Verkamaðurinn - 17.02.1945, Síða 1
XXVIII. árg. Laugardaginn 17. febrúar 1945. 7. tbl.
Algert samkomulag á Krímráðstefnunni
um lokaþátt stríðsins gegn Hitlers-Þýska-
landi og um samstarfið eftir stríðið
Síðastliðinn mánudag var birt samtímis í London, Moskva og Wash-
ington tilkynning um, að lokið væri 8 daga ráðstefnu Roosevelts, Stal-
ins og Churchlills í borginni Jalta á Krím. Samkomulag hefði náðst um
alt, sem rætt hefði verið nm og fara hér á eftir 9 aðalatriði samkomu-
lagsins.
Verkakvennalélagið rlining"
þrjátíu ára
1. Áætlanir um endanlegan ósig-
ur Þýskalands. — Samdar hafa verið
áætlanir tun hernaðaraðgerðir gegn
Þýskalandi úr austri, vestri, suðri,
norðri, og verður þeim ekki lokið
fyr en komið er inn í hjarta Þýska-
lands, og skilyrðislaus uppgjöf hefir
verið knúin fram.
Hernaðaræði Þjóðverja skal end-
anlega upprætt og á að ganga svo
frá öllu, að Þýskaland geti aldrei
framar rofið heimsfriðinn. Nazista-
flokknum skal útrýmt og öllum
áhrifum nazista úr opinberu lífi.
Þýska herforingjaráðið verður
kveðið niður fyrir fult og alt. Þýski
herinn og hverskonar vopnaðir
flokkar verði bannaðir. Öll iðjuver,
sem hægt er að nota til hergagna-
framleiðslu verði eyðilögð eða sett
undir eftirlit Bandamanna. Öll
vopn verði eyðilögð eða gerð upp-
tæk.
2. Hernám Þýskalands. — Þýska-
landi verður skift í þrjú hernáms-
svæði undir stjórn stórveldanna
þriggja. — Sameiginleg hernáms;
nefnd Bandamanna á að hafa aðset-
ur í Berlín. Frakklandi verður boð-
ið að hernema hluta af Þýskalandi,
ef það óskar þess, og fær það um
leið fulltrúa í hernámsnefndinni.
3. Skaðabætur. — Þýskalandi
verður gert að greiða fullar skaða-
bætur að svo miklu leyti sem eyði-
leggingar þess verða bættar. öllum
stríðsglæpamönnum verður hegnt.
4. Frelsuðu löndin í Evrópu. —
Stórveldin lýsa yfir trú sinni á
meginreglur Atlantshafssáttmálans.
Þau ætla að beita sér fyrir sam-
vinnu Evrópuþjóðanna um efna-
hagslega og menningarlega viðreisn
hinna frelsuðu landa í Evrópu og
stofnun lýðræðissk ipu lags, þegar
búið er að þurka burt síðustu leifar
nazismáns og fasismans.
5. Þjóðabandalag. — Komið verði
Nýr bæjarfógeti
á Akureyri
Friðjóni Skarphéðinssyni, bæjar-
stjóra í Hafnarfirði, hefir verið
veitt bæjarfógetaembættið á Akur-
eyri og sýslumannsembættið í Eyja-
fjarðarsýslu, frá 1. næsta mánaðar.
Umsóknir höfðu borist frá 13
mönnum.
á fót alþjóðlegri stofnun til vernd-
ar friði og öryggi í heiminum. Hún
á ekki aðeins að koma í veg fyrir
árásir, en einnig að vinna að því að
útrýma öllum styrjaldartilefnum
með því að efla samvinnu þjóðanna
á efnahags- og viðskiftasviðinu. Eft-
ir tvo mánuði (21. apríl) verður
haldin ráðstefna í San Francisco til
að leggja grundvöll undir þessa
stofnun samkvæmt samkomulagi
því, sem varð um hana á Dumbar-
ton Oaks-ráðstefnunni.
6. Ný pólsk stjórn. — Stofntið
verði ný pólsk þjóðstjórn, sem stór-
veldin munu svo veita fulla viður-
kenningu. Pólska bráðabirgða-
stjórnin sem nú er, á að veita full-
trúum allra lýðræðisflokka viðtöku
og fulltrúa frá London-stjórninni.
Stjórn þessi á að láta frjálsar kosn-
ingar fara fram svo skjótt sem
mögulegt er. Molotoff, utanríkis-
þjóðfulltrúi, og ambassadorar
Bandaríkjanna og Bretlands í
Framhald á 2. síðu.
Rauða hernum hefir orðið mjög
rnikið ágengt í Slesíu þessa viku og
hefir meðal annars umkringt borg-
ina Breslau. Fregnir í morgun
hermdu, að framvarðasveitir Rússa
væru komnar svo lángt vestur á
bóginn, að þær sæu ána Spree, en
Berlín stendur við þá borg.
í gærkvöldi var tilkynnt í
Moskva, að síðustu leifar setuliðs-
ins í Budapest hefðu nú verið fang-
elsaðar og væri þá alls búið að
handtaka þar 133 þús. þýska og
ungverska fanga, en mannfall naz-
istaharsins í orustunni um Buda-
pest var 49 þús.
Hótel KEA
SL. þriðjudagskvöld bauð fram-
kvæmdastjóri KEA blaðamönnum,
bæjarfulltrúum og ýmsum öðrum
að skoða Hótel KEA, en innanhúss-
smíði þess er nú lokið. Þegar gest-
irnir höfðu skoðað herbergi og sali
hótelsins, vorvi þeim bornar rausn-
Verkakvennafélagið „Eining“
minnist í dag 30 ára afmælis síns.
