Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 09.12.1944, Blaðsíða 3

Verkamaðurinn - 09.12.1944, Blaðsíða 3
VKHXLAMABUIUNM 3 VERKAMAÐURINN Úttefandi: Sóaialiatafélag Akureyrar. Ritatjórí: Jakob Árnason, Skipagötu 3. — Sími 466. BlaBnefnd: Sverrir Áskelsson, Loftur Meldal, Lárus Björnsson. Blaðið kemur út hvern laugardag. Lausasöluverð 30 aura eintakið. Afgreiðsla í skrifstofu Sósíalistafélags Akureyrar Verklýðshúsinu. Prentverk Odda Björnasonar. Bjargráð hinna ráðþrota Aldrei hefur innræti Framsókn- armanna til verkalýðs- og atvinnu- mála komið skýrar fram en í út- varpsumræðunum um fjárlögin núna í vikunni. Hermann og Ey- steinn kepptust lrver um annan þveran að útnýða hina nýju stjórn og fyrirætlanir hennar. En hver var svo uppistaðan í öllu þessu níði, sem þessir forkólfar aft- urhaldsins þóttust geta ausið yfir stjórnina? Hún var aðeins sú, að stjórnin hafði ekki byrjað á að lækka kaup verkamannanna og það atriði var ekki fellt inn í málefna- samning flokka þeirra, sem að henni standa. . Þessir menn bentu ekki á eitt ein asta bjargráð annað, stefna þessa flokks og einasta áhugamál er því kauplækkun og aðeins kauplækk- un. Má ekki maddama Framsókn vera stolt af hugkvæmni sinni? Þessi alls-bjargarhugmynd Fram- sóknar var svo rækilega niðurrifin af stjórnarsinnum í umræðunum, að hér gersit ekki þörf að eyða um hana löngu máli. Þar var sýnt fram á, að hugmynd in var í fyrsta lagi óframkvæman leg, í öðru lagi svo óviturleg sem mest gat orðið og í þriðja lagi þýð- ingarlaus, en aftur á móti hefði hún getað riðið atvinnuvegunum að fullu, ef framkvæma hefði átt hana eins og nú er málum háttað. Þá skulum við athuga dálítið sanngirni þeirra manna, sem í dag vilja krefjast þess, að verkalýðurinn lækki kaupkröfur sínar á sama tíma og hungurvofa atvinnuleysis ins bíður við dyr mikils hluta hans marga mánuði á ári hverju. Hefði það ekki verið búhnykkur, eða hitt þó heldur hjá Akureyrskum verkamönnum, að lækka kaup sitt verulega nú, þegar vetur fór í hönd? — Þeim hluta verkamanna (sem þó er allstór), sem geta með ýtrustu bjartsýni búist við að hafa vinnu á að giska 10. hvern dag komandi mánuðum við snjómokst ur af götum eða afgreiðslu skipa Gróflega hefðu þessir menn hlotið að vera sælir með laun sín og hólpnir með fjölskyldu sína, — eða finnst ekki Framsóknarmönnum í bæjarstjórninni svo? Og hvað hafa Framsóknarmenn yfirleity boðið gegn kauplækkun verkamanna? Ekki neitt! nema sömu, stopulu atvinnuna rneð úr- eltum og ónýtum tækjum. — Þar með upptalið. Og nú, þegar líkur eru á, að bætt verði örlítið úr því ófremdar- Skátar gera garðinn frægann Síðastliðinn sunnudag buðu skátar hér í bæ tíðindamönnum blaðanna og vígslubiskupi, bæjar- stjóra og bæjarfógeta, að skoða hið nýja heimili sitt í Lundargötu 10. Vlargir munu hafa tekið eftir því, að sl .sumar og haust hefur oft ver- ið all-mannmargt við þetta hús og ýmsar lagfæringar gerðar á því hið ytra. Þarna hafa skáta-drengirnir verið í sjálfboðavinnu, að stand- setja heimili sitt. Forsaga þessa máls er sú, að fyrv. eigandi