Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 24.06.1955, Side 1

Verkamaðurinn - 24.06.1955, Side 1
RÆÐA EINARS OLGEIRSSONAR: Eining alþýðunnar eða alræði braskaranna fæst á afgreiðslu blaðsins og hjá Ægi Hjartar- XXXVIII. árg. Akureyri, föstudaginn 24. júní 1955 syni. 21. tbl. Arangur verkfallanna í vor: LANDSMÓT Sjötugur í dag lðjar félag verksmiðjufólks, Akur eyri, gerir nýja kaupsamninga við SÍS og KEA Þann 13. þ. m. var gerður nýr kaupsamningur milli Iðju og SIS og KEA um kaup og kjör í verk- smiðjunum hér á Akureyri. Sam- kvæmt þessum nýja samningi hækkar kaup allverulega, eða frá 10—20%, og gilda samningarnir frá 1. júní sl. Samið var um minnst 3ja vikna orlof í stað 15 daga áður, og verður 3ja vikna frí hjá iðn- verkafólki í sumar. Að öðru leyti en því, sem tekur til beinna kaup- gjaldshækkana og lengra orlofs, eru samningarnir að mestu óbreyttir, svo sem veikindatrygg- ing og fleira. Iðja hafði bundna samninga til Listamaðurinn, Guðmundur Ein- arsson frá Miðdal, hefur um þessar mundir málverkasýningu í Gilda- skálanum á Hótel KEA. Þar er einnig til sýnis myndastytta af Jóni biskupi Arasyni, er listamað- urinn hefur gert að tilhlutan nefnd- arinnar, sem hefur umsjón með minningarlundi Jóns Arasonar að Grýtu í Eyjafirði. Guðmundur Jónsson garðyrkjumaður, er for- maður þeirrar nefndar, og var það einkum fyrir hans tilstilli, að lista- maðurinn tók að sér að gera myndastyttuna, og hefur hann veitt Guðmundi Jónssyni heimild til að ráðstafa frummyndinni eftir að hún hefur verið steypt í bronz. Við opnun sýningarinnar rakti Guðm. Jónsson gang þessa máls og skýrði frá því, að hann myndi afhenda Akureyrarbæ frummynd- ina með því skilyrði, að hún yrði síðan eign háskóla Norðurlands, þegar að því kæmi að hann yrði stofnsettur. Listamaðurinn talaði nokkur orð við þetta tækifæri, og skýrði frá því, að hann hefði ákveðið að gefa Akureyrarbæ málverk. Minnt ist hann í því sambandi Sigurðar Guðmundssonar skólameistara og frú Halldóru Ólafsdóttur. Einnig minntist hann með hlýhug Þor- steins Þorsteinssonar, sem kunnur var af ferðum sínum um hálendi íslands, og einnig að atorku og mannúð á fleiri sviðum. Forseti bæjarstjórnar, Þorsteinn 1. desember 1955, en fyrir tilmæli stjórnar Iðju voru teknar upp við- ræður um nýja samninga, sem leiddu til þess, að launakjör öll voru færð til samræmis við það, sem iðnverkafólk í Reykjavík hef- ur nú. Þeir, sem gerðu samningana fyr- ir hönd Vinnumálasambands SIS voru: Jakob Frímannsson og Arn- þór Þorsteinsson. En fyrir hönd Iðju: Jón Ingimarsson, Hallgrímur Jónsson, Ingibergur Jóhannsson, Hrafnhildur Baldvinsdóttir og Friðþjófur Guðlaugsson. Hinn nýji kauptaxti Iðju er birt- ur á öðrum stað hér í blaðinu. M. Jónsson, þakkaði báðar þessar veglegu gjafir og veitti móttöku málverkinu, sem er forkunnarfögur mynd af Grímsvatnagosi 1934. Sr. Sigurður Stefánsson prófastur á Möðruvöllum mælti einnig nokkur orð við þetta tækifæri. Listaverkasýning þessi verður opin almenningi næstu daga og ágóða af sýningunni verður varið til framkvæmda í minningarlund- inum að Grýtu. Félag raflínumanna, sem stofn- að var á sl. vori, hefur gert sína fyrstu kaup- og kjarasamninga við Rafmagnsveitur ríkisins og gilda þeir frá 1 þ. m. Kaup