Verkamaðurinn - 07.05.1948, Side 4
)
Krafa alþýðu um bæjarúfgerð farin að hafa áhrif
Kratarnir óttast nú dóm almennings
og reyna að koma sér undan
allri ábyrgð
Hvers vegna má ekki haga framkvæmdum þannig,
að nær sé vilja almennings og meir í samræmi við
hagsmuni hans, en samningurinn kveður á um?
Skril afturhaldsblaðanna um útgerð nýja togarans bera þess
greinileg merki, að þau óttast nú mjög almenningsálitið, sent
krefst mjög eindregið bæjarútgerðar. Er meðal annars látið í
það skína í Alþýðum., að það sé „kommúnistum“, og þá fyrst
og fremst Steingrími Aðalsteinssyni að kenna, að máleína-
samningurinn lrá 1946 kveður ekki svo á, að bæjarútgerð
skuli stofna til rekstrar þessa togara.
Happdrætti S.í. B.S.
Akureyringar. Nú eru aðeins
10 dagar þar til dregið verður í
happdrætti Sambands íslenzkra
berkalsjúklinga. Dregið verður
um 10 bíla og aðeins úr seldum
happdrættismiðum. Styrkið þetta
mikla menningarmál og kaupið
happdrættismiða SÍBS. — Hér á
Akureyri fást happdrættismiðar í
öllum bókaverzlunum, verzl.
Brynju, verzl. London, Sport-
vöru- og hljóðfæraverzlun Ak.,
Pöntunarfélagi verkalýðsins í
Eiðsvallagötu, verzl. Baldurs
Halldórssonar, Baldurshaga og á
skrifstofu Flugfélags íslands og í
Glerárþorpi í verzluninni Glerá.
Samsöngur
„Geysis"
Karlakórinn Geysir hélt konsert
í Nýja-Bíó sl. þriðjudag undir
stjóm Ingimundar Arnasonar. —
Undirleik á píanó annaðist Árni
Ingimundarson.
Kórinn söng mörg lög eftir inn-
lenda og erlenda höfunda við
milka hrifningu áheyrenda. Meðal
höfunda þeirra viðfangsefni, sem
kórinn valdi sér að þessu sinni
voru B. Þorsteinsson, W. A. Mo-
zart, Söderman, E. Grieg, E. Thor-
oddsen, Karl O. Runólfsson o. fl.
Einsöngvarar voru Guðmundur
Gunnarsson, Kristinn Þorsteinsson,
Sverrir Pálsson, Jóhann Ögmunds-
son, Henning Kondrup og Sigurður
O. Björnsson.
Svo sem að venju leysti kórinn
og einsöngvarar öll viðfangsefni
sín af hendi með mestu prýði og
var mjög vel fagnað af áheyrend-
um.
Iðnskólinn útskrifar
28 nemendur
Iðnskólanum var slitið 27. fyrra
mánaðar. I skólanum höfðu á
skólaárinu 134 nemendur stundað
nám og gengu þar af 125 undir
próf. Próf stóðust 103.
Hæstu einkunn hlaut Gunn-
laugur Friðþjófsson húsasmíða-
nemi í 3. bekk, I. ág. 5,45. Einnig
hlaut hann verðlaun fyrir beztu
iðnteikningu á þessu skólaári, en
Lárus Zóphóníasson í 4. bekk
hlaut verðlaun fyrir beztu frí-
hendisteikninguna.
Undir burtfararpróf gengu 33
nemendur og fengu 28 brottfarar-
skírteini. Hæstu einkunn hlut
Baldur Halldórsson, I. 8.86.
