Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 04.03.1949, Qupperneq 4

Verkamaðurinn - 04.03.1949, Qupperneq 4
Aðalfundur ,Iðju4, fél. verksmiðjuf ólks Afturhaldið treystist ekki til neinna aðgerða eftir útreiðina í haust Aðalfundur „Iðju“, félags verk- smiðjufólks á Akureyri, var hald- inn sl. sunnudag. Það, sem fyrst og fremst vakti eftirtekt var að stjórn- in var öll einróma kosin. Svo eftir- minnilega ráðningu fengu aftur- haldssendlamir í Alþýðusambands- þingskosningunum í haust, að þeir sáu sitt ráð vænst að hafa sig nú sem hljóðasta. Stjórn Iðju skipa: Form.: Jón Ingimarsson. Ritari: Jósef Krist- jánsson. Gjaldk.: Þorsteinn Aust- mar. Varastjórn: Hallgrímur Jóns- son, Astvaldur Jónsson, Aðalsteinn Gunnarsson. Trúnaðarmannaráð: Friðþjófur Guðlaugsson, Arnór Einarsson, Lára Gísladóttir, Hall- grímur Jónsson, Ingibjörg Sigurð- ardóttir, Olafur Jónsson, Oskar Stefánsson, Guðm. Andrésson, Gústaf Jónsson, Ragnar Jónasson, Sigrún Gústafsdóttir, Halldóra Kjartansdóttir. Gegn hernaðarbandalagi. Eftirfarandi tillögu hefur Iðja nýlega samþykkt: „Fundur í Iðju, fél. verksmiðju- fólks á Akureyri, lýsir eindreginni andstöðu sinni gegn hvers konar þátttöku af íslands hálfu í hem- aðaraðarbandalagi, þar sem það hefði í för með sér hersetu í land- inu og stofnaði sjálfstæði, menn- ingu og tilveru Islendinga sem þjóðar í hættu. » Ennfremur er það álit fundarins, að ekki komi til mála, að þátttaka íslands í slíku bandalagi verði ákveðin á annan veg en þjóðinni sjálfri verði gefinn kostur á að segja sitt álit með þjóðaratkvæði.“ .uaHHHMMHaMuad Faðir minn, BALDVIN JÓHANNSSON, andaðist á Sjúkrahúsi Akureyrar 3. þ. m. Fyrir hönd vandamanna. Sigríður Baldvinsdóttir. ■ *11■■iiiiiitn ■111 Aðalfundur SÓSÍALISTAFÉLAGS AKURF.YRAR verður haldinn sunnudaginn 7. þ. m., kl. 8,30 í Verkalýðshúsinu. Dagskrá: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Reikningar félagsins og „Verkamannsins" 3. Skýrsla stjórnarinnar. 4. Kosningar. Stjórnmálaviðhorfið. 6. Félagsmál. Félagar! Mætið allir stundvíslega! Stjórnin. hUiiiiiiiiiiii iiiiiiiiiiiiimiiiuiii TILKYNNING 111111111111111 Viðskiptanefndin hefur ákveðið eftirfarandi liámarks- 1 I verð á gúmmískóm framleiddum innanlands: Heildsöluverð Smásöluverð i No. 26-30 ...... kr. 16.00 kr. 20.40 No. 31-34 ........ - 17.50 - 22.30 No. 35-39 ........ - 20.00 - 25.50 No. 40-46 ........ - 22.50 - 28.70 Söluskattur er innifalinn í verðinu. Hámarksverð þettæ gildir í Reykjavík og Hafnarfirði, I I en annars staðar á landinú má bæta við verðið sannan- j I legum flutningskostnaði. Með tilkynningu þessari fellur úr gildi auglýsing verð- i | lagsstjóra nr. 16/1948. Reykjavík, 1. marz 1949. Verðlagsstjórinn. ... iii 111111111111111111111111111111111 ••• in111111 iii n,; miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmmmmiiiiM* Sauma- og bókbandsnámskeið HEIMILISIÐNAÐARFÉLAGS NORÐURLANDS i hefjast að nýju 11. marz næstk. — Þeir, sem ekki komust að á j j síðustu námsskeiðum sitja nú fyrir, gefi þeir sig fram í tíma. i | Sími 488 eða 26. | I SuNlMMMMHtMMIIHMtlllMIMMIIMIIMIIHMMIMIIMIMItNIIMMIMIIMIIMItltlllllMHIIMIMMHIIIMMIIIIIIIIHMMMMIIMHHrt Menntaskólanem- endur móti þátt- töku í hernaðar- bandalagi Þriðjudaginn 1. marz sl. var haldinn almennur fundur í mál- fundafélaginu Huginn í Mennta- skólanum á Akureyri um þátttöku íslands í Atlantshafsbandalaginu. Þótt