Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 30.03.1943, Page 1

Verkamaðurinn - 30.03.1943, Page 1
tfERKHtnMURIHn XXVI ÁRG. Þriðjudaginn 30. mars 1943. 12. tbl. HVAD DVELUR FELAGSLEGA SAM- EININGU VERKAMANNA HÉR í BÆ? Alþýða bæjarins er reiðubúin til sameining- ar á grundvelli lýðræðis, jafnréttis og skoðanafrelsis Viðtal við Loft Meldal, form. Verkamannafél. Akureyrar Marethvirkjalínan í höndum 8. hersins breska Her Rommels á hröðum flótta Ritstjóri „Verkam." hitti Lofr Meldal að máli í morgun og spurði hann frétta um hvað liði samein- ingu verkamanna hér í bænum á stéttarlegum grundvelli. • Eins og lesendum „Verkam." mun kunnugt, segir' formaður Verkamannafélagsins, hafa fulltrú- ar Alþýðusambands íslands, þeir Jón Sigurðsson og Jón Rafnsson, unnið að því í rúma viku að korni á algerðri einingu í stéttarsamtök- um verkamanna hér í bænum. Hef- ir mér virst að samstarf þeirra og samstiltur vilji beggja í þessu mik- ilvæga máli sé í besta lagi. Á hvaða grundvelli er gert ráð fyrir að sameiningin verði fram kvæmd? Hafa ekki komið fram á- kveðnar tillögur um það, spvrjum vér Loft. Jú, að vísu hafa fulltrúar Alþýðu- sambandsins borið fram ýmsar hyggilegar sameiningartillögur, en með því að Verklýðsfélag Akureyr- ar hefir enn ekki fengið tækifæri til að taka afstöðu til þeirra, tel ég ekki tímabært að skýra nánar fri þeim. Hafa þá ekki stéttarfélögin lagt fram sínar tillögur til samkomu- lags? jú, Verkamannafélag Akurevrar og verkakvennafélagið „Eining“ Iiafa.borið fram tillögur, sem eg tel í alla staði sanngjarnar og aðgengi- legar og mun blaðið geta átt kost á því að birta þær síðar. Hinsvegar er mér engin launung á skoðunum mínum og minna félaga í þessum sameiningarmálum, enda varða þær allan verkalýð bæjarins. Eg hefði t. d. getað hugsað mér- skynsamlega sameiningu í ýmsum formum. Við félagar hefðum t. d. vel getað fallist á til samkomulags, að Verkalýðsfélagi Akureyrar yrði gefinn rétturinn, sem löglegu sam- bandsfélagi og sjóðeignir Verka- mannafélagsins og húseign gengi til Verkalýðsfélagsins. Við hefðum í öðru lagi getað sæst á það, að Verkamannafélagið og verka- Rakmaninoff látinn Sergej Rakmaninoff, píanosnill- ingurinn heimsfrægi, létst í fyrra- dag. Hann var rússneskur og var fæddur I. apríl 1873 og var því nærri 70 ára. kvennafélagið ,,Eining“ gengju inn Verkalýðsfélagið og allar eignir beggja félaganna rynnu til Verka- lýðsfélagsins. Þá hefði okkur þótt einkar æskilegt, með tilliti til skoð- ana almennings, að öll þessi þrjú félög, sem þetta mál snýst urn, yrðu leyst upp og eitt nýtt verkalýðsfélag myndað í staðinn í bænurn. Loks hefðum við getað fallist á þá hug- mynd, að verkakvennafélagið „Ein- ing“ og Verkalýðsfélag Akureyrar yrðu framvegis hin löglegu sam bandsfélög verkakvenna og verka- manna hér í bænum og Verkalýðs félagi Akureyrar yrði veitt þau fríðindi til samkomulags, að konur (Framh. á 4. síðu). í gær bárust fregnir um það að 8. herinn breski, undir forustu Montgomerys, hefði brotist gegnum Hlé á stórorustum á Austurvígstöðvunum Á Austurvígstöðvunum er nú að verða hlé á stórorustum eri þó eru víða snörp átök um mikilvægar hæðir og þorp. Vinna nú báðir aðil- ar að því að endurskipuleggja heri sína fyrir átökin í vor og sumar. Þjóðverjar hafa síðustu viku hald- ið áfram tilraunum sínum til þess að komast yfir Donetzfljót, en hefir ekki tekist að ná fótfestu þar. Á miðvígstöðvunum hafa Rússar haldið áfram sókn sinni í áttina til Vyazma en eiga við vaxandi erfið- leika að stríða vegna vorleysing- anna. 1 Vestur-Kákasus hefir Rauði her- inn unnið.töluvert á í síðustu viku og nálgast Novorossisk. Marethvirkjalínuna og er hún nú öll í höndum 8. hersins. Hefir 8. herinn alls tekið yfir 6 þúsund fanga síðan árásin hófst á Mareth- virkjalínuna. Hersveitir Rommels hörfa undan sem hraðast. Marethvirkjalínan var