Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 22.08.1947, Page 4

Verkamaðurinn - 22.08.1947, Page 4
4 VERKAMAÐURINN Jón Ingimarsson: Hvað verður gert af hálfu bæjarfélagsins til þ ess að tryggja íþróttafélögunum sæmileg starfsskilyrði? Það er nú orðið áhyggjuefni margra íþróttamanna hér í bæ, •hvernig og á hvern hátt, verði búið að íþróttastarfsemi í bænum í fram- tíðinni. Eins og.nú horfir, virðisit ekki 'líða á löngu, þar til núverandi íþröttasvæði lélaganna verði af þeim tekið lundir húsbyggingar. — Virðist svo, sem eklki sé fyrir hendi nægileg fyrirhyggja og framsýni til þess að ráða fuam úr því nú þegar, hvar framtrðar-íþróttalsvæði bæjar- ins verði fyrir komði. Óskir íþrótta- félaganna hafa verið þær, að svæðið amstan Brekkugtöu verði valið fyrir íþróttasvæði. Ef. það yrði að ráði, myndi það nægja ‘íþróttafélögunum um langan tíma, þó skiptar skoðan- ir kunni að vera um það, hvort hægt sé að hugsa sér það, sem framtíðar- svæði eða elkki. — Skilyrði frá nátt- úrunnar hendi eru þarna mjög góð, tiil þess að útbúa fullkomið áhorf- endiasvæði, með itilltölulega litlum kostnaði, miðað við það, sem ann- ars staðar hefiur þurft að gera, t. d. í Reykjavík. Að öðru leyti liggur þetta svæði mjög vel við, og mælir allt með því, að þessi staður verði valinn. Þetta land, sem hér um ræð- ir, er í einlkaeign, og mun bærinn því þurfa að kaupa það fyrir hátt á annað hundrað þúsund krónur til þess að geta orðið við óskum íþróttafélaganna. Mun það án efa •vera mesta hindrunin fyrir því, að ekki hefur neitt anaunhæft verið gert í þessum málum ennþá. En flestum ber þó saman um, að það •verði að hugsa fyrst og fremst um að íþróttafélögin hafi sæmileg starfs- skilyrði, og láta þau ekki gjalda þess, með því að láta þau bíða óþarf- lga lengi eftir því að komið verði upp fuflkomnu íþróttasvæði, þó að nolkkur ár þurfi til að greiða hið gífiurlega háa verð fyrir þetta land. Þess iskal getið, að í fjárhagsáætlun bæjarins eru veittar 50 þús. kr. til íþróttasvæðis og aðrar 50 þús. kr. til sundstæðis. Er þetta ekki mikið fé, en þó nokkur byrjiun. Annað aðkallándi verkefni bíður einnig úrllaushar, en það er að korna upp yfirbyggðri sundlaug austan við sundstæði bæjarins. Hefur nokkuð verið unnið að því undan- farið, að gera teikningar og kostn- aðaráætlun. Hér er miikið og stórt verkefni fyrir höndum, sem þolir ekki langa bið. Aðstöðunni við sundstæði bæjarins er orðið mjög ábótavant, og ber brýna nauðsyn til þess, að hafi/.t verði handa ura fram- kvæmdir til úrbóta. Núverandi búningsklefar eru algerlega ófærir og óviðeigandi og þörfin á yfir- byggðri súndlaug fer vaxandi með hverju árinu sem líður, til þelss m. a. að geta stundað sundlkennslu við sæmileg starfsskilyiði allt árið um kring; og fl. Öillum er ljós nauðsyn. þessara framkvæmda, en það er aðeinis deyfðin og hugsunarleysið, sem veldur því, að lítil sem ekkert'hefmr að þessum máluin verið unnið. i| * Þessar 'fáu líniur mínar eru því fram settar til þess að styðja þá, sem hafa reynt að halda þessum áhuga- málum vakandi, og vekja hreyfingu um það, og væiri æslkilegt og íþrótta- og áhugamenn létu táil sín heyra um þessi mál, er ske kynni að það yrði til þess; að einhverjar framkvæmdir yrðu hafnar. Mótor f—2ja hestafla rafmagnsmótor óskast keyptur. A. v. á. TILKYNNING trá Fjárhagsráfli til iðnfyrirtækja, sem nota skammtaðar bygg- ingavörur. Þau iðnfyrirtæki, sem nota trjávið, sement, steypustyrktar- járn, krossvið, þilplötur eða einangrunarplötur við fram- leiðslu sína, skulu senda Fjárhagsráði umsókn um innkaupa- heimild fyrir þessum vörum sem fyrst. í umsókninni skal tilfæra væntanlega þörf fyrirtækisins á tímabilinu 15. ágúst til 31. des. 1947, sundurliðaða skrá yfir innflutning og innkaup á tímabilinu 1. jan. til 14. ágúst 1947 og einnig á árinu 1946. Fyrirtækin eru beðin að hafa umsókn þessa sem nákvæm- asta og ýtarlegasta, þannig að afgreiðsla ekki tefjist vegna ónógra eða vantandi upplýsinga. 