Verkamaðurinn - 05.01.1946, Qupperneq 3
VERKAMABURINN
3
VERKAMAÐU RINN.
Ótfriandi: Sósíalistafélttg Akureyrar.
Ritatjóri: Jakob Ámaaon,
Skipafötu 3. — Simi 466.
BlaOnatnd: Rósberg G. Snaedal,
Byjólfur Árnason,
Ólafur Aðalsteinsson.
Blaðið kemur út hvern laugardag.
Lauaasöluverð 30 auia eintakið.
Afgreiðsla í skrifstofu Sósíalistafélags
Akureyrar, Hafnarstrœti 88.
Prmntverk Odda Bjömaaonar.
Það er ekki vandi
fyrir verkafólk bæj-
arins að velja
Aðeins Sósíalistaflokkurinn
stillir trúnaðarmönnum
verklýðssamtakanna.
Framboðsfrestur til bæjarstjórn-
arkosninganna er 'svo að segja út-
runninn, og hér á Akureyri eru
komnir fram listar frá öllum stjórn-
málaflokkunum.
Ef framboðslistarnir eru athugað-
ir firá stéttarlegu sjónarmiði — eins
og gera ber í því stéttaþjóðfélagi,
sem við lifum í — þá ætti ekki að
verða vandasamt fyrir verkafólk
bæjarins, og aðra verklýðssinna, að
velja milli framboðslistanna.
Það kemur sem sé í ljós, að
Sósíalistaflokkurinn er eini flokk-
urinn, sem vill koma trúnaðar- og
forystumönnum verklýðsfélaganna
í bænum inn í bæjarstjórnina til
starfa þar og til að gæta hagsmuna
verkafólksins lí stjórn bæjarmálefn-
anna.
Alþýðuflokkurinn, sem vill láta
telja sig verklýðsflokk, virðist ekki
hafa ráð á neinum verkamanni eða
meðlimi nokkurs verklýðsfélags,
sem hann treystir til að'taka sæti í
bæjarstjórninni. Eða ef svo er, þá
hefir þó tekist svo „slysalega“ til, að
flokkurinn stillir embættismönn-
um i þrjú efstu sæti á lista sínum —
og getur þó enga von gert sér um
að fá nema einn mann kosinn. Það
er því útilokað, að nokkur verka-
maður af þeim lista komi til með
að starfa í bæjarstjórninni.
Framsóknarflokkurinn hefir að
vísu sett verkamann í þriðja sæti á
lista sínum, og má gera ráð fyrir að
hann geti náð sæti í bæjarstjórn-
inni. En þetta er áreiðanlega ekki
gert vegna þess, að Framsóknarfl.
hafi áhuga fyrir eða vilji tryggja
hagsmuni verklýðssamtakanna,
heldur í því skyni einu að reyna að
veiða atkvæði verkafólks á lista
flokksins, sem að öðru leyti er skip-
aður forstjórum og embættismönn-
um í öll þau sæti, sem til greina
koma — og mun því liði vera ætlað
að hafa taumhald á verkamannin-
um, þó honum sé slept inn í bæjar-
stjórnina.
Á lista Sjálfstæðisflokksins er
verkamönnum ekkert rúm ætlað,
fremur en vænta mátti, heldur eru
það kaupmenn og bankadirektörar,
sem skipa öll sætin, sem til greina
koma.
Hinsvegar er listi Sósíalistaflokks-
ins næstum eingöngu skipaður
Sjálfshól Framsóknar- og Alþýðuflokksins í húsnæðismálun-
um er ásfæðulaust. - Eða hvar eru afrekin?
„Dagur“ og „Alþýðum." hafa
lagt á það mikla stund, undanfarið,
að hrósa flokkum sínum og hefja
þá til skýjanna fyrir úrræði þeirra
í byggingamálum bæjanna.
Nú eru sem sé bæjarstjórnarkosn-
ingar rétt framundan, og þessvegna
hafa nú málgögn þessara flokka
komið auga á það, sem þau hafa
varla minnst á áður, að margt af
íbúum þessa bæjar býr í gersamlega
óhæfu húsnæði.
Það er kannske skiljanlegt, þó
forkólfar þessara flokka hafi ekki
fyrr munað eftir húsnæðisleysingj-
unum, því ekki munu þeir forstjóri
KEA, bæjarfógetinn og skólastjórar
og menntaskólakennarar, sem prýða
efstu sæti á listum þessara flokka
við bæjarstjórnarkosninguna, um-
gangast daglega brakkabúana eða
þá aðra fátæklinga, sem verða að
troða sér inn í heilsuspillandi hús-
næði.
