Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 31.03.1953, Blaðsíða 2

Verkamaðurinn - 31.03.1953, Blaðsíða 2
 Bókaverzlun |TD Höfum opnað nýja bóka- og rit- fangaverzlun í Hafnarstrœti 100. Þar verða seldar allar fáanlegar íslenzkar bækur og tímarit. — Aherzla lögð á útvegun erlendra bóka og tímarita. — Gjörið svo vej og lítið inn. PRENTVERK ODÐS BJÖRNSSONAR h.f. Orðið er laust TILKYNNING FRÁ RAFVF.ITU AKURF.YRAR Skömmtun á rafmagni verður lialdið áfram frá kl. 10.30—kl. 12, meðan þörf krefur. Röð hverfanna verður: ^ | Má bjóða yður nýtt Mánudag 30. marz: Þriðjudag 31. marz: Miðvikudag 1. apríl: Þnðjndag 7: april: Miðvikudag 8. april: Fimmtudag 9. apríl: Föstudag 1.0. apríl: Laugardag 11. april: Miðbærinn. Syðri brekkan og innbærinn. Neðri hluti Oddeyrar. Efri hluti Oddeyrar. Ytri brekkan og Glerárþorp. Miðbærinn. Syðri brekkan og innbærinn. Neðri hluti Oddeyrar. Geymið au g I ý s in gu n a! RAFVFITA AKURFYRAR Fegrunarfélag Akureyrar lieldur aðalfund sinn í Túngötu 2 fimmtudaginn 2.april (skírdag) kl. 2 eftir hádegi. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Fjölmennið og mætið stundvíslega. STjÖRNIN. L Á sl. vori skrifaði Ólafur Jóns- son, ráðunautur, grein í „íslend- ing“ er hét „Gullnáman við bæj - ardymar". Hann ræddi þar um ýmsa kosti Glerárdals og taldi að þaðan mætti draga verðmæti sem hlypu á mörgum milljónum. — í tilefni af þessu var eftirfarandi vísa kveðin, en tún voru mjcg skemmd þá, af kali, hér á Akur- eyri og nærsveitum: Þó í túnin komi kal og kannske maðkur líka; „gullnáman í Glerárdal" gerir okkur ríka. Sagt er að þessir þrír menn beri nú hæst í skemmtana- og samkvæmislífi íslendinga: Tóm- as (ekki þó Árnason), Tópas og Snoddas! Tveir Framsóknarmenn hittust á götu og tóku að ræða um stofn- un Þjóðvarnarflokksins nýja: — Eg hélt að hann hefði verið okkar maður, hann Valdemar, sem gaf út „Öldina okkar“. -— Já, það er víst, — en nú er öldin önnur. Enn er hér vísa, sem á við bændafundinn á Hó.tel KEA, „tólf aura fundinn“ sem sumir hafa kallað. Ekki þorum vér að ábyrgjast hver ræðumaðurinn var, sem lýst er í vísunni: Auratylftum eftir gróf — ýfði villta strengi. Viti stillti vel í hóf var því hylltur lengi. Rauðkál með páskasteikinni? KJÖTBÚÐIR KEA Hafnarstræti 89. Síini 1714. Ránargötu 10. Sími 1622, Mr 0awusm ★ Systrabrúðkaup. Þann 21. marz sl. voru gefin, saman í Akur- eyrarkirkju brúðhjónin Gyða Heiða Þorsteinsdóttir og Frið- geir Valdimarsson verkamaður. Heimili þeirra er í Felli í Gler- 'árþorpi. — Sigríður Þoi’steins- dóttir og Kristbjöm Björnsson bifreiðastjóri. Heimili þeirra er að Ránargötu 24, Akureyri. ★ Amtsbókasafninu verður lokað frá miðvikudeginum 1. apríl til mánudags 6 apríl. ★ Fegrunarfél. Akureyrar heldur aðalfund sinn næstk. fimmtud., 2 .apríl. Nánar í auglýsingu í blaðinu í dag. ★ Bráðabirgðaleigur á lóðum og stöðuleyfi fyrir skúra og bragga og vöruskemmur hækka eftir sömu reglum og gilda um lóða- leigur, sem miðast við fast- eignamat — samkv. samþ. bæjarstjórnar. ★ Þann 21. marz voru gefin sam- an í hjónaband, ungfrú Þórunn Sigurbjörnsdóttir og Magnús Björnsson, verzlunarm., Akur- eyri. ★ Hjónaefni. Ungfrú Jóna Ingi- björg Guðmundsdóttir, skrif- stofumær, og Ragnar Júlíusson, stúdent. ★ Hjúskapur. Ungfrú Þórunn Kristjánsdóttir (Jónssonar bak arameistara) og Erik Eylands, vélfræðingur, Reykjavík. ★ Sala áfengissölunnar hér í bænum varð 27% meiri, tvo fyrstu mánuði ársins, en hún var á sama tíma í fyrra. Bílaþvagan við Ráðhústorg. Kona á Oddeyri hefur komið að máli við blaðið og látið í ljósi það álit sitt, að bílaþvagan við Ráð- hústorgið geti verð stórhættuleg vegfarendum og þá sérstaklega börnum, sem þarua eiga ieið um svo hundruðum skiptir daglega. Benti hún á, að jafnvel kæmi fyrir að stórum vörubílum va-iii lagt við hlið hinnar venjulegu bílaraðar í Skipagötu fyrir fiam- an BSO og suður eftir götunni. Og geti þá hver sem er séð hvaða öryggi þarna er fyrir börn og fullorðna, sem ekki eigo annars úrkosta en að smeygja sér þarna á milli bílanna