Verkamaðurinn - 12.11.1954, Page 2
2
VERKAMA.ÐURINN
Föstudaginn 12. nóv. 1954
VERKHITlflÐUKinn
Útgefandi: Sósíalistafélag Akureyrar.
Kitnefnd: Rjörn Jónsson, ábyrgðarm., Jakob Ámason, Þórir Daníelss.
Afgreiðsla: Hafnarstræti 88. — Sími 1516. — Pósthólf 21.
Áskriftarverð 30 kr. árgangurinn. — Lausasöluverð 1 kr. cintakið.
Akureyri. — Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Leiðin er ,aðeins ein
Hver er kominn úti?
Fyrir rúmri viku fóru íram á
Alþingi umræður um hemárns-
málin, eftir að utanríkisráðherra
hafði flutt þinginu skýrslu um
þau. I skýrslu ráðherrans og um-
ræðunum að henni fluttri upp-
lýstust ýms atriði, sem munu
vekja óskipta athygli allra Is-
lendinga og ugg meðal þeirra
flestra. Helztu upplýsingarnar
eru þessar:
Aðalverkefnin, sem unnið
verður að á Keflavíkurflugvelli
næsta ár, er lenging hinna
geysilöngu flugbrauta þar.
Landshöfnin í Njarðvík verður
afhent Bandaríkjaher, þegar út-
kljáð eru ágreiningsatriði varð-
andi staðsetningu og gerð vænt-
anlegrar herskipahafnar þar.
Fjórar radar-herstöðvar verða
fullgerðar utan Keflavíkur.
Þróuninni verður beint í þá
átt að hemámssvæðin, og þá sér-
staklega Keflavíkurflugvöllur,
verði algerlega bandarískt land.
Þetta var það helzta, sem ráð-
herrann MÁTTI SEGJA, en e. t.
v. er sú viðurkenning ráðherrans,
að hann verði að beygja sig fyrir
fyrirskipunum hins erlenda her-
veldis, um það hvað hann megi
segja Alþingi, sem hann þó á, að
íslenzkum lögum, að bera ábyrgð
gerða sinna fyrir, ekki sízt at-
hygli verð. Svo djúpt er ríkis-
stjórnin öll, og utanríkisráðherr-
ann sérstaklega, sokkinn i fenið,
að hann verður að viðurkenna
frammi fyrir löggjafarþingi þjóð-
arinnar og alþjóð, að hann sé ekki
sjálfráður athafna sinna og orða
þegar ráðamenn bandaríska her-
veldisins kippa í spottann eða
nefna töfraorðið „hemaðarleynd-
armál“. Meðal „hemaðarleyndar-
málanna“ eru reglurnar, sem ráð-
herrann telur vera í gildi um dvöl
hinna erlendu hermanna og verka
manna utan varnarstöðvanna og
svo að sjálfsögðu þeir leyni-
samningar, sem ríkisstjómm í
hcild hefur eða virðist hafa gert
um herstöðvar utan Keflavíkur-
vallar, því að engin heimild er
finnanleg í vamarsamningnum
frá 1951, varðandi uppsetningu
slíkra herstöðva.
Heimskunnugt er orðið að
Keflavíkurflugvöllur er þcgar
orðinn meðal stærstu flugvalla
veraldar. Samt á að verja hundr-
uðum milljóna á næsta ári til
þess að stækka hann enn. Engum
heilvita manni kemur til hugar
að slíkt sé gert til vamar íslandi,
heldur er hitt augljóst að Kefla-
víkurvöllur er hugsaður sem
árásarstöð, ef til styrjaldar kem-
ur og býður því heim tortíming-
arhættu fyrir alla íslenzku þjóð-
ina.
Þeir, sem eru svo langminnugir
að þeir mima kröfur Bandaríkja-
manna frá 1945 um herstöðvar á
íslandi til 99 ára, munu einnig
minnast þess, að þá var aldrei
talað um að þær ættu að verða
varnarstöðvar, heldur viidu
Bandaríkjamenn byggja þær sín
vegna einna. Hugur Bandaríkj-
anna stendur enn til þess sama.
