Verkamaðurinn - 07.02.1947, Síða 3
VERKAMAÐURINN
3
VERKAMAÐURINN
Útgefandi:
Sósíalistafélag Akureyrar
Ritstjóri:
Rósberg G. Snædal
Blaðnefnd: Eyjólfur Árnason
Tryggvi Helgason
Blaðið kemur út hvern föstudag
Árgangurinn kostar kr. 12.00
Afgreiðsla í skrifstofu Sósíalista-
félags Akureyrar, Hafnarstræti 88
Prentverk Odds Björnssonar
BjEJASMAL
(Framhald af 1. síðu).
ánægju sinni yfir framkomnu frum-
varpi á Alþingi til laga, um aðstoð
ríkisins við opinberar byggingar
bæja- og sveitarfélaga, og skorar á
Alþingi að samþykkja það“. —
Var hún samþykkt.
Verkamannafél. Akureyrarkaup-
staðar hafði með bréfi, dags. 20.
des. og 2. jan., skorað á bæjar-
stjórn að hefjast nú þegar handa
um verklegar framkvæmdir til
tryggingar gegn atvinnuleysi verka-
manna nú í vetur. Við umræður um
erindi Verkamannafélagsins báru
fulltrúar sósíalista fram eftirfarandi
tillögu:
„Til þess að bæta nokkuð úr því
atvinnuleysi, sem nú ríkir í bænum,
samþykkir bæjarstjórn að bæta við
20 verkamönnum í vinnu í febrúar-
mánuði, í viðbót við þá, sem fyrir
eru.“
Var samþykkt með 6 : 4 atkv. að
vísa tillögunni til bæjarráðs. Und-
anfarið hefur veðrátta verið svo
mild og góð, að auðvelt hefur iver-
ið að vinna útivinnu eins og um
sumar væri, ekkert frost í jörðu.
Hefði því verið auðvelt, t. d. að
vinna að holræsa- og gatnagerð, en
þrátt fyrir það hefur ekkert verið
gert af hedi bæjarins, til að veita
mönnum vinnu, fyrr en erindi
, eikamannafélagsins var tekið fyrir
1 )æjarráði þann 23. jan. Var þá
samþykkt að hefja vinnu við hol
ræsagerð í nokkrum götum á Odd-
eyri o. fl.
Tvískinn-
Móðir mín, GUÐLAUG S. SIGFÚSDÓTTIR, verður jarðsett
þriðjudaginn 11. þ. m. Kveðjuathöfn fer fram í Akureyrarkirkju
og hefst kl. 1 e. h. — Greftrunin fer fram að Tjöm í Svarfaðardal
sama dag.
F. h. aðstandenda.
Sigríður Baldvinsdóttir.
endurtók söngskemmtun sína í
Nýja-Bíó síðastl. sunnudag, kl. 3
síðd. Undirleikari var hinn sami og
aður, Ólafur Einarsson.
í þetta sinn var söngvarinn sér-
lega vel „upplagður“, og tókst hon-
um yfirleitt enn betur en í fyrra
skiptið. Engin óhöpp komu fyrir,
°g röddin naut sín prýðilega á
hærra sviðinu og var þar vel í hóf
PiÍa'0 Væra ekbi réttlátt að bera
te,s"05
liafa sungið, en röd/hanj c' h<"
siður goð en þeirra, og hann söng
af skilnmgi og mnilegri tilfinningu&
Það var unun að heyra, hve veí
hann flutti t. d. Lindina eftir Eyþór
Stefánsson, Þótt þú langíörull
legðir eftir S. Kaldalóns og mörg
fleiri lög.
O
Áheyrendur, sem hefðu gjarnan
mátt vera fleiri, létu hrifningu sína
Þriðjudagurinn 4. febr.
