Verkamaðurinn - 08.01.1954, Síða 4
4
VERKAMAÐURINN
Föstudaginn 8. janúar 1954
JÓN INGIMARSSON, formaður iðjur félags verksmiðjufólks:
Hvað þarf að gera iii þess að tryggja
öllum arðvænlega atvinnu?
Allt frá fyrstu tíð hafa verka-
lýðssamtökin beitt áhrifum sínum
og valdi, til þess að tryggja með-
limum sínum næga atvinnu við
arðvaenleg störf, jafnhliða því, sem
þau hafa verðlagt vinnuna og bætt
vinnukjörin, í samræmi við verð-
lagsástand á hverjum tíma.
Þessari viðleitni verkalýðsins
eða baráttu' réttara sagt, hefur
jafnan verið mætt með mikilli
andstöðu hinna afturhaldssinn-
uðu manna í þessu bæjarfélagi,
sem ekki hafa verið trúaðir á
það, að nein þörf væri á skipu-
lagningu atvinnunnar. Því síður,
að bæjarfélaginu sem slíku, bæri
nein skylda eða knýjandi nauð-
syn til að hafa afskipti af at-
vinnumálunum og vinnuöryggi
verkafólks, heldur væri einstakl-
ingsframtakið þess fullkomlega
megnugt að halda því í horfinu,
og veita næga atvinnu á öllum
árstímum.
En verkafólk á Akureyri þekk-
ir af reynslunni, að atvinna sú,
sem hið marglofaða, svokallaða
einstaklingsframtak, hefur átt að
veita, hefur algerlega brugðist, og
brugðist svo hrapallega, að jafn-
vel þeir, sem hafa lofað það mest,
vilja nú ekki við því líta, og eru
hvað óðast að hreiðra um sig á
skrifstofum bæjar og bæjarstofn-
ana, útgerðarfélaga, hlutafélaga
o. fl. o. fl., að ógleymdum þeim
er raða sér á hina breiðu jötu rík-
isins, og allt á þetta lið sammerkt
í því, að vilja hafa sinn hlut á
þurru, eins og það er kallað, og
krefjast alls af öðrum.
Hið árstíðabundna atvinnuleysi,
sem við er að stríða hér á Akur-
eyri, er mesta og erfiðasta vanda-
málið, sem bíður nú úrlausnar, og
það er erfiðast fyrir það, að van-
rækt hefur verið að búa þannig
í haginn fyrir komandi tíma, sem
þurft hefði, þannig að aukning
atvinnutækja hefði verið í sam-
ræmi við vöxt bæjarfélagsins. Og
þetta hefur orsakast af því, að
alþýða manna hefur í alltof ríkum
mæli treyst þeim óábyrgðu flokk-
um, sem stjómað hafa bæjarmál-
efnum imdanfama áratugi, og
sem aldrei hafa haft trú á að
hægt væri að gera neitt til fram-
þróunar, er tryggt gæti næga at-
vinnu handa verkafólki í þessum
bæ, jafnt að sumri til sem að
vetri, og skal eg tilfæra örfá en
glögg dæmi:
1. Haustið 1932 gerði verkalýð-
urinn á Akureyri kröfu til bæj-
arstjómar Akureyrar um það, að
hún léti smíða, þá um veturinn,
50 þús. tunnur í tunnuverk-
smiðjunni, sem þá átti að standa
ónotuð. Slíkt gekk ekki hljóða-
laust af, eins og eldri menn mun
reka minni til, en að lokum sam-
þykkti bæjarstjórn þetta þó, að
því tilskyldu að verkamenn ynnu
verkið fyrir mikið lægri laun en
þá giltu, sem verkamennirnir
auðvitað neituðu. En þar sem aft-
urhaldsmeirihluti bæjarstjórnar-
innar trúði því, að ekki væri hægt
að smíða tunnur hér á Akureyri
nema verkamenn stórlækkuðu
kaup sitt, vildi meirihluti bæjar-
stjórnarinnar heldur efna til eins
hins mesta verkfalls, sem hér
hefur verið háð, heldur en að
greiða verkamönnum réttmæt
laun. Nú minnist enginn á það,
að ekki sé hægt að smíða síldar-
tunnur á Akureyri með því að
greiða fullt, umsamið kaup.
