Verkamaðurinn - 16.10.1943, Blaðsíða 4
4
VERKAMAÐURINN
v.
/
Hlu(a veltu
heldur
verkakyennaf. Eining, sunnu
daginn 17« J>. m. 1 Samkomu
linsinii kl. 4 e. li.
Mariíir á^ælis drællir:
Penin^ar, ÍOO kr. í eiiitim drætti «g flelri smœrri
Bilsœtl til Keykjavikur, kjólasaumur, kápuefnl,
rfómaterta, rakstrar, kartöflur, nýir sterkir herra-
skór og margt flelra.
Engin núll, ekki happdrætti.
Dans um kvöldið.
Nefndin.
TILKYNNING
Viðskiptaráðið hefir ákveðið breytingu á reglum um verðlagn-
ingu vara frá 11. marz og 2. júní 1943.
Samkvæmt henni er ekki heimilt að reikna álagningu á innlend-
an sendingarkostnað, heldur skal honum bætt við verð vörunnar
eftir að heimilaðri hámarksálagningu hefir verið bætt við kaup-
verð á innflutningshöfn eða framleiðslustað. Þegar ákveðið hefir
verið hámarksverð á vöru, er á sama hátt heimilt að bæta við það
sannanlega áföllnum sendingarkostnaði frá framleiðslustað eða
innflutningshöfn til sölustaðar.
Reglur þær, er gilda frá og með 11. október 194.3, um verðlagn-
ingu vara, eru birtar í heild í 59. tiilublaði Lögbirtingablaðsins.
Reykjavík, 13. október 194.3.
Verðlagsstjórinn.
Gegn framvísun stofna frá hlutabréfum í h.f.
Eimskipafélagi íslands, fá hluthafar afhentar nýjar
arðmiðaarkir á skrifstofu félagsins í Reykjavík.
Hluthafar búsettir úti á landi eiu beðnir að af-
henda stofna frá hlutabiéfum sínum á næstu af-
greiðslu félagsins, sem mun annast útvegun
nýrra arðmiðaaika frá aðalskrifstofunni í Reykjavík.
H.F. Eimskipafélag
íslands.
FRUMVARP SÓSÍALISTA
Framhald af I. síðu.
að vissar sveitir, hluti úr sveitum
eða kauptún skuli tekið undir sölu
eða dreifingarrétt mjólkursamsala
bæjar- eða hreppsfélaga eða mjólk-
urbúa.
6. gr.
1. mgr. 7. gr. sömu laga orðist
þannig:
Þeim, sem sérleyfi hafa til sölu
neyslumjólkur, rjóma og skyrs, er
skylt að sjá til þess, að ávalt sé nægi-
leg neyslumjólk fyrir hendi til
síilu. Öll neyslumjólk og rjómi, sem
seldur er frá sölumiðstöð sam-
kvæmt lögum þessum, skal vera
gerilsneyddur af viðurkendum
stofnunum, sbr. þó 15. gr.
7. gr.
8. gr. sömu laga orðist svo:
Mjólkursölunefnd skal skipuð til
4 ára í senn. I henni eiga sæti 7
menn, skipaðir á eftirfarandi hátt:
Sameinað Alþingi kýs 3 menn
hlutbundinni kosningu, Búnaðar-
félag íslands skipar 1 mann og
Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja skipar 1 mann. Nú vanrækir
einhver þeirra aðila, er skipa eiga
menn í mjólkursölunefnd, að gera
það, og skal þá ríkisstjórnin skipa
menn í þeirra stað. Á sama hátt
skulu skipaðir varamenn til jafn-
langs tíma. Mjólkursölunefnd kýs
sér sjálf formann og skiptir að öðru
leyti með sér verkum.
Nefndarmenn skulu búsettir í
Reykjavík eða svo nærri Reykjavík,
að þeir geti hæglega mætt þar á
fundum með sólarhrings fyrirvara.
Þóknun til nefndarmanna skal
vera kr. 10.00 til hvers nefndar-
manns fyrir hvern fund, en kr.
15.00 til formanns. Þóknun þessi
greiðist af verðjöfnunarsjóði ásamt
dýrtíðaruppbíit samkv. vísitölu.
Verðjöfnunarsjóður greiðir einnig
annan óhjákvæmilegan kostnað
vegna starfa nefndarinnar.
8. gr.
Síðasti málsliður 17. gr. sömu
laga orðist svo:
Lög þessi skulu endurskoðuð
eigi síðar en á Alþingi 1945, og til-
nefnir mjólkursölunefnd menn til
þess að undirbúa þá endurskoðun.
9. gr.
Aftan við sömu lög komi svolát-
andi
Ákvæði um stundarsakir.
