Verkamaðurinn - 01.05.1943, Blaðsíða 4
4
VERKAMAÐURINN
Myndin sýnir Hertry G. Vallet, amerískan undirforingja af kínverskum ættum, að
æfingu við notkun kafbátabyssu á stórskotaliðsskóla ameríska flughersins í Flo-
rida. Vallet undirforingi hefir fulla ástæðu til að vilja hefna sín á Jöpununum. —
Móðir hans var, síðast, þegar af henni fréttist, í hernumdu landi Japana, en er nú
talin af. Sonur hans, Júlíus G. Vallet, er meðal þeirra, sem saknað er frá bardög-
unum t Kína. Dóttir hans framdi sjálfsmorð, eftir að japanskir hermenn höfðu
ráðist á hana og þrjú af barnabörnum hans voru stungin byssustingjum til dauða í
innrás Japana t Kína. — Frásöénin er staðfest af yfirvöldum Bandaríkjanna.
sína vegna slysa eða a^öðrum or-
sökum vegna starfs síns, eru hon-
um greidd full laun, ef hann heyr-
ir undir fyrsta flokkinn sem nefnd-
ur er hér á undan, en 75 og 50% ef
hann heyrir undir hina síðari.
3. Sjúkratryggingar.
Fram til ársloka 1938, nutu allir
meðlimir verklýðsfélaga, sem unn-
ið höfðu í 3 ár, fullra launa, þegar
þeir voru veikir. Um engan bið-
tíma var að ræða. Full laun voru
greidd frá þeim degi að maðurinn
varð veikur, gegn veikindavottorði
frá lækni vinnustöðvarinnar.
En í desember 1938 voru gerðar
nokkrar breytingar á þessu fyrir-
komulagi, í því augnamiði að
koma í veg fyrir óþarfa fjarveru
verkamanna og að þeir skiptu
óþarflega oft um vinnustaði.
Þau hlunnindi, sem menn nú
njóta hjá slysatryggingunum, fara
eftir starfstíma þeirra hjá sama fyr-
irtæki samkvæmt eftirfarandi regl-
um:
Greiðslur mið-
aðar við full
laun.
Verkamaður, eem unnið
hefir hjá sama fyrirtæki
meir en 6 ár............. 100%
3 til 6 ár .............. 80%
2 til 3 ár .............. 60%
minna en 3 ár.............. 50%
Verkam. yngri en 18 ára
er unnið hafa hjá sama
fyrirtæki meir en 2 ár ........ 80%
minna en 2 ár.............. 60%
Námaverkamenn og aðrir,
sem vinna óholl störf:
meir en 2 ár.............. 100%
minna en 2 ár.............. 60%
Menn, sem vikið er frá starfi
vegna sviksemi voru sviptir rétti til
sjúkratrygginga, þar til þeir höfðu
unnið í 6 mánuði aftur, án þess að
skipta um vinnustað.
Stakkanoff-verkamenn1) og þeir,
sem eru í sérstökum „áhugasveit-
um“, fá greidd full laun frá þeim
degi er þeir verða veikir (svo fram-
arlega að þeir hafi verið iðnverka-
menn í 1 ár).
J) Brautryðjendur á sviði bættra
vinnuaðferða og aukinna afkasta,
kendir við Stakkanoff, manninn,
sem skapaði þessa hreyfingu í Sov-
étríkjunum.
Þeir, sem ekki eru meðlimir
verklýðssamtakanna, fá greidda
helmingi lægri styrki en frá er
sagt að framan. En menn skyldu
ekki gleyma því, að 1940 voru 25,5
milljónir verkamanna í verklýðs-
samtökunum, af þeim 30,4 milljón-
um sem þessar tryggingar náðu til,
svo þeir, sem njóta lægri styrkj-
anna eru hverfandi minnihluti og
mestur hluti þeirra manna stund-
ar ekki verkamannavinnu nema-
tíma úr árinu.
(„Þjóðviljinn").
Þýsk sprengjuflugvél
skotin niður við
Island
Ameríska herstjórnin hér á landi
gaf út eftirfarandi tilkynningu s. 1.
laugardag:
Þýsk sprengjuflugvél var á
könnunarflugi yfir vesturströnd Is-
lands í dag. Amerískar orustuflug-
vélar skutu hana niður.
í Reykjavík var gefið hættu-
merki á laugardaginn. Engar fregn-
ir hafa borist um að nasistaflugvél-
in hafi varpað niður sprengjum eða
valdið tjóni á annan hátt.
Þessi atburður gefur tilefni til
þess að loftvarnasveitir og almenn-
ingur séu vel á verði. Ef til vill er
hættan fyrir okkur aldrei meiri en
undir stríðslokin.
