Verkamaðurinn - 25.06.1948, Síða 3
Föstudaginn 25. júní 1948
VERKAMAÐURINN
3
Menntaskólinn útskrifar 44 stúdenta
Tíu ára stúdentar færðu skólanum
kvikmyndavél að gjöf
Að venju var Menntaskólanum
á Akureyri sagt upp 17. júní. Að
þessu sinni útskrifaði skólinn 44
stúdenta .Skólameistari, Þórarinn
Björnsson, sagði nokkuð frá starf-
semi skólans sl. vetur. Einnig
minntist hann mjög hlýlega fyrr-
verandi skólameistara Sigurðar
Guðmundssonar og konu hans frú
Halldóru Ólafsdóttur, einnig eins
fyrrverandi kennara við skólann,
Lárusar Bjarnasonar, sem þarna
var staddur.
Þá tók til máls, fyrir hönd 10
ára stúdenta, Friðfinnur Ólafsson
viðskiptafræðingur og afhenti
hann skólanum að gjöf kvik-
myndasýningarvél en skólameist-
ari þakkaði.
Að þessu loknu afhenti skóla-
meistari hinum nýju stúdentum
prófskýrteini sín, en að lokum
ávarpaði hann þá með nokkrum
kveðjuorðum.
Eins og getið var í síðasta blaði
hlaut Sölvi Eysteinsson hæstu
einkunn að þessú sinni, 7,52
(ágætiseinkunn), en að öðru leyti
hlutu stúdentamir þessar eink-
unnir:
Máladeild:
Arnbjörn Ólafsson, N-Þing„ I.
6.86, Baldvin Tryggvason, Ef. I.
Björn Önundars., N.-Þing., I. 6,52,
7,13, Einar Árnason, Rvík, I. 6,21,
Friðrikka Gestsdóttir, Seyðisf. I.
6.87, Grímur Helgason, Seyðisf.. I.
6,41, Guðrún Tómasdóttir, G.-
Kjós-d- 7,14, Hafsteinn Baldvins-
son, Hafn., I. 6,80, Hallveig Ólafs-
dóttir, Árn., I. 6,00, Ingimar
Sveinsson, S-Múl., I. 6,38, Jó-
hanna Friðriksdóttir, Skag., I.
6,62, Jón Hilmar Magnússon, Ak.,
II. 5,85, Jón Hjálmarsson, Skag.,
I. 7,14, Ólöf Stefánsdóttir, Ak., I.
6,99, Ragnar Fjalarr Lárusson,
Sag., I. 6,07, Ragnhildur Svein-
bjarnardóttir, Rang., I. 6,61, Soffía
Erlendsdóttir, S-Múl., I. 6,15,
Sváfnir Sveinbjamarson, Rang.,
I. 7,08, Sverrir Jóhannesson, Ak„
I. 6,22, Sölvi Eysteinsson, Hún.,
I. ág. 7,52, Þorsteinn Arason, Rvík
II. 5,39, Þóra Jónsdóttir, S-Þing„
I. 6,86, Indriði Gíslason, N.-Múl.,
II. 5,93, Bjarni Jónsson, Rvík, I.
6,02.
Stærðf r æðidei 1 d:
Alfa Hjálmarsdóttir, Ak„ II.
5,41, Ari Brynjólfsson, Ef,. I. 6,95,
Ásmundur Pálsson, S.-Múl., I.
7,01, Frosti Sigurjónsson, N.-Múl.,
II. 5,57, Guðmundur Cunnarsson,
Ak„ I. 6,43, Halldór Guðmunds-
son, Hafn., II. 5,92, Indriði Páls-
son, Sigl„ I. 6,06, "ísak Guðmann
Ak„ I. 6,06, Jón Erl. Þorláksson,
N-Þing„ I. 7,07, Jón Hafsteinn
Jónsson, Skag., I. 7.31, Jón Hnefill
Aðalsteinsson, N.-Múl., II. 5.93,’
Karl Ómar Jónsson, Ak„ I. 6.25,
Ófeigur Eiríksson, Ak„ II. 5.11,
Ólafur Tómasson, Ak„ II. 5,24,
Ragnar Árnason, S.-Þing„ I. 7.33,
Sigurður Sigvaldason, N.-Þing„ I.
