Verkamaðurinn - 30.06.1950, Side 1
VERKAMAÐURINN
XXXIII. árg.
Akureyri, föstudaginn 30. júní 1950
27. tbl.
STYRJÖLD í KÓREU:
Ætlar Bandaríkjastjórn að nota styrjöldina í Kóreu
til að hleypa heiminum í nýtt ófriðarbál?
Leppstjórn Suður-Kóreu lafir aðeins
á aðstoð Bandaríkjanna
Aðfaranótt sunnudagsins gerðust I Bandaríkjanna og Öryggisráðsins.
þeir atburðir, að leppstjórn Banda-
ríkjanna í Suður-Kóreu fór norður
fyrir 38. breiddargráðu, sem eru
landamæri Norður- og Suður-
Kóreu. Her alþýðustjórnarinnar í
Norður-Kóreu svaraði árásinni
með gagnsókn, og hefur nú tekið
höfuðborg landsins, Seoul, sem er
50 km. sunnar og sækja hratt
fram. Her leppstjórnarinnar virðist
gersamlega máttlaus og þjóðin
vera algerlega á bandi alþýðu-
stjórnarinnar. Hafa skæruliðar
þegar látið mikið til sín taka, og
náð á sitt vald nokkrum landsvæð-
IHLUTUN OG YFIRGANGUR
U. S. A.
Stríðsæsingamennirnir í Amer-
íku ráku upp öskur mikið, við at-
burðina í Kóreu. Bandaríkin hafa
skipað flugher sínum og flota að
taka þátt í bardögunum í Kóreu
og einnig að verja Formósu. Þá
hefur Öryggisráð SÞ, sem er óstarf-
hæft og óályktunarfært, samkv.
sáttmála SÞ, vegna fjarveru full-
trúa Sovétríkjanna og ólöglegs at-
kvæðis Kína, samkvæmt kröfu
Bandaríkjanna, lýst yfir að stjórn
N.-Kóreu hafi framið „friðrof" og
skipað öllum þjóðum SÞ, að veita
N.-Kóreu lið.
ÁRÁSIN VEL UNDIRBÚIN.
Greinilegt er, að árásin á N.-
Kóreu hefur verið vel undirbúin af
Bandaríkjunum, enda var John
Foster Dulles nýlega á ferð í S,-
Kóreu. Bandaríkjunum hefur ekki
þótt seinna vænna að hefja virkar
aðgerðir gegn þjóðfrelsisbaráttu
Asíu, enda hefur nú verið lýst yfir
stóraukinni íhlutun í Viet-Nam og
á Malakkaskaga.
ÖGRUN VIÐ HEIMSFRIÐINN.
Ráðstjórnin í Moskvu hefur
mótmælt harðlega aðgerðum
Segir þar að íhlutun Bandaríkj-
anna sé ögrun við heimsfriðinn.
Utanríkisráðherra kínversku al-
þýðustjórnarinnar hefur lýst yfir,
að skipun Trumans forseta til
bandaríska flotans, um að verja
Formósu, jafngildi, stríðsyfirlýs-
ingu á hendur alþýðustjórninni.
*
Um það verður ekki sagt, enn
sem komið er, hvort Bandaríkjun-
um tekst að nota árás leppstjórnar
sinnar í S.-Kóreu sem tilefni til
þess að hleypa heiminum út í nýtt
blóðbað, en ekki er ósennilegt, að
fulllangt sé nú gengið hjá þeim
háu herrum í frekju og yfirgangi
og að þeir hafi gleymt að alþýðan
í heiminum er nú sterkara og sam-
hentara afl en nokkru sinni fyrr,
og að alþýðan þráir frið og berst
ótrauð fyrir friði.
Rautavara syngur
á þriðjudaginn
Eins og kunnugt er hefur'finnska
söngkonan Aulikki Rautavara
dvalið í Reykjavík undanfarið og
haldið hljómleika þar og í Hafnar-
firði. Einnig hefur finnski hljóm-
sveitarstjórinn, Jussi Jalas, verið í
Reykjavík og stjórnað Sibeliusar-
tónleikum sinfóníuhljómsveitar-
innar.
