Verkamaðurinn - 24.06.1955, Side 3
Föstudaginn 24. júní 1955
VERKAMAÐURINN
ORGELSNILLINGURINN
E. Power Biggs
Orgelsnillingurinn E. Pover Biggs
hafði orgel-hljómleika í Akureyrar-
kirkju hinn 12. júní síðastl.
E. Power Biggs er Englendingur
og stundaði tónlist í Konunglega
tónlistarháskólanum í Lundúnum.
Hann er búsettur í New York í
Bandaríkjunum og er mjög kunnur
og dáður listamaður.
Verkefnaskráin var mjög fjöl-
breytt og að sama skapi innihalds-
rík og skemmtileg. Flutti listamað-
urinn lög eftir ýmsa af hinum
miklu orgelmeisturuin 16., 17. og
18. aldar, þá J. P. Sweelinck (1562
—1621), William Selby (um
1700), William Byrd (1542—
1623), Henry Purcelí (1658—
1695), L. Cl. Daquin (1694—
1772) og J. S. Bach (1685—
1750). Auk þess flutti hann eitt
tónverk eftir franska tónskáldið
César Franck (1822—1890) og
annað eftir franska tónskáldið
Jean Alain (1911—1941), hið
síðast talda eftir ósk einhvers
hlustanda.
Hr. E. Power Biggs er ekki að-
eins framúrskarandi vel þjálfaður
orgelsnillingur, heldur er hann
mjög andríkur listamaður og lif-
ir með í hverju tónverki, sem hann
flytur, svo að orgelið fær mál, og
hvert tónskáld talar sínu máli, og
skapeinkenni þeirra koma fram,
eins og þau væru lifandi mitt á
meðal vor. E Power Biggs svipar
að því leyti til píanósnillingsins
Haralds Sigurðssonar, að hann
leggur um fram allt höfuðáherzlu á
skýran flutning og túlkun á anda
höfundanna fremur en á hitt, að
láta áheyrandann falla í stafi yfir
leikni og kunnáttu túlkandans.
Tónverkið sjálft verður aðalatrið-
ið, en maður uppgötvar það eftir
á, að kunnátta og leikni túlkandans
var fullkomin.
Tónverk gömlu meistaranna,
sem flutt voru á þessum hljómleik-
um, eru hvert öðru fegurra, andrík-
ara og göfugra, en þó ber Toccata
og tu£a í d-moll eftir J. S. Bach af
öllum hinum, enda var J. S. Bach
hinn mesti tónsnillingur, sem lifað
hefir. Preludía, fuga og tilbrigði
eftir César Frank er einnig töfra-
fagurt og áhrifamikið verk, og mér
fannst ekkert tónverkið betur flutt
en það.
Litanies eftir J. Alain er samið
af mikilli kunnáttu, en ekki að
sama skapi andríkt, og stakk það
mjög í stúf, þar sem því var skipað
sæti, milli höfuðsnillinganna
César Francks og J. S. Bachs.
Þessir hljómleikar voru einn
hinna merkari tónlistarviðburða
hér á Akureyri. Slíkir listamenn
sem E. Power Biggs eru ávallt au-
fúsugestir. Þeir eru boðberar feg-
urðar, friðar, vináttu og samvinnu
allra þjóða.
En það var allmikill skuggi á
gleðinni yfir komu þessa snillings,
að ekki skyldi vera til boðlegt
orgel — pípuorgel. Koma hans
ætti að vera öllum tónlistarunn-
endum á Akureyri hvöt til þess að
gera nú sameinað rösklegt átak,
svo að drottniné hljóðfæranna
megi sem fyrst skipa öndvegi í Ak-
ureyrarkirkju.
Aðgangur að þessum hljómleik-
um var ókeypis, og samt voru
áheyrendur allt of fáir, hvað sem
valdið hefir.
Á. S.
Khoklov-hisfórían nú alveg úr
sögunni
Hin öfgafulla Khoklov-históría,
sem amerísku hemaðaryfirvöldin í
Vestur-Þýzkalandi hleyptu af
stokkunum fyrir rúmlega ári síðan
með miklum hávaða og gauragangi,
hefur nú fengið sorglegan endi. —
Vesturþýzka fréttastofan, DPA,
sendi þá fregn frá sér 30. maí sl.
að vesturþýzkir dómstólar hafi nú
lokið rannsókn sinni í málinu gegn
hinum tveimur „samsektarmönn-
um“ Khoklovs, austur-Þjóðverjun-
um Kurt Weber og Hans Kuko-
vitsj.