og hafa enga að - stöðu til að líta í kringum sig til að varast aðsteðjandi hættur. Vissulega hefur konan lög að mæla. Hér er brýn þörf breyting- ar. Svo fljótt, sem auðið er, verð- ur að flytja bflastöðvarnar burt af torginu, en framkvæmdasemi bæjarstjórnar og skipulagsnefnd- ar er ekki meiri en það, að þeim hefur enn ekki verið ákveðinn staður. En meðan bílstöðvarnar eru leyfðar við Ráhústoi’g verður að setja ákveðnar reglur um bíla- stæðin, sem tryggja vegfarendum nokkurt öryggi um líf sitt og limi. Séu slíkar reglur til, en ekki haldnar, mættu lögregluvaktirnar gjarnan rumska og sýna sig endr- um og eins. Það væri líka til- breyting fyrir bæjarbúa að sjá lögregluþjón á götum bæjarins, þótt ekki væri nema stutta stund daglega. KRAKKAR! Það borgar sig að selja ÞJÓÐ\7ILJANN, \rERKAMANNINN, LANDNEMANN í lausasölu. Komið á afgreiðsluna, Hafnarstræti 88. Tilkynning um bótagreiðslur aímannalrygginganna árið 1953 Yfirstandandi bótatímabil almannatrygginganna hófst 1. janú- ar sl. og stendur yfir til ársloka. Lífeyrisupphæðir þær, sem greiddar eru á fyrra helmingi ársins 1953 eru ákveðnar til bráðabirgða með hliðsjón af bótum síðasta ars og upplýsingum bótaþega. Sé um tekjur að ræða, sem áhrif geta haft til skerðingar á lífeyri, verður skerðingin miðuð við tekjur ársins 1952 og endanlegur úrskurður um upp- hæð lífeyrisins 1953 felldur, þegar framtöl til skatts liggja fyrir. Þeir, sem nú njóta lögboðins ellilífeyris, örorkulífeyris, barna- lífeyris eða fjölskyldubóta, þurfa ekki, að þessu sinni, að sækja um framlengingu þessara bóta. Hins vegar ber öllum þeim, sem nú njóta bóta samkvæmt heilmildarákvæðum almannatrygging- arlaganna, að sækja á ný um bætur þessar, vilji þeir áfram njóta þeirra. Hér er um að ræða örorkustyrki, ekkjulífeyri, makabætur, bætur til ekkla vegna barna, svo og lífeyrishækkanir. Umsóknir um endurnýjun bóta þessara, skulu ritaðar á við- eigandi eyðublöð Tryggingarstofnunarinnar, útfyllt rétt og greini- lega eftir því, sem eyðublöðin segja fyrir um, og afhent umboðs- manni ekki síðar en fyrir 15. maí næstkomandi. Áríðandi er að örorkustyrkþegar, sem misst hafa 50—75% starfsorku, sæki á tilsettum tíma, þar sem) ella er með öllu óvíst að hægt sé að taka umsóknirnar til greina, vegna þess að fjár- hæð sú, er verja má í þessu skyni, er takmörkuð. Fæðingarvottorð og önnur tilskilin vottorð skulu fylgja um- sóknum, hafi þau eigi verið lögð fram áður. Þeir umsækjendur, sem gjaldskyldir eru til tryggingasjóðs, skulu sanna með trygg- ingaskírteini eða á annan hátt, að þeir hafi greitt iðgjöld sín skilvíslega. Vanskil varða skerðingu eða missi bótaréttar. Umsóknir um aðrar tegundir bóta, svo sem fæðingarstyrki, sjúkradagpeninga og ekknabætur, svo og allar nýjar umsóknir um lífeyri, fjölskyldubætur eða mæðralaun verða afgreiddar af umboðsmönnum á venjulegan hátt, enda hafi umsækjandi skil- víslega greitt iðgjöld sín til tryggingasjóðs. Norðurlandaþegnar, sem hér hafa búsetu, eru minntir á, að skv. milliríkjasamningum hafa danskir, finnskir, sænskir og norskir ríkisborgarar ellilífeyrisrétt með tilheyrandi barnalíf- eyrisrétti, hafi þeir haft hér samfellda 5 ára búsetu þegar bót- anna er leitað. Þá hafa finnskir, sænskir og norskir ríkisborgarar fjölskyldubótarétt fyrir börn sín, séu þeir ásamt börnunum skráð- ir á manntal hér, enda hafi þeir ásamt börnunum haft hér 6 mánaða samfellda búsetu áður en bótarétturinn kemur til greina. Fjölskyldubótaréttur þessi tekur ekki til danskra ríkisborgara. Islenzkir ríkisborgarar eiga gagnkvæman rétt til ellilífeyris og fjölskyldubóta í hinum Norðurlöndunum. Athygli er vakin á, að bætur úrskurðast frá 1. degi þess mán- aðar, sem umsókn berst umboðsmanni, enda hafi réttur til bót- anna þá verið fyrir hendi. Þeir, sem telja sig eiga bótarétt, dragi ekki að senda umsóknir sínar, þar sem bótaréttur getur fyrnst að öðrum kosti. Reykjavík, 25. marz 1953. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS. I

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.