Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 25.04.1947, Blaðsíða 2

Verkamaðurinn - 25.04.1947, Blaðsíða 2
2 VERKAMAÐURINN LEIKFÉLAG AKUREYRAR 0511' r 11tj t 0 it m a r 1 Jón Norðjjörð. Ión Steingrímsson sem S' k ugga-Sve in n og Pá 11 Vatnsdal sem Ketill skrœkur. Þeir hafa oftast alba farið með pessi hlut- verk, eða nrer fjörutíu sinnum. Þrjátíu ára liststarf við erfiðar aðstæður og misjafnan skilning Leikfélag Akureyrar átti 30 ára afmæli 19. þ. m. Það virðist nærri ótrúlegt, að svo langur tími sé síðan að skipulagt og félagsbundið leik- starf hófst hér í bænum. Það er ekki langt síðan að almenningur fór að líta á leikstarf sem list og leiksýning- ar sem menningarleg fyrirbæri. Sak- ir þessa hugsunarháttar og skiln- ingsleysis, sem ríkt hefur hjá fjöl- mörgum á gildi leiklistarinnar, hef- ur starf leikritahöfunda, leikara og leikfélaga verið næsta erfitt allt fram á þennan dag. En margar list- greinar — og sennilega flestar — hefðu orðið skammlífar, ef almenn- ingsálitið hefði haft þær í hendi sér. Áhugi listamannsins og túlkandans, vissa um verðmæti og gildi listarinn- ar hefur orðið að bera þær fram til sigurs gegn ýmsum torfærum, skiln- ingsleysi og tómlæti. Þannig hefur það verið með leikstarfið hér í bæ sem annars staðar. Meðlimir Leik- félags Akureyrar hafa ekki hlotið stórar peningafúlgur fyrir hið afar tímafreka starf sitt í þágu leiklistar- innar, en launin hafa þeir eigi að síður fengið í gegnum þá ánægju að vinna að hugðarefnum sínum og skemmta náunganum. Öll skilyrði til leiksýningar hafa verið mjög tak- mörkuð, fjárráð félagsins lítil, en aftur á móti kostnaðarsamt að koma stórum verkum á svið, þannig að sæmandi sé. Margar leiksýningar, sem félagið hefur staðið fyrir, hafa ekki borið sig fjárhagslega vegna þess að bæjarbúar hafa ekki séð ástæðu til að styrkja félagið eða skemmta sjálfum sér með því að sækja sýningamar. Þó hefur félagið, undantekningarlítíð, verið heppið í vali Ieikrita og sýningar yfirleitt tekizt ágætlega, verið bæði Leikfé- laginu og leikurunum til sóma. Þann, er þetta ritar, skortir kunn- ugleika til að skýra frá starfsferli Leikfélags Akureyrar í einstökum atriðum, enda er það ekki tilætlun- in með þessum fáu orðum. Hitt er staðreynd, að félagið hefur nú starf- að hér samfellt um 30 ára skeið, tek- ið marga tugi leikrita til meðferðar og staðið fyrir mörg hundmð leik- sýningum hér í bænum. Með því hefur það unnið virðingu allra þeirra, sem leiklistarmálum unna og leikstarf skilja. Það má að vísu finna margt að störfum þess á liðn- um árum, og svo mun einnig verða hér eftir, en eg er þess fullviss, að fé- Jón Steingrimsson. lagið þolii slíka gagnrýni og það þarfnast hennar. Réttmætir dómar hjálpa því til að þroska sig í starfinu og ná þeim áröngrum, sem það keppir að. Leikfélagið hefur minnst afmæl- isins á viðeigandi og myndarlegan liátt og því hefur verið margvísleg- ur sómi sýndur að verðleikum. Afmælisdaginn, 19. apríl sl., efndi félagið til hátíðasýningar í Sam- komuhúsinu fyrir fullu húsi boðs- gesta. Formaður félagsins, Guðm. Gunnarsson, setti hátíðina, rakti sögu félagsins í stórum dráttum, og las upp fjölmörg heillaskeyti, sem félaginu bárust í tilefni afmælisins. Þá voru sýndir þættir úr sjónleikun- um „Skugga-Sveinn“, eftir Matth. Jochumsson. Jón Steingrímsson, sem sennilega hefur farið allra manna oftast í gerfi Skugga-Sveins, lék það hlutverk núna við mikinn fögnuð áhorfenda. Eftir þá sýningu heiðraði Karlakórinn ,,Geysir“ Leikfélagið með því að syngja nokk- ur lög og form. kórsins ávarpaði fé- lagið. Þá voru sýnd nokkur atriði úr Vikublaðið Verkamaðurinn. Pöntunarfélag verkalýðsins. „Nýjársnóttinni“, eftir Indriða Ein- arsson og síðast síðari hluti gaman- leiksins „Æfintýri á gönguför", eftir Hostrup. Allar tókust sýningarnar mjög vel og voru Leikfélaginu og leikendum til sóma. , Að sýningunni lokinni kvaddi for- seti bæjarstjórnar, Þorsteinn M. Jónsson, sér hljóðs, flutti ræðu fyrir minni félagsins, árnaði því heilla og þakkaði því mikilsvert menningar- starf í þágu bæjarfélagsins. Þá af- henti hann Leikfélaginu 15000 kr. að gjöf frá Akureyrarbæ í viður- kenningarskyni fyrir störf félagsins á llðnum árum. Einnig færði hann Hallgrími Valdimarssyni 5000 kr. frá Akureyrarbæ, en Hallgrímur hefur sem kunnugt er verið mikill 05Í2tHÍ;egÍ 0ttrttitr! stuðningsmaður leiklistar hér í bæn-1 um um áratugi. Fjöldi fagurra blómvanda barst stjórn félagsins og einstökum leik- endum og Leikfélag Reykjavíkur gaf félaginu fagran, áletraðan silfur- bikar. Þær viðtökur, sem Leikfélag Ak- ureyrar fékk í þetta sinn, sýna ótví- Bókaverzlun Gunnl. Tr. Jónssonar. Guðmundur Gunnarsson, núverandi formaður Leikfélagsins. rætt að félagið á miklum vinsæld- um að fagna hjá bæjarbúum og þeir meta nokkurs hið óeigingjarna starf þess í þágu listarinnar. í fyrrakvöld gekkst félagið fyrir fjölmennu afmælishófi að Hótel KEA. Verkamaðurinn árnar Leikfélagi Akureyrar allra heilla í tilefni þessa Bókaútgáfa Pálma H. Jónssonar Nýja-Bíó h.f. Nýja bílastöðin. afmælis þess og þakkar því vel unn- in störf í þágu listmenningar bæjar- ins.

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.