Verkamaðurinn - 16.10.1943, Page 1
' vXVI ÁRG. Laugardaginn 16. október 1943. 41. thl.
Zaporoshe fallin í
hendur Rauðahersins
Harðip götubarbagap í Melito
pol og Gomel.
Hersveitir Rússa bafa brot-
ist inn í adalvarnarvirkin
viö Kiev.
Frumvarp sósíalista
um breytingu á lögum
um sölu mfólkur
og rfóma.
Sókn Rauða hersins heldur
áfram með vaxandi þunga. Stalin,
marskálkur, gaf í fvrrakvöld út dag-
skipan, þar sem hann skýrði frá
því, að Rauði herinn hefði tekið
hina mikilvægu járnhrautar- og
fljótasiglingamiðstöð Zaporoshe,
með áhlaupi.
I Melitopol og Gomel eru nú
háðir grimmilegir götubardagar og
veitir Rússum þar betur eins og
annarsstaðar. Má búast við falli
þessara mikilvægu borga þá og
þegar.
Takist Rússum að ná Melitopol
er mikil hætta á, að her Þjóðverja á
Krímskaga verði króaður inni.
Við Kiev fara darbagarnir harðn-
andi og eru Rússar komnir vel á
bótum.
f fyrrakvöld var fréttamönnum
útvarps og blaða, og mörgum fleiri,
boðið að skoða breytingar þær og
endurbætur, sem í sumar hafa ver-
ið gerðar á samkomuhúsinu
„Skjaldborg“. Eru það stúkurnar
hér í bæ, sem þarna hafa haíist
handa, um að koma á fót bindindis-
heimili og lagt fram tugi þúsunda
til að gera það, sem best úr garði.
Ætlunin er, að þarna verði fram-
vegis rekin kaffisala, allan hinn
lögákveðna tíma kaffihúsa. Enn-
fremur verður húsið notað fyrir
ýmiskonar félagslega starfsemi, er-
indaflutning, fræðslustarfsemi,
fundahöld og dansleiki. Þær endur-
bætur, sem gerðar hafa verið á
húsinu, gera það að verkum, að
sem kaffihús og skemtistaður er
„Skjaldborg“ fyllilega samkeppnis-
fær við aðra hliðstæða staði hér í
bænum, nema því fremur, að þarna
verður leitast við eftir föngum, að
útiloka ölvun og aðra ósiði, er sigla
í kjölfar hennar. „Skjaldborg" ætti
því hér eftir að verða griðastaður
þess fólks, sem kýs að skemta sér á
hollan og menningarlegan hátt —
og er sfst vanþörf á slíku véi nú á
tímum.
Helstu endurbæturnar eru þess-
í kjallaranum hefir stórt her-
veg með að umkringja borgina og
hafa þegar brotist inn í aðalvarnar-
virki Þjóðverja umhverfis hana.
Er manntjón og hergagnatjón
Þjóðverja gífurlegt, eins og yfirleitt
annarsstaðar á vígstöðvununi.
Ítalía segir Þýskalandi
stríð’ á hendur.
Badoglio tilkynti kl. 13 s.l. mið-
.vikudag, að frá þeim tíma ætti
Ítalía í styrjöld við Þýskaland. ■—
Hafa Bretar, Rússar og, Banda-
ríkjamenn viðurkent ítali sern
bandamenn sína. Er stríðsyfirlýsing
Ítalíu mikill pólitískur ósigur fyrir
Þjóðverja.
bergi verið innréttað sem fata-
geymsla, á mjög hentugan hátt, þá
hefir þar verið komið fyrir tveim
nýjum vatnssalernum og snyrti-
stofu. Eldhúsið er á miðhæðinni og
stór og góð rafeldavél sett þar nið-
ur. Kaffistofan verið máluð og
fóðruð nýju veggfóðri. Samkomu-
salurinn uppi verið málaður að
miklu leyti upp og stórri landslags-
mynd bætt við á suðurgaflinn. —
Haukur Stefánsson, málarameistari,
hefir annast alla málningu á hús-
inu og farist það vel úr hendi. Þá
hefir og verið komið fyrir lyftu,
sem getur flutt veitingar úr eldhús-
inu upp í samkomusalinn. Umsjón
með þeim skemtunum, sem í hús-
inu verða haldnar, hafa stúkurnar
að mestu leyti tekið í sínar hendur.
í samkomusal og gangi er fest upp
reglugerð og leiðbeiningar fyrir
gestina, varðandi rekstur þessa
Bindindisheimilis — og kröfur, sem
gerðar eru til allra þeirra, er
skemtanir sækja þangað.
Stúkurnar eiga þakkir skyldar
fyrir framtak sitt í þessum málum
og er vonandi að hið nýja Bindind-
isheimili verði vel sótt og takast
megi að setja á það þann blæ, að til
sóma sé skemmtanalífi hér í bæn-
um.
Frumvarp til laga um breytingar
á lögum nr. 1, 7. jan. 1935, um
meðferð og sölu mjólkur og rjóma
o. fl„ og lögum nr. 66, 31. des. 1937,
um breyting á þeim lögum.
Frumv. er flutt í n.d. af þeim
Sigfúsi Sigurhjartarsyni, Áka Jak-
obssyni og Einari Olgeirssyni.
