Verkamaðurinn - 11.02.1949, Qupperneq 3
VERKAMAÐURINN Föstudaginn 11. febrúar 1949 -
Á VETTVANGI
VERKALÝÐSMÁLA
FORDÆMI
D AGSBRÚN ARM ANN A.
Eins og frá var skýrt í blaðinu
fyrra föstudag, var stjórn Dags-
brúnar í Rvík endurkosin við alls-
herjaratkvæðagreiðslu í félaginu
fyrir hálfum mánuði. Þetta er 9.
árið, sem Sigurður Guðnason og
einingarstjórn hans fer með forust-
una í þessu stærsta verkalýðsfélagi
landsins. A þeim tíma hefur félag-
ið eflst geysilega, bæði að áhrif-
um og þroska, og eignir þess eru
nú yfir hálfa milljón kr., en voru í
0, þegar einingarmenn tóku við
1941. Dagsbrún gegnir nú forustu-
hlutverki í íslenzkum verkalýðs-
málum og fyrir þrótt og farsæla
málafylgju félagsins á undan-
gengnum árum, hafa allir verka-
menn é landinu notið ávaxtanna af
starfi þess og sigrum, beint eða
óbeint. Það mega þess vegna kall-
ast góð tíðindi að einingaröflin í
Dagsbrún koma nú æ efldari út úr
hverjum kosningum, þrátt fyrir
engan tilsparnað afturhaldsins í
rógi, lygum og óvönduðum starfs-
aðferðum gagnvart núverandi
stjórn.
Ar eftir ár gera íhaldsflokkarnir
sig hlægilegri í augum verkamanna
með því að streitast við að bjóða
fram „sína menn“ til forustu í fé-
laginu, og ár af ári verður útkom-
an hörmulegri fyrir þá, en sigur
vinstri aflanna þeim mun glæsi-
legri.
Við nýafstaðnar kosningar hlaut
A-listi (einingarm.) 1317 atkvæði
eða meir en helming þeirra, sem á
kjörskrá voru, og er það langhæsta
atkvæðatala, sem nokkur stjórn í
Dagsbrún hefur hlotið. Hið þrí-
höfðaða íhaldsflagð hlaut hins
vegar aðeins 602 atkv. Þrátt fyrir
fádæma áróður og viðbúnað. T.
d. voru allar einkaskrifstofur
stjórnarflokkanna gerðar að kosn-
ingaskrifstofum B-listans.
Dagsbrúnarmenn haía nú sýnt
enn einu sinni og eftirminnilegar
en nokkurn tíma fyrr, að þeir eru
vel þess meðvitandi hvað einingin
og hin framsækna . forusta þýðir
fyrir stétt þeirra. Þeir hafa gefið
fordæmi, sem hæfir forustuhlut-
verki félags þeirra.
,,EIN 3TÆÐUR SIGUR“.
Um sama leyti fór fram stjómar-
kjör í Vörubílstjórafélaginu Þrótti
í Rvík. 1 þeim kosningum flæddi
óheið.irleiki Stefaníumanna svo
mjög yfir bakka sína, að fá dæmi
eru til annars eins, þótt oft hafi vel
verið. Agentar íhaldsins, og þá
fyrst og fremst formannsefni þess,
beittu mútum í stórum stíl. Ein-
stökum bílstjórum var lofað vinnu
og alls konar fríðindum hjá bæn-
um og öðrum atvinnurekendum,
öðrum var hótað hörðu ef þeir
kysu ekki samkvæmt vilja agent-
anna. A. m. k. 7 menn voru látnir
kjósa, þótt þeir væru aðalfélagar í
öðrum stéttarfélögum og hefðu áð-
ur kosið þar. Með þessum aðför-
um tókst stjórnarflokkunum að
merja 5 atkv. meirihluta við kosn-
ingarnar: 131 gegn 126.
Þessi „sigur“ steig hinum rang-
lega kjörna formanni íhaldsins svo
til höfuðs, að hann rauk til og
skrifaði heilsíðugrein í Morgunbl.
um þennan „einstæða" og „glæsi-
lega sigur yfir kommúnistum“, eins
og hann sjálfur komst að orði.
Þessi ritsmíð mun vera algert
einsdæmi í ófyrirleitni, því að þar
játar formannsdula þessi, Friðleif-
ur F. Friðriksson, og hælist um
yfir, að hafa viðhaft þær aðfero-
ir, sem lýst er hér að framan og
segist vel hafa getað lofað bíl-
stjórum vinnu, þar sem hann sé
Sjálfstæðismaður og þess vegna
hæg heimatökin fyrir sig að semja
við atvinnurekendur. Þá viður-
kennir hann einnig, að nokkrir hafi
kosið í „Þrótti“, sem búnir voru að
kjósa annars staðar, en sér að sjálf-
sögðu ekkert athugavert við það.
