Verkamaðurinn - 11.08.1950, Side 1
VERKAMAÐURINN
XXXIII. árg. Akureyri, föstudaginn 11. ágoíiöl JS1.1 31. tbl.
Krafa um verkalýðsráðstefnu til að samræma
baráttuna, berst frá æ fleiri félögum
Verkalýðsfélögin eru nú að se gja »pp
samningum sínum hvert aí öðru.
Eins og kunnugt er, ákvað stjórn
Alþýðusambands íslands, þegar
kunnugt varð um þá ákvörðun rík-
isstjórnarinnar, að ákveða kaup-
gjaldsvísitöluna 112 stig, að leggja
til við sambandsfélögin að þau
segðu upp kaup- og kjarasamning-
um sínum. Mörg félög hafa nú
lausa samninga, þannig, að þau
geta sagt þeim upp með mánaðar-
fyrirvara, þar á meðal flest stærstu
og öflugustu félög landsins.
Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna
í Reykjavík, miðstjóm Alþýðu-
sambands Norðurlands, Verka-
mannafélagið Hlíf, Verkamannafé-
lag Akureyrarkaupstaðar og fleiri
félög hafa lýst sig samþykka
ákvörðun sambandsstjórnar og
pjafnframt skorað á hana að kalla
saman réðstefnu verkalýðsfélag-
anna til þess að samræma kröfur
verkalýðsfélaganna og skipuleggja
baráttuna.
BRÉF STJÓRNAR FULLTRÚA-
RÁÐS VERKALÝÐSFÉLAG-
ANNA í REYKJAVÍK.
„Miðstjórn Alþýðusambands
íslands, Reykjavík. — Stjórn
Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna
í Reykjavík lýsir yfir fullu sam-
þykki sínu við tillögu stjórnar
Alþýðusambands íslands um að
asmbandsfélögin segi upp kjara-
samningum sínum með kaup-
gjaldsbaráttu fyrir augum, til
þess að svara hinum dæmafáu
árásum rikisstjórnarinnar ó lífs-
kjör allra launþega.
Með því að hér er um bar-
áttu að ræða, sem snertir allan
verkalýð landsins í heild, og
mikið í húfi að hann vinni al-
geran signur í þessari baróttu,
vill stjórn Fulltrúaráðsins leggja
megináherzlu á, að allt verði
gert, sem unnt er, til þess að
fullkomna, einingu verkalýðsins
1"'um allt land þegar frá upphafi.
í því skyni vill stjórn Full-
trúaráðsins leggja til, að stjórn
A. S. í. kalli þegar x stað saman
ráðstefnu allra þeirra verkalýðs-
félaga, sem geta sent fulltrúa
með sem skemmstum fyrirvara,
og séu fulltrúamir kjömir af
stjórnum félaganna.
Við teldum rétt, að verkefni
ráðstefnunnar yrðu fyrst og
fremst þau, að gera ráðstafanir
til að tryggja algera eininguingu
alls verkalýðs landsins, að sam-
ræma uppsagnir félaganna og
tíma kaupgjaldsbaráttunnar, að
fjalla um aðalkröfur samtakanna
og að leggja gmndvöll að sam-
eiginlegri yfirstjórn kaupgjalds-
baráttunnar.
Við vonum að stjórn A. S. í.
bregðist vel við þessari tillögu
okkar og tjáum okkur reiðubúna
til frekari viðræðna varðandi
þessi mál.
Með stéttarkveðju."
TILLAGA STJÓRNAR A. N.
Á fundi miðstjórnar Alþýðusam-
bands Norðurlands, sem haldinn
var 23. júlí 1950, var eftirfarandi
tillaga samþykkt með öllum at-
kvæðum:
„Fundur miðstjórnar Alþýðu-
sambands Norðurlands, haldinn
23. júli 1950, lýsir yfir sam-
þykki sinu við ákvörðun mið-
stjórnar Alþýðusambands Is-
lands um að beita sér fyrir þvi,
að verkalýðsfélögin hefji sam-
eiginlega launabaráttu.
Miðstjórnin telur, að nauð-
synlegt sé til tryggingar sigur-
sælli baráttu, að verkalýðsfélög-
in samræmi kröfur sínar og
tíma til aðgerða eftir því sem
unnt er. Miðstjórnin skorar því
á Miðstjórn A. S. í. að boða til
ráðstefnu með fulltrúum verka-
lýðsfélaganna um eða fyrir 1.
ágúst n.k. til þess að samræma
kröfur og starfsaðferðir í vænt-
anlegri launabaráttu.“
TILLAGA VERKAMANNA-
FÉLAGSAKUREYRAR-
KAUPSTAÐARR.
