Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 30.11.1940, Blaðsíða 4

Verkamaðurinn - 30.11.1940, Blaðsíða 4
4 TERKAMAÐUEINN Erlendar fregnir. Nokkrar óeirðir urðu í fyrradag í borginni Zagreb í Króatíu (Jú- goslavíu). Réðust andstæðingar nazistastúdenta á þá. Var háskól- anum í borginni lokað. • Sendiherrar Sovétríkjanna í nokkrum löndum hafa nú í vik- urSii átt viðræður við forsætisráð- herra eða aðra háttsetta fulltrúa nokkurra ríkja. M. a. hefir Mai- sky, sendiherra Sovétríkjanna í London, átt viðræður við Butler, aðstoðarutanríkismálaráðh. Bret- lands, og Umansky, sendiherra Sovétríkjanna 1 Bandaríkjunum, ræddi sama dag við Sumner Wel- les aðstoðarutanríkismálaráðherra Bandaríkjanna. Kommúnistar í Búlgaríu hafa myndað varnarsveitir í ýmsum borgum, þar sem mikið hefir bor- ið á þýskum ferðamönnum undan- farið. Benda margar fregnir til þess að baráttan gegn nazistum fari nú mjög harðnandi í Búlgaríu, bæði í landinu sjálfu og af hálfu Sovétríkjanna. Fyrir nokkrum dögum efndu nazistastúdentar í Sofia, höfuðborg Búlgaríu, til kröfugöngu og báru þeir spjöld með kröfum um að Grikkland léti landsvæði af höndum við Búl- garíu. Kommúnistar og aðrir lýð- ræðissinnar réðust á nazistana, rifu af þeim spjöldin og eyðilögðu þau. Sobolev, fulltrúi Sovétríkjanna á Dónárríkjaráðstefnunni, hefir tvívegis,. nú síðustu daga, farið á fund Borisar konungs í Búlgaríu. Hefir þetta vakið feikna athygli. Ekki er kunnugt hvað þeir hafi rætt, en það er alment talið, að viðræðurnar hafi snúist um utan- ríkisstefnu Búlgaríu og útþenslu- áform Þýskalands á Balkan. Er fullyrt að afstaða Sovétríkjanna hafi valdið því, að ekkert hefir orðið af för búlgörsku ráðherr- anna á fund Hitlers. Sendiherra Sovétríkjanna í Búlg- aríu ræddi í fyrradag við Boris konung og forsætisráðherrann. Fregnir frá London herma, að sendiherrann hafi lýst því yfir að viðræðunum loknum, að hvorki Búlgaría né Sovétríkin vildu ger- ast þátttakandi í styrjöldinni og að Sovétríkin myndu halda áfram að styðja Búlgaríu. Bardagarnir milli Grikkja og ítala fara harðnandi. í gær tóku Grikkir ramgert vígi með byssu- stingjaáhlaupi. Þrátt fyrir það þó ítalir leggi feikna kapp á að verja Argyrokastro og hafi sent þangað mikinn liðsauka hafa Grikkir einnig sótt fram þar. Grikkir tóku meðal annars borg- ina Pogradec nú í vikunni, en hún hefir mikla hernaðarþýðingu. Kvöldskemtun heldur Sósialistafélag Akureyrar á Hótel Akureyri, fullveldis- daginn 1. desember. Sósíalistar œttu að fjðlmenna á þessa skemtun. Sælgœti§T0rur og Suðusúkkulaðl tvá Sœlgaells- og Efnag. Freyju Reykjavlk ER BE§I. Confefet-kassarnlr koma bráðlega í búðirnar. Blðjftð um Freyju vörur. Hvar er komið sjálfstæði íslensku þjóðarinnar? (Framh. af 1. síðu). ræða. Það er að fullu slitið, og verður naumast tekið upp aftur. En losnum við aftur við yfirráð Breta? Já, að styrjöldinni lokinni — segja menn. En ætli að það fari ekki nokkuð eftir því, hvernig styrjöldinni lýk- ur. Og