NÝJA BÍÓ..............,
Laugardag kl. 5:
I Hundaheppni |
I (,,It Shouldn’t happen |
to a dog“)
\ Gamansöm sakamálamynd f
i frá 20th Century Fox i
HkíÉÉHÉkÆs} I
= læikstjóri:
Herbert I. Leeds.
i Aðalleikendur:
ALLYN JOSLYN
CAROLE LANDES
• 11 MIIIMMMIMIIIIIIIIIMMIIIMMIIIIMIMIIIIinilHllllltllllll*
Vitaskuld vita allir Akureyring-
ar og sennilega þá að sjálfsögðu
greinarhöfundur Alþýðum, að
þetta eru hinar ósvífnustu blekk-
ingar Grein málefnasamningsins
er til komin vegna kröfu íhalds-
manna og þá fyrst og fremst
Svavars . Guðmundssonar, sem
aldrei hefur gert endasleppt um
baráttu sína fyrir hagsmunum
auðmannanna. Hitt skilur auðvitað
hver maður, að þegar gerður er
samningur milli ólíkra flokka,
verður hver um sig að slá nokkuð
af kröfum sínum, og flestir munu
sammála um að þessi samningur
hafi það mikið af jákvæðum
ákvæðum frá sjónarmiði almenn-
ings, að það hafi verið rétt að gera
hann, þrátt fyrir þetta ákvæði. En
hvers vegna skrifuðu kratarnir
undir samninginn eins og hann er?
En svo gera kratarnir sig að
viðundri með því að spyrja Sjálf-
stæðis- og Framsóknarflokkinn
hvort samningurinn hafi verið
brotinn og segjast miða atkvæði
sitt við það svar. Þeir hugsa sjálf-
stætt, þeir góðu menn(!)
í íslendingi sl. miðvikudag er
alllöng grein, þar sem reynt er að
verja þá afs-töðu afturhaldsaflanna
að ætla sér að afhenda auðmönn-
um bæjarins togarann. Er þar vit-
anlega fyrst og fremst vitnað í
málefnasamninginn. Það atriði
hefu ráður verið rætt hér í blað-
inu en því skal nú bætt við, að
með því að stofna til bæjarútgerð-
ar er framkvæmdum hagað þann-
ig, aö til meiri hagsbóta er íyrir al-
mennings en samningurinn kveöur
á um.
Enn er reynt að hræða almenrt-
ing með nýsköpunartogara Siglu-
fjarðar, rétt eins og hann einn sé
sígilt dæmi um bæjarútgerð. En
hvers vegna má ekki minnast á
bæjarútgerðina í Reykjavík,
Hafnarfirði og Vestmannaeyjum?
Heíur hún gengið svo vel að ekki
má minnast á hana eða hvað? Nú
vita allir að óhöpp geta alltaf kom-
ið fyrir, og það hvort heldur er um
að ræða bæjar- eða einstaklings-
rekstur, og er því fáránlegt að nota
taprekstur eins togara sem rök
gegn bæjarútgerð.
Því ekki að hagnýtá góða
reynslu? spyr blaðið. Já, mikið
rétt, því ekki að hagnýta hana á
þann hátt, að sem flestum bæjar-
búum komi að sem mestu gagni,
með bæjarútgerð, á engan annan
hátt getur hin góða reynsla, sem
fengist hefur af útgerð Kaldbaks,
verið hagnýtt fyrir ALLA bæjar-
búa. Hins vegar er það ljóst, að
fyrir afturhaldsflokkunum vakir
ekki að hagnýta þessa góðu
reynslu fyrir alþýðuna í bænum,
heldur fyrir þá örfáu auðmenn,
sem keypt hafa stóru hlutina í Út-
gerðarfélaginu, þegar þeir sáu að
þaö var hagnaðarvon, því að ekki
var manndómurinn og umhyggjan
fyrir atvinnulífi þessa bæjar það
mikill, þegar verið var að stofna
þetta félag, að þessir sömu menn
sæju ástæðu til að leggja þá fram
meira en bláfátækir verkamenn og
sjómenn.