En atkvæði þessa fólks geta
,,villu“búarnir gjarnan þegið — og
þessvegna eiga þeir, í bili, ekkert
meira „áhugamál" en að benda
þessu fólki á lausnir í húsnæðisnrál-
unum — og náttúrlega eigna sér úr-
ræðinl
Það, sem „Dagur“ og „Alþýðum."
verkamönnum og verkakonum, og
fimm efstu sætin eru öll skipuð
fólki, sem gegnir aðal trúnaðar-
störfum fyrir helstu verklýðsfélög
bæjarins.
í fyrsta sæti er formaður Verka-
mannafélags Akureyrarkaupstaðar
— fjölmennasta verklýðsfélags bæj-
arins. I öðru sæti er formaður Sjó-
mannafélags Akureyrar, sem jafn-
framt er formaður Fulltrúaráðs
verklýðsfélaganna á Akureyri. í
þriðja sæti er formaður verka-
kvennafélagsins „Eining“, sem er
stéttarfélag allra starfandi verka-
kvenna í bænum. I fjórða sæti er
varaformaður Fulltrúaráðs verk-
lýðsfélaganna — maður, sem jafn-
framt hefir ávalt verið valinn í sínu
verklýðsfélagi til að standa á odd-
inum í launabaráttu félagsins og
við samningagerðir þess. í fimta
sæti er valinkunnur verkamaður,
sem nú í vetur hefir gegnt for-
mannsstörfum í Verkamannfélagi
Akureyrarkaupstaðar, í fjarveru
formanns og varaformanns.
Auk þessa er listinn, eins og áður
segir, skipaður völdum verkamönn-
um og verkakonum — þ. á. m. í sjö-
unda sæti fulltrúa Bílstjórafélags
Akureyrar í Fulltrúaráði verklýðs-
félaganna, í áttunda sæti varafor-
manni verkakvennafélagsins „Ein-
ing“, og formanni Trésmiðafélags
Akureyrar í níunda sæti.
Fyrir alla þá, sem vilja aukin
áhrif verklýðssamtakanna á stjórn
bæjarmálanna, er því, eins og áður
segir, auðvelt að velja:
Þeir hljóta allir að fylkja
sér um forustulið verklýðsfé-
laganna í bænum — fylkja sér
um lista Sósíalistaflokksins.
guma nú mest af í húsnæðismálun-
um, eru frumvörp tvö um þessi mál,
sem nú liggja fyrir Alþingi. Er ann-
að flutt af Framsóknarmönnum, en
hitt af heilbrigðis- og félagsmála-
nefnd efri deildar, eftir beiðni fé-
lagsmálaráðherra.
„Dagur“ telur sér náttúrlega til
tekna frumv. Framsóknarmanna,
en „Alþýðum." hitt frumvarpið, af
því félagsmálaráðherra er við það
orðaður.
Það vakti sérstaka athygli, þegar
frumvörp þessi birtust á Alþingi,
hversu lík þau voru hvort öðru í
veigamiklum atriðum, — enda fór
svo, að brigslyrðin gengu á víxl,
milli Herm. Jónassonar og félags-
málaráðherra, um það hvor hefði
stolið hugmyndunum frá hinum!!!
Þetta leiddi til þess, að Jónas
Guðmundsson, sem er spámaður
mikill og skrifstofustjóri sveitar-
stjórnarmálefna í félagsmálaráðu-
neytinu, skrifaði um þetta langa
greinargerð í Alþýðublaðið, þar
sem hann með óvenju sterkum rök-
um hreinsaði bæði Hermann og
Finn af hugmyndastuldinum —
með því að af hvorugum hefði ver-
ið hægt að stela, í þessu efni —
frumvörpin hefðu orðið til fyrir alt
aðra hluti en hugmyndaflug
þeirra!
Málið er sem sé þannig vaxið, að
í fyrra var samþ. á Alþingi þing«-
ályktun, þar sem lagt var fyrir rík-
isstjórnina að láta endurskoða lög-
in um verkamannabústaði og lögin
um samvinnubyggingarfélög og
gera, á grundvelli þeirrar endur-
skoðunar, drög að nýrri löggjöf um
þetta efni.