A-flokks línumanna er kr. 10,98 í grunn, eða 527,04 á viku eftir fjögurra ára starf. Kaup B- flokks línumanna er kr 10,39 í grunn. Vikukaupsmenn hafa þriggja mánaða uppsagnarfrest og allt upp í 6 veikindadaga í sama mánuði. Atvinnurekandi ssr um matarað- drætti og matreiðslu, þegar um matarfélag er að ræða, ennfremur fyrir tjöldum eða dvalarskýlum. Sé ekki matarfélag og dvalið á gsiti- stöðum greiðir atvinnurekandi U.M.F.I. hið 9. í röðinni, fer fram hér á Ak- ureyri 2. og 3. næsta mánaðar. Á mótinu koma fram keppendur frá 12 héraðssamböndum UMFI. Gert er ráð fyrir, að nokkrar þúsundir manna gisti bæinn meðan mótið stendur yfir. Dagskrá mótsins verður í aðal- atriðum á þessa leið: Föstudagur 1. júlí: Kl. 20.00: Starfsíþróttir stúlkna. 1. Laét á borð. Verkefni: Kvöld- boð. Stúlkurnar eiga að leggja á kaffiborð fyrir fjóra og skreyta borðið, leggja sjálfar til borðdúka og borðskraut. 2. Línstrok. Karlmannsbuxur pressaðar og skyrta strokin. 3. Þríþraut. Laugardagur 2. júlí: Kl. 9.00: Lúðrasveit Akureyrar leikur við heimavist M. A., Jakob Tryggvason stjórnar. Búizt til skrúðgöngu á leikvöll. Kl. 9.30: Mótið sett, formaður UMFÍ. Síðan gengið til leikvallar, en komið við á Ráðhústorgi og fáni UMFÍ dreginn að hún. Söngur „Rís þú unga....“. Kl. 10.00: Fánahylling á leik- velli. Þjóðsöngurinn. Kl. 10.15: Hefst keppni í starfs- íþróttum og forkeppni í frjálsum íþróttum. Á mótinu verður keppt í eftirtöldum íþróttagreinum: 1. Frjálsar íþróttir: a) Hlaup: 100 m., 1500 m., 5000 m., víðavangshlaup, 3000 m., boð- hlaup, 4x100 m., 80 m. hlaup kvenna og 4x80 boðhlaup kvenna. b) Stökk: Langstökk, þrístökk, hástökk, stangarstökk, langstökk og hástökk kvenna. c) Köst: Kringlukast, kúluvarp, spjótkast, kúluvarp kvenna. Kl. 12—14: Matarhlé. Kl. 14.00: Lúðrasveitin leikur. Iþróttakeppnin heldur áfram. Keppt í glímu og handknattleik. Kl. 18—20: Matarhlé. Kl. 20.00: Lúðrasveitin leikur við sundlaugina. Sundkeppni: 100 (Framhald á 4. síðu). eðlilegan dvalarkostnað að frá- drengnum 20 kr. á dag. Línumönn- um skal séð fyrir heimakstri eða akstri til næsta bæjar eða kaup- staðar um aðra hvora helgi, þó ekki yfir 100 km. Formaður Félags raflínumanna, Þórir Daníelsson, annaðist samn- ingana fyrir þess hönd. Fékk 33 punda lax Sl. föstudag veiddi Ásgeir Krist- jánsson, bifvélavirki hér í bæ, 33 punda lax í Laxá fyrir Laxamýrar- landi. Ásgeir var 5 tíma að vinna bjöminn. Málverkasýning Guðmundar Einarssonar frá Miðdal Akureyrarbær fær góðar gjafir Félag raflínumanna hefur gerf fyrstu kaupsamninga Jóhann Jónsson skósmiður í dag er Jóhann Jónsson skó- smiður, Krabbastíg 1 hér í bæ,' sjötugur að árum. Hann fæddist á Stóra-Eyrar- landi við Akureyri 24. júní 1885. j Foreldrar hans voru merkishjónin i Þuríður Siéurðardóttir frá Miðkoti í Svarfaðardal og Jón Friðíinnsson, Jósefssonar, Tómassonar í Hvassa- felli. Jóhann ólst upp í föðurhúsum, fyrst á Stóra-Eyrarlandi, en 1892 fluttist fjölskyldan að Harðbak á Melrakkasléttu, og þar bjuggu for- eldrar hans um fimm ára skeið, unz þau fluttust til Akureyrar, og hér hefir Jóhann átt heima síðan. Jóhann lærði ungur að vinna, eins og jafnan hefir verið títt hjá íslenzku alþýðufólki, og af foreldr- um sínum lærði hann jafnframt að bera virðingu