6,58, Stefán Kai'lsson, Ak„ I. 7,11,
Stefán Skaftason, Sigl., I. 6.00,
Þorgils Benediktsson, N.-Þing„ I
6.95, Þorsteinn Kristjánsson, S.-
Múl„ II. 5.38.
Áður hafði skólameistari út-
skrifað 79 gagnfræðinga og hlaut
Björn Þórhallsson frá Kópaskeri
hæstu einkunn, 7,18. Alls voru
skráðir 337 nemendur x skólanum
í haust, þar af 154 í framhalds-
deild og 183 í gagnfræðadeild, en
undir próf gengu í vor 368 nem-
endur.
Gísli Friðfinnsson
sextugur
Köld þó næði um Kaldbakinn
kólga á sólarvöku.
Vil eg gjarnan, Gísli minn,
gleðja þig með stöku.
Þótt þú teljir tugi sex
á tímamæli þínum.
Æskubjarminn ennþá vex
upp af glæðum sínum.
Margur bernskumarkið sitt
missir í lífsins gjósti.
En hlýjublær og handtak þitt
hrekur trega úr brjósti.
Engum þykir ævin löng
inni á vinafundi,
þegar þú, með svanasöng,
syngur hal og sprundi.
Óska eg þér, í gleðigjöld:
gæfu haltu veginn,
verði allt þitt ævikvöld
ávallt sólarmegin.
S. G. S.
Er andrúmsloft KEA
í bæjarstjórninni
meira en áður?
Tvívegis, hefur bæjarstjórn Ak-
ureyrar gert samþykkt um að fyr-
irskipa KEA að rífa skúra sína við
Skipagötu, svo ao hægt væri að
koma þar upp bílastæðum eins og
umferðanefndin gerði ráð fyrir.
KEA átti að vera búið að rífa
skúrána fyrir 1. maí, en það hefur
ekki verið gert, og hefur Jakob
Frímannsson því haft samþykktir
bæjarstjómarinnar að engu.
Á síðasta bæjarstjórnarfundi
gerði Jakob enn eina tilraun til
þess að komast undan því með
góðu móti að framkvæma fyrir-
skipun bæjarstjórnarinnar, með
því að bjóða hluta af timburhús-
lóðinni fyrir bílastæði gegn því að
skúrinn við Skipagötu standi
áfram óhreyfður og tókst með at-
fylgi Sjálfstæðismanna að berja
þetta i gegn.
Flestir muna eftir því, að 'einn
bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
lýsti því yfir fyrir síðustu bæjar-
stjórnarkosningar, að hans hlut-
verk myndi m. a. vera, ef hann
næði kosningu, að opna glugga sal-
arkynna bæjarstjórnarinnar til
þess að hleypa andrúmslofti KEA
út.
Nú gengur þessi sami fulltrúi í
lið með Framsókn (fulltrúum
KEA) til þess að ógilda það sem
bæjarstjórnin hefur tvisvar sam-
þykkt.
Glœsilegir tónleikar
Agnesar Sigurðsson
Þessi unga og efnilega listakona
hélt píanotónleika í Nýja-Bíó síð-
astliðið föstudagskvöld (18. júní).
Aðsókn var sæmileg, en hefði mátt
vera meiri, því að hér var á ferð-
inni snillingur, sem að öllum lik-
indum á-4 vændum mikinn frama.
Leikni hennar og vald yfir hljóð-
færinu er aðdáanleg og á köflum
með því fullkomnasta, sem er yfir-
leitt mögulegt. En auk þess býr
hún yfir miklum og drjúgum til-
finningum og ágætum skilningi á
tónverkum þeim er hún flytur.