Nú ákvei ur bæjarstjórn eða
hrepsnefnd að hagnýta sér sérlefis-
rétt sinn til sölu og dreifingar á
mjólk og r.i jólkurafurðum sam-
kvæmt 5. gr. 'tér að framan, og tek-
ur hún þá \ ið öllum eignum og
réttindum, þ. á. m. leiguréttindum
þeirrar mjólkursamsölu, sem starf-
andi kann að vera í umdæminu,
með skuldur.r, sem á þeim kunna
að hvíla og á.i annars endurgjalds.
Þau mjólku. bú eða þeir mjólkur-
framleiðend r, sem kunna að hafa
lagt fram stc fnfé eða önnur pen-
ingaframlög lil mjólkursamsala eða
mannvirkjagerða þeirra vegna,
skulu fá það endurgreitt.
Eftir að lög þessi hafa öðlazt gildi,
skal þegar skipa mjólkursölunefnd
samkvæmt þeim reglum, sem lögin
fela í sér, og fellur þá niður umboð
núverandi nefndar.
Meðan verð það á mjólk, er sam-
komulag varð um í vísitölunefnd
Viðskiptasamningur.
Utanríkismálaráðuneyti Banda-
ríkjanna hefir tilkynnt, að Roose-
velt forseti hafi 30. sept. gefið út
aukayfirlýsingu þess efnis, að hinn
gagnkvæmi viðskiptasamningur
milli Bandaríkjanna og íslands,
sem undirskrifaður var í Reykjavík
27. ágúst, gangi nú í gildi.
Þessi tilkynning forsetans var
birt samkvæmt 17. grein samnings-
ins, en þar var ákveðið, að samn-
ingurinn skuli ganga í gildi 30 daga
eftir að yfirlýsing forsetans hafi
borist í hendur ríkisstjórn íslands
til staðfestingar. Er mánuður var
liðinn frá því að þessi bréfaskipti
fóru fram átti forsetinn að gefa út
yfirlýsingu, þar sem ákveðinn sé
dagurinn, sem samningurinn gangi
í giidi.
Þnrkaðir
ávexlir
PÖNTUNARFÉLAGIÐ
Aðalfundur
Karlakórs Akureyrar verður
verður haldinn i Verkalýðs-
húsinu þriðjudaginn 19. þ.
m. kl. 8 e. h. — Áríðandi að
allir meðlimir kórsins mæti
stundvíslega.
STJÓRNIN.
KORT af austurvígstöðvunum,
Italíuvígstöðvunum, Noregi og
Balkanvígstöðvunum hjá
JAKOB ÁRNASYNI,
Skipagötu .3.
Prentvilla. Á 1. d. 3. síðu: merustu,
les merkustu.
Hjónaefni: Lára Sveinsdóttir og Jó-
hann Stefánsson, kortagerðarmaður, Ak-
ureyrii.
Hjúskapur. Ungfrú Hrefna Magnús-
dóttir og Bjartmar Kristjánsson, stud.
theol. Ungfrú Þorgerður Magnúsdóttir
og Ingólfur Sigurðsson, Ak. Ungfrú Sig-
ríður Sigursteinsdóttir og Friðrik Jó-
hannesson.
Sjötuésafmæli átti í fyrradag Hall-
dóra Bjarnadóttir, heimilisiðnaðarráðu-
nautur og ritstjóri. Halldóra er óefað
ein merkasta núlifandi kona á íslandi. í
áratugi hefir hún unnið ósleitilega að
því, að efla íslenskan heimilisiðnað og
munu þær vera margar húsfreyjurnar í
landinu, sem sendu henni innilegar
kveðjur eða hugsuðu hlýtt til hennar í
tilefni af sjötugsafmæli hennar. Hall-
dóra hefir um margra ára skeið verið
ráðunautur í heimilisiðnaði. Hún stofn-
aði hið vinsæla ársrit Hlín fyrir 25 év-
um og hefir annast ritstjórn þess allan
þann tíma. Árið Í908 tók hún við skóla-
stjórn Barnaskóla Akureyrar og hafði
það starf með höndum um 10 ára skeið.
Blaðið árnar hinni sjötugu merkis-
konu allra heilla í tilefni af afmæli
hennar.
lanbúnaðarafurða, gildir, kemur 5.
gr. þessara laga, um mjólkurverð-
lagsnefnd, ekki til framkvæmda.
10. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Til Elliheimilisins í Skjaldarvík. Frá
Haraldi Guðmundssyni 100 kr. Frá
Soffíu Lilliendahl 20 kr. Frá M. S. 10
kr. Áheit frá F. og J. 10 kr. — Hjartans
þakkir. — Stefán Jónsson.
Trúlofun: Ungfrú Guðbjörg Halldórs-
dóttir og Jónas Jónsson, verkamaður. —
Ungfrú Soffía Jóhannsdóttir (Steinsson-
ar) og Hreiðar Eyfjörð Jónsson, iðn-
nemi.