Verkamaðurinn - 08.10.1954, Síða 4
4
VERKAMAÐURINN
Föstudagínn 8. október 1954
Alþýðusambandskosninprnar
Samstarf sósíalista og Alþýðuflokksmanna
á Húsavík
Erlendar verkalýðsfréttir:
Söngur fljótanna”
í Verkamannafélagi Húsavíkur
hefur orðið fullt samkomulag
milli Alþýðuflokksmanna og só-
síalista um fulltrúakjör á þing
Alþýðusambandsins. Sameigin-
legur listi þeirra er skipaður Ás-
geir Kristjánssyni, Guðmundi
Hákonarsyni og Jónasi Sigurðs-
syni. Varamenn listans eru Arnór
Kristjánsson, Einar M. Jóhanns-
son og Halldór Þorgrímsson.
Fulltrúar Baldurs sjálfkjömir.
í Verkalýðsfélaginu Baldri á
ísafirði urðu fulltrúar sjálfkjörn-
ir. Eru þeir Hannibal Valdimars-
son, Stefán Stefánsson, Guð-
mundur Bjamason og Björgvin
Sighvatsson. Kosið var á félags-
fundi. Gerði fundurinn ályktun,
þar sem skorað var á fulltrúa fé-
lagsins að beita sér fyrir því að
fulltrúar atvinnurekenda fái enga
aðild að sjórn heildarsamtakanna.
Samstarf á Skagaströnd.
Sósíalistar og Alþýðuflokks-
menn hafa gert samkomulag um
fulltrúakjör í Verkalýðsfélagi
Skagastrandar. — Sameiginlegan
25 fengu lán úr Bygg-
ingalánasjóði
Stjórn Byggingalánasjóðs Ak-
ureyrar hefur ákveðið að eftir-
taldir menn fái lán, að upphæð 15
þús. kr. hvert, til þess að fullgera
hús sín, er þeir eiga íbyggingu:
Árni Ingólfsson, Ámi Magnús-
son, Árni Jakob Stefánsson,
Baldur Amgrímsson, Björn Sig-
urðsson, Einar Eggertsson, Frið-
rik Blöndal, Gunnlaugur Jó-
hansson, Gunnþór Þorsteinsson,
frú Hilda Ámadóttir, Hjörleifur
Árnason, Ingvi Hjörleifsson, Jó-
hann Ingimarsson, Jóhann Krist-
insson, Jóhannes Hjálmarsson,
Karl Hjaltason, Magnús J. Krist-
insson, Haukur Otterstedt, Knút-
ur Otterstedt, Ragnar Sigurðsson,
Sigurður Ringsted, Svan Ingólfs-
son, Tryggvi Bogason, Þorsteinn
Williamsson og Örn Snorrason.
48 umsóknir bárust um lán úr
sjóðnum að þessu sinn.
íslenzkt prentaratal
1530-1950
Nýlega er komið út íslenzkt
prentaratal frá því er prentlist
hófst á íslandi árið 1530. Er bók
þessi í stóru broti, hálft annað
hundrað blaðsíður og með mörg-
um myndum. Prentuð er hún á
góðan myndapappír.
Þetta er bók, sem er kærkomin
öllum þeim, sem ættfræði unna.
Bókin er ekki seld í bókaverzl-
unum, en fæst hjá Hinu íslenzka
prentarafélagi, Reykjavík.
Á Akureyri geta þeir, sem óska
eftir að kaupa bókina, snúið sér
til Kára Sigurjónssonar, prentara,
Sólvöllum 1. Sími 1585,
lista þeirra skipa Pálmi Sigurðs-
son og Fritz Magnússon. — Jón
Hjálmarsson hefur að undanfömu
dvalið á Skagaströnd, en gengið
erfiðlega að stilla með íhaldinu,
þrátt fyrir góðan vilja.
- Heimsókn til Berlínar
(Framhald af 2. síðu).
kominna heim frá Tékkóslóvakíu,
tjngverjalandi eða öðrum alþýðu-
lýðveldum.
Enn er mikið af rústum í Aust-
ur-Berlín og ár munu enn líða
áður en þær hætta að minna á
grimm örlög liðins tíma. En nýjar
byggingðar þjóta upp úr hinum
gömlu rústum. Það eru ekki
byggð vetnissprengjubyrgi eins
og í Vestur-Berlín — heldur
heimili, skólar og leikhús. Ber-
línarbúar austursvæðisins njóta
þeirrar siðferðilegu fullnægingar
að starfa og lifa á leiðum friðar-
ins, þeirrar vissu að lýðveldið,
sem hefur Berlín að höfuðborg,
kappkostar friðsamlega uppbygg-
ingu og leitast af einlægni við að
koma á sameiningu þjððarinnar á
friðsamlegan hátt.
