Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 06.08.1948, Síða 1

Verkamaðurinn - 06.08.1948, Síða 1
VERKAMAÐURINN XXXI. árg. Akureyri, föstudaginn 6. ágúst 1948 29. tbl. Síldarleitarflugvélin sá mikla slld í gær viS Langanes Mikið af síldveiðiflotanum er nú á leiðinni þangað austur Hvað hefir ríkisstjórnin gert til þess að tryggja rekstur síldveiðiflotans? 4 Skipulagsnefnd fyrir Akureyri Á fundi bæjarráðs þann 8. júlí var samþykkt að leggja til að bæj- > arstjórn kysi fjögra manna nefnd, sem ásamt bæjarstjóra og bæjar- verkfræðingi, athugi skipulag og geri tillögur um framtíðarskipulag. Nefndinni var sérstaklega falið á þeim fundi að athuga skipulag svæðisins sunnan Strandgötu. Hingað til hafa allar tillögur um skipulag komið að sunnan og hef- ur þótt, að á þeim málum öllum væri nokkuð mikill seinagangur. Þessari nefnd er sérstaklega ætlað það verk að athuga tillögur þær, sem sunnan að koma og gera nýjar tillögur. Virðist slíkrar nefndar hafa verið ekki alllítil þörf, þar sem ekki ósjaldan mun hafa kom- ið í ljós, að skipulagsnefnd ríkis- ins hafði ekki þá þekkingu til að bera á staðháttum Akureyrar og öðru slíku, sem 'nauðsynlegt er til Þess að skipulagið verði viðun- andi. Síldarleitaflugvélin sá í gærkvöldi mikla síld bæði sunnan og norðan Langaness. Sá hún margar stórar og álitlegar torfur. Fá skip voru þá komin þangað eða um 10 og voru þau öll með menn í bátum. Hins vegar var mikið af síldvciðiflotan- um á leið austur bæði íslenzka flotanum og einnig erlenda. Fyrri hluta vikunnar hafði veiðzt nokkur síld við Tjörnes og var sú síld, sem þar veiddist söltuð mestmegnis.á Húsavík en nokkuð á Dalvík og víðar við Eyjafjörð. í fyrrakvöld sást svo aftur síld við Selsker á Húnaflóa og fengu nokkur skip sæmilega góð köst þar, m. a. fékk Andvari frá Reykjavík 800 mála kast. í gær var svo aftur óveruleg veiði fyrr en í gærkvöldi við Langanes, en þaðan hefur blaðið ekki frekari fregnir en að framan greinir. Sjómenn voru yfirleitt mjög trúaðir á að síld myndi veiðast í þennan straum og vissulega hafa þær vonir nú glæðst. Kák ríkisstjórnariimar. Hingað til bæjarins höfðu borizt miklar sögur um það frá skrifstofu Landssambands útgerðarmanna, að ríkisstjórnin hefði á prjónunum miklar ráðstafanir til þess að halda útgerðinni gangandi eitthvað fram eftir, en þess var orðin full þörf, þar sem mjög mun hafa verið farið að þrengja að hjá sumum. Þegar til kom reyndist þetta þó allmjög orðum aukið, að ekki sé meira sagt, því að þessi mikli styrkur var lrþús. kr. fyrir olíu og 2 þús. kr. fyrir fæði pr. skip, en Deilan um Berlín: Vesturveldin senda menn til Moskva til viðræðna við Stalin marskálk Enn hvílir leynd yfir gjörðum fundarins Um nokkurra vikna skeið hefur staðið í þófi milli Bandaríkjanna og Bretlands annars vegar og Ráð- stjórnarríkjanna hins vegar um Berlín. Raunar ná þessi átök langt út fyrir Berlín og eiga rót sína að rekja til þess í stuttu máli sagt, að Vesturveldin hafa þverbrotið fyrri samþykktir stórveldanna eftir stríðið varðandi Þýzkaiand. Færðu Bandaríkin og Bretland sig æ meir upp á skaftið Og Sporuðu ekki stríSsæsingar né hótanir í þeirri barnalegu og einfeldnisiegu trú, að þau gætu með því hrætt Ráð- stjórnarríkin til að láta undan síga, unz þeim varð það ljóst fyrir um hálfum mánuði síðan, að Rússar gerðu sér