Það er unnið sleilulaust að því
af Bandaríkjastjórn og leikbrúð-
um hcnnar í ríkisstjórn íslnads að
koma því fram „smátt og smátt1,
undir fölsuðum forsendum, sem
þá tókst ekki að fá fram um
ógrímubúið landaafsal 1945. —
/>annig beinast endurbætaur ut-
anrfíkisráðherrans og „lagfær-
ingar“ allar í þá átt að afnema
áhrif og frelsi íslendinga á dval-
arstöðvum hersins og gera þær að
bandarísku ríki í landinu, ríki
þar sem fslendingar eru sviftir
ferðafrelsi og athafnarétti.
Framsóknarflokkurinn tók við
yfirstjórn varnarmálanna af lág-
kúrulegasta og óvinsælasta lepp,
sem Bandaríkin hafa átt hér á
landi, Bjarna Benediktssyni, og
setti í hans stað mann, sem ekki
hafði saurgað nafn sitt af beinni
þjónustu við innrásarliðið. —
Margir munu hafa hugað gott til
þeirra skipta og enn munu þeir
fjölmennir, sem eru þeirrar skoð-
unar að Kristinn Guðmundsson,
í rauninni vilji þjóð sinni vel
og hafi nokkurn hug á að „bæta“
og „lagfæra“. Það álit skal ekki
véfengt, svo lengi sem auðið er,
en hitt er óvéfengjanlegt, að sá
vilji hefur ekki borið neinn ár-
angur annan en þann að reyra
hernámsviðjamar enn fastar að
þjóðinni en nokkru sinni áður og
gcra hlut hennar í skiptum öll-
uin við innrásarliðið enn smánar-
legri en jafnvel í tíð Bjarna Ben.
Skýringin á þeim ófarnaði Krist-
ins Guðmundssonar í embætti
vamarmálaráðh. liggur í augum
uppi. Hernámið allt er slík mcin-
semd í þjóðlífi okkar, að kák
skottulæknis, þótt velviljaður sé,
kemur þar ekki að neinu haldi,
hcldur hlýtur það að verða til
þess eins, að meinsemdin grefur
æ meira um sig til mikillar gleði
fyrir þá, sem vitandi vits gróður-
settu hana. Hún verður aðeins
læknuð á þann eina hátt að taka
fyrir rætur hennar og skera hana
í burt. Og leiðin til þess er aðeins
ein, sú öll þjóðin rísi upp og
krefjist brottfarar alls erlends
herliðs úr landinu.
Bragi Sigurjónsson: Undir
Svörtuloftum, ljóð. — Ak-
ureyri 1954. — Prentverk
Odds Björnssonar.
Það skal í upphafi tekið fram,
að hér verður ekki reynt til að
gera bók þessari eða höfundi
hennar, nein tæmandi skil. Það
mundi krefjast miklu lengra máls,
en góðu hófi gegnir í litlu viku-
blaði. En sökum þess, að mér hef-
ur orðið tíðlitið í bókina undan-
farin kvöld og finnst sem margt
megi um hana segja, þykir mér
rétt að geta hennar að nokkru.
Þetta er þriðja ljóðabókin, sem
Bragi sendir frá sér á sl. sjö ár-
um. Það er þess vegna ekki ófyr-
irsynju að lesandinn fari að hug-
leiða erindi hans í fullri alvöru
j og spyrja sjálfan sig: Hver er
kominn úti?
Það er skemmst frá að segja, að
Bragi hefur vaxið af þessari síð-
ustu bók sinni og það til muna, að
mér finnst. Á hitt skal þó ekki
dregin nein dul, að í næst síðustu
bók hans, Hraunkvíslar, eru all-
mörg kvæði, sem telja verður
góð. Út frá þeim forsendum undr-
ar mann ekki, þótt mörg kvæð-
anna í þessari nýjustu, Undir
Svörtuloftum, séu ágætavel ort.