1. gr.
a. 2. efnismgr. 1. gr. I. nr. 66
1937 orðist svo:
Gjald þetta ákveður mjólkursölu-
nefnd fyrir fram, og má breyta því,
þegar þörf krefur, þó skal það al-
drei fara upp fyrir 8% af útsölu-
verði mjólkur.
b. Aftan við sömu lagagr. komi
ný grein, svohljóðandi (greinartal-
an breytist samkvæmt því):
í kaupstöðum og kauptúnum
með yfir 1000 íbúa mega bæjar-
stjórnir eða hréppsnefndir annast
sölu og dreifingu neyslumjólkur,
rjóma og skyrs, hver í sínu um-
dæmi. Nú ákevður bæjarstjórn eða
hreppsnefnd að taka að sér sölu og
dreifingu mjólkur og mjólkuraf-
urða, og er þá engum heimilt slíkt
í því umdæmi. Sölustjórn getur þó
veitt leyfi til þess að dreifa þar
mjólk sem gjöfum eða heimilað
framleiðanda að taka hana til eigin
neyslu utan heimilis síns. Sömuleið-
is er framleiðanda ætíð heimilt að
taka í þarfir heimilis síns til neyslu
þar mjólk pá, er hann framleiðir á
heimilinu, og er sú mjólk undan-
þegin gerilsneyðingarskyldu.
Bæjarstjórn eða hreppsnefnd kýs
5 manna stjórn mjólkursamsölu í
umdæminu, og annast stjórn þessi
allan daglegan rekstur samsölunn-
ar, ræður framkvæmdastjóra og
annað starfsfólk. Skal bæjarstjórn
setja mjólkursamsölu starfsreglur,
en ráðherra staðfestir þær að feng-
inni umsögn mjólkursölunefndar.
Nú ákveður bæjarstjórn Reykja-
víkur að taka sölu á mjólk og öðr-
um mjólkurafurðum í sínar hend-
ur, og telst þá Hafnarfjörður til
hennar umdæmis, og kýs þá bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar tvo menn til
viðbótar í stjórnina. Bæjarstjórn
Hafnarfjarðar getur þó haft sjálf-
stæða mjólkursamsölu, ef hún æsk-
ir þess.
Nú óskar bæjarstjórn eða hrepps-
nefnd ekki að hagnýta sér leyfis-
rétt sinn samkvæmt þessari grein,
og getur þá mjólkursölunefnd veitt
mjólkurbúi eða mjólkurbúum, ef
fleiri eru en eitt, sem selja mjólk og
mjólkurafurðir til viðkomandi
bæjar eða kauptúna, sérleyfi til sölu
I og dreifingar mjólkur, rjóma eða
skyrs í kaupstaðnum eða kauptún-
inu.
Þar, sem mjólkurbú annast sölu
mjólkur og mjólkurafurða, skal
mjólkursalan ávalt rekin sem sér-
stakt fyrirtæki með sérstakri stjórn,
og er viðkomandi bæjarstjórn eða
hreppsnefnd heimilt að tilnefna tvo
menn af fimm í þá stjórn.
Þar, sem bæjarstjórnir eða hrepps-
nefndir reka mjólkursamsölu,
skulu þær kjósa endurskoðendur,
tvo aðalmenn og tvo til vara, til
eins árs í senn, en bæjarstjórn úr-
skurðar reikningana, og skal eitt
eintak af þeim fylgja bæjarreikn-
ingunum til stjórnarráðsins, en
annað eintak skal sent mjólkur-
sölunefnd. Mjólkursölunefnd kýs
endurskoðendur annara mjólkur-
samsala og setur þeim starfsreglur
og ákveður þóknun til þeirra.
2. gr.
4. gr. 1. nr. 1 1935 orðist svo:
Innkaupsverð mjólkursamsölu á
mjólk og mjólkurafurðum hvers
verðjöfnunarsvæðis skal ákveðið af
5 mönnum.
Menn þessir eru skipaðir þannig:
Tveir menn skulu tilnefndir af
bæjarstjórn eða hreppsnefnd, tveir
menn tilnefndir af stjórn hlutað-
eigandi mjólkurbús eða mjólkur-
búa, en ef mjólkurbú starfa ekki á
verðjöfnunarsvæðinu, þá skulu þeir
tilnefndir af Búnaðarfélagi íslands,
en oddamann skipar hæstiréttur.
Innkaupsverð mjólkursamsalanna
skal, svo sem við verður komið,
reiknað út eftir vísitölu. Nánari
ákvæði um þetta skulu sett með
reglugerð.
Þar, sem ákvæði laga þessara um
verðlagssVæði ná ekki til, er verðið
til mjólkursamsalanna ákveðið með
samningum milli viðkomandi sam-
sala og þeiniá mjólkurbúa eða
mjólkurframleiðenda, sem til
greina geta komið sem seljendur
neyslumjólkur á þeim stað. Náist
samkomulag ekki skal nefnd sú, er
um ræðir í þessari grein, ákveða
innkaupsverðið.
3. gr.
Fyrsti og annar málsliður 5. gr.
sömu laga falli niður.
* 4- gr-
í stað: „Heimilt skal þó . . . .“ í
2. línu 3. gr. laga nr. 66 1937 komi:
„Heimilt skal. . . . “
5. gr.
6. gr. 1. nr. 1 1935 orðist svo:
Ef mjólkursölunefnd þykir
ástæða til, getur hún að fengnu
leyfi landbúnaðarráðherra ák\eðið,
(Framhald i 4. síðu).
Bindindisheimilið|;»Skjaldborg«
Samkomuhúsið „Skjaldborg" verður framvegis rekið sem bindindis-
heimili. Gagngerðar breytingar hafa farið fram á húsinu í sumar og hafa
eigendur þess, stúkurnar þrjár hér í bænum, staðið fyrir þessum endur-