Nú hefur verið ákveðið, að
finnska listakonan Rautavara komi
hingað til Akureyrar og haldi hér
hljómleika fyrir styrktarfélaga
Tónlistarfélagsins og gesti þeirra
næstk. þriðjudag. Undirleikari
verður Jussi Jalas. Allir tónlistar-
unnendur munu af heilum hug
fagna komu þessara ágætu lista-
manna til bæjarins og kunna Tón-
listarfélaginu þakkir fyrir að hafa
stuðlað að hingaðkomu þeirra.
Útsvarsupphæðin
hækkuð um 500
þúsund kr.
Á fundi bæjarráðs 26. þ. m. var
samþykkt að leggja til við bæjar-
stjórn, að hækka áætlaða útsvars-
upphæð um kr. 500.000.00 vegna
togarakaupa og hækkunar á rekst-
ursútgjöldum bæjarins sakir auk-
innar dýrtíðar. Tillaga meiri hluta
bæjarráðs var samþykkt á fundum
bæjarstjórnar sl. þriðjudag.
Minni hluti bæjarstjórnar sam-
þykkir að setja föst sæti
í Samkomuhúsið
Undarlegir menn innan bæjarstjórnarinnar hafa undan-
farið barizt fyrir því af miklum krafti, að fá dansleiki bann-
aða í Samkomuhúsi bæjarins. Fremst í þessum flokki hefir
bæjarfógeti staðið, þó að árangur yrði lítill á meðan hann átti
sæti í bæjarstjórninni. Nú geta hinir ólmu andstæðingar
dansins í Samkomuhúsinu sigri hrósað, því að á þriðjudaginn
samþykkti bæjarstjórn — að vísu með minni hluta atkvæða,
3 : 5 — að sett skyldu upp föst sæti í Samkomuhúsið.
Skyndilegur áhugi
á leiklist.
Rökin fyrir þessari undarlegu
ráðstöfun hafa verið ærið undar-
leg. Fyrst og fremst hafa forsvars-
menn málsins fengið þann brenn-
andi áhuga fyrir leiklist, að þeir
töldu það með öllu óforsvaranlegt,
að boðið væri upp á annað eins
hús og Samkomuhúsið er nú til
leiksýninga. Þá hefur lögreglustjóri
talið, að illgerlegt væri að halda
uppi reglu á dansleikum í húsinu
eins og það er nú og því bæri að
fyrirbyggja þá alveg.
Því dettur engum skyni bornum
manni í hug að halda fram, að eins
og sætin í Samkomuhúsi bæjarins
eru nú, er það með öllu óboðlegt
leikhúsgestum. En þann ágalla má
hæglega laga án þess að settir séu
upp fastir bekkir á hallandi gólfi,
eins og bæjarstjórnin hefur nú
samþykkt. Til þess að gera húsið
vel úr garði til leiklistar þarf líka
íslenzkur stuðningur við
Stokkhólmsávarpið
Á útifundinum á Jónsmessuhátíð Sósíalista á Þing-
völlum sl. sunnudag, en liann sóttu mörg þúsund manns,
var einróma samþykkt eftirfarandi tillaga:
„Fjölmennt mót,, háð á Þingvöllum við Öxará 25.
júni 1950, álitur baráttuna fyrir frelsi og tilveru ís-
lenzku þjóðarinnar óaðgreinanlega frá baráttunni fyrir
friði og algeru banni við notkun kjarnorkuvopna i
styrjöld og lýsir eindregnum stuðningi við Stokkhólms-
ávarpið og skorar á þjóðina að fylkja sér um það.“
Samband íslenzkra barnakennara samþykkti einróma
eftirfarandi:
„11. fulltrúafundur S. í. B. lýsir yfir eindregnum
stuðningi sínum við áskorun þá, er samþykkt var á ráð-
stefnu heimsfriðarins i Stokkhólmi 19. marz 1950, en
hún er svohljóðandi:
„VÉR HEIMTUM algert bann á kjarnorkusprengj-
■um, hinu ægilega vopni til fjöldamorða á mönnum.
VÉR HEIMTUM að komið sé upp ströngu, alþjóð-
legu eftirliti til tryggingar því, að þessu banni verði
framfylgt.
VÉR ALÍTUM, að hver sú ríkisstjórn, sem fyrst beit-
ir kjarnorkuvopnum gegn hvaða þjóða sem er, fremji
brot gegn mannkyninu og geri sig seka um stríðsglæpi.
