Verkamaðurinn - 06.08.1948, Side 3
Föstudaginn 6. ágúst 1948
VERKAMAÐURINN
3
Bær framfaranna
Blómlegt atvinnulíf, aukin velmegun og vaxandi
• •
menning einkennir Neskaupstað síðan Sósíaíistar
fengu meiri hluta í bæjarstjóm
............MMMMMMMM...MMMM...IMMMMMMMMMMMMMl
Við siðustu bœjarstjórnarkosningar fengu sósíalistar \
hreinan meiri hluta i bæjarstjórn Neskaupstaðar. Ar- \
angur þess leynir sér heldur ekki. í engum bæ a landinu l
munu nú vera eins stórstigar frarnfarir og i Neskaup- \
stað. Einmitt á sama tíma og ríkisstjórnin lcggur sína i
dauðu hönd á allqr framkvœmdir, reisa Norðfirðingar \
hvert stórfyrirtœkið af öðru. Þar er atvinnuleysi orðið i
ópekkt fyrirbœri, og ekki aðeins pað, heldur er orðinn |
skortur á vinnuafli. Er petta ekki hvað síz.t athugandi f
fyrir akureyrska verkamenn, sem átt hafa að búa við at- \
vinn/uleysi á -flestum vetrum. — I eftirfdrandi grein er i
sagt nokkuð frá helztu frarnkvæmdum, sem nú standa |
yfir eða eru i undirbúningi i Neskaupstað. i
MMMMMIMMMMMMMMMIIMMMMJM...MMMI
Vísir að listasafni fyrir Akureyri
Magnús Á. Árnason listmálari gefur bœnum
eitt af málverkum þeim, sem voru á sýningu
hans í Gagnfrœðaskólanum
Magnús Á. Árnason listmálari hefur nú sýnt Akureyrarbæ
þann mikla sóma, að gefa bænum eitt af málverkum þeim,
sem voru á sýningu þeirra Barböru og hans í Gagnfræðaskól-
anum í síðasta mánuði. Málverk þetta nefnist Stokkalækjargil
og á að vera fyrsti vísir til listasafns á Akureyri.
Neskaupstaður er, svo sem
kunnugt er, eina sveitarfélagið a
landinu, þar sem sósíalistar fara
með völd og ætti stefna þeirra þar
að gefa mönnum nokkia hugmynd
um bæjarmálastefnu sósíalista yf-
irleitt, þó er fjárhagsleg geta þess
bæjarfélags, eins og annarra, mjög
háð afkomu atvinnuveganna á
hverjum tíma. — Sildarleysið í
sumar er því mjög alvarlegt áfall
fyrir . bæjarfélagið, því að hlut-
deild Norðfirðinga í síldveiðunum
er tiltölulega mjög rnikil, enda
byggir bærinn tilveru sína ein-
göngu á sjávarútvegi.
Margvislegar framkvæmdir hafa
að undanförnu staðið yfir í Nes-
kaupstað fyrir forgöngu sósíalista
innan og utan bæjarstjómar. —
Verður hér lauslega getið hinna
helztu.
T ogaraútgerðin.
Fyrir atbeina sósíalista hófst á
sl. óri útgerð tveggja nýsköpunar-
togara úr Neskaupstað og verður
ekki annað sagt en að útgerð
þeirra hafi gengið vel. — Annar
togarinn er rekinn af bænum, en
hinn af hlutafélagi með stuðningi
bæjarsjóðs, en hann lét í té ábyrgð
fyrir stofnlánadeildarláni. — Fyrir
þeirri ábyrgð voru ýms skilyrði
sett, m. a. að skipið skyldi gert út
frá Neskaupstað, og að bærinn
skuli jafnan hafa forkaupsrétt, yrði
það selt. Útgerð þessara skipa hef-
ur þegar sýnt hver lyftistöng hún
getur orðið fyrir hin einstöku þorp.
Og þó ágreiningur hafi í upphafi
verið um skipakaup þessi og ýms-
ir, einkum Framsóknarmenn, lagzt
á móti þeim, mun nú enginn
treystast til að halda því fram, að
þar hafi ekki verið rétt að farið.