„Alþýðum. „boðunardagur"
eignast ritstj. hinnar nýju ríkiSstjórnar
Stefáns Jóh., var viðburðadagur í fleiru
en einu tilliti. „Alþýðumaðurinn“, hið
virðulega málgagn akureyrsku kratanna,
kom þá út og hafði þær fréttir að flytja,
að hann hefði eignast ritstjóra, sem þyrði
að láta nafns síns getið. Bragi Sigurjóns-
son, ritstjóri „Stíganda", form. Alþýðu-
flokksfélags Akureyrar, kennari og
„tryggingafulltrúi" bæjarfógetans m. m.,
hefur einnig tekið yfir á sitt breiða bak
ábyrgð og ritstjórn „Alþýðumannsins",
en Halldór „bróðir" jafnframt leystur frá
störfum við blaðið. — I forystugrein tal-
ar Bragi af miklum fjálg-
leik og innilegheitum um,
ungur. ag „Alþýðumaðurinn"
vilji vera í sem nánastri snertingu við
verkalýðinn til sjávar og sveita, og segir
að það sé „einlægur vilji þeirra, sem að
blaðinu standa, að gera það að sem sam-
boðnustum málsvara jafnaðarstefnunnar
og alþýðunnar í landinu."
Já, þetta er vel og drengilega mælt hjá
þér, Bragi minn, og það var leiðinlegt að
lesendurnir skyldu ekki fá að lifa í þeirri
trú, að þú segðir satt á meðan þeir voru
að lesa þetta eina tölublað, en í annari
grein í sama blaði, þar sem rætt er um
aðdraganda og myndun nýrrar ríkis-
stjórnar, er það harmað, að Framsókn og
Sjálfstæðisflokkurinn sýni alltof mikla
linkind í því að mynda öflugt bandalag
borgaraflokkanna gegn Sósíalistaflokkn-
um, sem engan veginn getur þýtt annað
en bandalag gegn samtökum verkalýðs-
ins í landinu. /
Á sama stað er því einn-
Vísvitúndi jg haldið fram, að sósíal-
blekkingar. jstar hafi hindrað mynd-
un vinstri stjórnar, með því að neita að
ræða við Stefán Jóh., þegar forseti fól
honum að reyna stjórnarmyndun. Þetta
er hin ósvífnasta blekking, svo að ekki sé
meira sagt. Þegar Stefán Jóh. sneri sér
til Sósíalistaflokksins og hinna flokkanna
með tilmæli um, að þeir skipuðu samn-
inganefndir, var öllum viðræðum og um
leið möguleikum fyrir vinstri stjórn lok-
ið, þar sem forystumenn „Alþýðuflokks-
ins“ höfðu neitað að veita Alþýðuflokks-
manninum Kjartani Ólafssyni stuðning
sem forsætisráðherra vinstri stjórnar —
og sagt með því: við viljum ekki taka
þátt í stjórn með Sósíalistaflokknum. —
Staðreyndirnar tala svo ljóst í þessu
máli, að ógerningur er fyrir „Alþm.“ að
falsa þær,' jafnvel þótt enginn efist um
hæfni hans í þeirri iðju.
óspart í ljós. Varð Guðni að endur-
taka 6 eða 7 af lögunum og syngja 2
aukalög að endingu. Þreytumerki
fundust engin, og röddin virtist
batna með hverju lagi.
Það væri æskilegt, að þessum
efnilega og gáfaða söngvara væri
gert léttara fyrir að afla sér aukinn-
ar menntunar, en á því mun hann
j hafa mikinn hug.
1 " Á. S.
Jarðarför STEINÞÓRS GUÐMUNDSSONAR, kennara í Hriís-
ey, sem andaðist þann 30. f. m., er ákveðin frá heimili hans þriðju-
daginn 11. |>essa mánaðar.
Fyrir hönd aðstandenda.
Guðrún Þorleifsdóttir.
$ Kaup verkakvenna i febrúar 1047
Grunnk. Dagv. Eftirv. N. 8c Hdv.
i Almenn vinna ................ 1.85 5.74 8.62 11.48
^ Þvottar, hreing. og síldarvinna .... 1.96 6.08 9.12 12.16
Vísitalan er 310 stig.
f ATH. 1 janúar var vísitalan 306 stig og kaup í almennri dagvinnu
því kr. 5.66, en í hreingerningar- og síldarvinnu kr. 6.00. $
VERKAKVENNAFÉL. „EINING“.
n’H’H’H’H'n>ú<H><B><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><(<H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H>
F u n d u r
verður haldinn í Sósíalistafélagi Akureyrar sunnudaginn
19. þ. m., kl. 8.30 e. h., í Verklýðshúsinu.
