Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 04.03.1949, Qupperneq 3

Verkamaðurinn - 04.03.1949, Qupperneq 3
fERKAMAÐURINN Föstudaginn 4. marz 1949 Ingvar Björnsson fra Brún Til að spara Alþýðusambandinu póstkostnað! MÍNNINGARORÐ Mér eru í fersku minni fyrstu kynni mín af Ingvari frá Brún, þá var hann nemandi í 6. bekk ^íenntaskólans hér, en varð að hsetta námi seinni hluta vetrar og feggjast á sjúkrahús, vegna mein- setndar, sem leiddi til þess að taka varð af honum fótinn, eftir ítrek- aðar tilraunir læknanna, að komast fyrir meinsemdina. Það, sem skýrast einkenndi þennan unga, glæsilega mann, var flaðværð hans og karlmennska í veikindum hans, æðrulaus gekk l'ann undir þær aðgerðir, sem framkvæmdar voru á hinum sjúka ^ti, og aldrei brást honum örugg vissa um bata. Ekki virtist heldur kjarkur hans ^íða neina hnekki við þetta áfall, ^ann lauk stúdentsprófi, og fór að ibú loknu til Svíþjóðar til náms í 'ðnaðarverkfræði, þar dvaldi hann °11 stríðsárin. A þeim tíma veiktist l'ann af berklum, en fékk við ^eilsuhælisvist sæmilegan bata, að því er virtist. Heim kom hann í stríðslokin, og tók við starfi hér á Akureyri hjá Kaupfélagi Eyfirð- lnga, auk þess sem hann kenndi við ^lenntaskólann hér, þar til hinn hvíti vágestur herjaði hann að nýju, svo að þrek hans fékk ekki rönd við reist. Það er gott að minnast manna eins og Ingvars frá Brún, glaðværð hans, frjálslyndi og umbótahugur, gerði hann hverjum manni hug- þekkan. Engum, sem kynntist hon- um, duldist það, að hann átti til að bera glöggan skilning á kjörum þjóðar sinnar, og hafði ákveðnar skoðanir á málefnum hennar þótt hann léti þær lítt uppi á opinber- um vettvangi. Bjartsýni hans og trú á málstað ættlands síns brást honum aldrei. Mann setur hljóðan þegar vösk- um og starfandi mönnum eins og Ingvari frá Brún er svift úr röðum okkar á árdegi lífsins, þegar ótal verkefni bíða einmitt úrlausnar slíkra manna, og vissulega er það áfall fyrir eftirlifandi unnustu hans og aldraða foreldra. En starfi Ing- vars er ekki lokið, andi hans mun nú vinna við betri starfsskilyrði, þar sem líkamlegar þjáningar valda ekki lengur truflunum, og eitt er vist, slíkum dreng mun fylgja blessun og hlýhugur allra þeirra, sem kynntust honum, yfir á hið nýja tilverusvið. H. E. Ný félagsbók frá Máli og menningu og nýtt tímaritshefti komið út Hjá máli og menningu er komin ht ný bók eftir Eyjólf Guðmunds- Son er nefnist Lengi man til lítilla stunda, og Tímaritið, 2.—3. hefti 1948. eftir Marin Andersen Nexö; Is- lenzkar nútímabókmenntir 1918— 1948, eftir Kristin E. Andrésson; og Lífsþorsti eftir Irving Stone, II. bindi. Finnur Árnason útsölumaður „Vinnu A. S. I.“ á Akureyri upp- lýsti það á aðalfundi Verkamanna- félagsins, að hann hefði ekki enn útbýtt téðu riti til þeirra kaupenda Vinnunnar, sem hann vissi um, en gat þess þó um leið til skýringar, að sér væri ekki kunnugt um hverjir það væru, sökum veikinda og þess að hann „væri önnum kaf- inn störfum“. Hann sagðist því myndi bíða eftir næsta hefti og láta þau svo bæði i póst í einu, til þess að spara Alþýðusambandinu póstkostnað!!! Fyrirmyndar útsölumaður það. Efnilegur Heiindellingur Magnús Jónsson frá Mel, sem fluttur hefur verið suður héðan frá Akureyri til að hressa upp á Heim- dall, flutti erindi um daginn og veginn í útvarpið fyrra mánudag. Virðist hann vera mjög vel cil þess starfa fallinn, miðað við aðra starfsemi útvarpsins, því í ræðu hans rak ein afturhaldskenningin aðra: Æskan væri á leið til for- dæmingar vegna leti og ómennsku, nauðsynlegt