Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 12.11.1954, Side 1

Verkamaðurinn - 12.11.1954, Side 1
VERHnimiÐURmn GERIST ÁSKRIFENDUR i»S VERKAMANNINUM. — Nýjir kaupendur fá blaðið ókeypis til uæstu áramóta. — XXXVU. árg. Akureyri, föstudaginn 12. nóvember 1954 Síminn er 1516. 38. tbl. Rithöfundafélag íslands skorar á þjóðina að rísa til samstilltra nrótmæla gegn þeim vágesti sem útlendur her í landinu hlýtur ævinlega að vera Á fundi, er haldinn var í Rit- höfundafélagi íslands þ. 31. októ- ber 1954, voru eftiríarandi tillög- ur samþykktar: „Fundur í Rithöfundafélagi ís- lands 31. okt. 1954 samþykkir þá eindregnu áskorun til íslendinga að rísa til samstillra mótmæla gegir þeim vágestí, sem útlendur her í iandinu hlýtur ævinlega að vera. Lítur fundurinn svo á, að núverandi hernám landsins sé geigvænleg ógnun við menningu þjóðarinnar og lýsir stúðningi sínum við undirskriftasöfnun þá, sem nú fer fram uni uppsögn her- s töð v asamningsins.“ VÍTIR HARÐLEGA ÚTGAFU GLÆPARITA. „Fundur, haldinn í Kithöf- undafélagi íslands 31. október 1954, vítir harðlega útgáfu blaða þeirra og tímarita, sem nær ein- vörðungu birta sakanrálasögur og aðrar hryllingsfrásagnir þýddar úr erlendum sorpritum. Fundur- inn lítur svo á, að hér sé um stórkostlega ómenningarstarf- semi að ræða, sem hljóti óhjá- kvæmilega að grafa undan smekk og virðingu íslenzku þjóðarinnar fyrir góðum bókmenntum og ís- lenzkri stungu. Heitir fundurinn á íslenzku þjóðina að fordæma slíkt siðleysi og skorar á stjórn- arvöld landsms að reisa ranmiar skorður við útgáfustarfsemi af þessu tagi.“ Kvöldvaka Sósíalista- félagsins i kvöld Sósíalistafélag Akureyrar hefur kvöldvöku í Ásgarði í kvöld og hefst hún kl. 8,30 Til skemmtunar verður: GAMANÞÁTTUR UPPLESTUR KVIKMYND Að þessum atriðum lokn- um verður gripið í tafl eða spil, eftir því sem tími verð- ur til. Veitingar á staðnum. Takið gesti með. NEFNDIN. Hanna Bjarnadóttir heldur söngskemmtun um helgina Frú Hanna Bjarnadóttir er komin til bæjarins og mun halda hér söngskemmtun um helgina. Að undanföx-nu hefur frúin hald- ið söngskemmtanir í Reykjavík og á ísafirði við hinar beztu við- tökur og hlotið ágæta dóma. Frú Hanna er dóttir Bjama M. Jónssonar verkamanns hér í bænum, sem fyrir nokkrum ár- um er fluttur til Reykjavíkur, og Sigríðar Ósland, konu hans. Frú Hanna hefur stundað söngnám í Bandaríkjunum og mun vera á förum þangað til frekara náms. Þai-f ekki að efa að Akureyr- ingum mun leika hugur á að hlýða söng frúarinnar. Bók um helztu undirstöðuatriði heimspeki og mannlegrar þekkingar -K LEIKFÉLAG AKUREYRAR hefur að undanförnu æft óper- ettuna Meyjaskemmúna og er nú fullráðið að frumsýning verði í næstu viku, sennilega á fimmtudagskvöld. Leikstjóri er Ágúst Kvaran, en hlutverk eru um 20 talsins. Félag verzlunar- og skrifstofufólks sækir um inngöngu í ASÍ Félag vei-zlunar- og skrifstofu* fólks hér í bænum hélt nýlega aðalfund sinn. Var Magnús Björnsson kjörinn