Einkum var flutningur hennar á
hinum skáldlegu verkum Mendel-
sohns, Chopins, og Debussys fram-
úrskarandi yndislegur, þrunginn
djúpri tilfinningu. Þá var og mjög
athyglisverð meðferð hennar á
„Devilish Inspiration" eftir rúss-
neska tónskáldið Prokoíieti,
Reyndar má segja um öll viðfangs-
efnin, að þau voru mjög vel flutt.
Helzt mætti segja, að hún hefði
ekki náð sár nógu vel niðri í fyrsta
kafla tónleikanna, en það var
Sónata í A-dúr op. 101 eftir Beet-
hoven.
En það er nú svo með hin siðari
af verkum hins mikla tóna-skáld-
konungs, að engir aðrir en þeir,
sem sjálfir hafa gengið í gegnum
eldraun þungrar lífsreynslu, eru
fyllilega færir um að túlka þau
eins og vera ber. Var þó sónatan á
ýmsan hátt mjög vel leikin, eink-
um adagiokaflinn.
Ungfrú Agnes Sigurðsson hefir
stundað tónlist fró barnæsku og
lokið prófi við beztu tónlistarskóla
í Winnipeg og New-York, og vakið
mikla eftirtekt og aðdáun, hvar
sem hún hefir komið fram. Hún er
nú á leið til Parísarborgar, þar sem
hún hyggst að leita sér frekari full-
komnunar í list sinni.
Megi henni vel vegna.
Á. S.
Fimmtán sænskir vísindamenn heim-
sækja ísland
Munu dveljast hér hálfan mánuð að kynna sér
landfræðileg og jarðfræðileg einkenni
Fimmtán sænskir vísindamenn (jarðfræðingar og landíræð-
ingar) komu til Reykjavíkur á mánudags'kvöld. Hér er ekki
um að ræða rannsóknarleiðangur í venjuiegum skilningi,
heldur öllu lremur kynnisför. Vísindamennirnir rnunu dveija
hér hálfsmánaðartíma og kynna sér ýms jarðfræðileg og land-
fræðilég einkenni íslands. Þetta er fjölmennasta tör sinnar
tegundar, sem farin liefur verið frö háskólunum í Stokk-
hólmi og Uppsölum.
Það er prófessor Ahlman (en
hann munu menn hér á landi kann-
ast við, síðan hann kom hingað fyr-
ir 3 árum), sem aðallega hefur haft
forgöngu um för þessa. Árið 1946
kom hann á framfæri í sænskum
blöðum, og eins við opinbera að-
ilja, þeirri skoðun sinm að stuðla
bæri að því að gefa skandinavísk-
um jarðfræðingum og landfræðing-
um kost ó að kynnast íslenzkum
landhóttum af eigin raun. Hér á
landi væru möguleikar allir svo
óvenju miklir handa slíkum vís-
indamönnum að auka þekkingu
sína. För þessi er m. a. árangur af
framangreindu starfi Ahlmans.
Umsóknir urn þátttöku miklar
Þáttakendur í þessari för
sænskra vísindamanna hingað eru
sem fyrr segir 15. — Meðal þeirra
velþekktir vísindamenn, þannig t.
d. prófessor Hömer, sem lengi var
einn nánasti samstarfsmaður Sven
Hedins á vísindaleiðöngrum. — I
förinni eru og 3 ungir menn, sem
eiga að taka þátt i brezk-norsk-
sænska suðurpólsleiðangrinum,
sem ráðgert er að leggi af stað í
september 1949. — Umsóknir um
þátttöku í förinni hingað voru
geysimiklar. Þannig sóttu
helmxngi íleiri en komust, eða 30
vísindamenn.
Nú er hann
svartur í álinn
Svavar Guðmundsson bæjarfull-
trúi hélt því fram á síðasta bæjar-
stjórnarfundi, að nú væri mjög
ískyggilegt að fara að kaupa nýja
togara. Lýsti hann því með nokkr-
um vel völdum orðum, hversu
hrunið væri nú nálægt og sagði að
eftir nokkur ár yrði mikill tap-
rekstur á togurum.