mjög ram- lega gerð og voru þar hvarvetna steinsteypt virki. Þjóðverjar hafa játað að hreyfing sé komin á her Rommels norður á bóginn, en reyna að gera sem minst úr þessum mikla ósigri sírtum. Hersveitir Bandaríkjamanna og Frakka hafa einnig unnið nokkuð á undanfarna daga. KOSNINGARNAR í DANMÖRKU Nazistar eiga litlu fylgi að fagna S.l. þriðjudag fóru^ fram þing- kosningar í Danmörku. Kosning- arnar voru mikill ósigur fyrir naz- ismann. En rirslitin urðu þessi: — Sósíaldemokratar 894777 atkv. 6G þingmenn. Viðbót 22% og 2 þing- menn. Radikali flokkurinn 175025 atkv., 13 þingmenn. Viðbót 8%, en tapaði þó einu þingsæti. íhalds- Verkafólk í Hrísey fær verulegar kjarabætur Nýlega voru undirritaðir samn- ingar milli Verkalýðsfélags Hríseyj- ar og Útgerðarmannafélags Hrís- eyjar um kaup og kjör verkafólks. Samkvæmt þessum samningi liækk- ar tímakaup karlmanna í almennri dagvinnu úr kr. 1.56 upp í kr. 1.90 (grunnkaup) og annað kaup hækk- ar nokkurnveginn hlutfallslega. En s.l. sumar hækkaði tímákaupið úr kr. 1.30 upp í kr. 1.56. Samkvæmt samningnum fær verkafólkið greitt fýrir kaffitíma tvisvar á dag og auk þessa felur samningurinn í sér ýmsar aðrar kjarabætur. Tímakaup í Hrísey í dagvinnu er nú orðið hið sama og á Dalvík, Ólafsfirði, Húsavík og Austfjörð- um. Hefir því verið stigið eitt skref enn í þá átt að samræma kaupið um alt land. flokkurinn 421069 atkv., 31 þing- maður. Viðbót 40% og 5 þing- menn. Vinstri flokkurinn 376413 atkv., 28 þingmenn. Viðbót 30%, en tapaði þó 2 þingsætum. Rets- forbundet 31085 atkv., 2 þing- menn, en hafði áður 3. Bænda flokkurinn 24701 atkv., 2 þing- menn, en hafði áður 4. Nazistar 43263 atkv., 2 þingmenn, hófðu 'áður 3. Dansk Sanding 42252 atkv., 3 þingtnenn, hafði engan áður. Kommúnistaflokkurinn hafði hvergi mann í kjöri, sökum þess að ríkisstjórnin hafði, eins og kunn- ugt er, bannað hánn, samkvæmt skipun þýsku nazistastjórnarinnar, og þverbrotið með því stjórnar- skrána. Þátttakan í kosningunum var mjög nrikil og mun meiri en við næstu kosningar á undan. Kusu nú 91%, en 1939 var kosningaþátttak- an 79.5%. SOVÉTSÖFNUNIN. S.l. laugardag var söfnunin alls orðin rúmlega 80 þús. kr. í gærkvöldi var söfnunin hér Akureyri orðin yfir 12.000.00 kr. og er þátttakan óvíða eða jafnvel hvergi eins mikil og hér, þrátt fyrir níðgreinar sjálfboða- liða Göbbels í Alþýðumanninum og íslendingi. í nefnd þeirri, sem annast yf- irstjóm söfnunarinnar, eiga þess- ir menn sæti: Eiríkur Finnbogasón, frá Stú* dentafélagi Háskólans, Agnar Þórðarson, frá Félagi róttækra stúdenta, Einar Andrésson, frá Sósíalistafélagi Reykjavíkur, Þor finnur Guðbrandsson, frá Múr- arafélagi Reykjavíkur, Magnús Ásgeirsson, frá Bandalagi ís- lenskra listamanna, S. A. Friid, frá Normannslaget í Reykjavík, Eggert Þorbjamarson, frá Full- trúaráði verkalýðsfél. í Reykja- vík. Ennfremur eiga sæti í nefnd- inni þeir Jakob Kristinsson, fræðslumálastjóri, Kristinn An- drésson alþingismaður, Axel Thorsteinsson, rithöfundur og Sigurður Thorlacius, skólastjóri, og er hann formaður nefndarinn- ar, en Magnús Ásgeirsson ritari. Tvær nýjar bækur Nýkomin er á bókamarkaðinn skáldsaga eftir Jóhannes úr Kötl- um. Heitir hún „Verndarenglarnir" og fjallar um hernámið. „Að elska og lifa“, heitir nýút- komið leikrit í fjórum þáttum, eftir Gunnar Benediktsson. Bátur ferst með 2 mönnum Talið er víst, að báturinn „Vin- ur“, frá Stöðvarfirði hafi farist s. í. föstudag ásamt tveimur mönnum, er á honum voru. Hétu þeir Guðni Eyjólfsson og Þórhallur Erlendsson, báðir frá Stöðvarfirði. Var leitað að bátnum á laugar- daginn og í gær var leitinni haldið áfram og leitaði þá bæði varðbát- urinn „Óðinn“ og flugvél og varð árangur ekki annar en sá, að ár fanst úr bátnum. Báturinn var opinn vélbátur, 2Vi smálest að stærð.

x

Verkamaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.