Verkamaðurinn - 04.03.1949, Blaðsíða 1
VERKAMAÐURINN
XXXII. árg.
Akureyri, föstudaginn 4. marz 1949
9. tbl.
Bandai ískt herskip
i heimsókn
Utanrikisráðuneytið gaf
í fyrradag út svohljóðandi
fré ttatil k y n n i ngu:
„Eftirlitsskip amerisku
flotastjórnarinnar, U.S.S.
Edislo, er vœntanlegt til
Reykjavíkur um næstu
* helgi. Skipið er við
gæzlu í Norðurhöfum, og
mun hafa hér skamma
viðdvöld.“
Frétt þessi minnir Island-
inga á fyrri kurteisisheim-
sóknir erlendra herskipa, t.
d. þýzku kafbátanna rétt
fýrir siðustu heimsstyrjöld.
klokkurinn.
Aðalfundur Sósialistafélags
Akureyrar er n. k. sunnu-
dag, kl. 8,30 í Verkalýðs-
húsinu. Sjá nánaui auglýs-
ingu í blaðinu í dag.
Yindhanar Framsóknarflokksins
r
14. jan. 1948: „Nii er rimnið nýtt ár. A þessum áramót-
itm liefir nv stjórnarstefna rutt sér til rúms-Alger
stefnubreyting í dýrtíðarmáíunum..
11. og 23. febr. 1949: „..: dýrtíðin aukizt í flestum grein-
um ... öngþveiti í verzlunar- og viðskiptamálum... Ríkis-
gjaldþrot og gengislækkun blasir framundan.“
Er ríkisstjórnin að springa?
Fyrir rúmu ári síðan virtist allt
leika í lyndi á brúðuheimili Fram-
sóknarflokksins. 14. jan. 1948 birt-
ist grein á 1. síðu „Dags“ með á-
berandi 3ja dálka fyrirsögn: „Byrj-
að að vinda ofan af dýrtíðarhjól-
inu“.. Hælist ritstjórinn, Haukur
i
humvarp um þriggja vikna orlof
flutt á Alþingi
Hlutasjómenn njóti jafnréttis við
aðra launþega um orlof
Hermann Guðmundsson og Sig-
^'ður Guðnason flytja á Alþingi
^Umvarp um breytingu á orlofs-
^gunum. Eru aðalbreytingarnar
^ssar:
Sumarleyfi þeirra, er undir lög-
in koma, lengist um eina viku,
úr tveimur vikum í þrjár, og
verði orlofsféð 6V2% i stað
4%, sem afleiðing af lengdu
sumarfríi.
Breytingar, er reynslan hefur
sýnt að nauðsynlegar eru, til
þess að orlofslögin nái jafnt til
allra launþega, — er lagt til að
afnuminn verði sá óréttur sem
hlutasjómenn hafa verið beittir
og tryggt að allir sjómenn hafi
ótvíræðan rétt til orlofs, að
öllu leyti á kostnað útgerðar-
manns.
3. Lagt er til að fyrningartími
krafna um orlof sé sá sami og
fyrningartími kaupkrafna.
iStórfelld verðlœkkun
í Sovétríkjunum
Flestar vörur lækka frá 10-30%
| ^erzlunarmálaráðuneyti Sovét-
^janna og miðstjórn Kommún-
! '8tafi. Sovétríkjanna gáfu á mánu-
^Sinn út sameiginlega tilkynn-
ltlgu um stórfellda verðlækkun á
i
öllum vörutegundum, sem
i 0th til framkvæmda um öll Sovét-
r>ki
á þriðjudag.
Þetta er þriðja allsherjarverð-
Unin í Sovétríkjunum, sem
athkvaemd er síðan í desember
ig47 . ,
U '> er skömmtun var afnumin 1
°vútríkjunum.
Samkvæmt hinni nýju tilskipun
lækkar vöruverð um 10—30%.
Vörur sem lækka um 10% eru m.
a.: Brauð og mjólkurvörur, feit-
meti, kökur, niðursoðin matvæli,
tóbak, búsáhöld, ullarfatnaður og
ullarefni. Silkifatnaður og silkiefni,
borðvín og útvarpstæki lækka um
15%; reiðhjól og sement lækka um
20%; sjónvarpstæki og grammó-
fónplötur um 25%; vodka um
28% og grammófónar um 30%, svo
nokkur dæmi séu tekin af handa-
hófi.
Snorrason, þar yfir því afreki rík-
isstjórnarinnar að stela stórum
fjárfúlgum af launþegum með því
að binda vísitöluna við 300 stig frá
1. jan. 1948. Var svo að skilja af
blöðum Framsóknar að þetta afrek
bæri sér í lagi að þakka Framsókn
og „Dagur“ segir:,...með þess-
um aðgerðum er aíger stefnubreyt-
ing í dýrtíðarmálunum frá því sem
verið hefur.. Dýrtíðin er í fyrsta
sinn raunvorulega lækkuð. .“ Og
til frekari áherzlu er á 2. bls. ,Dags’
sama tbl., grein með fyrirsögninni:
,Nýtt ár — ný stjórnarstefna‘ (eft-
ir Ingfmar Eydal?) þar sem m. a.
er sagt fullum hálsi: „Nú er runnið
nýtt ár. A þessum áramótum hef-
ir ný stjórnarstefna rutt sér til
rúms.... Þar með hefir stetna
Framsóknarflokksins fengið fulla
viðurkenningu Sjálfstæðisflokks-
ins og Alþýðuflokksins."
Þessi og önnur skrif Framsókn-
arblaðanna sýna það svart á hvítu
að leiðarljós Framsóknarmanna
eignuðu fyrst og fremst Framsókn
þessa „nýju stefnu.