væri að taka upp þegnskylduvinnu, skattar væru of háir á miklum tekjum (ekki lág- tekjum!), átta stunda vinnudag bæri dð afnema, kirkjan væri of sáttfús og umburðarlynd við synd- ara! o. s. frv. o. s. frv. Síðan lauk hann máli sínu með þvi að vitna í Rutherford pýramídaspámann með mikilli virðingu. Er vissulega full :stæða til að óska hinni heilögu þrenningu: útvarpinu, Heimdalli og pýramídamönnum til hamingju með þennan nýja forustumann. Lengi man til lítilla stunda er triðja bókin, sem Mál og menning Sefur út eftir Eyjólf Guðmundsson, °g fjallar þessi um bernsku- og ^nglingsár höfundarins. Fyrri hluta tennar nefnir höf. Morgun ævi ^innar, en síðari Dregur að dag- — Bókin er 230 bls. að st®rð. ’Tímaritið hefst á ritstjórnargrein nefnist: Verum á verði. Jón ^-'lgason prófessor ritar um Arn- §firn jðnsson lærða (300 ára minn- lng). Sverrir Kristjánsson: Bylting- Sfnar 1848 og Danmörk; Bylting- 9fnar 1843 og ísland. Jakob Bene 'Hktsson: Nokkur orð um alþýðu- tókasöfn. Hróðmar Sigurðsson: ”Lnyðja mundu grísir“. Faðir vor, Saga eftir Valentin Katajev. Þá er löng ritgerð um díalektiska efnis- ^ggju eftir John Desmond Bernal, r,tuð í tilefni aldarafmælis Komm- 'staávarpsins. Kvæði eru i heft- ^ eftir Jón úr Vör, Anonymus, 'auk“, Gest Guðfinnsson, Loft '>1hiarsson og þrjú smáljóð i þýð- ■X Sigurðar Þórarinssonar, og umsagnir um bækur eftir Jón nnnesson, Björn Franzson, , ^the Benediktsson, Björn Sig- i s°n, Jakob Benediktsson og Jó- ínn Sveinsson. ^ þessu ári koma út eftirtaldar ^kur hjá Máli og menningu: Und- J> K °eru lofti, Endurminningar II., Vilhjálmi Stefánssyni landkönnuði og Guðmundi Crímssyni dómara boðið til íslands Þjóðræknisfélag íslendinga hef-* ir, ásamt ríkisstjórninni, ákveðið að bjóða hingað heim 1,—14. júlí næstk. Vestur-Islendingunum Vil- hjálmi Stefánssyni, landkönnuði og Guðmundi Gnmssyni, dómara, ásamt konum þeirra. Það þótti rétt að votta meðal annars á þennan hátt þessum þjóð- kunnu mönnum, hve mikils virði það er, að sem flestir hér heima fái tækifæri til að kynnast þessum ágætismönnum, sem hafa svo mjög aukið hróður þjóðar sinnar erlend- is. Um sama leyti er væntanleg hingað ungfru Ingibjörg Ólafsson frá London, sem hefur við ýmis tækifæri komið fram erlendis sem fulltrúi íslands og auk þess orðið að góðu liði mörgum íslendingum, sem þar hafa til hennar leitað. Hún var hingað boðin á síðastliðnu sumri, en samkvæmt læknisráði fékk hún þessari heimsókn sinni frestað. Skemmtiklúbburinn „ALLIR E1TT“ lieldur DANSLEIK í Sam- komuhúsinu, laugardaginn 5. marz 1<)49, kl. 10 e. h. STJÓRNIN. Messur uiu helgina: Glerár- þorpi kl. 2 e. h. — Akureyri kl. 5 e. h. (F. J. R.). Minningarspjöld Vinnuheimil- issjóðs S. í. B. S. fást í Bókaverzl. Gunnlaugs Tr. Jónssonar og Bókabúð Akureyrar. Aðstoðar- liaf n ar varðarstaðan var veitt Friðrik Hjaltalín á síð- asta bæjarstjórnarfundi. Frá Barnaskólanum. Hannes J. Magnússon skólastjóri gegnir ekki skólastjórastörfum nú fyrst um sinn vegna eftirstöðva mænu- veiki. Foreldrar og aðrir, sem þurfa að eiga viðtal við skóla- stjórann, eru beðnir að snúa sér til Eiríks Sigurðssonar kennara. 3 Frá aðaifundi Skógræktarféiags Eyfirðinga Aðalfundur Skógræktarfélags Eyfirðinga var haldinn á Akur- eyri sunnudaginn 27. þ. ni. f upphafi fundarins var minnzt látinna félagsmanna, þeirra Berg- steins Kolbeinssonar bónda að Leifsstöðum, Kristján Benedikts- sonar trésmiðs á Akureyri og Ingvars Bjömssonar mennta- skólakennara. Ármann Dalmannsson flutti skýrslu stjórnarinnar, Plantað hafði verið síðastliðið vor á veg- um félagsins samtals 20 þús. og 500 plöntum, þar af rúmlega 2 þús. af Skógræktarfélagi Hrafna- gilshrepps og einstökum félags- mönnum. 