Dagskrá:
Inntaka nýrra félaga.
Stjórnmálaviðhorfið.
Bæjarmálin.
Önnur mál.
Mjög áríðandi er, að félagarnir sæki þennan fund vel og
mæti stundvíslega.
Stjómin.
<Í<B><H><H><H><B><H><H><1<H><H><B><B><H><B><B><H><B><B><B><B><H><H><H><H><H><H><H><B><
„Samvinnan“, I. hefti árg. þjóðanna verða viðriðnir hneykslismál,
Kjarnorka 1947, er nýlega hlaupin þýðir það endalok framabrautar þeirra á
Og samvinna. af stokkunum. Hriflu- sviði stjórnmála. Á íslandi virðist þetta
Jónas hefur nú loksins verið látinn hætta
ritstjórn hennar, og er gamli maðurinn nú
samtímis að strjála út síðasta hefti ár-
gangsins 1946. „Samvinnan“ er nú flutt
til Akureyrar, a. m. k. til bráðabirgða, og
hefur Haukur Snorrason, ritstj. „Dags“,
tekið við ritstjórninni og fengið sér með
því vænan bita úr aski S. I. S. — Þetta
hefíi „Samvinnunnar" er allmjög breytt
frá fyrri gerð og til hins betra, a. m. k.
hvað útlit snertir, en eftir öllum sólar-
merkjum að dæma mun „andinn" verða
líkur og var. Þrennt er það aðallega, sem
hinn nýji ritsj. kynnir fyrir lesendunum í
þessu hefti, sem sé: „Hvassafell“ (sem
nú hvað vera farið frá Rotterdam), Sam-
vinnuhreyfingin í Sovétríkjunum og
kjarnorkan, en hið síðastnefnda er sér-
staklega huglægt ritstjóra „Dags“, eins
og merkin hafa sýnt að undanförnu, og
I
| er sennilegt að Haukur sé einn hinn
kjarnorkufróðasti maður, sem nú er uppi
hérlendis! — Skítt að hann gat ekki orð-
ið kjarnorkumálaráðherra í stjórn Stef-
áns Jóhanns!
★
í fokdreifum síðasta tbl.
„Dagur“ löðr- „ .
0 „Dags segir m. a.: Þeg-
unear ,.
0 ar stjommalamenn
Fiamsókn. menntuðustu lýðræðis-
vera með öfugum hætti. Þegar háttsettir
stjórnmálaforingjar hér verða uppvísir
að óheiðarlegu fjárbralli og öðru þvílíku,
þykir flokkum þeirra nauðsyn bera til að
hressa upp á mannorðið með því að veita
þeim aukin metorð og fríðindi. Er naum-
ast að búast við góðu í stjómmálum,
þegar stórir flokkar sýnast svo ger-
sneyddir allri sóma- og ábyrgðartilfinn-
ingu.“ — Það er napurt að „Dagur“ skuli
tala þannig, einmitt sama daginn og
Framsóknarflokkurinn \’erður til þess að
hjálpa Stefáni Jóh., form. Alþýðuflokks-
ins, til að verða forsætisráðherra á ís-
landi, manninum, sem tvívegis hefur orð-
ið uppvís að hneykslanlegu athæfi, þeg-
ar hann hefur átt að koma fram sem full-
trúi þjóðarinnar á erlendum vettvangi.
Og ennfremur: Framsóknarflokkurinn
hefur ráðið því, að Jóhann Þ. Jósefsson
er gerður að fjármálaráðherra, eftir að
„Tíminn“, aðalmálgagn Framsóknarfl.,
hefur tvívegis á sama árinu borið á hann
hinar þyngstu sakir fyrir óheiðarleik á
fjármálasviðinu og síðari bomban sprakk
aðeins viku áður en Framsókn gerir Jó-
hann Þ. að fjármálaráðherra.
Ofangreind orð „Dags“ lýsa því mæta
vel pólitík og „ábyrgðartilfinningu“
Framsóknarf orkólf anna.