Kosningasvik þessi hafa að
sjélfsögðu verið kærð til stjórnar
Alþýðusambandsins, en ekki er
sennilegt að hún bregði hart við.
Hitt er ekki ósennilegt, að hin
nýja Stefaníu-stjórn í „Þrótti“
komist að raun um það síðar, að
,.Þróttar“-menn láti ekki 5-atkv.
Friðleif herleiða sig í hverju máli.
Er a. m. k. hyggilegt fyrir hann að
láta menn sína hefja reglubundnar
öndunaræfingar hið fyrsta, því að i
Morgunbl.-grein sinni segist hann
ekki hafa getað náð meirihl. í fé-
laginu fyrr, vegna þess hve sínir
menn þoli illa að sitja lengi á fund-
um í sígarettureyk og þungu lofti!
DÝRTÍÐ OG VÍSITALA.
Hér í blaðinu hefur áður verið
skýrt frá þeim sýndartilburðum
Alþýðusambandsstjómarinnar í
kjaramálum launþega, að fara hóg-
værlega fram á það við ríkisstjórn-
ina, að dýrtíðaruppbót á laun
verði reiknuð með vxsitölu 306 í
stað 300 eins og verið hefur siðan
Alþingi samþykkti kaupránslögin.
„Alþýðumaðurinn“ sér hins veg-
ar ástæðu til að hrósa Helga Hann-
essyni og Co. fyrir þessa frammi-
stöðu og kemur um leið með þá
furðulegu staðhæfingu, að sósial-
istar láti verkalýðsfélög þau, sem
þeir stjórni, krefjast hins sama. —
Þessu til sönnunar vitnar hann í
samþykktir fulltrúaráðsins hér og
„Þróttar“ á Siglufirði um dýrtiðar-
mál. Sá er hins vegar reginmunur á
kröfu þessara aðila og beiðni A1
þýðusambandsins, að þeir fyrr-
nefndu krefjast dýrtiðaruppbótar
til samræmis við aukningu dýrtíð-
arinnar, en minnast lxvergi á 6
vísitölustig.
„Alþýðum.“ virðist ekki gera
neinn greinarmun á hinni stórföls-
uðu vísitölu stjórnarflokkanna og
hinni raunverulegu dýrtíð, þótt
fyrir alllöngu liggi fyrir rökstutt
álit 2ja færustu hagfræðinga þjóð-
arinnar, þar sem þeir sanna, að rétt
vísitala sé nú nálægt 400 stigum.
Verkamenn gera kröfu til að fá
fulla dýrtíðaruppbót á laun sín, en
Alþýðusambandið biður náðarsam-
legast um 6 vísitölustig. Það er
kannske ekki von, að ritstjóri „Al-
þýðum.“ skilji þennan meiningar-
mun á meðan hann tekur við tvö-
földum verkamannslaunum frá Al-
mannatryggingum, fyrir utan ann-
að.
AÐALFUNDUR
Verkamannafélags Raufarhafn-
ar var haldinn 16. jan ,sl. Félags-
menn voru einhuga um að velja sér
róttæka forustu, sem fyrr. Fund-
urinn gerði eftirfafrandi ályktanir
í dýrtíðar- og kjaramálum, sem all-
ar voru samþ .samhljóða:
1. „Aðalfundur í Verkamanna-
félagi Raufarhafnar, haldinn 16.
janúar 1949, mótmælir lögfestmgu
vísitölunnar, vegna sívaxandi dýr-
tiðar og skorar því á Alþingi það,
er nú situr, að samþykkja frumvarp
þeirra Sigurðar Guðnasonar og
Hermanns Guðmundssonar um það
efni.“
28. „Aðalfundur í Verkamanna-
félagi Raufarhafnar, haldinn 16.
jan. 1949, mótmælir eindregið
frumvarpi Jóhanns Hafstein um
hlutfallskosningar í verkalýðsfé-
lögum og öllum afskiptum ríkis-
valdsins af innri málum verkalýðs-
félaganna.“
3. „Aðalfundur Verkamannafé-
lags Raufarhafnar, haldinn 16. jan.
1949, vítir harðlega framkomu
meirihluta á 21. þingi Alþýðusam-
bands Islands og afgreiðslu hans á
hinum ýmsu hagsmunamálum
verkalýðssamtakanna."
r.
FRÁ VERKLÝÐSFÉLOGUM
Á AKUREYRI.
Síðastliðinn þriðjudag var fund-
ur með stjórnum allra verklýðsfé-
laga í bænum. Fundarefni var að
gera tillögur um atvinnufram-
kvæmdir í bænum. Á fundinum
kom það eindregið í ljós í ræðum
manna, aþ höfuðáherzlu bæri að
leggja á öryggi í rafmagnsmálun-
um og aukningu togaraútgerðar.
Kosnar voru þrjár þriggja manna
nefndir til að gera tillögur um eft-
irfarandi mál:
1. Sjávarútvegs- og hafnarmál.
2. Rafmagns- og iðnaðarmál.
Bvgginga-, samgöngu- og
ræktunarmál.