Dómstólarnir komust að þeirri
niðurstöðu, að þessir tveir „agent-
ar“ hefðu ekki haft í ráði að drepa
nokkurn. Þeir hafa verið látnir
lausir og framseldir yfirvöldum
Austur-Þýzkalands.
Bandaríkjamenn hleyptu Khok-
lov-málinu af stokkunum með yfir-
lýsingu frá Khoklov, sem sagði að
hann hefði verið sendur til Vestur-
Þýzkalands til þess að myrða rúss-
neska útlagaleiðtogann Okolovitj.
Hann hélt því fram sjálfur að hann
væri „kapteinn í Rauða hernum“
og Bandaríkjamenn lögðu fram
sígarettukveikjara, sem í rauninni
var skammbyssa, sem skotið var
úr cýankaliumeitruðu skeyti með
hjálp rafhlöðu sömu tegundar og
þeirrar, sem nokkrum mánuðum
áður hafði verið byrjað að sýna í
amerísku superman-myndaheftun-
um.
Ameríkumenn tóku Khoklov
með sér, en hann gleymdist fljótt
þar eð allir skyni gæddir menn
hlógu aðeins dátt að þessari
bjánalegu og klaufalegu históríu
hinna westrænu supermanna, og
þegar það kom fljótt í ljós að
margar upplýsingar, sem auðvelt
var að rannsaka, reyndust upp-
spuni, svo sem heimilisföng, sem
hann gaf upp í Wien.
Vestur-Þjóðverjar fengu leyfi til
að halda hinum tveimur „samsekt
armönnum" hans með þeim ömur-
legu endalokum, sem fyrr var frá
sagt.
Eins og lesendur afturhaldsblað-
anna hér, málgagna hernámsflokk-
anna, muna, þá gleyptu þau auðvit-
að samstundis „cýankaliumkúlum-
ar“.
Sumaráætlun Flug-
élags fslands á innan-
landsleiðum
Sumaráætlun Flugfélags íslands
á innanlandsflugleiðum gekk í gildi
25. maí. Verður hún með svipuðu
sniði og í fyrra, nema hvað flug-
ferðum til Egilsstaða verður fjölg-
að til muna. Er ráðgert að fljúga
jangað alla virka daga. Þá verða í
fyrsta skipti í sumar hafnar reglu-
bundnar flugferðir milli Reykja-
víkur og Grímseyjar með viðkomu
á Akureyri í báðum leiðum. Hefj-
ast þessar ferðir um miðjan júní,
og er ráðgert að fljúga á sunnudög-
um. Verður fjögurra tíma viðstaða
Grímsey, og gerir það mönnum
kleyft að skoða sig um á eynni og
njóta náttúrufegurðar norðan við
heimskautsbaug. .
Milli Akureyrar og Reykja-
víkur verða farnar 18 ferðir t viku:
morgun-, síðdegis- og kvöldferðir
fjóra daga vikunnar og morgur,- og
kvöldferðir þrjá daga. Vestmanna-
eyjaferðir verða tvær alla virka
daga, en ein ferð á sunnudögum.
Eins og áður er getið verða flug-
ferðir til Egilsstaða alla virka daga,
og verða tvær þeirra um Akureyri
og ein um Hornafjörð. Þá verður
flogið til ísafjarðar alla daga, að
sunnudögum undanteknum.
Til Hornafjarðar og Sauðár-
króks verða þrjár ferðir í viku
hverri og tvær ferðir til eftirtaldra
staða: Flateyrar, Þingeyrar, Pat-
reksfjarðar, Blönduóss, Kópaskers,
Siglufjarðar og Fj gurhólsmýrar.
Vikulegar ferðir verða farnar til
Bíldudals, Hólmavíkur, Sands,
Kirkjubæjarklausturs, Skógasands
(um Vestmannaeyjar) og Hellu
(um Vestmannaeyjar).
Flugvélar Flugfélags Is.'ands
munu halda uppi áætlunarflugi til
20 staða utan Reykjavíkur í sumar,
og munu þær verða á flugi 142
klu’kkustundir að jafnaði á viku.