'Reykjavík, 13. ágúst 1947. ' Fjórhagsróð. HITT og ÞETTA (Framhald af 3. síðu). einu, 1—2 daga hvert sinn. En hvergi hef eg getað fundið almenningssalerni í þess- . um bæ, sem virðist þó vera hin mesta þörf, m. a. vegna þeirra mörgu ferða- manna sem heimsækja þennan bæ árlega. Er það vissulega bæjarstjórnarinnar hér að ráða bót á þessu vandræða ástandi sem allra fyrst. * BÍÓGESTUR ENN. Fyrir stuttu síðan skrifaði eg blaðinu og spurðist fyrir um það, hvers vegna Skjaldborgarbíó auglýsti ekki myndir sin- ar i Verkamanninum eins og Nýja-Bíó hefur gert. Eg hef nú heyrt að Stefán Ág. Kristjánsson, Sjúkrasamlagsforstjóri hér, hafi með þetta að gera ásamt fleiru, og hafi hann brugðist reiður við þessari fyr- irspurn minni, og haft við orð um, „að ekki yrði auglýst í blaðinu fyrst um sinn, sökum þess“. Aumingja maðurinn, mikið á hann bágt. En stuttu síðar birti blaðið Dagur mjög lúalega frásögn um Skjald- borgarbíó. Svo mér datt í hug: Skyldi þessi Sjúkrasamlagsforstjóri ekki setja auglýsingabann á Dag fyrir tilvikið? Nei, það gerði hann ekki, sá góði maður. — Óskiljanleg afstaða það! Bíógestur. * EIÐSVÖLLUR. Eg hef lesið tilkynningar frá Sölunefnd setuliðseigna um það, að það sé ekki hennar sök, þó landssvæði þau, sem setu- liðsskálar stóðu á, hafi ekki verið hreins- uð, heldur þeirra er keyptu skélana af nefndinni. Mér hefur oft sárnað að sjá hvernig gengið hefur verið frá Eiðsvellin- um. Mér er sagt að nokkrar Sjálfstæðis- hetjur hafi keypt braggana, sem þar stóðu, með þeirri kvöð vitanlega, að laga landið er braggarnir færu. Nú eru bragg- arnir' farnir, en landið lítið sem ekkert lagfært. Verður að gera þá sjálfsögðu kröfu til þeirra, sem græddu stóran pen- ing á því að kaupa og selja þessa bragga, að þeir lagfæri landið tafarlaust. Oddeyrarbúi. * BREYTT UM TÓN. Það hefur löngum verið uppáhalds- iðja Framsóknarblaðanna að útmála ógn þá og skelfingu, sem „Reykjavíkurvald- ið“ boðaði í dreifbýlinu. „Dagur“ hefur alveg sérstaklega tekið gúlinn fullan hvað þetta snertir og heimtað t. d., að hin ráðamestu ráð í Reykjavík, eins og nýbyggingarráð og viðskiptaráð, settu N upp útibú hér og þar um landið, til þess, að menn utan af landi, sem eitthvað þurftu að sækja undir þessi ráð, þyrftu ekki að ómaka sig til Reykjavíkur, held- ur gætu fengið sig afgreidda í hinum ýmsu kaupstöðum. Þess er skylt að geta, að sjaldan hefur „Dagur“ komizt nær því að berjast við hlið réttlætisins fyrir góðum málstað, en einmitt í þessum hamförum sínum gegn „Reykjavíkurvaldinu“, og þess vegna er sárara til þess að vita, að hann skuli nú, þegar Framsókn er komin í stjórnarað- stöðu, leggja blessun sína yfir ýmislegt, sem beinlínis miðar að því, að auka og margfalda þetta hræðilega „Reykjavík- urvald“, sem hann þóttist berjast gegn áður. Nú alveg nýverið hefur hið mikla Fjárhagsráð (Magnúsar-óráð) tilkynnt öllum alndslýð, að hér eftir sé mönnum með öllu óheimilt að ráðast í hvers kon- ar byggingarframkvæmdir nema að þeir hafi leyfi til þess frá ráðinu, sem hefur sinn eina samastað í Reykjavík. Og ekkú nóg með það. Hér eftir geta menn ekki keypt sér spýtubrek til að krækja hrynj- andi húskofa hjá sér, nema að þeir hafi „bevís frá Magnúsi Jónssyni. Við þetta hefur hinn skeleggi málsvari dreifbýlisins, „Dagur“, ekkert að at- huga. * TVENNS KONAR RÍKISVALD. Þá mæti í þessu sambandi einnig spyrja hið virðulega Framsóknarblað, hvort því finnist öll afskipti hinna nýju ráða af verzlunar-, atvinnu- og fjármála- lífi þjóðarinnar miða að auknu þegn- frelsi, en minnkandi valdi þess opinbera yfir athafnalifinu i. lnnHifin Rn oins og menn muna, hefur „Dagur“ ósjaldan pré- dikað fjálglega um hættu þá, sem þjóð- félaginu stafaði af síauknum afskiptum ríkisins af hag og hátterni einstaklingsins. Nú sannast það, að Framsókn er ekki andvíg auknu ríkisvaldi, ef það eru að- eins fáir og stórir, sem með það vald fara, en hún er andvíg því að fjöldinn, fólkið sjálft, setji lög, sem ALLIR verða að lúta, án tillits til titils og stöðu. Sósíalistar, Akureyri! Munið að skrifstofa félagsins er í Brekkugötu 1. Félagar eru áminntir um að koma á skrifstofuna. Opið daglega kl. 4—6.30. Augljsing frá Viðskiptanefnd um skömmtun á kaffi Samkvæmt heimild í reglugerð útgefinni í dag um skömmtun á kaffi, hefir verið ákveðið, að frá og með 14. ágúst 1947 skuli stofnauki no. 10 á núgildandi matvælaseðli gflda sem inn- kaupaheimild til 1. okt. þessa árs fyrir 375 gr. af brenndu og möluðu kaffi eða 450 grömmum af óbrenndu kaffi. Reykjavík, 13. ágúst 1947. Viðskiptanefndin.

x

Verkamaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.