Ríkisstjórnin
þjóðarnauðsyn
Og ánægja Framsóknar var svo
innileg og rík í brjóstum hinna
djúpskyggnu leiðtoga að þeir
fundu ástæðu til að gera sérstaka
ályktun um hvílík blessun fylgdi
hinni nýju stjórnarstefnu fyrir
þjóðina.
Framsóknarfél. Akureyrar sam-
þykkti á fundi sínum 16. apríl
1948 svohljóðandi ályktun:
„Fundurinn telur, að m i k i 11
árangur hafi þegar orðið af núver-
andi stjórnarsamstarfi og það sé
þjóðarnauðsyn að núver. stjórnar-
flokkar standi fast sáman um
stjórn landsins."
Að þessari frægu fundarsam-
þykkt stóðu m. a. eftirfarandi höf-
uðpaurar Framsóknar hér á Akur-
eyri: Marteinn Sigurðsson, formað-
ur félagsins, Bernharð Stefánsson,
alþm., Þorsteinn M. Jónsson, skóla-
stjóri, Þorsteinn Stefánsson, bæjar-
gjaldkeri, dr. Kristinn Guðmunds-
son, skattstj., Ingimar Eydal, fyrrv.
ritstjóri, og Eiríkur Sigurðsson,
kennari.
Til þess að tryggja sem rækileg-
ast sigur hinnar nýju stjórnarstefnu
samþykkti fyrrnefndur Framsókn-
arfundur einnig að framkvæma
erfðaskrá Hitlers og gerði því svo-
hljóðandi samþykkt í einu hljóði:
„Þá teíur fundurinn, að lýðræð-
isflokkunum í landinu beri að
vinna á móti hinni óþjóðlegu starf-
mi kommúnista, sem fyrst og
fremst miða starfsemi sína við
hagsmuni erlends stórveldis, og að
(Framhald á 4. síðu).
Boðar 25 prósent
gengislækkun
JBjörn Olafsson ^talaði
mikið um nauðsyn 25%
gengislækkunar í ræðu, sem
hann flutti á Alþingi í
fyrradag. Greinilegt er að
hér er túlkaður vilji og fyr-
irætlanir útgerðarauðvalds-
ins og Landsbankans til
þess að rýra kjör almenn-
ings í landinu enn frekar.
í sambandi við þetta er
þess að minnast, að það hef-
ur ekki ósjaldan komið fyr-
ir, að Björn þessi hefur
skýrt frá vilja og fyrirætl-
unum afturhaldsins í.land-
inu.
Eggert Gilfer teflir hér sem gestur
Skákþing Norðlendinga hefst
hér í bænum á sunnudaginn
kemur. Reykjavíkurmeistaranum
Eggert Gilfer, hafði verið boðið
að taka þátt í mótinu, og hefur
hann þekkzt boðið. Teflir hann í
meistaraffokki hér, sem gestur.
Teflt verður í bæjarstjórnarsal.
Aðalfundur Einingar
Mótmælir þátttöku í hernaðarbauda^
lagi - Lágmarkskrafa verkalýðsins
afnám kaupránslaganna
Aðalfundur Verkakvennafélags-
ins „Eining" var haldinn sl. sunnu-
dag. Stjórn og trúnaðarmannaráð
var allt einróma kosið, en þessar
trúnaðarstöður skipa:
Form.: Elísabet Eiríksdóttir,
varaform.: Margrét Magnúsdóttir,
ritari: Guðrún Guðvarðardóttir,
gjaldkéri: Jóna Gísladóttir, með-
stjórnandi: Hulda Ingimarsdóttir.
V arastjórn. Alma Antonsdóttir,
Ingibjörg Eiríksdóttir, Lísbet
Tryggvadóttir. Trúnaðarmannaráð:
Svanborg Jónsdóttir, Rósa Jó-
hannesdóttir, Osk Jóhannesdóttir
og Vílborg Guðjónsdóttir.
Mótmæli gegn þátttöku
í hernaðarbandalagi.
Eftirfarandi tilfaga var einróma
samþykkt:
„Aðalfundur Verkakvennafélags-
ins „Einingar" á Akureyri, haldinn
27. febrúar 1949, mótmælir ein-
dregið þátttöku Islands í hvers
konar hernaðarbandalagi og skorar
á Alþingi og ríkistsjórn að halda
fast við yfirlýsta hlutleysisstefnu
landsins, enda telur fundurinn, að
hlutleysi í átökum stórveldanna sé
happadrýgst fyrir framtíð þjóðar-
innar.“
Fundurinn samþykkti einnig ein-
róma eftirfarandi tillögu:
„Aðalfundur Verkakvennafélags-
ins „Einingar", haldinn 27. febrúar
Elísabet Eiríksdóttir.
1949, samþykkir að skora á Al-
þingi að samþykkja frumvarp
þeirra Hermanns Guðmundssonar
og Sigurðar Guðnasonar um afnám
þess ákvæðis dýrtíðarlaganna frá
1947, að birtda vísitöluna við 300
stig.
Fundurinn lítur svo á, að þær
ákvarðanir stjórnar A. S. í., um
að gera þá kröfu til ríkisstjórnar-
innar, að mismunur útreiknaðrar
og greiddrar vísitölu verði fram-
vegis 19 stig, sé langt frá að vera
fullnægjandi, og telur að lágmarks-
krafa verkalýðsfélaganna sé afnám
kaupránslaganna eða grunn-
kaupshækkun til jafns við þá
launaskerðingu, sem í þeim felst.