formaður fé- lagsins. Þá hefur félagið sam- þykkt a ðsækja um inngöngu í Alþýðusamband Islands og kosið fulltrúa á þing þess. Þingfulltrúi var kjörinn Kolbeinn Helgason verzlunarmaður hjá KVA. Félagsmenn munu nú vera um 40 að tölu. Út er komin bók eftir Bi-ynjólf Bjarnason; nefnist hún Forn og ný vandamál og er gefin út á veg- um Heimskringlu. Eru það mikil tíðindi fyrir íslenzka sósíalista að á þessu hausti skuli bókmenntum okkar hafa bætzt tvö rit eftir helztu forustumenn Sósíalista- flokksins, þar sem marxismanum er beitt til sjálfstæðra athugana á þjóðveldi íslendinga annars vegar, eins og í bók Einars 01- geirssonar, og hins vegar á ýms- um brýnustu vandamálum heim- spekinnar, eins og í bók Brynj- ólfs. Þessi nýja bók fjallar um helztu undirstöðuatriði' heimspeki og mannlegrar þekkingar. I’ar er rætt um tilvist og hátterni hlut- veruleikans og hversu við fáum greint hann og skilið. Jafnframt því sem höfundurinn rekur ólík viðhorf heimspekinga á þessum sviðum, fjallar hann um ýmsar kennisetningar eðlisvísindanna, einkum viðhorf afstæðiskenning- arinnar. Þá er einnig fjallað um séreðli lífs og vitundar, um vilja- frelsi og gott og illt. Auk formála höfundar er bók- inni skipt í sjö eftirtalda kafla: Díalektík og formrökfræði Hyggja — efnishyggja Efni og orka Rúm — tími — óendanleiki Efni — líf — andi Viljafrelsi Gott og illt. í formála segist Brynjólfur aí mestu hafa samið bókina á árun- um 1950—5 log kemst hann m. a. svo að orði um viðfengsefn. hennar: „Þau vandamál, sem mn ex fjallað, hafa lengi verið í deiglu mannlegrar hugsunar, eru þal enn og munu lengi verða. En þac eru viss tímabil í sögunni, sem þau sækja meira á hugann en endranær. Vér lifum einmitt á slíkum tímum. Vér lifum á mikl- um tímamótum, sem krefjast djúptækrar endurskoðunar allra mannlegra hugmynda. -. SÍS og KEA eiga nú 14 verksmiðj- ur og iðnfyrirfæki á Akureyri Samvinnusamtökin, S. í. S. og K. E. A., eiga nú 14 verksmiðjur og önnur iðnfyrirtæki á Akureyri og hafa um 400 manns atvinnu við þau. Þessi fyrirtæki seldu á síðastliðnu ári vörur fyrir um 65 milljónir króna og greiddu starfs- fólki sínu 12 milljónir krónaa í vinnslulaun. Af þessum iðngrein- um er mjólkm-iðnaðurinn stærst- ur hvað veltu snertir, en flest fólk vinnur hjá Gefjunni, Heklu og skógerð Iðunnar. Frá þessu skýrði Harry Frede- riksen, framkvæmdastjóri iðnað- ai'deildar SÍS, er hann bauð rúmlega 30 innkaupastjórum frá kaupfélögum víðs vegar um land, velkomna hingað, í hófi er SÍS hélt þeim að Hótel KEA sl. manud. Voru þeir hingað komnir að skoða verksmiðjumar og kynnast i'ekstri þeirra og fram- leiðslu, sérstaklega þeim nýjung- um, sem efst eru á baugi í ár. — Jakob Frímannsson, kaupfélags- stjóri, baúð innkaupastjórana velkomna til Akureyrar, en þeir dvöldu hér síðan í tvo daga og heimsóttu verksmiðjur SÍS og KEA og kynntu sér hina marg- háttuðu framleiðslu þeirra. Heita má, að stöðugt sé unnið að því endm-bæta verksmiðjurn- ar og