Þegar sá dagur kemur að mörk-
in milli borgarhlutanna verða
numin á braut, munu þeir geta
með stolti bent á hvað þeir hafa
afrekað fyrir sameiginlega heill
allra Berlínarbúa og allra Þjóð-
yerja.
Æ.F.A.-fundur á
sunnudaginn
Æskulýðsfylkingin, félag ungra
sósíalista, heldur aðalfund sinn
í Ásgarði n.k. sunnudag kl. 2 e. h.
Auk aðalfundarstarfa fara fram
kosningar á þing Æ. F., er haldið
verður hér í bænum síðari hluta
þessa mánaðar. Erindreki Æ. F.,
Kjartan Ólafsson, mætir á fund-
iniun. Þess er vænst að félagar
fjölmenni.
Skákeinvígi
Akureyri - Reykjavík
Skákeinvígi er hafið milli Ak-
ureyringa og Reykvíkinga. Af
hálfu Akureyringa tefla Jón Þor-
steinsson, Júlíus Bogason og
Margeir Steingrímsson, en fyrir
Taflfélag Reykjavíkur Ásmund-
ur Ásgeirsson, Eggert Gilfeir og
Jón Pálsson.
Reykjavík hefur hvítt.
Sveinafélag járn-
iðnaðarmanna
hefur kosið fulltrúa sinn á Al-
þýðusambandsþing. Kjörinn var
Ámi Magnússon, járnsmiður, og
til vara Stefán Snæbjörnsson,
vélsmiður. Sósíalistar og Al-
aýðuflokkþýðuflokksmenn stóðu
að kosningu þeirra, svo sem ann-
arra fulltrúa úr verkalýðsfélög-
unum á Akureyri.
"K KIRKJAN. Messað í Lögmanns
hlíð kl. 2, Akureyrarkirkju kl.
5 og Glerárþorpi kl. 8,30 næstk.
sunnudag. Prestur: sr. Jóhann
Hlíðar.
•K UNGUR LISTMÁLARI, Krist-
inn Jóhannsson, nemandi í 5.
bekk Menntaskólans, hefur um
þessar mundir málverkasýn-
ingu í Varðborg. Hefur sýning-
in þegar vakið athygli og all-
margar myndir hafa selzt.
•K HJÓNAEFNI. Nýlega hafa op-
inberað trúlofun sína ungfrú
Solveig Sigurðardóttir (Sigurð-
ar Björnssonar) og Finnbogi
Gíslason (Gísla R. Magnússon-
ar).
-K FIMMTUGUR varð 30. f. m.
Björgvin Éinarsson, verkamað-
ur, Hafnarstræti 103 hér í bæ.
*K SEXTUGUR verður á morgun
Sigurður G. Sigurðsson, verka-
maður, Klapparstíg 3.
K SKÓLASTJÓRI Barnaskólans,
Hannes J. Magnússon, hefur
viðtalstíma í skólanum alla
virka daga kl. 1—3 síðdegis.
* ÁRNI BJARNARSON, forstj.,
hefur hafið útgáfu vikublaðs er
nefnist Laugardagsblaðið. Seg-
ir í ávarpsorðum að blaðið
muni kappkosta að flytja, á
hlutlausan hátt fréttir úr bæ og
héraði ásamt skemmtiefni, rit-
dómum o. fl.
K FIMMTUGUR verður í dag
Þorsteinn Stefánsson, bæjarrit-
ari.
•K FULLTRÚARÁÐ verkalýðs-
félaganna hefur ákveðið að
halda hlutaveltu til ágóða fyrir
stai-fsemi sína þann 17. okt. n.k.
Eru allir þeir félagar í verka-
lýðsfélögunum og aðrir, sem
vilja gefa fé eða muni til hluta-
veltunnar, beðnir að snúa sér
til formanns Fulltrúaráðsins,
frú GuðrúnarGuðvarðardóttur,
eða til skrifstofu verkalýðsfél.
•K SKEMMTIKLÚBBUR. Verka-
kvennafél. Eining og Verlca-
mannafélag Akureyrarkaupst.
hafa ákveðið að hafa nokkur
skemmtikvöld sameiginleg í
vetur Verður fyrsta skemmt-
unin í kvöld kl. 8,30. í Alþýðu-
húsinu og fer þar fram félags-
vist og síðan verður dansað. —
Ættu meðlimir félaganna að
notfæra sér þau tækifæri til
góðrar og ódýrrar skemmtunar
sem þeim eru'boðin með þess-
ari starfsemi, en aðgangseyrir
verður aðeins 10 kr.
V erkamannaf élags-
fundur á sunnudaginn
Verkamannafélag Akureyrar-
kaupstaðar heldur félagsfund á
sunnudaginn kl. 1,30 e. h. í Verka
lýðshúsinu. Rætt verður um Al-
jýðusambandsþingið, vetrarstarf
félagsins og fleiri félagsmál.
Eru verkamenn hvattir til að
rjölsækja fundinn.