undarlegt kunni að virðast reyndust þeir Stefán Jóhann og Ólafur Thors eiga nokkra mál- svara í skólanum, sem reyndu meira af vilja en mætti að halda uppi vörn fyrir mólstað Banda- ríkjanna, en fóru hinar háðulegustu hrakfarir. „Verkam." mun ekki að svo komnu máli gera að umtalsefni alla málsmeðferð og fundarstjórn vikapilta afturhaldsins á fundi þessum, en öll var hún með þeim blæ, að greinilegt var að um fyrir- skipanir og „ráðleggingar" frá „hærri“ stöðum var að ræða, og skólanum til hinnar mestu sví- virðu. Eftirfarandi tillögu samþykkti fundurinn: „Almennur fundur Mennta- skólans á Akureyri, haldinn þriðjudaginn 1. marz 1949, lýsir sig andvígan þátttöku Islands t hernaðatbandalagi, hverjar sem þær þjóðir eru, sem að slíku bandalagi standa, þai sem slíkt myndi hafa í för með sér skerð- ingu á sjálfstæði landsins fyrr eða síðar og stefna þjóðerni voru í hættu.“ Átta gjaldþrot á síðast- liðnu ári Samkvæmt nýkomnum Hag- tíðindum, urðu 8 gjaldþrot hér á landi á árinu 1948, þar af 6 í Rvík. 1 í öðrum kaupstöðum og 1 í sveit. Næsta ár á undan var tala gjaldþrota 15. Undanfarin ár hafa gjaldþrot verið sem hér segir að meðaltali: 1912—1920 5,9; 1921— 1930 20,4; 1931—1935 30,8; 1936— 1940 14,2; 1941—1945 6,2; 1944 11; 1945 3; 1946 12; 1947 15 og 1948 8. Meðal gjaldþrota, er urðu á s. 1. Frá heimilisiðnaðarfél. Norður- lands. Sauma- og bókbandsnáms- skeið hefjast að nýju 11. marz n. k. — þeir, sem ekki komust að á síðustu námsskeiðum, sitja nú fyrir, gefi þeir sig fram í tíma. — Sími 488 eða 26. Sítrónur ágætar, aðeins 50 aura stykkið. Pöntunarfélagið og útibú. , IIIIIIIIMMMIIIIIIMI ................ 11.1.1111■ 1,11II111.111.11111 ■ I ■ ..... ......... | Vinnubuxur | Vinnuvettlingar I Sjóklæði Vöruhúsið h/f VERKAMAÐURINN © Vindhanar Framsóknarflokksins (Framhald af 1. síðu). ekki eigi að skipa þá í trúnaðar- stöður fyrir þjóðfélagið." („Hér gæti Amen komið á eftir,“ sagði séra Sigvaldi). Og vitringarnir úr Vesturvegi voru nú einvaldir Og nú virtist allt vera í himna- lagi. Hinir vondu menn Stalins, sem kváðu aldrei hreyfa sig nema samkvæmt fyrirskipunum hans, voru nú settir utangarðs. Hinir dyggu þjónar nýskipunar Fram- sóknar voru settir í allar þær trún- aðarstöður, sem við varð komið. Sáningunni var lokið, beðið fyrir ríkisstjórninni í öllum kirkjum, en öll þjóðin beið með mikilli eftir- væntingu eftir hinni ríkulegu upp- skeru, sem postular hinnar nýju stjórnarstefnu höfðu lofað þjóð- inni. Uppskerustarfinu er víst senn lokið. Þar sem eg er rauður í báða enda, tel eg rétt að gefa Framsókn- arblöðunum aftur orðið og lofa þeim nú að lýsa, hvílík feikna blessun hefir fylgt sáningu hinnar nýju stjórnarstefnu, sem „Dagur“ (14. jan. 1948) kallaði ,^tefnu FramsóktiarfIokksins“. Hin blessunarríka uppskera „Dagur“ skýrir frá 23. febr. sl., að á hinum árlega félagsráðsfundi Kaupfél. Eyfirðinga, sem haldinn var 21. febr. sl., hafi framkvæmda- stjórinn, Jakob Frímannsson, sem er höfuðpaur höfuðpaura Fram- sóknar hér í bæ og byggð,, sagt ýmislegt um hina blessunarríku uppskeru og uppskeruhorfur hjá núverandi stjórnarvöldum. Upp- skerulýsing Framsóknarforingjans er í stuttu máli þessi: „. . . . undanfarin ár hefði jafn- an tekizt að halda verzlun félags- ins nokkurn veginn í horfinu og að peningagildi hefði hún farið vax- andi til ársins 1948. En þá hafi orðið umskipti. Sl. ár sýnir, í fyrsta sinn um langan aldur, lækk- andi verzlunarveltu í krónutali, enda þótt dýrtíðin hafi aukizt í tlestum greinum. Lækkunin stafar af minnkandi erlendum innflutn- ingi og versnandi innílutningshöft- um á öllum sviðum.