Sökum síaukins kostnaðar við
allan rekstur flugvéla félagsinS
hefur orðið að hækka fargjöld á
innanlandsflugleiðum, en þau hafa
haldist svo til óbreytt undanfarin
fimm ár. Gekk fargjaldahækkunin
í gildi 25. maí. Sá háttur verður
jafnframt upp tekinn að veita 10%
afslátt af farmiðum séu þeir keypt-
ir fram og aftur samtímiss, Aður
var aðeins veittur slíkur afsláttur
á leiðinni Reykjavík-Vestmanna-
eyjar—Reykjavík. Flugfarmgjöld
hjá Flugfélagi Islands munu hins
vegar haldast óbreytt.
Skipuð þriggja manna
nefnd til að annast
rekstur sjúkraflugs
á Norðurlandi
Á síðastliðnu sumri afhenti
Slysavarnafélag Islands slysavarna
deildunum á Norðurlandi að gjöf
sjúkraflugvél þá, er það hafði
starfrækt að undanförnu með
Bimi Pálssyni flugmanni, en þetta
er 3ja sæta Austervél. Var htnni
flogið hingað norður og hefur hún
síðan verið geymd í skýlinu á Mel-
gerðismelum. Af ýmsum ástæðum
hefur vélin ekki verið starfrækt
fram að þessu hér nyrðra. En ný-
lega hafa slysavarnadeildirnar,
Rauða kross deild Akureyrar og
Flugráð útnefnt 3 menn á Akur-
eyri til að undirbúa og annast
rekstur sjúkraflugs hér. I nefndinni
eru: Gísli Olafsson, frá Rauða
krossinum, Arni Bjarnarson, frá
slysavarnadeildunum, og Kristinn
Jónsson, frá Flugráði.
H.F. EIMSKIPAFELAG ISLANDS
ArSur til hluthafa
Á aðalfundi H.f. Eimskipafélags íslands hinn 11. júní
1955, var samþykkt að greiða 4% — fjóra af hundraði —
í arð til hluthafa fyrir árið 1954.
Arðmiðar verða innleystir á aðalskrifstofu félagsins
í Reykjavík svo og hjá afgreiðslumönnum félagsins um
land allt.
STJÓRNIN.
Akureyrarbær.
Simdlaugarbygging.
TILKYNNING
Hinn 31. maí 1955 framkvæmdi notarius publicus í
Akureyrarkaupstað útdrátt á skuldabréfum fyrir 7%
láni bæjarsjóðs Akureyrar vegna sundlaugarbyggingar.
Þessi bréf voru dregin út:
Litra A: no. 11, 13, 20.
, Litra B: no. 5, 11, 32, 34, 41, 46, 53, 69, 71, 83,
86, 87, 92.
Litra C: no. 3, 5, 8, 15, 24, 27, 39, 52, 65, 69, 74,
81, 89, 94, 96, 97, 118, 119, 128, 132,
138, 150, 152, 163, 164, 173, 174, 191,
198, 199.
Hin útdregnu bréf verða greidd á skrifstofu bæjar-
gjaldkerans á Akureyri þann 1. október næstk.
Bæjarstjórinn á Akureyri,
11. júní 1955.
Steinn Steinsen.
Orðsending frá Iðju
Allt verksmiðjufólk, sem vinnur í verksmiðjum S.Í.S.
á Akureyri skal á það minnt að allt sumarfríið skal
veitt í júlímánuði, samkv. 13. grein samningsins.
Ennfremur ber að greiða orlofsfé áður en starfsfólk
fer í frí. — Félagið telur óheimilt að taka skatta og út-
svör af orlofsfé.
STJÓRN IÐJU.
Nokkra menn vantar
á togara til saltfiskveiða á heimamiðum og við
Grænland.
Upplýsingar á skrifstofu vorri.
Utgerðarfélag Akureyringa h.f.
Sími 1592.
Afgreiðslur okkar eru fluttar
í SKIPAGÖTU 14B.
Póstbáturinn
Sími 1088.
Pétur &; Valdemar h.f.
Simi 1917 og 2017.
Afgreiðum Shell-benzín og diesel olíur til kl. 11 e. h.
Munið að öruggustu vöruflutningarnir eru með
Pétri & Valdemar.