Verkamaðurinn - 24.02.1945, Síða 1
XXVIII. árg. Laugardaginn 24. febrúar 1945. 8. tbl.
Hryggileg tíðindi:
Dellifoss sökl al Þjóðverjum
milli Irlands og Skollands
15 manns er enn saknað en 30 var bjargað
til hafnar í Edinborg
í gær spurðust þau sorglegu tíðindi hingað, að e.s.
DETTIFOSS hefði verið sökkt af Þjóðverjum síðast-
liðinn miðvikudag, 20 mílur norður af Belfast í ír-
landi. Á skipinu voru 31 skipverji og 14 farþegar.
30 manns varð bjargað en 15 er enn saknað.
Þessa fólks er saknað:
FARÞEGAR:
Vilborg Stefánsdóttir, hjúkrun-
arkona, Reykjavík.
Bertha Zoéga, frú, Reykjavík.
Guðrún Jónsdóttir, skirifstofu-
stúlka, Reykjavík.
SKIPVERJAR:
Davíð Gíslason, L stýrimaður,
Reykjavík.
Jón Bogason, bryti, Reykjavík.
Jón Guðmundsson, bátsmaður,
Reykjavík.
Guðmundur Eyjólfsson, háseti,
Reykjavík.
Þeir sem
FARÞEGAR:
Ólafur Björn Ólafsson, Akra-
nesi.
Páll Bjarnason Melsteð, stór-
kaupmaður.
Skúli Petersen.
Bjarni Árnason,
Sigrún Magnúsdóttir.
Euginie Hallgrímsd. Bergin.
Davíð Sigm. Jónsson.
Lárus Bjamason.
Erla Kristjánsson.
Ragnar Guðmundsson.
Theodór Helgi Rósantsson.
SKIPVERJAR:
Jónas Böðvarsson, skipstjóri.
Ólafur Tómasson, II. .stýrim.
Eiríkur Ólafsson, III. stýrim.
Hallgrímur Jónsson. I. vélstj.
Hlöðver Ásbjörnsson, háseti,
Reykjavík.
Ragnar G. Ágústsson, háseti,
Reykjavík.
Jón Bjarnason, háseti, Rvík.
Gísli Andrésson, háseti Rvíik.
Jóhannes Sigurðsson, búrmað-
ur, Reykjavík.
Stefán Hinriksson, kyndari, frá
Akureyri.
Helgi Laxdal, kyndari, frá
Tungu, Svalbarðsströnd.
Ragnar Jakobsson, kyndari,
Reykjavík.
björguðust:
Hafliði Hafliiðason, II. vélstj.
Ásgeir Magnússon, III. vélstj.
Geir J. Geirsson, IV. vélstjóri.
Valdimar Einarsson, loftskeyta-
maður.
Bogi Þorsteinsson, loftskeyta-
maður.
Kristján Símonarson, háseti.
Erlendur Jónsson, háseti.
Sigurjón Sigurjónsson, yfir-
kyndari.
Kolbeinn Skúlason, kyndari.
Sigurgeir Svanbergsson, kynd-
*ari.
Gísli Guðmundsson, I. matsv-
Anton Líndal, matsveinn.
Tryggvi Steingrímsson, þjónn.
Nikólína Kristjánsdóttir ,|>erna.
Baldvin Ásgeirsson, þjónn yfir-
manna.
Setuliðið í Pcznan gjörsigrað
AÍþjóðasamband verklýðs-
félaga verður stofnað
á þessu ári
Síðastliðinn laugardag var slitið
ráðstefnu verklýðsfélaga í London
þar sem mættir voru um 200 fuH-
trúar frá 35 löndum. — Ráðstefnan
Jóninna Sigurðardóttir hefir af Bryn-
jólfi Bjarnasyni, mentamálaráðherra,
verið skipuð formaður skólanefndar
Húsmæðraskóla Akureyrar. Bæjarstjóm
hefiir kosið þá Árna Jóhannsson og Ólaf
Thorarensen sem fulltrúa af sinni hálfu
í nefndina.
samþykkti m. a. að stofna alþjóða-
samband verklýðsfélaga á þessu ári.
jdersveitir Rússa hafa nú gjör-
sigrað setuliðið í Poznan og tóku
þar 23 þús. þýska hermenn hönd-
um, 25 þús. voru feldir í bardögun-
um um borgina. Poznan er ein af
elstu borgum Póllands og taldi um
240 þús. íbúa fyrir styrjöldina.
Hersveitir Konieffs hafa unnið
mikið á í Slésíu undanfarna daga og
halda nú uppi harðri sókn þar í
suðurátt og til vesturs og hafa sam-
einast hersveitum Zhukoffs.
Hersveitir Rokossovskys sækja
allhratt irarn í áttina til Danzig og
Heilindi Sjálfstæðisflokks-
ins og Framsóknar í bafnar-
málinu.