húss þessa, Gunnar Guð- laugsson, sem dáinn er fyrir nokkr- um árum, arfleiddi skáta á Akur- eyri að því ásamt öllum öðrum eig- um sýnum, en þær voru talsverðar. Tryggvi Þorsteinsson, skáta- foringi, skýrði gestunum frá þessu m. a. í ýtarlegri ræðu, er hann hélt um starfsemi skáta hér á Akureyri og framtíðaráætlana þeirra. Gunn- ar Guðlaugsson var stofnandi skáta- félagsskaparins hér á Norðurlandi og stofnaði fyrsta skátafélagið hér á Akureyri 1917. Þetta félag mun þá hafa verið fámennt og lítill áhugi ríkjandi meðal bæjarbúa í því efni ,enda hætti þetta félag eftir tvö ár. En árið 1921 tókst Gunnari enn að vinna svo að þessu áhugamáli sínu, að hann gat stofnað tvær deildir skáta 8. apríl það ár, og síð- an hefur félagsskapurinn starfað óslitið hingað til. Eitt af merkustu störfum hreyf ingarinnar fyrstu árin voru þau, að koma upp almenningsbaði og starf- aði það í húsi því, sem nú er Smjör- líkisgerð Akureyrar. Gunnar var í mörg ár skátafor- ingi og eins og áður segir arfleiddi hann félagið að öllum eigum sín- um þegar hann dó og þar á meðal nefndu húsi, sem skátar kalla nú Gunnarshólma. Húsað var gamalt og í slæmu ásigkomulagi bæði vtra og innra. Hafa skátar unnið þar geysimikið til lagfæringar, m. a. járnklætt það og málað, innréttað loftið, sem áður var aðeins geymslu- pláss, og eru þar nú tvær litlar en vistlegar stofur, sem notaðar eru til fundahalda yngstu skátanna. Á miðhæðinni hafa tvö allstór her- bergi.verið vel úr garði gerð og þar konrið fyrir góðum húsgögnum, sem einstakir félagar hafa fært heimilinu að gjöf. Öll vinna og mest af efninu var líka gefið af skátunum sjálfum. Hefur félagið þarna eignast snot- urt og vistlegt heimili og lét Tryggvi svo unrmælt, að ennþá kærara mundi það verða „strákun- um“ vegna þess að þeir skópu það að mestu sjálfir í sínum tíma. Þegar þetta hafði allt verið skoð- að og skýrt fyrir gestunum var ekið vestur á Þelanrörk, en þar eiga skát- ar nú skála allmikinn nálægt Krossastöðum. Þar voru borð öll hlaðin vistum og þáu gestir þar hið bezta kaffi. Skáli þessi er ætlaður skátum i stuttum útilegum, hann skiptist í svefnskála, baðstofu og eldhéis og er allur hið vistlegasta „sæluhús". Þar er vindrafstöð til ljósa og arinn til upphitunar í svefnskálanum. Fagrar landslagsmyndir eru málað- ar á veggina og hafa skátar einnig gert þær að mestu. Mættu skátarnir vera verulega hreyknir af öllum verkunr þar. Það fyrsta, sem gesturinn hlýtur að liugleiða, þegar hann skoðar þessi handaverk, er það, að þarna hefur áhugi, ósérplægni og einlæg- ur vilji verið að verki og sá félags skapur, er að því stendur, hlýtur að hafa holl og göfgandi áhrif á æsku þessa bæjar. Þessvegna er óskandi að skátafélagsskapurinn blómgist og blessist hér í bæ og annarstaðar og áorki að vinna mikið og gott starf bæði fyrir giftu meðlimanna sjálfra og alls almennings. Með þeim orðum þakka eg viðtökurnar síðastliðinn sunnudag. R. G. Sn ástandi, sem ríkt hefur í atvinnu- málunum (þar á meðal framleiðslu- málunum), allan stjórnartíma Framsóknar, þá ærast þessir