Á aðalfundi Verkamannufélags
Akureyrar, 24. jan. 1915, var til
umræðu, hvort ekki væri þörf á, að
verkakonur mynduðu með sér fé-
lagsskap. Framsögumaður í máli
þessu var Jóhann Jónsson. í fund-
argerðarbók Verkamannafélagsins
er svo frá skýrt:
„Framsögumaður, Jóhann Jóns-
son, gat þess, að hann hefði átt tal
við nokkrar konur hér í bænum,
um sh'kan félagsskap, og kvað hann
þær málinu mjög hlyntar, en að
þær mundi vanta dugnað og fram-
takssemi til að hrinda málinu í
framkvæmd, og hvatti framsögu-
maður mjög til að Verkamannafé-
lagið tæki höndum sarnan við hin-
ar undirokuðu verkasystur okkar.
Stóð nú upp hver af öðrum og
höfðu allir hið sama að segja, að
undantekinni einni rödd, er kom
fram um, að félaginu mundi nær að
gæta eigin hagsmuna, en að fara að
skifta sér af því, sem því ekki kæmi
við.
Svohljóðandi tillaga kom fram í
málinu:
„Fundurinn vill, að skipuð sé 5
manna nefnd til að stofna kvenfé-
lag, og að nefndinni verði heimilað
að taka fundarsal þennan til leigu
arlegar veitingar í hinum nýja veit-
ingasal, en Jakob Frímannsson,
framkvæmdastjóri, bauð gesti vel-
komna og rakti sögu hóteísbygg-
ingarinnar í aðaldráttum. Auk
hans tóku til máls: bæjarstjóri
Steinn Steinsen, Sig. Guðmunds-
son, skólameistari, Ingimar Eydal,
fyrv. ritstj. og Einar Árnason, for-
maður KEA.
1 hótelintt eru 28 gestaherbergi
og rúma þau 58 gesti, en t veitinga-
jölunum á báðum hæðum geta um
400 manns setið að snæðingi. Þá
eru einnig stórar stofur til funda-
halda, setustofa og fleiri vistar
verur.
Frágangur hótelsins er í hvívetna
hinn myndarlegasti og byggingin
tvímælalaust bæjarprýði og snyrti-
bragur þar á öllu, en margir munu
þó vera þeirrar skoðunar, að æski-
legra hefði verið að fá heldur nokk-
ur góð fiskiveiðaskip fyrir það fé
sem þessi snotra og mikla bygging
hefir kostað. eða að iúinsta kosti
á kostnað Verkamannafélagsins í
eitt skifti“. — Samþykt.
,í nefndina voru skipaðir: Jóhann
Jónsson, Trausti Reykdal, Lárus
Thójarensen, Árni Jóhannsson, Er-
lingur Friðjónsson“.
Þannig hljóðar hin fyrsta bókaða
frásögnin um verkakvennafélagið
„Einingu“. ,
Næsta sporið var svo stigið með
undirbuningsfundi 7. febr. 1915,
þar sem mættar voru allmargar
konur ásamt nefndarmönnunum
frá Verkamannafélaginu. Var þar
kosin nefnd til að semja uppkast að
lögum fyrir verkakvennafélag og
undirbúa stofnfund.
15. febr. 1915 var svo haldinn
stofnfundur verkakvennafélagsins
„Eining“, í Gamla-Bíó, steinhúsi
Antons Jónssonar.
í stjórn voru kosnar: Guðlaug
Benjamínsdóttir, formaður, Ingi-
björg R. Jóhannesdóttir, ritari og
Hallfríður Jóhannsdóttir, gjald-
keri. — Eru þær allar enn á lífi.
„Eining“ hefir síðan óslitið unn-
ið að hagsmunamálum verka-
kvenna og unnið þar mikið verk og
þarft og sigrast á öllum erfiðleik-
um, sem orðið hafa í veginum.
Hefir þó oft reynst erfiður róður-
inn, sérstaklega þó þegar Erlingur
Friðjónsson klauf Verkamannafé-
lagið af því hann varð í minnihluta
við stjórnarkosningu, og reyndi
jafnframt að kljúfa „Einingu".
Núverandi formaður félagsins er
Elísabet Eiríksdóttir og hefir hún
gengt því starfi óslitið síðan 1926,
að undanskildu einu ári er hún var
erlendis. Hefir hún unnið að heill
félagsins af fágætri alúð og ósér-
plægni.
Verkakonur minnast í kvöld 30
ára afmælis samtaka sinna með
myndarlegu hófi í Samkomuhúsi
bæjarins.
í tilefni af þessum tímamótum í
sögu félagsins sendir „Verkamaður-
inn“ ,,Einingu“ alúðaróskir og árn-
ar meðlimum hennar allra heilla á
komandi árum og sigra í hags-
muna- og menningarbaráttunni.
Alþingi kemur saman
1. okt. í haust.
Alþingi hefir samþykkt lög um
að næsti samkomudagur Alþingis
skuli vera 1. ,okt n.k.
samtímis, og víst er um það, að at-
vinnulausir verkamenn munu
naurnast hafa ráð á því að dvelja
oft eða langdvölum í hinum aðlað-
andi hótelsölum og njóta þar þeirra
ánægjustunda, sem þeir ættu þó
skilið, eigi síður en þeir, sem raun-
verulega lifa á þeim, sem draga fisk-
inn úr sjónum eða yrkja jörðina.
Breslau umkringd
Síðustu leifar setuliðsins f Budapest
handteknar