Fyrir síðasta fundi bæjarstjórnar
Akureyrar lá áætlun yfir tekjur og
gjöld hafnarsjóðs fyrir árið 1945 og
var áætlunin samin af Hafnarnefnd
en í henni eiga sæti Erlingur Frið-
jónsson, Jakob Karlsson og Zophó-
nías Árnason.
Samkvæmt þessari áætlun er ekk-
ert fé áætlað til hafnarmannvirkj-
anna miklu á OHdeyrartanga, sem
bæjarstjórn er fyrir löngu búin að
samþykkja að láta byggja og byrj-
að hefir verið á, og hefir því einu
verið borið við nú um langt skeið,
að ekki sé unt að halda þessari
byggingu áfram fyr en Emil Jóns-
son, ráðherra, hefir lagt að fullu
samþykki sitt á fyrirkomulag hafn-
armannvirkjanna.
Það fer hinsvegar ekki dult, að
bæjarfulltrúum Framsóknar ' og
Sjálfstæðisflokksins er vel vært þó
langur dráttur sé á svari ráðherr*
ans og samkvæmt frásögn „ísl.“ í
gær hefir Sjálfstæðisfélag Akureyr-
ar tekið opinberlega afstöðu gegn
því að haldið verði áfram við hin
fyrirhuguðu hafnarmannvirki á
Tanganum.
Telja Sjálfstæðismenn, að þeim
sé kunnugt um, að Framsókn ætli
líka að snúa við snældunni í þessu
máli, en þó líklegast ekki opinber-
lega sem flokkur fyr en eftir bæjar-
stjórnarkosningarnar næsta vetur.
Er ekki ólíklegt að Framsókn vilji
gera smákviðu við hafnarmann-
virkin skömmu fyrir kosningarnar
til þess að reyna þannig að fiska
nokkur verkamannaatkvæði.
Framsókn er fáorð um hafnar-
mannvirkin á' Tanganum xim þess-
ar mundir. Hún er aftur á móti því
háværari um áburðarverksmiðju og
reynir að telja mönnurn trú um, að
kommúnistar hafi ónýtt það mál.
En úr því að Framsókn þykist hafa
svo mikinn ábuga fyrir að koma
hér upp áburðarverksmiðju, hvers-
vegna lét hún hana þá ekki sitja
fyrir „luxus“-hótelinu?
áttu eftir þangað um 45 krn. er síð-
ast fréttist.
r (,
i Segir Island Þýzkalandi ;j
stríð á hendur?
í gær birtist í brezka útvarpinu ;
i frétt um að Tyrkir hefðu sagt Þjóð- ;
i verjum stríð á hendur. Jafnframt; j
; var svo frá skýrt, að í umræðunum ;;
; um þessi mál í tyrkneska þinginu [
; hefði verið upplýst samkvæmt til-;;
; kynningu frá brezka sendiherran- [;
I um í Ankara, að Krímráðstefnan ;;
; hefði samþykkt, að nokkrar stuðn- j
; ingsþjóðir Bandamanna gætu orð- [
; ið fullgildir þátttakendur í starfi I
; sameinuðu þjóðanna, m. a. ráð-!;
; stefnunni í San Francisco 25. apríl;;
; n. k., ef þær yrðu búnar að segja ;
j Möndulveldunum stríð á hendur j j
; fyrir 1. marz n. k. Þjóðir þessar ;
; eru: Tyrkland, Egyptaland, ísland, j I
; Venezúela og Chile. !
; Þessi fregn hefir vakið afar I
j mikla athygli, og hafi hún við rök I
j að styðjast, vakir sennilega fyrir ;
j; Bretum eða Ameríkumönnum að j
;; ná sér í eitt atkvæði í viðbót á j
!; þennan hátt' á fyrirhuguðum ráð-
j stefnum Bandamanna eftir stríðið.!
Leiðbeiningar handa skip-
stjórum hvernig fara skuli
með sprengidufl o. fl., sem
koma eða festast í botn-
vörpum
1. Framúrskarandi varúð er
nauðsynleg, þegar það kemur fyrir,
að tundurskeyti, sprengidufl,
sprengikúlur eða sprengjur finnast
í botnvörpum eða öðrum netum,
þar sem þessir blutir geta ennþá
verið hættulegir, jafnvel þótt þeir
hafi verið langan tíma í sjó.
2. Ef slíkir hlutir koma í net, má
oft uppgötva það, því að aukin
þyngsli í netinu valda:
(a) Strengir eða dráttartaug drag-
ast saman.
(b) Snúningum í vél skipsins
fækkar.
(c) Titringurinn frá skrúfunni
breytist. Skipið víkur sér meira til
þeirrar hliðar, sem botnvarpan ligg-
ur frá.
(d) Þó að alt þetta geti stafað af
stórum fiskdrætti, þá bendir samt
skyndileg breyting á þungan hlut.
t. d. sprengidufl, í botnvörpunni.
3. Sérstakri varfærni skal því
beitt og botnvarpan vandlega at-
huguð, þegar hún kemur upp að
skipshliðinni, til að gá að, hvort
nokkur ofangreind merki sjáist eða
Framhald á 2. síðu.