Verkamannafélag Akureyrar-
kaupstaðar hélt fund 31. júlí til að
ræða tillögu stjórnar A. S. I. Fund-
urinn samþykkti einróma eftirfar-
andi tillögu:
„Fundur Verkamannafélags
Akureyrarkaupstaðar, haldinn
31. júli 1950, lýsir samþykki
sínu við ólyktun miðstjórnar A,
S. I. varðandi uppsagnir samn-
inga og nauðsyn sameiginlegrar
launabaráttu verkalýðsfélag
anna.
Fundurinn leggur sérstaka
áherzlu á það álit sitt, að fyrir-
huguð barátta fyrir launahækk-
unum verði að beinast að þvi
marki að fullar bætur fáist fyrir
þá kjaraskerðingu, sem gengis-
lækkunarlögin hafa leitt af sér.
Fundurinn telur, að sigxirmögu
leikar verkalýðssamtakanna í
fyrirhugaðri kaupgjaldsbaráttu
séu mjög háðir því, hversu allur
undirbúningur og yfirstjórn
hennar fer úr hendi og skorar
því á miðstjórn A. S. í. að verða
við kröfum Fulltrúaráðs verka-
lýðsfélganna í Reykjavík, Al-
þýðusambands Norðurlands og
ýmissa verkalýðsfélaga um
skyndiráðstefnu verkalýðsfélag-
anna.
Að fundinum loknum hófst alls-
herjaratkvæðagreiðsla um upp-
sögn samninganna og var uppsögn-
in samþykkt með 85:20 atkvæð-
um. I samband: við þessa litlu
þátttöku í atkvæðagreiðslunni er
þess að gæta að mikið á annað
hundrað manns er nú fjarverandi
ur bænum í atvinnuleit, sökum
þess að hér er litla sem enga vinnu
að hafa.
Trúnaðarmannaráð Verkamanna-
félagsins hefur nú samþykkt að
segja samningunum upp írá 15. þ.
m. og falla þeir þá úr gildi 15. sept.
næstk.
EINHUGA AÐ LEGGJA TIL
BARÁTTU.
í sambandi við þessar tillögur,
sem verkalýðsfélögin hafa sam-
þykkt, en þær, sem ekki eru birt-
ar hér, ganga mjög í sömu átt, er
tvennt einkum athyglisvert. í
fyrsta lagi það, að verkalýðsfélög-
in eru nú einhuga um að segja upp
samningum sínum, enda liggja til
þess fullgildar ástæður. Dýrtíð og
verðbólga hefur vaxið svo gífur-
lega í landinu undanfarið, að sliks
eru engin dæmi fyrr. Hefur ástand-
inu í fjármálum þjóðarinnar helzt
verið líkt við það ástand, sem var
orðið hjá stjóm Siang Kai-Shek í
Kina. Dæmi hinnar vaxandi dýr-
tiðar er óþarft að greina, enda
hefur það þegar verið gert hér í
blaðinu ,en verkamenn og annað
launafólk finnur það betur með
hverjum deginum sem líður, að
kjör þess hafa verið skert stór-
kostlega undanfarin ár og alveg
sérstaklega við gengisfellinguna í
vor. Eina leiðin, sem alþýðan hef-
ur til þess að rétta hlut sinn eru
kauphækkanir og öllum þorra
verkalýðsins mun svo virðast, að
það sé eigi vonum fyrr, sem stjórn
Alþýðusambandsins ákveður að
beita sér fyrir almennum grunn
kaupshækkunum.
Tillögur Maliks til lausnar
Kóreudeilunni
Síðastliðinn föstudag, bar fulltrúi Ráðstjórnarríkj-
í Öryggisráðinu, Jakob Malik, fram tillögu til lausnar
Kóreudeilunni. Tillagan er í fjórum liðum:
Fulltrúum alþýðustjórnarinnar í Kína sé boðið
að taka sæti í Öryggisráðinu.
Fulltrúum frá stjórn Kóreu í Pyongyang og-lepp-
stjórn S.-Kóreu sé boðið að senda fulltrúa til að
flytja mál tyrir Öryggisráðiriu.
Fyrirskipað sé vopnahlé í Kóreu.
Allir erlendir herir séu fluttir burt úr Kóreu.
Bandaríski fulltrúinn í ráðinu varð æfur við þessar
tillögur Maliks, sérstaklega virtist honum það Irek
ósvífni að ætla að bjóða fulltrúa frá alþýðustjórn Kóreu
að flytja mál sitt iyrir Öryggisráðinu.
Þá er það mjög athyglisvert að ríkisstjórnir landa, sv'o
sem Noregs og Bretlands, sem hafa viðurkennt alþvðu-
stjórn Kína, sem hina einu löglegu stjórn þess lands,
hafa til þessa ávallt komið í veg fyrir að fulltrúi henriar
tæki sæti Kína hjá SÞ, svo sem vera ber, ef lög og réttur
væru þar einhvers virt.