búa þær fullkomnari véla- kosti og gera framleiðslu þeirra fjölbreyttari. Á þessu ári hefur að mestu verið lokið við bygginga- framkvæmdir hjá Gefjuni; skó- gerðin hefur fengið stórum betru húsnæði, en hún áður hafði; byrj- að er að girða verksmiðjulóðin. i Gleráreyrum og ætlunin er at regra lóðina síðar. Gefjun hefur á árinu fengif aýjan Jaquard-vefstól til að vefa húsgagnaáklæði, sem vakið hafa mikla athygli. Verksmiðjan hefur framleitt fullkomnari og betri dúka en nokkru sinni og gert garnframleiðsluna fjölbreyttari. Skógerðin Iðunn hefur fengið tæki til að gera gúmmísóla fyrir ýmiss konai- skófatnað og er það alger nýjung í íslenzkum iðnaði. Sérstaklega eru inniskór úr Gefjunar-flóka með slíkum botn- um athyglisverðir. Fjölbreytni í skótegundum hefur verið aukin verulega og koma stöðugt frá verksmiðjunni nýjar gerðir af karla-, kvenna- og bamaskóm. Skinnaverksmiðjan Iðunn hef- ur fengið aukinn og bættan véla- kost til loðsútunar. Þá framleiðir verksmiðjan mikið magn af sóla- leðri og er Iðunn fyrsta og eina verksmiðjan hér á landi, sem framleiðir þá vöru. Hekla hefur fengið tvær nýjar prjónavélar, og skilar önnur fín- asta en hin grófasta prjóni, sem hér hefur sézt. Verksmiðjan er byrjuð að flytja út prjónavörur með góðum árangri og hefur ýmsar fleiri nýjungar á prjónun- um. Sápuverksmiðjan Sjöfn hefur endurbætt vörur sínar á margan hátt og fengið fullkomnari um- búðir um þær. Verið er að undir- búa framleiðslu á tannkremi. Sömu sögu er að segja um allar hinar verksmiðjurnar. Þessar framfarir hafa yfirleitt leitt til framleiðsluaukningar á yfir- standandi ári og nam aukningin til septemberloka rúmlega 5 milljónum króna miðað við sama tíma í fyrra. Er rúmur helmingur þessarar aukningar hjá Gefjuni einni. Róttækasti flokkurinn í Færeyjum vann mikinn kosningasigur Kosningar fóru fram í Færeyj- um sl. mánudag og voru þá kjörn ir þingmenn á Lögþing eyjanna. Kosningarnar urðu geysilegur sigur fyrir Þjóðveldisflokkinn, ninn róttæka flokk, sem hlýtur forustu Erlendar Paturssonar, en hann er jafnframt helzti foringi sjómannastéttarinnar í Færeyj- um og stýrði hinu langvinna en sigursæla verkfalli þeirra á sl. vetri og hlaut að launum fangels- isdóm, sem hann kaus að afplána þegar í stað og sat því í fangelsi síðustu daga kosningabaráttunn- ar. Flokkur Erlendar hlaut 3026 atkvæði og 6 þingmenn, en aðrir flokkar hlutu atkvæði sem hér segir: Sambandsflokkurinn 3320 og 7 þingmenn, Fólkaflokkurinn 2658 atkvæði og 6 þingmenn, Sósíaldemokratar 2515 og 5 menn, Sjálfstýrisflokkurinn 907 atkv. og tvo menn. Allir flokkar töpuðu fylgi nema Þjóðveldisflokkurinn. Fyrsta áætlunarflug- ferðin til Grímseyjar I fyrradag var flogin fyrsta áætlunarflugferðin til Grímseyj- ar. Var það Douglasflugvél frá Flugfélagi íslands, sem ferðina fór. Farþegar til eyjarinnar voru 5 og 6 til baka. Flugvöllurinn nýji reyndist í alla staði vel.

x

Verkamaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.