það, sem meira máli skiftir fyrir okkur: Svo lengi, sem við líði eru voldug auðvaldsríki beggja megin Atlantshafsins, verð- ur ísland héðan í frá — vegna legu sinnar — stöðugt þrætuepli þeirra á milli. Ryðji sósíalisminn sér til rúms um meginland Evrópu — eins og líklegt má telja að verða muni upp úr styrjöld þessari — án þess, að ísland fylgist með í þeirri bylt- ingaröldu, vofir yfir landinu sú hætta að verða eitt af helstu fram- varðavígjum ameríska auðvalds- ins, í styrjöld þess gegn sósíalist- iskri Evrópu. Skilyrðin fyrir því, að íslenska þjóðin öðlist aftur sjálfstæði sitt, eru því: í fyrsta lagi, að auðvaldinu verði steypt af stóli í þeim aðal- herveldum Evrópu, sem nú berj- ast um völdin — en sósíalistiskir stjórnarhættir, með tilheyrandi sambúð þjóðanna, komi í staðinn. í öðru lagi, að íslenska þjóðin verði þátttakandi þeirrar sósíalist- isku byltingar og hluti í ríkjakerfi þeírrar sósUlistlsku Evrópu, sem Laus staða. Vélavarðarstaða við Laxárvirkjunina er laus til umsóknar. Byrjunarlaun kr. 3600,oo á ári, og auk þess hlunnindi og dýrtíðaruppbót. Umsóknum sé skilað til rafveitustjórnar Akureyrar fyrir 20. desember þ* á. Nánari upplýsingar gefur rafveitustjórinn. Akureyri, 29. nóvember 1940 Rafveita Akureyrar. Tilkynning. Sameiginlegur verðtaxti iSk6sn>I9aféIa|js Ak- ureyrar, kemur til framkvsmda 1. des. n. k. og gildir þar til öðruvísi verður ákveðið. Akureyri 26. nóvember 1940. fónatan M. Jónatansson. Tryggvi Stefánsson. Jón B/arnason. Jóhann Jónsson. Magnús Magnússon. Oddur Jónsson. Hreinsun á sorpi frá húsum i bænum verður látin í ákvæðisvinnu næsta ár, ef viðunandi tilboð fæst. Upplýsingar um starfið gefur verkstjóri bæjarins Júuíus Jónsson, Tilboðum sé skiiað á skrifstofu bæjarstjóra fyrir 9. desember næstkomandi. Bæjarstjórinn á Akureyri, 27. nóvember 1940. Steinn Steinsen. Sósialistafélag Ákureyrar heldur kvuldskemtun á Hótel Akureyri á morgun, 1. desember, kl. 8 30 e. h. — Til skemtunar: Kaffidrykkja, ræða, söngur, upplestur, dans — Hljómsveit H. A. spilar. — Aðgöngumiðar fást enn á skrifstofu félagsins Gránufélagsgötu 23 (niðri), til kl. 7. í kvðld. STJÓRNIN. þá skapaðist — en félli ekki inn í varnarkerfi ameríska auðvaldsins, sem enn gæti átt sér nokkra fram- tíð. Sem sagt: Sjálfstæði íslands verður héðan í frá — eins og mál- um er nú komið í heiminum — að- eins borgið með sigri sósíalismans í hinum stríðandi stórveldum Ev- rópu, og sigri sósíalismans hér í okkar eigin landi. Án sósíalismans verður ekki framar að ræða um sjálfstæða til- veru smáþjóðar, eins og okkar, á jafn hernaðarlega þýðingarmikl- um slóðum, sem ísland er. Það er staðreynd, sem allir þjóð- ræknir ísleridingar ættu að velta fyrir sér, án hleypidóma og í fullri aivðru. Vetrarstúlku eða ráðskonu vantar strax. Uppl. hjá ritstj. Skrautritun fakob Árnason Skipagötu 5 Kurlspænir oo sao á^ætt i sfopp, f 11 sölu hjá Tryggva jónatanssyni Lundargötu 6

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.