VER HEITUM á alla velviljaða menn hvarvetna um
heim að undirrita þessa áskorun“.“
geysimargt fleira fyrir það að
gera, eins og einn af fremstu leik-
urum bæjarins, Jón Norðfjörð,
hefur nýlega bent á í blaðagrein.
Vissulega er áhugi á leiklist lofs-
verður og hver sú viðleitni að
hlynna að þeirri starfsemi, sem
Leikfélag Akureyrar hefur með
höndum. En það er ekki heppilegt
að slík aðhlynning verði á kostn-
að annarrar starfsemi, sem líka
getur verið nauðsynleg.
Baráttan við dansinn.
Flestum bæjarbúum hefur verið
það hulin ráðgáta, hvað valdið hef
ur þeirri miklu andúð á dansi í
Samkomuhúsinu, sem fylgjendur
fastra sæta hafa látið svo mjög
bera á. Hver sem til þekkir veit, að
það er helbert bull út í loftið, að
meira sé þar um drykkjuskap en í
öðrum samkomuhúsum í bænum.
En hvað sem veldur, hefur þeim
nú loks tekizt að ná langþráðu tak-
Bæjarstjórn samþykkir samning
við ríkið um Laxárvirkjunina
Fulltrúar bæjarins í stjórn virkjunnar kosnir
Fytir bæjarstjórnarfundinum sl. þriðjudag lá uppkast að
samningi milli ríkisins og Akureyrarbæjar um að Laxárvirkj-
unin verði sameign þeirra, og samþykkti bæjarstjórn í því
tilefni eftirfarandi tillögu:
„Bæjarstjórn samþykkir að gefa bæjarstjóra fullt og ótak-
markað umboð til að undirrita samning milli ríkisstjórnar-
innar og bæjarstjórnar Akureyrar um að Laxárvirkjun verði
sameign þeirra, eins og uppkastið liggur fyrir.“
Aðalatriði samningsins. gangur, er verða kann af rekstri
Aðalatriði samnings eru eftir- Laxárvirkjunar rennur í varasjóð
farandi: hennar.
Laxárvirkjunin er sameign rík-
issjóðs og Akureyrarkaupstaðar. I Eignahlutföll Og ábyrgð.
Laxárvirkjun er sjálfstætt fyrir- | Eignahlutföll Akureyrarkaup-
tæki með sérstöku reikningshaldi. | staðar og rjkissjógs eru sem hér
Laxárvirkjun selur rafveitu Akur-
eyrar og Rafmagnsveitum ríkisins
raforku við kostnaðarverði að við-
bættum allt að 5%. Allur tekjuaf-
marki, að einangra dansleiki við
Hótel Norðurland, og þar með
skorið niður þær tekjur, sem mörg
félög í bænum höfðu af því, að
halda dansleiki í Samkomuhúsinu.
En föstu sætin eru ekki enn
komin. Má vera að eitthvað drag-
ist að þau komi, annað eins hefur
dregist hjá vorum ágæta bæjar-
stjóra, en hvað sem því líður og
hvað sem líður fylliríisskröllum og
ólifnaði í sambandi við þau, sem
lögreglustjóri hefur gert mjög svo
mikið úr, þá vantar stórlega mikið
á, að Samkomuhúsið bjóði leikur-
um upp á viðunandi skilyrði, þó að
fastir bekkir verði í það settir.
segir: Við undirskrift samnings
þessa verður Akureyrarkaupstaður
eigandi að 85 hundraðshlutum og
ríkissjóður að 15, og skal svo hald-
9
ast, þar til lokið er næstu Laxár-
virkjun. Þegar henni er lokið verð-
ur Akureyrarkaupstaður eigandi að
65 hundraðshlutum og ríkissjóður
að 35, og skal svo haldast, þar til
lokið er næstu aukningu virkjun-
arinnar þar á eftir. Þegar henni er
lokið, verður Akureyrarkaupstað-
ur eigandi að 50 hundraðshlutum
og ríkissjóður að 50 og skal svo
haldast áfram. Rxkissjóður verður
eigandi að þeim mannvirkjum, sem
fyrir eru í fyrirtækinu í framan-
greindum hlutföllum.
Ríkissjóður og bæjarsjóður Ak-
ureyrar bera sameiginlega, báðir
fyrir annan og annar fyrir báða
(Framhald á 4. síðu).