Blaðið virðist bera mikið fyrir
brjósti, að leggja ekki þá gifurlegu
áhættu, sem það segir vera sam-
fara togaraútgerð á skattgreiðend-
ur bæjarins. Á öðrum stað í þess-
ari sömu grein eru menn svo
hvattir til að eignast hlut í félag-
inu. Er þetta sjálfu sér sam-
kvæmt? Tæplega, þar sem blaðið
viðurkennir, að bæjarútgerð njóti
hlunninda fram yfir einstaklings-
útgerð.
Hitt reynir Isl. ekki að ræða og
þorir sennilega ekki, að auðmenn-
irnir geta hvenær sem þeim þókn-
ast, eignast meiri hluta hlutafjár-
ins í Útgerðarfélaginu, bendir ým-
islegt til þess að þeir hafi eitthvað
slíkt í hyggju, þar sem fulltrúar
þeirra. í bæjarstjórn virðast nú
láta sér það í léttu rúmi liggja og
hafa jafnvel áhuga fyrir því, að
það atriði málefnasamningsins, að
bærin neigi a. m. k. helming hluta-
fjárins í Útgerðarfélaginu sé ekki
haldið.
Blaðaskrif eins og Ajþýðumanns-
ins og íslendings eru ekki til þess
fallin að sannfæra almenning um
að betra sé fyrir hann að einstakl-
ingar eigi skipið en bæjarfélagið.
Krafan um bæjarútgerð á sér stöð-
ugt fleiri formælendur og verður
sífellt háværari og háværari. Bæj-
arfulltrúar afturhaldsins geta verið
þess fullvissir. að almenningur
man það, ef þeir ganga nú í ber-
högg við vilja hans og afhenda ein-
staklingum nýja togarann.
Fulltrúaráð
verkalýðsfélaganna
biður þá, sem tekið hafa vel
heppnaðar myndir af há-
tíðahöldunum 1. maí, að
hafa tal af formanni Full-
trúaráðsins eða skrifstofu
verkalýðsfélaganna.
Hjúskapur. Þann 2. þ. m. voru
gefin saman í hjónaband ungfrú
Helga G. Brynjólfsdóttir, Efsta-
landskoti í Öxnaðal, og Einar Ein-
arsson, Akureyri.
VERKAMAÐURINN
Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna vill hér I
i með þakká öllum þeim mörgu einstaklingum j
| og félögum, sem unnu að því að gera 1. maí- I
j hátíðahöldin ánægjuleg og eftirminnileg og j
j til sóma fyrir verkalýðssamtökin á Akureyri. {
Stjórn Fulltrúardðs verkalýðs-
félaganna.
I í i
Yfir 200 manns myrtir í Grikklandi
þrjá síðustu dagana af leppstjórn
Bandaríkjanna
„Aftökurnar hljóta" að vekja hrylling allra góðra
manna,“ segir stórblaðið „Times“
Síðustu þrjá dagana hiafa verið"
framin ægileg fjöldamorð í Grikk-
landi samkvæmt fyrirskipunum
fasistastjórnarinnar í Aþenu, sem
studd er af Bandaríkjastjórn og
stjórn brezkra jafnaðarmanna. —
Hefur Aþenustjórnin látið skjóta
yfir 200 andstæðinga sína stíðast-
liðna þrjá daga, en um 800 aðrir
hafa verið dæmdir til dauða og
bíða þes sað vera teknir af lífi, er
sök þessa fólks talin vera sú, að
hafa kommúnistiskar skoðanir.
Aðstoðarutanríkismálaráðherra
Bretlands hefur látið svo ummælt,
að hinar pólitísku aftökur hljóti að
vekja andúð allra lýðræðissinna.
Stórblaðið „Times“ í London
segir að aftökurnar hljóti að vekja
hrylling allra góðra manna. Önnur
ensk blöð eru sammála um að allír
frjálslyndir menn hljóti að for-
dæma þessar aftökur.