fyrir vinnunni og að meta mennina eftir manngildi, en ekki eftir peningagildi. Ungur hóf Jóhann sjómennsku, fyrst á árabát með föður sínum, en síðan á fiskiskútum. Gjörðist hann matsveinn og var mjög eftirsóttur til þess starfa sakir reglusemi og hreinlætis og þess, hve sýnt honum var um að búa til góðan og ljúf- fengan mat. Nokkru síðar nam Jóhann skó- smíði, og hefir hann stundað þá iðn til þessa dags. Jóhann er að eðlisfari mjög félagslyndur, og auk þess varð hann fyrir miklum áhrifum í upp- vextinum á heimili foreldra sinna. Var faðir hans eldheitur verklýðs- sinni og einn af helztu forustu- mönnum í samtökum verkamanna á Akureyri. Voru þeir feðgar með- al stofnenda Verkamannafélaés Akureyrar. Tók Jóhann kappsam- lega þátt í félagsstörfunum og reyndist hinn öruggasti í hverri raun. Skipaði hann sér jafnan í fylkingu hinna framsæknustu og róttækustu félagsmanna. Starfaði hann af miklum áhuga, þar til fé- lagið var lagt niður og Verka- mannafélaé Akureyrarkaupstaðar stofnað. Á því má marka viðsýni Jó- hanns, stéttvísi hans og félags- þroska, að hann var fyrsti hvata- maður að stofnun verkakvenna- félags á Akureyri, og er það eitt nægilegt til þess, að nafni hans sé á lofti haldið. Jóhann hefir jafnan tekið driúg- an þátt í hinum pólitíska félags- skap verkalýðsins á Akureyri og ætið skipað sér þar vinstra meg- in í fylkingu. Starfar hann enn í Sósialistafélagi Akureyrar. Aldrei hefir hann hvikað né látið blekkj- ast af fagurgala né Finnagaldri auðvaldsins. Það má fullyrða, að mesta hjart- ans áhugamál Jóhanns er velferð alþýðunnar, alls hins vinnandi fólks um allan heim, lausn frá kúg- un og þrældómi, fátækt og hvers kyns neyð, en efnaleg velferð og uppbygging hvers kyns menningar. Og hann hefir lengi verið sann- færður um, að sósíalisminn er eina færa leiðin að því marki. En áhugamál Jóhanns eru marg- vísleg, og má þar minna á tilraunir hans með ávaxtarækt, sem eru all- merkilegar, þótt öll aðstaða hans til þeirra sé fremur erfið. Jóhann er kvæntur Aðalbjöréu Heléadóttur úr Eyjafirði (af Hvassafellsætt), hinni ágætustu konu. Þau eiga tvö börn: Jón og Rósu Kristínu, sem bæði eru bú- sett á Akureyri, velmetin og vin- sæl. Á þessum tímamótum mun mörgum verða hugsað hlýtt til Jó- hanns. Hinir fjölmörgu vinir hans og félagar senda honum hlýjar þakkir og árnaðaróskir. Ég vil þakka honum löng kynni, ánægjulegt samstarf og trygga vin- áttu. Og auk þess sem ég óska hon- um hvers kyns velfamaðar og hamingju, óska ég þess, að honum meéi auðnast að lifa það að líta fulínaðarsiéur sósíalismans. Á. S. Frá Húsavík Afli var hér dágóður í apríl og maí, en hefur síðan farið mjög minnkandi. Síðustu dagana hefur aðeins verið róið með handfæri, og varð sæmilega vart til að byrja með, en virðist nú einnig vera bú- ið, svo að mjög fáir bátar róa. — Ágæt veiði hefur verið í kolanet. Stærstu bátarnir: „Hagbarður“, „Smári“ og „Pétur Jónsson“, búast nú á síldveiðar. Atvinna í landi er nokkur, eink- um við ýmiss konar verkun á fiski, einnig við byggingavinnu. — Nýlega er hafin vinna við skóla- hússbygginguna, en á því verki var lítils háttar byrjað á síðastliðnu hausti. Veðrátta hefur verið með af- brigðum góð.

x

Verkamaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.