Bragi grípur á furðu mörgum
strengjum í Ijóðagerð sinni. Hann
yi’kir löng kvæði á fornum og
nýjum, sögulegum grundvelli;
örstuttar stemningar; kaldhæðn-
ar ádeilur, ekki skornar við nögl,
og hálýriskar tjáningar.
Ekki er gott að segja, hvert við-
fangsefnið lætur höfimdi bezt.
Hann gerir þeim öllum góð skil á
blettum, en bregst einnig boga-
listin hér og þar.
Tvö kvæði vil eg strax nefna,
sem dæmi um góð vinnubrögð og
skáldlega túlkun, en þau eru:
Stúlkan í Hallmundarhrauni og
Svartur hestur. Þau eru bæði létt
kveðin, rismikil og takmörkuð og
hljóta að verða minnisstæð. Þó
álít eg að hið fyrrnefnda sé síð-
asta erindinu of langt, skýringar
séu óþarfar og ekki til bóta.
Allra bezt þykja mér þó nokk-
ur smákvæði, eins og t. d.: Hver
er ég, Ættleri, Hverium klukkan
glymur og Lífsþorstans kveðja á
vori, sem mér persónulega finnst
bezta ljóðið í bókinni og maður
hlýtur að vænta nokkurs af
skáldi, sem þannig getur ort
Kvæðið, Við Rangalón á Jök-
uldalsheiði, er einnig mjög hug-
þekkt og búið ágætu formi. Þar
er þetta stórfína erindi:
„Gullsólgna þjóð við gömul
afreksminni,
geturðu búið sátt við örlög slík
að vera fátæk, þegar þú ert rík,
þú sem varst áður rík í fálækt
þinni?“
Bókamenn á Akureyri!
Næstu daga verða seld hundruð
verðlækkaðra bóka frá eftirfarandi
forlögum: ísafold, Helgafelli, Ið-
unnarútgáfunni, Draupnisútgáf-
unni, Söguútgáfunni o. fl. Skáld-
sögur, ljóð, þjóðsögur, ferðasögur,
tímarit, allt með mjög lækkuðu
verði. — Flestar þessar bækur hafa
aftur verið hækkaðar í upprunalegt
verð syðra. Notið því þetta tæki-
færi.
Bókamnrkaðurinn
í Söluskálanurn á Strandg.horninu.
Bókamiðlunin
Þetta eru setningar, sem festast
í manni, minna dálítið á Steinarr,
en eru ekki verri fyrir það Hins
vegar álít eg, að ekki sé hægt að
tala um sporrækt döggfall, held-
ur er sporrækt í döggfallinu,
ekki satt?
Höfundur seilíst oft langt eftir
nýjum eða sjaldgæfum orðum.
Þetta er oftar til bóta og gerir
stílinn reistari og fjölbreyttari, en
nokkuð ber þó á því. að léttleiki
í framsögn verði að setja ögn ofan
og hliðra til fyrir málskrúðinu.
Dæmi:
„... . svo dapurgráust grjótsins
rein
varð græn á samri stxmdu.“
Dapurgrá er ágætt lýsingarorð,
en hástigið hæfir mjög illa.
Aftur á móti er þetta fallega
sagt í kvæðinu Sögulok:
„Hvassar bi-únir Bröttufjalla sópa
byljavendir löngum éljatágum."
Og víðar má það sama segja.
Á einstaka stað hef eg hnotið
um hæpna stuðlasetningu og rek-
ið upp stór augu. Það hlýtur að
Orðið
Smátt sem hundstungan
finnur ekki.
„Dagur“ slær upp þeirri „rosa-
frétt“ sl. miðvikudag að Þjóðvilj-
inn hafi „logið um 300%“, er harm
skýrði frá því, að eftir Degi, hve
margir Akureyringar hefðu flutt
til Rvíkur og Suðurnesja á þessu
ári, og er ekki seinn á sér að
draga hraustlegar ályktanir af.