fulla grein fyrir að hót- anir og æsingar Vesturveldanna væri blöff og ekkert annað. Þegar stjórnmála-toppfígúrur hinna ein- földu auðmanna Vesturveldanna skynjuðu loksins þessa bláköldu staðreynd og flónskuíog þjónusta þeirra við sér flónskari yfirboðara var þúin að koma þeim í þá sjálf- heldu í Berlín, sem allur heimur- inn þekkir nú, þá sjá þeir sér ekki annað vænna en að labba á fund Molotoffs og Stalins í Moskva. Áttu sendimenn Vesturveldanna viðræðufund með Stalin sl. mánu- dag, en ekkert hefur enn verið lát- ið uppi um hvað þar gerðist og bíður nú allur heimurinn txðind- anna af þessum fundi með mikilli óþreyju. Hafa sendimenn Vestur- veldanna og æðstu menn þeirra verið í sífeldum viðræðufundum síðan. — En eitt er þegar fullvíst: Útvarp og blöð Vesturveldanna eru mun hógværari síðustu daga í frásögnum sínum um „Berlínar- vandamáli3“. Virðíst svo sem Stalin hafi stungið svo á þeim í Kreml að mesti vindurinn hafi að minnsta kosti farið úr þeim. í x—t. Skrýtin fundarstjórn Forseti bæjarstjórnar, Þorsteinn M. Jónsson, var ekki mættur á síð- asta bæjarstjórnarfundi fremur en aðrir aðalfulltrúar Framsóknar- flokksins, stýrði því varaforseti, Indriði Helgason, fundi. Þegar bæjarstjóri, Steinn Stein- sen hafði lokið framsöguræðu sinni fyrir fundargerðum bæjarráðs, sleit forseti umræðum aour en bæjar fulltrúar höfðu áttað síg á því, að framsögumaður hefði lokið máli sínu. Þóttust þeir gerræði beittir og mótmæltu þessum vinnubrögðum, en það kom fyrir ekki, svo mikið virtist forseta liggja á við að hespa umræður af, að bæjarfulltrúar, sem ætluðu að flytja breytingartillögur komust ekki að. Svona fundarstjórn er alllangt fyrir neðan það, sem sæmilegt er og á vonandi ekki eftir að koma fyrir oftar. Stappar nærri, að for- seti sé að svipta bæjarfulltrúa málfrelsi. slíkur styrkur!!! mun vart nægja til vikunnar. Sýnir þetta mæta vel, að fyrir ríkisstjórninni vakir allt annað en það, að sjá um að hægt sé að gera út meðan enn er von um að' úr rætist með veiði. Sem betur fer er nú heldur von um að úr veiðinni rætist, svo að til kasta ríkisstjórnarinnar þuffi ekki að koma eða hún að sýna hvern áhuga hún hefur fyrir því að síldar sé leit- að meðan einhver von er um veiði. Eins og í Hitlers- Þýzkalandi Tólf aðal-foringjar Kommún- istaflokks Bandaríkjanna voru handteknir og fangelsaðir fyrir nokkru. Sex hinna handteknu voru látnir lausir eftir að Mannréttinda- ráð Bandaríkjanna hafði lagt fram 5000 dollara tryggingu fyrir hvern þeirra. Talsmaður dómsmálaráðu- neytisins skýrði frá því að kommúnistaforingjarnir væru ákærðir fyrir tilraun ti! að „koll- varpa með ofbeldi rikisstjóm Bandaríkjanna". En það varðar 1Ö ára fangelsi og 10 þús. dollara sekt. Tilkynnt hefur verið að komm- únistaforingjarnir verði dæmdir af ríkiskviðdóm. Bæjarstjórnin samþykkir að keypt verði lóð undir Alþýðuhúsið Lóðin mun fást keypt fyrir kr. 30.000.oo Eins og getið var í síðasta blaði, sendi Fulltrúaráð verka- lýðsfélaganna bæjarstjórn erindi um það, að Akureyrarbær kaupi lóð Sverris Ragnars austan Laxagötu undir væntanlegt Alþýðuhús, en því verði valinn staður sunnan íþróttasvæðis- ins, milli Laxagötu og Geislagötu. Bæjarráð tók þetta erindi fyrir fólki mun ekki þykja það vonum á fundi sínum þann 29. júlí sl. og var þar samþykkt að ætla Alþýðu- húsinu stað á þessu