Verkamaðurinn

Útgáva

Verkamaðurinn - 25.04.1942, Síða 4

Verkamaðurinn - 25.04.1942, Síða 4
4 VERKAMAÐURINN Aðalfundup Pöntunarfél. Verkalýðsins verður haldinn í BÆJARSTJÓRNARSALNUM sunnudaginn 3. maí n.k. og hefst kl. 1,30 e. h Dagskrá: 1. Skýrsla framkvæmdastjóra. 2. Reikningar félagsins. 3. Ráðstafað rekstursafgangi. 4. Húsnæðismál félagsins. 5. Framtíðarstarfsemin. 6. Kosningar. Akureyri 24. apríl 1942. Stjórn P. V. A. Við viljuni benda háttvirtum viðskiptavinum vorum á, að ’ýér höfum nú nægar matvörubirgðir og óskum eftir því, að menn taki út á nýju skömmtunarseðlana sem allra fyrst. Það er hyggilegt, eins og nú standa sakir. Kaupfélag Eyfirðinga. Fylkjum liði 1. mai. Framh. af 1. síðu. höldunum 1. maí, að hún vilji — ekki síður en hinn brezki lávarður — sigur rauða hersins og frelsi þjóðanna. En stöndum við ekki sjálf einn- ig í samskonar baráttu, að eðli til, þó ekki sé hún eins hörð, og með öðrum hætti háð? Hafa ekki íslenzku stríðsgróða- burgeisarnir — frændur fasismans — lagt á íslenzka alþýðu hvern fjöturinn af öðrum, sama eðlis þeim, sem fasisminn berst fyrir að koma á allan heiminn?, Hvað tákna hin ítrekuðu stjórnarskrár- brot sjálfra valdhafanna annað en þetta? Hvað tákna gerðardómslög- in? Eða barátta stjórnarvaldanna fyrir því að koma hér sem fyrst á atvinnuleysi aftur? Þetta allt, og ýmislegt fleira, táknar þróun íslenzkra auðvalds- ins til fasismans, þeirrar helstefnu, sem nú reynir að leggja undir sig heiminn, með hinni trylltu styrj- öld. íslenzkur verkalýður þarf þess vegna, engu síður en verkalýður sjálfra styrjaldarlandanna, að vera vel á verði. Sýnum það 1. maí, að við séum Silki (Morocain) hvítt og svart Silki-crepe, margir iitir, nýkomið Pöntunarfélagið. ekki sofandi fyrir hættunum eða kærulaus um úrslit baráttunnar. Fjölmennum á samkomur dags- ins! Fylkjum liði í kröíugönguna! Aðalfuaidur KEA (Framhald af 1. síðu.) sömuleiðis af viðskiftum þeirra við lyfjabúðina og brauðbúðina. Þá samþykti fundurinn að gefa Sjúkrahúsinu á Akureyri 30 þús. krónur. Eins og að venju efndi félagið til skemtikvölda fyrir fulltrúa er sátu aðalfundinn og aðra félags- menn. Meðlimir K. E. A. eru nú 3410 og fjölgaði þeim um 112 á síðast- liðnu ári. Eins og að vanda hefir félagið látið prenta ársskýrslu og verður hún nú send öllum félagsmönnum. Gleðiíegt sumari Vöruhús Akureyrar. Gleðilegt sumari Verzlun /óns Egils. Gleðiiegt sumarl Verzlunin London. Gleðilegt sumarl B ó 1 siu r g e r ð i n Siml 313 Gleðilegt sumarl Smjörlíkisgerð Akureyrar Gleði/egt sumarl Nýja Kjötbúðin. Gleðilegt sumar! Bóka verzl. Gunni. Tr. /ónssonar. Gleðiiegt sumar! Skóverzl. M. H. Lyngdal & Co. Leikhúsið. „Nýársnóttin” verður sýnd í kvöld og annað kvöld. ,JKarlirui í kassanum". Starfsmannafé- lag S. í. S. sýnir um þessar mundir hinn vinsæla skopleik „Karlinn í kassanum“. Handavinnusýniné námsmeyja í Laugalandsskóla verður á morgun í skólanum og verður opnuð kl. 1 e. h. Andlát. S.l. þriðjudag lézt að heimili sínu, Brekkugötu 15 hér í bænum, Stein- unn Jóhannsdóttir, kona Árna Árnasonar bókbindara. — Þá er nýlega látin hér í sjúkrahúsinu frú Jóhanna Kondrup. (Ejíediíegt sumav! tj/ón ödvarð, rafcari Sími 408 (Ejíeditegt sumav í ^Verzl. SyjafjörBur. ¥ Gleðilegt sumar! Polyfoto Jón & Vigfus. Gleðilegt sumar! Skóverksmiðjan Kraftur. Gleðilegt sumar! Þökkum viðskiptin á vetrinum. Pöntunarfélagið. Gleðilegt sumar! Elektro Co. Gleðilegt sumar\ Bifreiðastöðin Bijröst. Gleðilegi sumar\ Samúel Kristbjarnarson rafvirki. Gleðilegt sumar! Sápuverksmiðjan Sjöjn Gleðilegt sumar! Gufupressun Akureyrar

x

Verkamaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.