Um þessar mundir er nýlokið
við kvikmynd, sem gerð hefur
verið fyrir Alþjóðasamband
verkalýðsfélaganna, WFTU, og er
dreifing myndarinnar um það bil
að hefjast.
í fyrstu var hugmyndin sú að
gera sögulega mynd um þriðja
heimsþing alþjóðasambandsins,
sem haldið var í Vínarborg í
október 1953. Síðar var þessu
breyt og ákveðið að gera stór-
mynd um baráttu verkalýðssam-
takanna um víða veröld. Þess
vegna gerist myndin áður en
heimsþingið var háð. Hún lýsir
kjörum verkamannanna í mörg-
Fimmta hver fjöl-
skylda í USA býr í
fátækrahverfum
!; Um miðjan ágúst sl. birti hið !
;;stóra, bandaríska verkalýðs-;
;j samband skýrslu, þar sem;
;! meðal annars er greint frá því;
; að fimmta hver fjölskylda í
; Bandaríkjunum býr í fátækra!
; hverfum. 1 skýrslunni er enn- j
; fremur upplýsingar um, að yf- !
;; ir 15 milljónir íbúða í Banda-!
; ríkjunum séu skemmdar,;;
;! hrörlegar eða án vatnsleiðslu.;;
! 10 milljón íbúðir eru í svo;;
!! slæmu ástandi, að þær þyrfti; j
! að rífa niður. Við þetta má svo ;
!; bæta að amerískir verkamenn !!
þurfa að greiða fyrir slíkar!!
; j íbúðir 1/4 til 1/3 af launum!;
j! sínum í húsaleigu. j;
Nýtt met í Banda-
ríkjunum
Frú nokkur í Chicago grét ný-
lega samfleytt í 4% klukkustund
og setti með því nýtt amerískt
met í gráti. Hún sagði viðstödd-
um tíðindamönnum heimsblað-
anna, að hún hefði fengið tárin til
streyma með því að hugsa allan
tímairn um það, að hún hefði ver-
ið sigruð með 250 grömmum í
samkeppni um hver gæti étið
mest af makkarónum!
LITLA SAGAN
Einu sinni var kona, sem varð
hamstola yiir því að elskhugi henn-
ar hafði sézt með annarri konu.
Hún lét ekki huggast iyrr en
hún sanniærðist um að þetta hefði
verið eiginkona hans.
Já, hvílíkt ástand.
Nixon varaforseti Bandaríkj-
anna, kom fyrir nokkrum vikum
heim úr ferðalagi um Austurlönd.
Skýrði hann frá þvx og stoltur, að
Indónesíubúar hefðu fagnað ákaft
í hvert skipti sem hann nefndi
nafn Dwight Eisenhowers.
Málafróður maður hefur nú
frætt Nixoon um það að orðin
dvaickt ickendora á indónesisku
jýði „ókeypis öl“.
um löndum og x-eynir að gera
grein fyrir þörfum þeirra og
þrám, sem síðar mótuðu heims-
þingið og mikilvægar álykanir
þess.
Nafn sitt dregur myndin af því,
að efni hennar fylgir leiðum sex
stærstu fljóta heimsins, Missis-
sippi, Amazon, NOar, Ganges,
Volgu og Yangtse. Hefur þýzka
skáldið Berthold Brecht samið
ljóð um hvert þessara fljóta og
sovét tónskáldið heimsfræga,
Shostakovitch, gert við þau lög.
Tæknilega er myndin svo stór-
brotin, að það hefur ekki verið á
færi annarra en reyndra, alþjóð-
legra kvikmyndatökumarma að
gera hana. Framkvæmdir hófust
í maí 1953 undir umsjón WFTU
og með aðstoð DEFA í Berlín, og
er efnið frá 30 löndum.
Það er von alþjóðasambandsins
að þessi kvikmynd geti orðið
verkalýðshreyfingunni mikill
styrkur og stutt að því að gera
verkamenn um heim allan enn
sigurvissari en áður.
Ung stúlka
óskar eftir atvinnu.
Afgr. vísar á.
SKEMMTIKLÚBBUR
Einingar og Verka-
mannafélags Akureyr-
arkaupstaðar
heldur skemmtun í kvöld kl.
8.30 í Alþýðuhúsinu.
FÉLAGSVIST
DANS
Verðlaun veitt. Húsið opnað
kl. 8. Aðgöngumiðar seldir í
dag frá kl. 7.30 og við inn-
ganginn.
NEFNDIRNAR.
Verkamannafélag
Akureyrarkaupstaðar
heldur félagsfund í Verka-
lýðshúsinu n; k. sunnudag 10.
október kl. 1.30 e h.
DAGSKRÁ:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Alþýðusamb.þingið.
3. Félagsmál.
4. Önnur mál.
Fjölmennið stundvíslega.
STJÓRNIN.
Hvítkál
höfum við ennþá.
Kjötbúð KEA.
og útibúin.