páfugl- ar, herma hver eftir öðrum verstu siðina og æpa út yfir landsbyggð- ina: Það eina, sem getur bjargað í atvinnuleysi er kauplækkun!!! Það verður fróðlegt að hlusta á þessa menn, þegar þeir koma til kaupstaðarverkamanna fyrir næstu kosningar og biðja þá um fylgi, þessa menn, sem lofuðu sveitafólk- inu atvinnuleysi og kauplækkun við sjávarsíðuna, en kaupstaðarfólk- inu nægri atvinnu og fullu kaupi. Skyldu ekki þeir, sem þá létu glepj- ast til fylgis við falsið og fláttskap- inn, afneita öllum slíkum í krafti samtaka sinna. Og hvað heldur Framsóknar- meirihlutinn í bæjarstjórninni hér að verkafólkið hugsi um þá og orð- heldni þeirra? Fyrir síðustu bæjar- stjórnarkosningar voru ekki spöruð fögur loforð: Bærinn skyldi breyta um svip .atvinna blómgast og vel- megun ríkja til lands og sjávar. Fyrir þessi loforð varð Framsókn Skjaldborgarbíó Laugardag og sunnudag kl. 9: SEÐURSÖKUDÓLGUR Sunnudag kl. 5: ÁSTFANGNIR UNGLINGAR Gerist áskrifendur að ÆFISÖGU EINARS JÓNSSONARS °g ÍSTURLUNGASÖGUí [Bókaverzlun Þ. Thorlaciusí ch>oo<h>wkh>ooo<h>ooshkhkhwh«hsh: svo stærsti flokkurinn í bæjarstjórn inni, en framkvæmdirnar urðu öfugu hlutfalli við styrk flokksins Um þær hafa fáir hnotið né hratað til þessa dags. Þvert á móti hefur þessi hátteðla meirihluti horft upp á ýmsar afturfarir á sviði atvinnu lífsins hér í bæ og unað því vel að framsóknarklukkan gengi aftur bak. Og í dag er ástandið þannig, að mikill hluti verkamanna má bíta klakann í vetur í stað þess að fá at- vinnu frá hendi bæjarstjórnarinn- ar, sem auðvitað mundi hrópa það sama og Framsókn syðra, ef nokkur hlustaði: Lækkið þið kaupið — þá líður ykkur vel! Svo er sofið og aft- ur sofið. Verkamenn á Akureyri ættu að hugleiðá, að bæjarstjórnarvaldið vaknar ekki til aðgerða nema ýtt sé rækilega við því og það beinlínis krafið úrbóta, og verkamenn ættu ekki að hlífast við þeim gerðum. Það er réttarkrafa allra þeirra, sem vilja verða og vita að þeir eiga að vera frjálsir menn. Ýmiss konar Jólatrésskraut svo sem: KÚLUR, margar stærðir ENGLAHÁR og SILFUR- RÆMUR o. fl. JÓLAPAPPÍR, margar teg- undir JÓLABÖGGLAMIÐAR ým- iss konar JOLASVEINAR úr postulíni GERFI-JÓLATRÉ á veizlu- borðið JÓLAKORT, ótal gerðir. Mjög falleg tegund kemur um helgina ásamt Enskum bögglamið- um og umböndum o. fl. o. fl. Bókaverzlun Þ. Thorlacius Húsmæðraskólafélagið heldur basar í Verklýðshúsinu n.k. sunnud. kl. 4 e. h. Hjúskapur: Ungfrú Berghildur Bem- harðsdóttir, Stefánssonar alþm., og Gugm. Eiðsson frá Þúfnavöllum. — Ungfrú Lilja Jónasdóttir og Karles Tryggvason, Akureyri. — Ungfrú Lilja Guðlaugsdóttir og Þóhallur Jónasson, bílstj. — Ungfrú Lára Sveinsdóttir og Jóhann Stefánsson, prentari. Happdrætti K. A. Þessi númer hlutu vinninga á hlutaveltu fél. sl. sunnudag: 533: kr. 500; 268: kr. 200; 1762: kr. 100; 99: kr. 50; 1499: kr. 50; 1674: kr. 50; 1978: kr. 50. Leikfélaé Akureyrar sýnir „Leynimel 19“ í kvöl dog annað kvöld. Böm fá ekki aðgang að þeim sýningum, heldur sér- stökum barnasýningum síðar.

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.