Samkvæmt þessum fyrirmælum
Alþingis lét félagsmálaráðherra
vinna út frumv. það, sem hann er
kendur við, með þeim hætti, að
safnað var saman á skrifstofu sveit-
arstjórnareftirlitsins umsögnum og
tillögum bæjarstjórna víðsvegar um
landið. Ennfremur umsögnum og
tillögum frá stjórnum bygginga-
sjóða og byggingafélaga verka-
mannabústaða og samvinnubygg-
ingafélaga. Úr öllum þessum gögn-
um og tillögum vann svo skrifstofa
sveitarstjórnareftirlitsins — en aðal
mennirnir þar eru áðurnefndur
Jónas Guðmundsson og Framsókn-
armaðurinn Jens Hólmgeirsson —
frumvarp félagsmálaráðherrans.
Hinsvegar upplýstist, að Her-
mann hafði ekki lieldur sjálfur sam-
ið „sitt“ frumvarp, heldur hafði áð-
urnefndur Jens Hólmgeirsson ver-
ið aðalmaðurinn f því verki — o°-
taldi Jónas spámaður það fullnægj-
andi skýringu á því hversu frum-
vörpin líktust hvort öðru.
Sem sagt: Frumvörpin í luisnæð-
ismálunum, sem „Dagur" og „Al-
þýðum.“ eru að reyna að flagga
með, sem kosningabeitu fyrir sína
flokka, eru alls ekki þeirra verk —
heldur árangur af starfi, sem Al-
þingi hefir með sérstakri ályktun
lagt fyrir félagsmálaráðuneytið að
framkvæma.
Þó frumvörpin hafi margt til
síns ágætis, hafa þessir flokkar þess-
vegna ekki af neinu að státa — en
væri nær að líta á afrek sín í því að
leysa húsnæðisvandræðin hér í þess-
um bæ, fyrst þeir treysta sér til að
betla um atkvæði vegna húsnæðis-
málanna.
Það mætti t. d. rninna Framsókn-
arfl. á það, að eitt sinn lét hann
stofna hér svokallað samvinnubygg-
ingarfélag. Félagið lét einu sinni
byggja nokkrar íbúðir. En ein-
hvernveginn atvikaðist það nú svo,
að það voru ekki mestu húsnæðis-
leysingjarnir, sem hlutu þessar
íbúðir, heldur fólk, sem var nægi-
lega hátt skrifað hjá KEA — að
minsta kosti gaf almenningur
strætinu nafn af því tilefni.
Síðan hefir ekkert heyrst frá því
félagi, og ekki hefir það verið orð-
að við neinar aðgerðir til að leysa
fólk úr brökkunum eða öðrum
heilsuspillandi íbúðum, og hefir þó
KEA haft ráð á og notað allmikið
byggingarefni þessi árin.
,,Alþýðum.“ er þá að sjálfsögðu
ekki ókunnugt um það, að Erl.
Friðjónsson, bæjarfulltrúi Alþýðu-
flokksins um fjölda ára, hefir um
langa hríð setið sem stjórnskipaður
formaður byggingafélags verka-
manna. Allan þann tíma hefir hann
látið félagið byggja aðeins 12 íbúð-
ir — þær siðari sex árið 1942, og
gerði þó ákveðnar tilraunir til að fá
félagsmenn til að falla frá óskum
sínum um byggingar það ár.
Síðan hefir hann hindrað að fé-
lagið byggði nokkuð, og hefir þó
félagið haft árlegan styrk frá ríki og
bæ, sem numið hefir 60—70 þúsund
krónum á ári.
Þegar við þennan „dugnað“- bygg-
ingafélaganna, sem „Dagur“ og
„Alþýðum." mættu teljast málsvar-
ar fyrir, bætist svo það, að meiri-
hluti bæjarstjórnarinnar hefir oft-
ast drepið allar tillögur, sem sósíal-
istar hafa flutt í bæjarstjórninni til
úrbóta í húsnæðismálunum, þá
virðist full-langt gengið hjá þeim
að ætla að sníkja sér atkvæði á þeim
málum — enda verður árangurinn
vonandi eftir því.
KVENTASKA
með peningum tapaðist á jóla-
trésskemtun verklýðsfélaganna
að Hótel Norðurland. Skilist á
Skrifstofu verklýðsfélaganna,
Verklýðshúsinu.
NÝ BÓKAHILLA og
KOMMÓÐA til sölu.
Aðalstræti 16 (uppi).
Frá Æ. F. A.
Næsti fundur verður haldinn
á morgun, sunnudaginn 6. jan.
kl.T6.00 í skrifstofu Sósíalista-
flokksins, Hafnarstræti 88. —
Fjölmennið! Mætið stundvísl.