Verkamaðurinn - 01.05.1943, Blaðsíða 1
VERKflfflflÐURitlll
XXVI ÁRG.
Laugardaginn 1. maí 1943.
17. tbl.
ÁVARP TIL ALÞÝÐUNNAR
Á AKUREYRI
1. maí hefir eftir langa baráttu hlotið fulla viður-
kenningu sem hátíðis- og baráttudagur verklýðsstétt-
arinnar og launþega almennt í landinu. Með hátíða-
höldunum vilja launþegasamtökin tjá sem best vilja
sinn og tilgang. En þó alveg sérstaklega tjá fjöldanum,
og þá ekki síst andstæðingum alþýðusamtakanna, hvað
líður að fylkja fjölmennustu stétt landsins, launþega-
stéttinni, til samtaka um betri hag sinn og aðstöðu í
þjóðfélagin u.
í fyrra gekk verklýðsstéttin í Reykjavík og víðar í
landinu í fyrsta sinn, eftir margra ára sundrung, sam-
einuð til hátíðahaldanna 1. maí. En þá hvíldi enn þungi
flokkadrátta og sundurlyndis yfir hátíð okkar hér á
Akureyri.
Á grundvelli sameiningarinnar hdfa alþýðusamtökin
vaxið og eflst, og skilað launþegastéttunum betri og
ríkulegri árangri en nokkurn tíma áður. Arið 1942 er
mesta merkisár í sögu verklýðssamtakanna í landinu.
Þá heimtu samtökin frelsi sitt aftur og átta stunda
vinnudagur var viðurkendur, en „átta stunda vinna“
var kjörorð fyrstu hátíðahaldanna 1. maí í Bandaríkj-
unum fyrir rúmum 50 árum síðan.
Fulltrúaráð verklýðsfélaganna á Akureyri innan Al-
þýðusambandsins, hefir að þessu sinni forustuna um
hátíðahöldin 1. maí, en sambandsfélögin hér telja nú
um níu hundruð félagsmenn. Fulltrúaráðið hefir fullan
hug á að fá annan og léttari svip á hátíðahöldin en verið
hefir, en til þess þarf umfram alt almennari þátttöku
Við, sem undirritum þetta ávarp, heitum á félaga
okkar og alla launþega í Akureyrarbæ að fjölmenna við
hátíðahöldin 1. maí. Þá mun ský óeiningarinnar þoka
fyrir heiðskírum hátíðisdegi, sem mun skila sameining
stéttar okkar vel fram á veg.
Akureyri, 29. apríl 1943.
Marteinn Sigurðsson, formaður Verkamannafél Akureyrarkaupstaðar.
Björn Einarsson, gjaldkeri Verkamannafél. Akureyrarkaupstaðar.
Jóhannes Jósefsson, ritari Verkamannafél. Akureyrarkaupstaðar.
Áslaug Guðmundsdóttir, í stjórn „Einingar".
Hafsteinn Halldórsson, fulltrúi Alþýðusambandsstjórnarinnar.
Magnús Stefánsson, varaformaður „Iðju .
Tryggvi Helgason, formaður Sjómannafélags Akureyrar.
Bemharð Helgason, varaformaður Sjómannafélags Akureyrar.
Haraldur Þorvaldsson, varaform. Verkamannafél. Akureyrarkaupstaðar.
Elísabet Eiríksdóttir, formaður „Einingar".
Hermann Vilhjálmsson, formaður „Iðju“.
Kristján Kristjánsson, formaður Vélstjórafélags Akureyrar.
Júlíus Bogason, formaður Bílstjórafélags Akureyrar.
Guðmundur Snorrason, varaformaður Bílstjórafélags Akureyrar.
VERKAMANNAFÉLAG AKUREYRAR-
KAUPSTAÐAR TEKIÐ INN í
ALÞÝÐUSAMBANDIÐ
Verkamannafélag Akureyrar-
kaupstaðar hélt fund á annan í
páskum. Var hann fjölsóttur og
fjörugar umræður um þau mál, er
lágu fyrir fundinum og fullkomin
eining.
Formaður tilkynti, að stjórn Al-
þýðusambandsins hefði samþykt
að veita félaginu upptöku í Al-
þýðusambandið.
Miklar umræður urðu um kaup-
gjaldsmálin og væntanlega samn-
inga við atvinnurekendur.
Þá urðu einnig miklar umræð-
ur um 1. maí-hátíðahöldin og var
mikill áhugi meðal fundarmanna
að stuðla að því, að þau yrðu sem
glæsilegust á alla lund.
