaði samstarfs við
Fulltrúaráð verklýðsfélaganna
sem er skipað meirihluta Alþýðu-
flokksmörinum eftir valdboði St.
Jóhanns, þá neitaði Fulltrúaráðið
samstarfi nema með því skilyrði,
að kröfugangan yrði eingöngu
farin undir flokksfána „Alþýðu-
flokksins". Þetta gat meirihluti
Dagsbrúnarnefndarinnar ekki fall-
ist á, enda var þetta í algjörðri
andstöðu við vilja Dagsbrúnar-
manna. Á þessum forsendum
hættir svo meirihluti nefndarinn
ar störfum, í vitanlegri andstöðu
Fjolmennið í kröfugönguna í dag.
Fyllið Nýja-Bió i dag og Kvöld