“ Og um óframhaldandi uppskeru- horfur farast hinum vestræna stjórnmálavitringi svo orð: „. . . . að minnkandi verzlun félagsins mundi óhjókvæmilega valda versn- andi afkomu".----------------„Og ástandið virðist enn fara versnandi. Stöðúgt væri þrengt meira og meira að öllum verzlunar- og iðn- rekstri og að því er virðist alveg sérstaklega utan höfuðstaðarins.“ ---------------„og væri sízt útlit fyrir batnandi afkomu meðan nú- verandi öngþveiti í verzltmar- og viðskiptamálum ríkti.“ „Ríkisgjaldþrot og gengislækkun blasir framuncfan/4 ril IMIIIMMIIIIIIIIIIIIIIIMlII111111111111111111111111111111111111* Og í „Tímanum“, aðalblaði Framsóknarflokksins er 12. febr. sl. ennþá átakanlegri lýisng á þeim uppskeruhorfum, sem Framsókn sáði til með hinni „nýjú' stefnu sinni fyrir rúmu ári síðan. „Ríkis- gjaldþrot og gengislækkun blasir framundan“. Vitanlega reyna stjórnarflokkarnir þrír að skella skuldinni hvor á annan. Þeir þykj- ast hver um sig hvergi hafa nærri komið. En þeir eru allir sammála um, að ástandið hafi farið stór- versnandi síðastlðið ár og að horf- urnar séu svo skuggalegar í at- vinnu- og fjármálum þjóðarinnar að við þjóðinni blasi nú hvorki meira né minna en gjaldþrot ríkis- ins. Þeir hafa bolað hinum vondu sósíalistum úr trúnaðarstöðum og troðið fulltrúum sínum í þær í staðinn og geta því engum öðrum kennt um nema sjálfum sér. Þeir geta og munu endalaust þrátta um það, hver þeirra sé mesti bófinn í glæpafélaginu, en það haggar ekki staðreyndunum. Þjóðin veit að þeir eiga allir sök á þvt, hvernig nú er komið. Og hún veit að Fram- sóknarblöðin eignuðu Framsókn- arflokknum alveg sérstaklega hina nýju stefnu, sem þjóðarskútunni hefur verið siglt eftir síðastliðið ár. Bjargráðið: Stöðvun togaraflotans og gengis- íækkun! í bróðurlegri einingu hefur nú Framsókn ásamt Sjálfstæðismönn- um og krötum stöðvað allan tog- araflotann og nemur það tjón í er- lendum gjaldeyri nú þegar 10—11 milljónum króna. Ef þetta tilræði skyldi ekki nægja til að koma þjóðinni á vonarvöl, þá hefur Framsókn lagt það til, að gripið verði til stórfelldrar gengislækk- unar og heildsalinn Björn Olafsson, fóstbróðir Vilhjálms Þór, glopraði þvt út úr sér í ræðu á Alþingi í fyrradag, að nauðsynlegt væri að lækka gengi krónunnar um 25%. En hingað til hefur það aldrei skeð að einstakir bófar né glæpa- mannasamtök hafi sigrað heilar þjóðir. Leikar hafa ætíð farið svo, að þjóðirnar hafa borið sigur úr býtum í þeim átökum. Og svo mun enn fara í þeim hörðu átökum sem fram undan eru hér á íslandi. Islenzk alþýða til sjávar og sveita mun knésetja þá, sem hafa játað að eiga sök á því öngþveiti, sem nú ríkir í vaxandi mæli í at- vinnu- og fjármálum þjóðarinnar að ógleymdum svikunum í sjálf- stæðis- og utanríkismálunum. Ríkisstjórnin mun falla á síntí eigin bragði — og springa. x—t. (Leturbreytingar höf.). •■lllllll■lllll■■■ll■■l■■ll III |||im||,|||||||,||,|||MIIMMIIIII I1 Flórsykur Melís Strausykur hvítur Kandís. Pöntunarfélagið og útibú. | IIIMIIIIIIIIIIIUIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIMII"1 lfl•",,'

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.