Dráttarbraut.
Seint á árinu 1946 tók til starfa
í Neskaupstað dráttarbraut fyrir
allt að 200 tonna skip. — Var hún
byggð af hafnarsjóði, með stuðn-
>ngi ríkissjóðs, sem hafnarmann-
virki. —- Dráttarbrautin er rékin
af hiutaféiagi, _sem áður hafði
byggt fullkomið vélaverkstæSi. ---
Stærstu hluthafar eru Samvinnu-
félag útgerðarmanna, hafnarsjóður
og bæjarsjóður. — Fyrirtæki þessi
hafa ómetanlega þýðingu fyrir
sjávarútveg Austfirðinga yfirleitt.
Ratveitan.
Fram að þessu hefur Neskaup-
staður búið við mjög ófullnægj-
andi raforku, og það svo, að til
stórra vandræða hefur horft. —
Nú er verið að bæta úr þessu, og
fyrir fáum vikum tók til starfa ný,
stór rafstöð, en vélakostur hennar
er ennþá lítill, en í næsta mánuði
kemur stór vél, sem ætti að vera
komin í gang í september. —
Verður þá vélakrafturinn 1000 hö.
4 móti rúmlega 200 áður, en fram-
kvæmdum öllu mer hagað þannig,
að mögulegt á að vera að nota
2000 hö.
Vinnuvélar.
Bæjarstjórn hefur lagt mikið
kapp á að eignast viunuvélar af
ýmsu tagi, en erfitt er að fá inn-
flutningsleyfi fyrir þeim. — Pó
hefur bærinn eignast stórvirka vél-
skóflu, grjótmyllu, lyftikrana og
bílavog. Koma öll þessi tæki að
geysi miklum notum, bæði fyrir
bæinn og einstaklinga.
Fiskiðjuver.
í haust mun taka til starfa af-
kastamikið fiskiðjuver, sem Sam-
vinnufélag útgerðarmanna er að
láta byggja fyrir forgöngu sósíal-
ista, einkum Lúðvíks Jósepssonar,
en hann er formaður félagsins. —
Fyrirtæki þetta á í senn að vera
hraðfrystihús, beinamjölsverk-
*
smiðja, niðursuðuverksmiðja og ís-
framleiðsla. Þó mun niðursuðan
ekki verða tilbúin fyrst um sinn.
Fyrirtæki þetta mun hafa geysi-
þýðingu fyrir sjávarútveginn, sér-
staklega heimaútgerðina, en jafn-
framt er í ráði að flytja vertíðar-
fiskinn af Hornafirði heim til
vinnslu.
Þetta eru markverðustu afrek
sósíalista í Neskaupstað og þegar
menn hafa það i huga, að hér er
um að ræða bæ, sem aðeins telur
1250 íbúa, munu allir geta orðið
sammála um, að vel er að verið.
Þó eru ótal mörg verkefni, sem
enn bíða úrlausnar, en hafa orðið
að sitja á hakanum fyrir öðrum enn
meir aðkallandi verkefnum. _______
Sósíalistar í Neskaupstað hafa lit-
ið svo á, að fyrsta verkefnið væri
að efla atvinnulífið. — Allt annað
varð að sitja á hakanum.
Ymislegt fleira mætti minnast
á, sem bærinn rekur, svo sem
ágætis elliheimili, steypuverk-
smiðju, afbragðs sundlaug o. fl. —
En út í það verður ekki farið.
Næsta stórvirkið, sem bæjar-
sjóður mun ráðast í, er bygging
sjúkrahúss, sem hefst í næsta mán-
uði.
Annað aðkallandi veckefni er að
koma upp gistihúsi. — Ferða-
ipuexBAis aaj uuunuinejjseuueui
og vex sýnilega enn til stórra muna
þegar bærinn kemst í vegasam-
band, en til þess vantar nú aðeins
herzlumuninn. — Sem stendur eru
engin tök á að taka sómasamlega á
móti férðafólki, en það er ekki
vanzalaust. Hins vegar virðist eng-
inn einstaklingur hafa . hyggju að
koma upp slíkum rekstri og er svo
að sjá, sem bærinn verði að leysa
vandann.