Talaði Svavar nú vel og lengi
um tap, viðskiptaöngþveiti og
eymd, rétt eins og Eysteinn væri
þar kominn. En þegar hann lauk
máli sínu lagði hann fram tillögu
um að bærinn sækti til ríkisstjórn-
arinnar um einn togara og fram-
seldi kaupsamninginn ákveðnum
einstakling í bænum!!!
Spegilmynd af
engilsaxnesku lýðræði
Óhreint í pokahorninu
Munu fara víða
Sænsku vísindamennirnir munu
ferðast víða um suður- og suðvest-
urland, og einnig fara upp í hálend-
ið.
Ungir Framsóknarmenn krefjast
uppsagnar hersföðvasamningsins
Lýsa megnri óánægju með núver-
andi ríkisstjórn
Ungir Framsóknarmenn héldu
sambandsþing hér á Akureyri um
síðustu helgi. Ýmsar þær ályktan-
ir,- sem það þing gerði, eru ekki
ómerkilegar og sýna hversu geysi-
lega vxðtæk og megn óánægja er
með núverandi ríkisstjórn.
Merkasta ályktun þingsins er sú,
sem fjallar um herstöðvasamning-
inn, en þar er krafizt uppsagnar
hans. Alyktunin er svohljóðandi:
• „Fjórða þing Sambands ungra
Framsóknarmanna, haldið á Ak-
ureyri 16.—19. júní, telur ein-
sýnt, að Islendingum beri að
segja upp samningi íslands og
Bandaríkjanna um Keflavíkur-
flugvöllinn á fyrsta löglegum
upsagnardegi, og stefna beri að
því, að íslendingar taki einir all-
an rekstur vallarins í sínar hend-
ur. Þá leggur þingið sérstaka
áherzlu á það, að ríkisstjórnin
hefjist þegar handa og sjái svo
um að íslendingar verði þjálfað-
ir i starfrækslu vallarins, svo að
þeir verði við-því búnir að ann-
ast hana ón íhlutunar annarra
ríkja“,
Þá lýsti þingið þeirri skoðun
sinni, að stjórnarsamningurinn hafi
verið rofnn í mkilsverðum atriðum
Á fundi Öryggisróðsins fyrra
þriðjud. bar Gromyko, fulltr. Ráð-
um stjómarrxkjanna, fram tillögu um
að Sgvétríkjunum yrði leyft að
hafa 5 eftirlitsmenn í Palestínu til
að sjá um framkvæmd vopnahlés-
ins. Kvað hann þetta ekki nema
sanngjarnt og benti á í því sam-
bandi að Bandaríkin hefðu 21 eft-
irlitsmann og þar að auki skip og
flugvélar. Ennfremur benti hann ó,
að Sovétríkin væru eina ríkið, sem
hefði frá upphafi ákveðna stefnu í
Palestínumálinu, en Bandaríkin
hefðu hins vegar verið þar mjög
reikul í róði.
Með tillögu Gromykovs greiddu
aðeins 2 atkvæði, fulltrúar Sovét-
ríkjanna og Ukrainu, aðrir fulltrú-
ar sáu hjá.
Er þetta glöggt dæmi um hvað
lýðræðið er í augum Bretlands og
Bandaríkjanna og þjóna þeirra í
Öryggisráðinu. Einnig gefur þessi
afgreiðsla til kynna að Bandaríkin
°g Bretland þurfi blátt áfram að
fela eitthvað í Palestínu, sem er
svo óhreint, að þeir þora ekki að
láta eftirlitsmenn frá Sovétríkjun-
um sjá það.
og Framsóknarflokknum beri að
hætta stjórnarsamstarfinu, ef ekki
fáist bót á því ráðin.
Má ljóst af þessu marka, hversu
rík óánægja er með hrunstefnu rík-
isstjórnarinnar, því að stjórnar-
sinnarnir munu litlu, sem engu
fylgi hafa átt að fagna á þingi
þessu.