Akveðið var að boða aftur til
fundar með sömu aðilum þegar
nefndirnar hefðu skilað áliti.
Molasykur,
Strásykur,
livítur,
Flórsykur,
Kandís.
í.ÖNTUNARFÉLAGIÐ
og útibú.
Hveiti,
í pk. og 1. vigt.
Hrísgrjón,
í pk. og 1. vigt.
Baunir,
í pk. og 1. vigt.
Hafragrjón,
Flrísmjöl,
Kartöflumjöl,
Makkarónur,
Pönnukökuliveiti,
Kex, í pökkuin.
PÖNTUNARFÉLAGIÐ
og útibú.
Frá
Sjúkrasamlaginu
Læknaval. — Þessa dagana
stendur yfir læknaval hér í bæn-
um og þarf því að vera lokið fyrir
næstu mánaðamót og ástæða til
að hvetja fólk til að draga það
eigi letngur að velja sér samlags-
lækni. — Þar sem eg hefi orðið
var nokkurra missagna eða mis-
skilnings um læknavalið nú, þyk-
ir mér rétt að taka fram eftirfar-
andi: Læknavalið gengur í gildi
1. apríl næstk. Þangað til geta
samlagsmenn bundið sig til mán-
aðar í einu hjá þeim lækni, sem
þeir óska eftir í hvert sinn. Það er
ekkert læknaval sem bindandi sé
eftir 1. apríl þó einhver læknir
hafi skrifað stafi sína í bók sam-
lagsmanna. Til þess að læknaval-
ið hafi nokkurt gildi verður að
koma með samlagsbækur á skrif-
stofu samlagsins og skrifi undir
yfirlýsingu um hvaða læknir sé
valinn, og er þá nafn þess læknis
stimplað inn í bók viðkomandi
samlagsmanns. Sami maður getur
valið fyrir heimilisfólkið allt og
staðfestir þá það val með undir-
skrift sinni. — Eigi er hverjum
lækni heimilt að hafa nema vissan
fjölda samlagsnúmera, og getur
því farið svo, að þeir sem koma
mjög seint til að velja samlags-
lækni, geti eigi valið þann lækni,
sem þeir hefðu helzt óskað eftir.
---------------------------- 3
— Samlagslæknúm er heimilt að
vísa sjúklingum sínum til sér-
fræðinga til ránnsókna, en allar
slíkar ávísanir þurfa að vera árit-
aðar af skrifstofu sjúkrasamlags-
ins. Þeir, sem eigi sinna þessu
geta ekki búizt við að reikningar
þeirra fyrir slíka sérhjálp verði
teknir til greina. — Loks er vert
að geta þess að varðlæknir gsgn-
ir nú varðstöðu frá kl. 6 að kvöldi
til kl. 8 að moi-gni hverja nótt, ef
þörf er fyrir slysa- eða skyndi-
hjálp. — Þar sem það myndi taka
of mikið rúm í blaðinu að þessu
sinni, að géta um fleira viðvíkj-
andi læknavali og samningum,
sem fólkið þyrfti þó að vitd, verð-
ur látið staðar numið að sinni, en
farið fram á rúm til þess síðar, ef
óskir koma fram um það frá bæj -
arbúum'. — St. Ág. Kristjánsson.
Gúmmístakkar
Olíustakkar
Olíubuxur
Gúmmíbússur
Vinnubuxur
Vinnuvettlingar
Fatapokar
Vöruhúsið hi. I
..
AÐVÖRUN
Að gefnu tilefni skal vakin atliygli á því, að bannað
er að selja óslægðan fisk til neyzlu í bænum, og sömu-
leiðis er str.mglega bannað að þvo fisk eða fiskílát
upp ur sjó innan takmarka hafnarinnar.
Heilbrigðisnefndin.
Lans staða
Bæjarstjórn Akureyrar hefir ákveðið að ráða að-
stoðarhafnarvörð, er annist einnig afhendingu va-tns
til skipa og innheimtu vatnsgjalda.
Umsóknum skal skila á skrifstofu bæjarstjóra fyrir
15. þ. m., og eru þar veittar upplýsingar um launakjör
og annað starfinu viðvíkjandi.
Akureyri, 3. febr. 1949
Bœjarstjóri
ímaskrá 1949
Þar sem verið er að búa nvja símaskrá undir prentun,
[ eru þeir símanotendur. sem óska að koma leiðrétting-
i um eða breytingum við skrána, beðnir að tilkynna það
i skriflega fyrir 20. þ. nr.
F.innig þarl að tilkynna um breytt heimilisfang.
Símastjórinn á Akureyri, 8. febrúar 1949.
Gunnar Scram.
-•iiriiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiii|||iiiil|||||||l|iiiiiiiiiiii||||l|,|||in iii |m,n,unminii,,uiiiii,
MiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii'iiiiiniiiiiHi*