Stjómmálasambandi slitið..........
(Framhald af 1. síðu).
liðsforingja í Smólensk-héraðinu,
einhverntíma áður en Þjóðverjar
náðu því á vald sitt um haustið
1941. Sambúð Sovétríkjanna og
pólsku stjórnarinnar í London hef-
ir verið stirð um langt skeið, eins
og við var að búast, þar sem pólska
stjórnin er samansett af gömlum
og nýjum fasistavinum.
Andlát. A páskadag létust að Krist-
neshæli tveir synir þeirra hjóna Elínar
Einarsdóttur og Tryggva Jónassonar,
Hafnarstræti 29. Er þungur harmur
kveðinn að foreldrum og systkinum
hinna látnu.
Þá er nýlátinn að heimili sínu hér í
bænum Þórarinn B. Ólafsson (Ágústs-
sonar, húsgagnameistara), rösklega tví-
tugur að aldri.
ÞVOTTAHOSIÐ „MJÖLL"
er flutt í hið nýja húsnæði við Kaupvagnsstræti, bak
við verksmiðjuna „Sjöfn“.
Móttaka og afgreiðsla á þvotti fer fram alla virka
daga, frá kl. 9—6
Þvottahúsið „Mjöll“.
MUNIÐ EFTIR AÐALFUNDI
PÖNTUNARFÉLAGSINS í VERKLÝÐSHÚSINU
sunnudaginn 2. maí kl. 2 eftir hádegi.
STJÓRNIN.
Verkfall í opinberri
vinnu hefst 3. maí, ef
ríkisstjórnin verður
þá ekki búin að semja
Alþýðusambandið hefir um
langt skeið reynt að ná samkomu-
lagi við ríkisstjórnina um kjör
verkamanna í opinberri vinnu, svo
sem í vegavinnu og við brúagerð.
Hefir stjórn Alþýðusambandsins
a. m. k. tvívegis skrifað ríkisstjórn-
inni um þessi mál, en loddararnir
er sitja í ráðherrastólunum hafa
ekki svarað, og virðist hafa meiri á-
huga á að auglýsa ekki í Akureyrar-
blöðunum.
Alþýðusambandsstjórnin hefir
nú samþykt að hefja verkfall 3. þ.
m. ef ríkisstjórnin verður þá ekki
búin að semja við Alþýðusamband-
ið.
Hefir stjórn Alþýðusambandsins
þegar gert víðtækar ráðstafanir til
undirbúnings verkfallsins.
„Réttur“
NÝR RITSTJÓRI.
1. hefti þessa árgangs af „Rétti“
er nýkomið út.
í því er, m. a., grein eftir Sverri
Kristjánsson, sagnfræðing, er hann
nefnir „Heimsstríð og heimshorf-
ur“. Rekur hanri þar gang styrjald-
arinnar í stórum dráttum og ræðir
um framtíðarhorfurnar.
Hinn nýi ritstjóri skrifar grein
er hann nefnir „Sigurhorfur".
Þá ritar Brynjólfur Bjarnason,
alþingismaður, ýtarlega grein um
gang dýrtíðarmálanna á Alþingi og
um þær tilraunir, sem gerðar voru
til að koma á samstarfi vinstri
flokkanna.
í heftinu er auk þess þetta efni, m.
a.: „Listin að komast áfram í heim-
inum“, skáldsaga eftir Ólaf Jóh.
Sigurðsson. Upphaf skáldsögu, eft-
ir André Malraux. Greiri eftir Ein-
ar Olgeirsson um rit Sig. Nordals,
„íslensk menning". Greinar eftir
F ermingarskyrturnar
eru komnar.
Gudmannsverzlun
Otto Schiöth.
FLATNIN GSHNÍFAR
VASAHNÍFAR
BÚRHNÍFAR
SVEÐJUR
STÁLBRÝNI
ÞJALIR
RASPAR
MEITTLAR
VÖRUHÚS AKUREYRAR
^jorgunsloppar
plonel mislitt
Pöntunarfélagið
Ásgeir Blöndal Magnússon og Sig-
uurð Guðmundsson, um nýjar er-
lendar bækur um sósíalisma og
þjóðfélagsmál.
Sú breyting hefir orðið á rit-
stjórn „Réttar", að Sigurður Guð-
mundsson, blaðamaður við „Þjóð-
viljann“, hefir tekið við henni af
Gunnari Benediktssyni.
Gert er ráð fyrir, að 4. hefti, alls
320 bls. komi út á þessu, og kostar
árgangurinn aðeins 10 kr.
Afgreiðslumaður „Réttar“ hér í
bænum er Steingr. Eggertsson,
Ránargötu 1.