143 sjálfboðaliðar höfðu unnið að gróðursetningu 437 vinnustundir. Félagið mun byrja í vor plöntusölu frá uppeldisstöð fé- lagsins. Munu verða söluhæfar allt að 2 þús. birkiplöntur um og yfir 50 sm. hæð, einnig álíka mik- ið af gulvíði. Lögð var 120 m. löng vatns- leiðsla að uppeldisreitunum og byggt geymsluhús með 4x6 m. gólffleti. Heyjaðir voru um 80 hestburð- ir .af töðu á hinu ræktaða landi uppeldisstöðvarinnar og ræktað- ar rúmlega 20 tunnur af kartöfl- um. Urðu tekjur af því á 8. þús. . Reikningar félagsins sýndu, að félagssjóður hafði minnkað á ár- inu um kr. 8320.00, en tillagasjóð- ur vaxið um kr. 3294.00. Samkv. eignareikningi var skuldlaus eign í árslok 1948 kr. 72.017.67 og eignaaukning á árinu kr. 1.404.07. Bætt var inn í lög félagsins ákvæði um, að félög, sem vinna að skógræktarmálum innan hér- aðsins gætu gerzt deildir í félag- inu. Fundininn samþykkti að ár- gjöld félagsmanna fyrir yfir- standandi ár skyldi vera kr. 20.00. Stjórnin lagði fram fjárhags- áætlun fyrir yfirstandandi ár, og voru niðurstöðutölur hennar kr. 49.000.00. Ur stjórninni áttu að ganga Jón Rögnvaldsson og Þorsteinn Da- víðsson. Var Þorsteinn endurkos- inn, en í stað Jóns, sem baðst eindregið undan endurkosningu, var kosinn Björn Þórðarson, Ak. Stjórnin hefir þegar skipt með sér störfum og er Guðm. Karl Pétursson yfirlæknir formaður, Þorsteinn Davíðsson ritari, Ár- mann Dalmannsson gjaldkeri og Björn Þórðarson og Þorsteinn Þorsteinsson meðstjórnendur. Höfðinglegar gjafir. Félagsmenn eru nú 330 talsins. Fjölgaði þeim um 55 á sl. ári. Fé- laginu bárust góðar gjafir á ár- inu: Frá Kristjáni Benediktssyni trésmið kr. 1.458.00. Minningar- gjöf um Arna Jóhannsson, fyrrv. formann félagsins. kr. 500.00. £IIIIIIIIIIMIII||||||||||||||I||||||III||I|I|I||||II||, lll|l||lll|llllllllllll|llllll|llll|llllll||llllll|l|l|ltlll|lllllllmllll|ll \ H.f. Eimskipafélag íslands | AÐALFUNDUR | Aðalfundur Hlutafélágsins Eimskipafélags íslands, i | verður haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykja- j \ vík, laugardaginn 4. júní 1949 og liefst kl. 1.30 e. h. I DAGSKRÁ: I 1 1 ■ Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum | á liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfirstand- i i andi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til | úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga til 31. I desember 1948 og efnahagsreikning með athuga- j semdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og i tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum. j 2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skipt- i ingu ársarðsins. . = Í 3. Kosning fjögra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra \ sem úr ganga samkvæmt félagslögum. j 4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og i 1 éins varaendurskoðanda. j 5. Tillögur til breytinga á reglugjörð Eftirlaunasjóðs | 1 H.F. Eimskipafélags íslands. = 0. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem j upp kunna að verða borin. Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöf- Í I um og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í I í Reykjavík, dagana 1. og 2. júní næstk. Menn geta fengið j j eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðal- j 1 skrilstofu félagsins í Reykjavík. Reykjavík, 9. febrúar 1949. Stjórnin. ]

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.