svæði, ef lóðin fengist keypt með viðunandi verði. Bæjarstjórn samþykkti þetta svo á fundi sínum sl. þriðjudag og upp- lýsti þá bæjarstjóri, að hann hefði átt viðtal við Sverri Ragnars um þetta mál og hefði hann viljað fá fyrir lóðina 30.000 krónur. Lóð Sverris mun vera um 12—1400 fermetrar og auk þess bætist við hana frá bænum. Þessi staður -er fyrir margra hluta sakir vel fajlinn og verður að því hin mesta bæjarprýði, ef þar rís myndarlegt Alþýðuhús. Verka- fyrr, sem þetta mál fær viðunandi afgreiðslu í bæjarstjórninni, svo lengi, sem fyrir því hefur verið barizt að fá heppilega lóð undir Alþýðuhús. Þess er að vænta, að það mál sé nú að leysast á viðunandi hátt, og að hægt verði að hefja byggingu hússins innan tíðar. Uppdráttur af skipu- lagi íþróttasvœðisins Fyrir bæjarráði 22. júlí lá upp- dráttur af skipulagi íþróttasvæðis- ins norðan Brekku götu, sem gerð- ur var af arkitektunum Gísla Hall- dórssyni og Kjartani Sigurðssyni. Iþróttabandalag Akureyrar hefur mælt með uppdrættinum, en bæj- arráð vísaði honum til skipulags- nefndar áður en endanleg ákvörð- un verður tekin um hann. Hrun yfirvofandi í Paradís auðvalds- ins, sedr Truman forseti Margar milljónir íhúa Bandaríkjanna geta ekki veitt sér brýnustu nauðsynjar M Truman forseti hefur kallað saman aukaþing. í boðskap sínum til þingsins lýsti hann því yfir aþ grípa yrði til róttækra aðgerða, ef verðbólgan í Bandaríkjunum ætti ekki að leiða til algers efnahags- hruns. Skýrði hann frá því að fram- færslukostnaður væri nú orðinn hærri, en nokkru sinni áður í sögu Bandaríkjanna. Truman skýrði frá því að hagskýrslum sýndu, að síð- ari hluta sl. árs hefði fjórða hver bandarísk fjölskylda verið farin að ganga á sparifé sitt, því að tekjurn- ar hefðu ekki lengur hrokkið fyrir brýnustu lífsnauðsynjum. Sagði forsetinn að ástandið væri nú orðið þannig, að fjölskyldur með lágar tekjur eða miðlungstekjumenn gætu ekki lengur veitt sér ýmsar lífsnauðsynjar, vegna dýrtíðar, og vöruverð færi enn hækkandi. Svona er þá ástandið og horf- urnar í fyrirmyndarlandi ritstjóra „Dags“, „íslendings“ og „Alþýðu- mannsins". — Og þeir munu ekki þurfa að bíða lengi eftir kreppu og fjárhagslegu hruni í Paradís auð. valdsins. — Hvort þeir læra nokk- uð þar af frekar en af hruninu í Þýzkalandi mun reynslan leiða í ljós. Líkumar eru sáralitlar vegna hins andlega vesaldóms þeirra. Erl. íhaldshlöð segja: Bretland að verða bandarískt útibú Dollararáð yfir verzl- uninni í Evrópu Hið kunna enska íhaldsblað „Daily Express" lét svo úmmælt í ritstjórnargrein fyrra þtiðjudag að: „Bretland væri að verða banda- rískt útibú.“ Blaðið lét þessi orð falla í sambandi við aðgerðir við- víkjandi Marshalláætluninni er snerta iðnrekstur Breta. í ritstjórnargrein í síðustu viku í danska íhaldsblaðinu „Politiken“, stærsta blaði Danmerkur, er m. a. svo komizt að orði, að „hætta sé á að viðskipti Evrópulandanna inn- byrðist komizt algerlega undir yfir- ráð dollarsins", og síðar í sömu grein er talið um „dollarayfirráð yfir verzlun Evrópu." Fer andúðin gegn Marshalláætl- uninni nú vaxandi í Evrópu, eins og þessar tilvitnanir beia m. a. vott um. Hér heima virðast amerísku kettlingarnir ekkert vexa famir að sjá og þeir, sem hafa fengið sjón- ina, eru sýnilega múlbundnir.

x

Verkamaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.