Hins vegar hefur ekkert heyrzt
um það enn, þrátt fyrir andúðar-
skrif ensku blaðanna, að brezka
jafnaðarmannastjórnin hafi gert
ráðstafanir til að hætta beinum og
óbeinum.stuðningi við morðingja-
stjórnina í Aþenu —-x og því síður
nokkuð slíkt frá Bandaríkjastjórn
— stjórn landsins, þar sem negrar
eru teknir af lífi, án dóms og laga,
aðeins vegna þess að þeir eru negr-
ar.
Skylt er að vekja á því athygli
að morðingjastjórnin í Aþenu hefir
notið samúðar allra stjórnarblað-
anna hér á landi, þar á meðal
„Dags“ og ,,íslendings“' — enda
þögðu líka tvö fyrrnefnd blöð í
fyrradag um aðfarir skoðana-
bræðra sinna í Grikklandi. Hvern-
ig ætti líka blað félags, sem sam-
þykkti nýlega á fundi sínum að
hefja ofsóknir gegn kommúnist-
um, að geta annað en samfagnað
skoðanabræðrum sínum í Aþenu
sem hafa stigið skrefið til fulls í
baráttunni gegn kommúnismanum,
sem Hitler og herskarar hans
sprungu á. Morðunum í Grikklandi
verður ekki gleymt — samþykkt
Framsóknarfélags Akureyrar ekki
heldur. \ '
• Rekstur „Kaldbaks“
(Framhald af 1. síðu).
gömlu bábilju, að togaraútgerð sé
eitthvað óhagstæðari frá Akureyri,
en annars staðar á landinu. Þvert á
móti hefur Kaldbakur sýnt það ó-
umdeilanlega, að togaraútgerð er
mjörg arðvænlegur rekstur héðan
frá Akureyri.
Aðalfundur Útgerðarfélagsins
samþykkti að auka hlutafé félags-
ins upp í 1.5 millj. kr., með það
fyrir augum að félagið eignaðist
annað skip.
Stjórnarkosningin varð hreint
ekki svo lítið söguleg. Fram komu
2 listar, á öðrum þeirra var frá-
farandi stjórn óbreytt, en á hinum
var efstur Gísli Kristjánsson, sem
kom inn í félagið um s.l. áramót,
og annar Albert Sölvason, en hann
var: neðstur á hinum listanum. -—
Var greinilegt, að þessi sprengi-
listi, sem fyrst og fremst var studd-
ur af mönnum, sem keypt hafa
stóra hluti í félaginu, og auk þess
umboðsmanns erlends auðféiags,
eftir að sýnt var að það myndi
meira en borga sig að vera í því,
var til þess fram borinn að fella
Tryggva Helgason Kosningin fór
nú samt svo að stjórnarlistinn
kom að 4 mönnum, en hinn aðeins
einum Eiga því nú sæti í stjórn-
inni Steinn Steinsen, Helgi Pals-
son, Jakob Frímannsson, Tryggvi
Helgason og Gísli Kristjánsson. —
Varastjórn skipa þeir Albert Sölva-
son, Þorsteinn M. Jónsson, Gísli
Konráðsson, Indriði Helgason og
Steingrímur Aðalsteinsson.
_ é .b- . v..
Endurskoðendur Þorsteinn Stef-
ánsson og Jón E. Sigurðsson.
Hefur almenningur skemmt sér
hið bezta við þessar ófarir, enda
ekki að ástæðulausu.
MMMMIMMMMMMMMMM..
I Sósíalistafélag Akureyrar
Iveldur fund í kvöld á Hótel Akureyri, kl. 8!/£ e. h.
FUNDAREFNI:
Flokksstarfið: Guðm. Hjartarson, erindreki.
Verkamaðurinn: Þórir Daníelsson.
Ef til vill verða sýndar kvikmyndir d fundinum.
Stjórnin.
IIMIIIIIIIIIIIMIIIIMIIHIIIIIIIIIIIIIIMMIMMIIIIimilllllllliniflM