Bræðslusíldaraflinn 220.617
hektólítrar
Saltað í 30.005 tunnur
Sama og engin síldveiði þessa viku
Samkvæmt skýrslu Fiskifélagsins, var bræðslusíldaraflinn sl. laugar-
dag orðinn 220.617 hektólítrar og saltað hafði verið í 30.005 tunnur.
A sama tíma í fyrra var bræðslusíldaraflinn 70.273 hl. og saltað hafði
verið í 17.465 tunnur.
OTTAST FORYSTU
STJÓRNAR A. S. í.
í öðru lagi kemur fram mjög
ákveðin krafa um að fulltrúar
/erkalýðsfélaganna verði kvaddir
saman til þess að skipuleggja bar-
áttuna og tryggja sigursæla lausn
hennar. Orsökin er vafalítið sú, að
verkalýðurinn treystir varlega
þeirri stjórn, sem nú situr við völd
í A. S. 1, enda liggja til þess gild-
ar ástæður. Fyrst það, að stjórn
þessi hefur látið það viðgangast að
kjör umbjóðenda hennar væru að
ástæðulausu stórlega skert, án
þess að þess yrði vart að hún léti
sér það ekki vel líka. Ennfremur
er hún staðin að því, að hafa svik-
ið samþykkt verkalýðsráðstefn-
unnar í vetur. Sú ráðstefna sam-
(Framhald á 4. síðu).
Þennan afla hafa 218 skip með
214 nætur fengið og hafa flestöll
skipin fengið einhvern afla.
Aflahæstu skipin eru (mál og
tunnur): Helga Rv. 4989, Fagri-
klettur Hafnf. 4378, Stígandi Óf.
3269, Fanney Rvík 2812, Skaft-
fellingur Vm. 2784, Haukur I. Óf.
2686, Edda Hf. 2400, Andvari Rv.
2372, Garðar Rauðuv. 2359, Snæ-
fell Ak. 2304, Ingvar Guðjónsson
Ak. 2293, Hilmir Keflav. 2148,
Sigurður Sf. 2134, Ársæll Sigurðs-
son Njv. 2118, Einar Þveræingur
Óf. 2103, Guðm. Þorlákur Rvík
2056, Björgvin Dalvík 2037,
Reynir Vm. 1870, Hvanney Hornf.
1862, Goðaborg Neskst. 1815,
Pétur Jónsson Húsav. 1799, Súlan
k. 1793, Hólmaborg Eskf. 1769,
Akraborg Ak. 1768, Sævaldur Óf.
1764, Vörður Grenivík 1751,
Freyfaxi Neskst. 1744, Rifsnes
Rv. 1694, Kári Sölmundarson Rv.
.1669, Valþór Seyðf. 1632, Víðir
Eikf. 1597, Grindvíkingur Grindv
1590, Erlingur II. Vm. 1565, Einar
Hálfdánarson Bolungav. 1556,
Keilir Akran. 1556, Auður Ak.
1545, Særún Sf. 1544, Þorsteinn
Dalv. 1543, Hannes Hafstein
Dalv. 1452, Bjarmi Dalv. 1448,
Illugi Hf. 1419, Heimir Keflav
1412, Aðalbjörg Akran. 1386,
Keflvík. Kv. 1289, Gylfi Rv. 1247
Eldb. Borgarn 1210, Sæhr. Þing
eyri 1202, Snæfugl Reyðarf. 1198
Björg Eskf. 1187, Vísir Keflav.
1186, B.v. Gyllir Rv. 1148, Mun-
inn II. Sandg. 1136, Björn Jónsson
Rv. 1102, Helgi Helgason Vm.
1095, Smári Húsav. 1093, Hag-
barður Húsav. 1Ó82, Skeggi Rv.
1077, E.s. Ól. Bjarnaso’n Ákran.
1053, Guðm
1032.
Tveir um nót: Bragi' o’g'Fróði
Njv. 1592, Týr og Ægir Greniv.
1415.
' l ■' '• ú‘!''
LÍTIL SÍLDVEIÐl. ’ ,nU
Undanfarna daga hefúr satalitið
xf síld borizt á land, endá hefur
veiðiveður verið óhagstætt og síld
ekki sést vaða.
Þorðarson Garði
.ivfbiox
'4 H‘-<
Verkamannafélagið
segir upp frá
15. ágúst
Trúnaðarmannaráð Verka-
mannafélagsins hefur samþykkt
að segja upp kaup-" og kjara-
samningum félagsins frá og
með 15. þ. m., en eins og kunn-
ugt er, er mánaðar úppsagnar-
frestur, þannig, að samningarn-
ir falia úr gildi 15. sept. næstk.
Fleiri félög hér norðanlands a.
m. k. munu segja upp samning-
um sínum frá sama eða svipuð-
um tíma.