Segir blaðið: „Þannig ljúga
kommúnistar um mörg hundruð
prósent, án þess að blikna eða
blána, er þeir telja sig geta orðið
að liði í hatursbaráttu Rússaþjóna
gðegn íslenzkum málstað."
Það sannleikskorn er í rosa-
frétt Dags, að prentvilla vax’ð í
grein Þjóðviljans — 1 varð að 5 —
og leiðrétti blaðið þessa villu
mjög greinilega strax daginn eftir
og getur það naumast hafa farið
fram hjá ritstj. Dags, hafi hann
lesið blaðið. Samt notar hann sér
prentvilluna til þess að ausa and- (
stæðinga sína heimskulegum sví-
virðingum og auglýsir með því
sannleiksá:st sína og heiðarleik.
vera fljótfærni hjá höfundi, að
slíkt kemur fyrir.
Eg get ekki að því gert, að mitt
takmarkaða rímeyra, greinir t. d.
ekki stuðlana í þessari hendingu:
, Þeim gleymdar voru allar
vetrarkvaðh
Enn er eftir að geta tveggja,
harðra ádeilukvæða. Hið fyrra
ber nafnið Undir Svörtuloftum.
Það hefur á sér kynngimagnaðan
þjóðsagnablæ, en ljóst er þó til
hvers það vísar. Myndríkt og
meitlað kvæði.
Hitt kvæðið, Vér Islands börn,
er mörgum í fersku minni, því að
það birtist í Stúdentablaðinu í
fyrra og olli þá nokkrum úlfaþyt
í vissum herbúðum, að mig minn-
ir. Kvæðið er mjög athyglisvert,
og bak við það hlýtur að liggja
mikil vinna og hugsun
Þessa losaralegu umsögn verð
eg láta nægja að sinni, en hefði
þó gjaman viljað segja fleira. —
Eg ráðlegg öllu ljóðelsku fólki að
lesa bókina og lesa hana vel.
Höfundurinn þolir það, og eins
og eg sagði í upphafi, þá er bezt
að hver og einn aðgæti sjálfur,
frá sínum bæjardyrum, hver sé
kominn úti, því að nú er kvatt
dyra í þriðja sinn.
er laust
Það er heiðvriðra manna hátt-
ur að leiðrétta missagnir, þótt
Haukur Snorrason hafi aldi’ei
getað lært það, og mun bað fátítt
í íslenzkri blaðamennsku að menn
séu ausnir auri fyrir það „að hafa
það er sannara reynist“. Haukui’
litli veit líka vel að hann sleppur
vel, þótt sú reglan yrði upptekin.
Slíkar sakir verða seinfundnar á
hann.
Skemmtikvöld
Kveníélags sósalista
Skemmtikvöld Kvenfélages Sósía
verður í Ásgarði annað kvöld,
laugardag, kl. 8.30.
Til skemmtunar verður: Sam-
eiginleg kaffidi’ykkja. — Frásaga:
Elísabet Eiríksdóttir. — Kvik-
mynd. — Félagskonur! Munið að
taka gesti með ykkur. — Nefndin.
Reykjavík.
Óskilafé á Akureyri
1. Hvítur lambhrútur. Mark: Gagnfjaðrað hægra og
stýft vinstra.
2. Hvít lambgímbur. Mark: Hvatt hægra og mark-
leysa vinstra.
3. Hvítur lambhrútur. Mark: Sílt hægra og biti framan
og alheilt vinstra.
4. Hvítur lambhrútur. A4ark: Heilrifað hægra, biti fr.
og sílt og gagnbitað vinstra.
5. Mórauður lambhrútur. Mark: Sneitt framan hægra,
biti aftan og sneiðrifað aftan vinstra.
6. Hvítur lambhrútur. Mark: Sneitt framan hægra,
fjöður framan vinstra og hófbiti undir.
Andvirðis sé vitjað til Baldvins Bencdiktssonar fjail-
skilastjóra Oddagötu 3B.
BÆJARSTJÓRINN.
XX X =
HfiNKIN §g
V0[R-#
AAA
KHfiKI