Umhverfi Neskaupstaðar er hið
fegursta, fjallasýn fögur og byggð-
in ekki of innilokuð. Sveitin er hin
fegursta og góð undir bú. Ferða-
menn munu því telja sig eiga er-
indi þangað og forráðamenn bæj-
arins munu reyna að búa sig undir
að taka sómasamlega á móti þeim
næsta sumar.
Þess má og geta, að í Neskaup-
stað er skíðaland gott og mundi
fólk vafalaust una sér þar vel við
iðkun þeirrar íþróttar.
Mörg íbúðarhús eru nú i smíðum
í Neskaupstað, en samt allt of fá.
— Það, sem Neskaupslað fyrst og
fremst skortir, er fleira fólk, eða
öllu heldur meira húsnæði, svo að
fólk geti flutt þangað. — Ekki
virðist ástæða til að kvíða at-
vinnuleysi og vonandi er það alveg
úr sögunni í Neskaupstað.
En þarf ekki bærinn að leggja
þungar byrðar'á bæjarbúa til að
geta lagt í miklar framkvæmdir?
Útsvör í kaupstöðum landsins
eru yfirleitt há, og er Neskaup-
staður engin undantekning frá
þeirri reglu .Ef borið ar saman við
Akureyri kemur í ljós, að tekjuút-
svar er mun lægra í Neskaupstað,
en útsvar á eign aítur á móti
hærra. Hins vegar eru nokkur út-
svör á atvinnurekstur i Neskaup-
stað í formi veltuútsvara, og er al-
gengt að útgerðin beri 5—7 þús.
kr. — Hins vegar virðist slíkur at-
vinnurekstur útsvarsfrjáls á Akur-
eyri. — Sósíalistar í. Neskaupstað
telja óeðlilegt, að atvinnurekstur-
inn sé útsvarsfrjáls jafnframt því,
sem hann er skattfrjáis vegna ó-
eðlilega mikilla afskrifta, sem
heimilaðar eru.
★ TRÚLOFUN.
Nýlega hafa ópinberað trúlofun
sína Hermína Jakobsen, Þingvalla-
stræti 14, og Þórarinn Jónsson,
bílstjóri, Bakkastíg 4, Reykjavik.
í bréfi, sem listmálarinn ritaði
bæjarstjóra um þetta, segir m. a.:
„Leyfi mér hér með að tilkynna
yður, að eg hef ákveðið að gefa
Akureyrarbæ- eitt af málverkum
þeim, sem er á sýningu þeirri, sem
við nú höldum í Gagnfræðaskólan-
um — sem fyrsta vísi til listasafns
á Akureyri. Myndin heitir Stokka-
lækjargil (á Rangárvöllum). —
Ástæðan er m. a. sú, að við höfum
nú haldið fjórar sýningar hér, og
alltaf verið tekið fádæma vel, en
einkum þó atvik, sem kom fyrir í
gær. (Bréfið er dags. 30. júlí. —
Ritstj.). Tvær alþýðukonur komu
á sýninguna og greiddu aðgangs-
eyri, eins og lög gera ráð fyrir, en
þegar þær fóru út, heimtuðu þær
að fá að borga aftur vegna þess, að
þær hefðu skemmt sér svo vel! Þar
sem alþýða manna hugsar þannig,
finnst mér að hún ætti að hafa
skilyrði til að njóta listar betur en
nú er, bæði hér á Akureyri og
annars staðar á landinu Það er von
mín, að þessi litli vísir geti orðið
til þess, að 'Akureyrarbær sjái sér
fært að auka við safnið smétt og
smátt eftir því sem tímar líða. Sé
nokkuð að þakka, þá megið þér
þakka þessum tveim fátæku kon-
um fyrir myndina----------“
Þessi gjöf listmálarans er í alla
staði hin höfðinglegasta. Listasafn
á Akureyri myndi auka stórum á
Togliatti, foringi ítalskra komm-
únista var sýnt banatilræði 14. f.
m. Var hann að ganga út úr þing-
húsinu um hliðardyr, er ungur lög-
fræðistúdent vatt sér að honum og
skaut á hann fjórum skotum og
lentu þrjú þeirra í brjósti Togliatt-
is, en ein kúlan straukst við höfuð
hans. Togliatti hné samstundis nið-
ur, en fólk þusti þegar að og hand-
samaði illræðismanninn, en Togli-
atti var borinn inn í þinghúsið og
þar gert að sárum hans til bráða-
birgða. Síðan var harm fluttur í
sjúkrahús og gefið blóð og aðrar
nauðsynlegar læknisaðgerðir fram-
kvæmdar.