2. Afturhaldsmeirihlutinn í
bæjarstjórn Akureyrar, og fleiri
háttsettir menn, trúðu því ekki,
hvorki fyrir né eftir stríð, að
hægt væri að gera út togara frá
Akureyri með góðum árangri og
fundu því allt til foráttu og töfðu
fyrir framgangi þeirra mála með
því vali sem þeir höfðu í bæjar-
stjórninni, og nokkrir milistéttar-
menn dönsuðu einnig villtir í
þessari sömu trú, svo lengi sem
fært var.
Allir bæjarmenn vita nú hvaða
björg togaramir hafa fært í bú og
hvaða atvinnu þeir hafa veitt.
enda minnist enginn á það leng-
ur, að ekki sé hægt að gera út
togara frá Akureyri. En oft var
búið að fella þetta baráttumál
sósíalista í bæjarstjómum hér,
áður en það loks náði fram að
ganga.
3. Nú er hafin barátta fyrir
byggingu hraðfrystihúss, það er
mál málanna í dag, það er mál,
sem sósíalistar hafa tekið upp og
ætla að berjast fyrir til sigurs. En
hvað heyrum við, þegar rætt er
um þau mál? Sama trúleysið og
áður hjá ráðandi mönnum borg-
araflokkanna í bæjarstjóm og
hjá sumum harðvítug andstaða,
sama sagan endurtekur sig sem
fyrr. Því verður mér á að spyrja,
getur nokkur sá alþýðumaður,
sem hugsar um hag sinn og sinna,
veitt þessum vantrúuðu og væru-
kæru mönnum brautargengi
lengur? Eg segi: Nei engan
veginn, ef hann vill vera köllun
sinni trúr og styðja meðbróður
sinn í Iífsbaráttunni.
Allri alþýðu er ljóst, að með
byggingu hraðfrystihúss og starf-
rækslu þess, jafnhliða fiskherzlu
og söltun o. fl. vinnsluaðferðum,
skapast mikil atvinna bæði handa
körlum og konum, og færi þá
langt til að vetraratvinnuleysið
yrði úr sögunni. Og væru þá ekki
mestar líkur fyrir því, að hægt
yrði að létta af alþýðu manna
þeim þungu sköttum og skyldum,
sem nú herja hvert verkamanna-
heimili og eru að sliga, jafnvel
þá, sem hafa fasta atvinnu hvað
þá hina, sem hafa stopula vinnu
árið um kring og fleiri ár í röð.
Hér þarf því að gera mikið átak
til framfara og sköpunar atvinnu
tækja, ef bæta á úr atvinnuleys-
inu og stöðva flóttann úr bænum.
Eg sagði í upphafi, að verka-
lýðssamtökin hefðu beitt áhrif-
um sínum og valdi til þess að
tryggja meðlimum sínum meiri
atvinnu. Þau ráð, sem verkalýðs-
samtökin hafa gefið í þessum efn-
um ,hafa reynzt giftudrjúg, og
getur verkalýðurinn og samtök
hans verið ánægð með þá áfanga
sem náðst hafa, en ekki má nema
staðar og leggja árar í bát. Áfram
þarf að halda og með meiri djörf-
ung og festu en áður, margt
vandmaálið er enn óleyst, sem
verkalýðurinn þarf að hafa af-
skipti af, því að án hans verður
trúlega ekkert gert í þeim efnum,
og þess vegna þurfum við að
standa betur saman en verið hef-
ur, og við þurfum að gera meira:
Við þurfum að átta okkur betur
á þeirri staðreynd, að bæjar-
stjómin er sá vettvangur þar sem
um meiri háttar atvinnumál
verður fjallað. Það er þess vegna,
sem verkafólkinu og allri alþýðu
er það brýnni nauðsyn en ef til
vill nokkru sinni fyrr, að hafa þar
fleiri fulltrúa, og því fleiri full-
trúa, sem verkalýðurinn á þar,
því fyrr og því betur verða þau
vandamál leyst, sem nú steðja að
alþýðu þessa bæjar.
Hraðfrystihúsmálið á
dagskrá bæjarstjórnar
í gærkvöldi stóð yfir fundur í
bæjarráði um frystihúsmálið og
var honum ekki lokið er blaðið var
fullbúið til prentunar.
Bæjarstjórnarfundur verður n.k.
þriðjudag kl. 5 og verður frysti-
húsmálið væntanlega aðalmál þess
fundar.