Fundurinn samþykti tillögu, um
að fela félagsstjórninni að beita sér
fyrir því innan Fulltrúaráðs verk-
lýðsfélaganna, að verkalýðsfélögin
færu að undirbúa byggingu sam-
komulrúss fyrir öll félögin í sam-
einingu með það fyrir augum að
byggingunni verði lokið eigi síðar
en 6. apríl 1948.
Nokkrir nýir félagar gengu inn
á fundinum.
Stjórn fulltrúaráðs
verklýðsfélaganna
Á fundi Fulltrúaráðs verklýðs-
félaganna nú í vikunni var kosin
stjórn og er hún þannig skipuð:
Hafsteinn Halldórsson, formaður.
Marteinn Sigurðsson, ritari.
Tryggvi Helgason, gjaldkeri.
Varastjórn:
Jóhannes Jósefsson, formaður.
Guðmundur Snorrason, ritari.
Áslaug Guðmundsdóttir, gjaldkeri.
Sovétstjórnin slítur
stjórnmálasambandi
við pólsku stjórnina
í London
Fyrir nokkrum dögum var til-
kynt í Moskva að Sovétríkin hefðu
slitið stjórnmálasambandi við
pólsku stjórnina í London. Tók
Sovétstjórnin þessa ákvörðun, sök
um þess að pólska stjórnin hafði
tekið sömu afstöðu og nazistastjórn-
in í Berlín í sambandi við þá áróð-
ursfregn dr. Göbbels að Rftssar
hefðu myrt fjölda marga pólska
(Framhald á 4. síðu).
EFTIR FÁA DAGA HEFST ORUSTAN, SEM
MUN LJÚKA MEÐ BROTTREKSTRI NAZ-
ISTA ÚR SOVÉTRÍKJUNUM
1. maí verður minst í Sovétríkj-
unum í dag eins og undanfarin ár.
í rússneskum blöðum er rætt um,
að eftir fáa daga muni hefjast or-
ustan, sem bindi enda á hernám
aeirra Lrluta Sovétríkjanna, sem nú
eru á valdi Þjóðverja.
í rússneskum blöðum er enn-
'remur talað um að hléið, sem hef-
ir verið nú um skeið á bardögum
á austurvígstöðvunum, sé nú brátt
Þinginu frestað
till .september
Þingmenn Sjálfstæðisfl. og Fram-
sóknar og sumir þingmenn Al-
þýðufl. samþyktu 21. f. m. að fresta
Alþingi til 1. sept. næstk. Gegn til-
lögunni greiddu atkv. þingmenn
sósíalista og sumir Alþýðuflokks-
mennirnir.
Breytingartillaga Har. Guð-m.,
um að þinginu skyldi frestað frá 15.
þ. m., var • feld með atkvæðum
Framsóknar og Sjálfstæðisins.
Með tillögu sósíalista, um að
heimila stjórninni, að gefa ekki út
bráðabirgðalög meðan þingi er
frestað, nema með samþykki þing-
flokkanna eða fulltrúa þeirra,
greiddu aðeins sósíalistar atkvæði.
á enda, það sé aðeins undanfari fár-
viðrisins.
Stórskotalið Rauða hersins hefir
haft sig mjög í frammi síðustu sól-
arhringa á Kúban-vígstöðvunum
og einnig við Ilmenvatn og nórð-
vestur af Moskva.
í þýskúm fréttum hefir oft und-
anfarið verið getið um stórfellda
herflutninga Rússa til vígstöðv-
anna. Rauði flugherinn hefir haft
sig mjög í frammi síðustu daga,
ennfremur skæruliðar að baki víg-
línu Þjóðverja.
í fregnum Þjóðverja vekur það
sérstaka athygli, að þeim verður nú
tíðræddast um varnarvirki sín, er
nú af sem áður var, er þeir voru
með sífelt tal um leiftursóknir og
sóknaráform hins „ósigrandi“
þýska hers.
Til fyrirmyndar
Verkamannafélagið „Dagsbrún"
samþykti nýlega eftirfarandi til-
lögu:
„Fundur haldinn í Vérkamanna-
félaginu „Dagsbrún", 20. apríl
1943, beinir þeim tilmælum til
verkamanna, að þeir minnist 1.
maí, sem alþjóðahátíðisdags verka-
lýðsins, með því sérstaklega, að gefa
sem svari hálfum daglaunum til
Rauða Kross Sovétríkjanna".
FJÖLMENNID í 1. MAÍ KRÖFUGÖNGU ALÞÝÐUSAMBANDSFELAGANNA í DAG!