Illræðismaðurinn var úr einum
af stuðningsflokkum stjórnar De
Gasperi og hafði atvinnu sem
fréttaritari fyrir eitt blað flokksins
i Róm.
Síðustu fréttir herma, að Togli-
atti sé nú úr allri hættu, en mjög
tvísýnt var um líf hans um skeið.
Fáum dögum eftir morðtiiraun-
ina við Togliatti var gerð tilraun til
þess að ráða foringja japanskra
kommúnista af dögum, mistókst sú
tilraun einnig ,og hlaut hann minni
háttar sár, er sprengju var varpað
að honum.
Eftir þingkosningarnar á Ítalíu
hróður bæjarins, sýna, að hann
hefði menningarverðmæti í háveg-
um og kynni að meta starf lista-
manna. Það er ósk og von allra
þeirra, sem fögrum listum og allri
menningu unna, að þessi gjöf
Magnúsar Á. Árnasonar megi auka
þroska bæjarbúa sem mest, og að
hér rísi upp á komandi árum lista-
safn, sem samboðið sé hverju því
bæjarfélagi, sem telur menningu
og fagrar listir eina af grundvallar-
stoðum sínum.
Síldaraflinn sjö sinn-
um minni en í fyrra
Síðastliðinn laugardag, 31. júlí,
á miðnætti, var síldveiði í bræðslu
139.307 hektólítrar og saltað var
þá í 6925 tunnur. Á sama tíma í
fyrra var bræðslusíldaraflinn
1.056.784 hektólítrar og söltun
25.213 tunnur.
Hér fer á*eftir afli eyfirzku skip-
anna:
Auður 1100, Bjarmi 623, Einar
Þveræingur 689, Eldey 1024, Ey-
firðingur 571, Garðar 1387, Hann-
es Hafstein 613, Narfi 1881, Njörð-
ur 1060, Pólstjarnan 1207, Snæfell
1604, Stígandi 1158, Straumey
747, Súlan 1195, Sædis 675, Sæ-
valdur 875, Vörður 598 og Þor-
steinn 556. Aflahæsta skipið í flot-
anum var Helga, Rvík, 2000 mál.
18. april sl. skýrðu bandarískir
þingmenn frá því að þar hefði í
fyrsta skipti komið til fram-
kvæmda áætlun, nefnd „Hemaðar-
aðgerð x“, sem utanríkismálaráðu-
neyti Bandaríkjanna hefði gert um
baráttu gegn kommúnistum í Ev-
rópu og hefðu andstæðingar
kommúnista í kosningunum fengið
greiddar 4 millj. dollara úr ríkis-
sjóði Bandaríkjanna. Um sama
leyti skýrðu bandarisk blöð frá því,
að í ráði væri að stjórn Bandaríkj-
anna styrkti hægri öflin í Evrópu
til að myrða helztu forystumenn
kommúnista. Um svipað leyti gaf
stjórn Banadaríkjanna út bók með
upplýsingum um helztu foringja
kommúnista í um 60 londum, m. a.
hér á Islandi.
Morðtilræðið við Togliatti er
sýnilega einn liðurinn í hinni göf-
ugmannlegu og lýðræðslegu „Hern-
aðaraðgerð x“.
★ LEIÐRÉTTING.
í síðasta tbl. „Verkamannsins“
var sú meinlega prentvilla í aug-
lýsingu frá Bókaverzlun Axels
Kristjánssonar h/f, að þar stóð
Bóaverzlun i stað Bókaverzlun. Er
hér með beðist afsökunar á þessum
leiðu mistökum.
Togliatti var nýlega sýnt banatilræði
Einnig foringja japanskra kommúnista