Kosningaskrifstofa
Sósíalistaflokksins
er í Hafnarstræti 88, gengið
inn að sunnan.
Skrifstofan er opin frá kl.
10—12 f. h. og kl. 1—10 e. h.
alla virka daga.
Allir stuðningsmenn al-
þýðulistans við bæjarstjórnar-
kosningarnar eru hvattir til
að hafa sem oftast samband
við skrifstofuna, til þess að
veita upplýsingar og taka að
sér óleyst verkefni.
Söfnun fyrir kosningasjóð
listans er hafin og er framlög-
um veitt viðtaka í skrifstof-
unni og hjá ýmsum einstak-
lingum.
Allir til starfa fyrir sigri
alþýðulistans.
* MÍR
Samkoma í Ásgarði sunnu-
daginn 10. janúar kl. 4 e. h.
Sýnd verður kvikmyndin:
LÍFIÐ í SKÓGUNUM.
Félagar, fjölmennið og takið
með ykkur gesti.
- Iðnaðarmennirnir
og bæjarstjórnar-
kosningarnar
Framhald af 1. síðu.
járniðnaðarmanna, Jóhannes G.
Hermundss., trésmíðameistari, Lár-
us Björnsson, trésmíðameistari og
Eyjólfur Árnason, gullsmiður.
Við þessa valinkunnu iðnaðar-
menn og við samtök iðnaðarmanna
mun Sósíalistaflokkurinn hafa
samráð og samstarf um öll hags-
munamál þeirra og ættu nöfn
þeirra fulltrúaefna, sem hér hafa
verið nefnd, að nægja til þess að
sýna það að iðnaðarmenn treysta
Sósíalistaflokknum til þess að
standa á rétti þeirra og að hann
mun verða þess trausts verðugur.
Akureyri! Nágrenni!
Höfum fyrirliggjandi yfir
40 teg. af fata- og dragtar-
efnum — spönfik, ensk,
pólsk, sænsk efnl.
Veljjð ykkur efnið þar sem
úrvalið er mest.
Saumum einnig úr tillögð-
um efnum.
Saumastofa
Björgvins Friðrikssonar,
Landsbankahúsinu 3. hæð.
Sími 1596.
|! Viðtalstími minn
á Sjúkrahúsinu
er kl. 2-3 e. h. alla virka daga nema laug-í;
ardaga kl. 11.30-12.30 f. h. - Sími 1405 j|
Gengið inn um norðausturdyr.
GUÐM. KARL PÉTURSSON. ;
Stpóm MÍR.
Móðir okkar
MARÍA SIGURÐARDÓTTIR,
Hríseyjargtu 8, sem andaðist í Sjúkrahúsi Akureyrar 1. jan-
úar síðastl., verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju laugar-
daginn 9. þ. m. kl. 2 e. h.
Böra og tengdabörn.
Frá Húsmæðraskóla Akureyrar
Námskeið halda áfram í skólanum eftir áramót, í mat- :
j: reiðslu, fatasaum og sniðteikningu.
Upplýsingar veittar í síma 1199. j
VALGERÐUR ÁRNADÓTTIR.
Skattstofa Akureyrar
!; veitir aðstoð við að útfylla skattaframtöl alla virka daga frá
:; kl. 10—12 og 1.30—7 til loka janúarmánaðar. Síðustu viku
!; mánaðarins verður skattstofan þó opin til kl. 10 á kvöldin.
1; Athygli framteljenda skal vakin á því, að hin nýja gerð
j; af framtalseyðublöðum gerir ráð fyrir mikið nákvæmari
jj upplýsingum um flesta hluti en áður. Þeim, sem ætla að fá
jj aðstoð á skattstofunni er því bent á, að hafa með sér allar
j: þær upplýsingar, sem með þarf til þess að hægt sé að gera
!; skýrsluna með nákvæmni.
!; Atvinnurekendur og aðrir, sem laun hafa greitt á árinu,
!; eru áminntir um að skila launaskýrslum fyrir 15. þ. m.
; j Þeir sem ekki hafa fengið eyðublöð send heim til sín fyr-
jj ir 10. þ. m., eru beðnir að vitja þeirra til skattstofunnar.
!; Þeim, sem ekki skila framtölum fyrir 31. þ. m. verður
;j gerður skattur.
!; Akureyri, 5. janúar 1954.
Skattstjórinn á Akureyri.
; j Hallur Sigurbjörnsson
j: settur.
1